Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2012, Blaðsíða 4
Inntökupróf í lagadeild árið 2014
n Fall á jólaprófum í lagadeild HÍ er 65 til 70 prósent
R
óbert Ragnar Spanó, forseti
lagadeildar Háskóla Íslands,
segir í samtali við blaðamann
DV að stefnt sé að því að taka
upp inntökupróf við deildina haustið
2014. Mikið hefur verið rætt um
nauðsyn inntökuprófa við nýskrán-
ingu lögfræðinema en fram að þessu
hefur ekkert verið gefið upp um
tímasetningar í þeim efnum.
Á dögunum greindi DV frá því að
til greina kæmi að leggja almennt
inntökupróf fyrir alla umsækjendur
Háskóla Íslands. Þessa hugmynd
viðraði Jón Atli Benediktsson, að-
stoðarrektor HÍ, í samtali við blaða-
mann DV en tók þó skýrt fram að
ekki lægi fyrir endanleg ákvörðun
um málið. Almenn ánægja ríkir
með inntökuprófið sem lagt var fyrir
í hagfræðideild háskólans í fyrsta
skipti nú í ár.
Þó ekki liggi fyrir endanleg
ákvörðun um form prófsins sem not-
ast verður við í lagadeildinni segir
Róbert að það muni að hluta byggja
á almennu prófi sem þróað verður
af miðlægri stjórnsýslu háskólans.
„En við myndum jafnframt vera
með einhver viðbótarpróf sem prófa
þau atriði lögfræðinnar sem við telj-
um nauðsynlegt að prófa úr áður en
nemendur verða teknir inn í okkar
deild. Þannig má segja að þetta sé
blanda af almennu prófi og einhvers
konar sértæku lögfræðiprófi.“
Róbert segir markmið inntöku-
prófsins tvíþætt. Annarsvegar að
sporna við því gríðarlega brottfalli
sem loðað hefur við lagadeildina og
hinsvegar að auka gæði námsins.
Samkvæmt Róberti er fall nemenda
á jólum, í hinni svokölluðu almennu
lögfræði, að jafnaði um 65–70 pró-
sent.
olafurk@dv.is
4 Fréttir 11. júlí 2012 Miðvikudagur
Kíktu á heimasíðu okkar og skoðaðu matseðilinn
!
Einn vinsælasti Kebab staðurinn á höfuðborgarsvæðinu!
www.alamir.is Hamraborg 14 a 200 Kópavogi Sími 5554885
Virkir dagar:11–21 Helgar:13–21
Hugsunarleysi
í umferðinni
Talsvert er um stöðubrot á höf-
uðborgarsvæðinu og stundum á
lögreglan um fátt annað að
velja, en að láta fjarlægja öku-
tæki á kostnað eigenda. Þetta á
ekki síst við um miðborgina, en
meðfylgjandi mynd var einmitt
tekin þar á dögunum. Í tilkynn-
ingu frá lögreglunni segir að í
þessu tilviki komi bíllinn, sem er
fremst á myndinni, í veg fyrir að
gangandi vegfarendur geti not-
að gangstéttina eins og til er ætl-
ast. Hinir sömu verða því að fara
út á akbrautina og meðfram
bílnum til að komast leiðar
sinnar og það skapi hættu. „Því
miður er tillitsleysi þessa öku-
manns ekkert einsdæmi,“ segir
lögreglan.
Skarst illa
í andliti
Aðfaranótt mánudagsins í
síðustu viku var lögreglunni í
Vestmannaeyjum tilkynnt um
alvarlega líkamsárás á veitinga-
staðnum Lundanum. Þar skarst
maður illa í andliti eftir að hafa
verið sleginn með flösku. Hann
var fluttur á sjúkrahús þar sem
gert var að sárum hans. Vitað er
hver er gerandi í þessu máli og
er málið í rannsókn, að sögn
lögreglu. Um helgina handtók
lögreglan aðila sem var í átökum
í bænum. Hann brást illa við og
veitti lögreglumönnum
mótspyrnu og sparkaði í þá.
Hann var vistaður í fanga-
geymslu. Hann má búast við
kæru vegna þessa. Á sunnu-
daginn kærði stúlka karlmann
fyrir að hafa veitt sér áverka
þegar hann sló hana. Bæði þessi
mál eru í rannsókn hjá lög-
reglunni.
FÍKNIEFNI SELD
Á FACEBOOK
n Fíkniefni ganga kaupum og sölum innan íslenskrar Facebook-grúppu
Þ
Mikið úrval fíkniefna er
til sölu í lokaðri grúppu
á íslenskri Facebook-
síðu. Grúppan, sem heit-
ir Rebels, er leynileg en
er með um 100 meðlimi sem fá
einungis inngöngu ef kerfisstjórinn
þekkir til viðkomandi og treystir.
Lögreglan án vitneskju
Samkvæmt heimildum DV hef-
ur grúppan verið til í um það
bil tvo mánuði án þess að lög-
reglan hafði um hana vitneskju,
en lögreglan fékk fyrst frétt-
ir af henni hjá blaðamanni DV.
Svo virðist sem meðlimir
grúppunnar hafi treyst á að lög-
reglan myndu ekki fá vitneskju
um hana þar sem einstaklingar
bjóða fíkniefni til sölu undir
fullu nafni og símanúmeri og oft-
ar en ekki fylgir mynd af við-
komandi með stöðufærslunni.
Mogadon kallað Morgunblaðið
Á meðal þeirra fíkniefna sem
kaupa má á síðunni er amfetamín,
maríjúana, hass, spítt, mogadon og
kókaín. Oft er notast við slangur-
yrði yfir nöfn fíkniefnanna, og sem
dæmi er lyfið mogadon kallað
Morgunblaðið og amfetamín femmi.
Stundum er boðið upp á
heimsendingu á eiturlyfjunum og
einnig mátti sjá óskað sérstaklega
eftir fíkniefnum til kaups fyrir sér-
stök tilefni eins og Bestu útihátíðina
sem haldin var fyrir skömmu. Einnig
má sjá færslu frá ungum manni sem
óskar eftir að kaupa fölsuð skilríki.
Samkvæmt heimildum DV eiga
stofnendur síðunnar að tengjast mót-
orhjólasamtökunum Black Pistons.
Þeir sem eru mest áber-
andi á síðunni eru ungir karl-
menn en einnig má sjá ungar kon-
ur óska eftir eiturlyfjum til kaups.
„Helvíti kalt“
„Maður hefur náttúrulega séð og
heyrt af einstaklingum, sem við
erum hvort er eð að vinna með,
varðandi sölu og dreifingu, sem
eru að nota fésbókarsíðuna og þá
í þessum lokaða vinahópi. Eins
hafa menn verið nýta síðuna í
innheimtur og annað þvíumlíkt,
en að það sé sérstök síða sem er
eingöngu notuð til sölu á efnum,
það hef ég ekki heyrt um áður og
finnst það helvíti kalt verð ég að
segja,“ segir Bjarni Ólafur Magn-
ússon, fulltrúi í fíkniefnadeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu um grúppuna.
Hann segir að þeir sem selji eit-
urlyf noti allar mögulegar leiðir til
að koma efnunum í umferð og séu
yfirleitt mjög frjóir í því að virkja
nýjar leiðir. „Það er alltaf okkar,
í raun og veru, að bíta í hælana á
þeim,“ bætir hann við.
Meðvitaðir um símhleranir
Aðspurður hvort fjölgun símhler-
ana geti verið ein ástæða þess
að menn nýti sér Facebook til að
selja eiturlyf, segir Bjarni Ólafur
það vera möguleika. „Þó er í raun
ekki meira um að lögregla hleri
síma grunaðra einstaklinga, held-
ur eru einstaklingar orðnir mun
meðvitaðri um að hleranir eigi sér
stað. Það gæti verið ein ástæða,
en eins og ég sagði áðan þá eru
þessir einstaklingar mjög frjóir
og eru jafnvel að taka upp leið-
ir sem þeir hafa heyrt af erlendis
í sambandi við ræktanir og ann-
að. Það eru til dæmis ræktunar-
vefir á Facebook og YouTube þar
sem menn eru að miðla þekkingu
sinni og reynslusögum og jafn-
vel að bjóða afurðir, fræ, búnað og
annað til sölu og helst heildsölu.“
Bjarni Ólafur segir að lögreglu-
menn sem fara í húsleitir hafi
orðið varir við að menn sem tengj-
ast ræktunum hérlendis séu í slík-
um grúppum og þá tengdum er-
lendum aðilum. „En varðandi
beina sölu og dreifingu á efnum al-
mennt og með þetta fjölbreytt efni,
það hef ég aldrei heyrt um áður. En
það er verðugt verkefni að reyna
að loka fyrir þetta svo að þetta fari
ekki að verða eitthvað „trend“.“
Af Facebook Skjáskot af Facebook þar sem má sjá einstaklinga bjóða fíkniefni til sölu.
„Það er
verð-
ugt verkefni að
reyna að loka
fyrir þetta svo
þetta fari ekki
að verða eitt-
hvað „trend“
Inntökupróf Róbert segir að markmiðið
sé meðal annars að minnka brottfall og
auka námsgæði.