Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Page 4
„Ég er bara
klár í slaginn“
Alda vill stytta vinnuvikuna
n Sendi upplýsingar á stéttarfélögin n Viðbrögðin góð
L
ýðræðisfélagið Alda sendi ný
verið flestum stéttarfélögum
á landinu upplýsingar um
hugmyndir félagsins varð
andi styttingu vinnuviku íslenskra
launþega. Félagið benti á að á Ís
landi ynni fólk lengur en á Norður
löndunum og einna mest saman
borið við önnur ríki Evrópu.
Félagið telur að verkalýðsfélög
hafi ekki beitt sér af nógu miklum
krafti þegar kemur að vinnutíma
launþega.
Kristinn Már Ársælsson, stjórn
armaður Öldu, segir viðbrögðin
hafa verið góð. „Það er mikið um
sumarfrí en við höfum fengið ein
hver viðbrögð. Flest viðbrögð
in eru frekar jákvæð,“ segir hann
og bætir við að þegar sé byrjað að
bóka fundi með stéttarfélögunum
til að kynna hugmyndirnar frekar.
Hugmyndirnar felast meðal
annars í því að venjuleg vinnuvika
verði stytt í 30 til 32 vinnustundir
á tveggja ára tímabili og að aukin
framleiðni skili sér í fleiri frístund
um hjá vinnandi fólki.
Upplýsingarnar voru meðal
annars sendar á Samtök atvinnu
lífsins, Viðskiptaráð og nokkur
ráðuneyti ríkisins auk stéttarfélaga
víðsvegar um landið. „Við erum
fyrst og fremst að reyna að ná til
stéttarfélaganna. Það eru þau sem
hefðu átt að keyra þetta áfram en
þau hafa ekki verið að setja þetta
á oddinn,“ segir hann. „Það voru
mikil vonbrigði í kreppunni, þegar
ekki var möguleiki á að ná fram
hækkunum kom á óvart að það
hafi ekki verið þrýst á þetta.“ Að
mati félagsins er stytting vinnu
dags ekki nýtt fyrirbæri, heldur
gömul og gild leið til að auka lífs
gæði almennings.
adalsteinn@dv.is
4 Fréttir 20.–22. júlí 2012 Helgarblað
Köttur með
vesen
Lögreglunni á höfuðborgarsvæð
inu barst aðfaranótt fimmtudags
tilkynning vegna kattar sem gert
hafði sig heimakominn í versl
un. Starfsmönnum í verslun
inni þótti dýrið hafa komið sér
heldur vel fyrir en samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu voru
starfsmenn í vandræðum með
köttinn sem komist hafði inn í
verslunina, krækt sér í harðfisk og
sest að snæðingi. Litla hjálp var
þó að fá hjá lögreglunni og var
starfsmönnum tjáð að þetta væri
ekki verkefni lögreglu. Þeim var
þess í stað vísað á meindýraeyði
eða heilbrigðiseftirlit.
M
aður er náttúrulega að
fara í samkeppni við
fyrrverandi samstarfs
menn,“ segir athafna
maðurinn Jóhannes
Jónsson, áður kenndur við Bónus.
Jóhannes opnar fyrstu matvöru
verslun Icelandkeðjunnar hér
lendis í næstu viku. Verður hún við
Engihjalla í Kópavogi. Jóhannes er
enginn grænjaxl þegar kemur að
verslunarrekstri en hann stofnaði
eina fyrstu lágvöruverslun Íslands,
Bónus, ásamt syni sínum, Jóni Ás
geiri Jóhannessyni, árið 1989. Nú
er staðan önnur og allt lítur út
fyrir að hörð samkeppni verði á
milli Jóhannesar og Bónuss. Sam
hliða Iceland opnar Jóhannes
netverslun með matvöru auk
þyngri og umfangsmeiri varnings
til heimilisreksturs. Verður hún sú
fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Hörð samkeppni
Jóhannes segir að hann upplifi ekk
ert sérstaklega blendnar tilfinningar
nú þegar hann er að fara í samkeppni
við verslunarkeðju sem eitt sinn var
í hans eigu. „Nei, nei. Ég hef aldrei
verið svo tilfinninganæmur að það sé
eitthvað mál.“ Ljóst er að samkeppn
in verður ansi hörð á íslenskum lág
vörumarkaði. Á meðal samkeppnis
aðila Iceland verða Bónus, Krónan
og Kostur. Sá síðastnefndi er í eigu
Jóns Geralds Sullenberger sem hefur
eldað grátt silfur við Bónusfeðgana,
Jóhannes og Jón Ásgeir, í áraraðir.
Rekstrarfyrirkomulag Iceland
verður svipað því sem Jóhann
es beitti í Bónus. „Ég nota það sem
gengið hefur vel og bæti svo við
það sem mér hefur fundist á vanta.“
Þar að auki verða gamlir samstarfs
félagar með í ráðum. „Hér er ég með
tíu manns sem hafa unnið með mér í
mörg ár. Það er mikil þekking hér um
borð.“
Fullur orku
„Þetta er bara hlutafélag sem við
eigum tveir, ég og Malcolm,“ segir
Jóhannes um fjármagnið á bak
við Iceland á Íslandi. Þar á hann
við Bretann Malcolm Walker sem
stofnaði Iceland árið 1970. Walker
hætti afskiptum af Iceland árið
2001 en sneri aftur árið 2005 þegar
Baugur eignaðist fyrirtækið, svo
félagarnir þekkjast vel frá fyrri tíð.
Í febrúar á þessu ári keypti Walker
svo Iceland fyrir jafnvirði 300 millj
arða króna.
„Ég er fullur orku og við góða
heilsu í dag. Ég er bara klár í
slaginn,“ segir Jóhannes og vísar
því á bug að hann sé orðinn of
gamall fyrir hina hörðu samkeppni
matvöruverslana. Eins og kunnugt
er greindist Jóhannes með krabba
mein árið 2010 en hefur nú náð
fullum bata. Blaðamaður spurði
Jóhannes að lokum hvort fólk ætti
áfram að kalla hann Jóhannes í
Bónus. „Nei, ég held þið ættuð
bara að kalla mig Jóhannes í
Iceland.“
Klár í slaginn Jóhannes Jónsson hefur marga fjöruna sopið á 72 árum. Hann er enn í fullu fjöri og opnar nýja verslun í næstu viku.
n Vill láta kalla sig Jóhannes í Iceland n Fullur orku og við góða heilsu
„Nei, ég held þið
ættuð bara að
kalla mig Jóhannes í
Iceland.
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
M
y
n
d
Jó
n
a
ta
n
G
r
ét
a
r
SS
o
n
Þrír nýir skrif-
stofustjórar
Reykjavíkurborg hefur ráðið þrjá
nýja skrifstofustjóra til starfa í
tengslum við breytingar á mið
lægu stjórnkerfi borgarinnar.
Helga Björg Ragnarsdóttir hef
ur verið ráðin skrifstofustjóri skrif
stofu borgarstjóra og borgarritara,
Hrólfur Jónsson hefur verið ráð
inn til að gegna stöðu skrifstofu
stjóra skrifstofu eigna og atvinnu
þróunar og Óskar Sandholt hefur
verið ráðinn skrifstofustjóri þjón
ustu og rekstrar. Munu nýir skrif
stofustjórar taka til starfa 1. sept
ember. Í tilkynningu frá borginni
kemur fram að Capacent hafi haft
umsjón með ráðningarferlinu og
fjölmargar umsóknir borist frá
hæfum einstaklingum.
Meiri frítími Félagið vill að aukin fram-
leiðni skili sér í fleiri frístundum hjá vinnandi
fólki. Mynd SiGtryGGur ari JóHannSSon