Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Side 23
Börn myrt í Sýrlandi D awood Rajiha, varnar­ málaráðherra Sýrlands, og Assef Shawkat, mágur for­ seta landsins, féllu á mið­ vikudaginn í sprengingu í byggingu ríkisstjórnarinnar. Borg­ ara styrjöld ríkir nú í Sýrlandi og eru þetta hæst settu meðlimir ríkis­ stjórnarinnar sem fallið hafa frá því að átök hófust. Sýrlenska ríkissjón­ varpið greindi frá því að sprengingin hafi orðið á fundi ráðherra og yfir­ manna hersins. Um sextán mánuðir eru síðan átök hófust í Sýrlandi og hatramm­ ir bardagar hafa undanfarna daga átt sér stað fyrir utan Damaskus þar sem forsetinn, Bashar al­Assad, er með höfuðstöðvar sínar. Fleiri létust í árásinni en það voru fyrst og fremst starfsmenn í byggingunni og að­ stoðarmenn. Óhugnanleg fjöldamorð „Þessi var tekinn af lífi. Hann var óbreyttur borgari,“ segir ónefndur aðgerðarsinni þegar hann bendir á lík í myndbandi CNN. Myndbandið var tekið af andófsmönnum í Sýr­ landi og þar má sjá fjölda líka liggj­ andi við byggingu í landinu. „Þetta var frændi hans, hann reyndi að bjarga honum,“ segir hann og bend­ ir á þann sem liggur látinn við hlið hins. Hinir látnu voru 45 alls. Myndbandið er eitt sárafárra heimilda sem erlendir fjölmiðla­ menn hafa aðgang að, enda hefur sýrlenska ríkisstjórnin bannað öll­ um erlendum miðlum að starfa í landinu. Mennirnir í myndbandinu tala um fjöldamorð sem framin hafi verið af hálfu hermanna ríkisstjórn­ arinnar. Á meðal hinna látnu í mynd­ bandinu má sjá litla stúlku, sem er með skotsár á enninu. Tekin af lífi hvert á fætur öðru Í myndbandinu er því lýst hvernig hermenn ríkisstjórnarinnar hafi far­ ið hús úr húsi í leit að vopnum. Þeir hafi skipt fólkinu í herbergi – konur í eitt, karlar í annað – og spurt ítrekað hvar vopn væru að finna. Þegar þeir fengu þau svör að fólkið vissi ekki um nein vopn, hafi þeir byrjað að taka þau af lífi, eitt og eitt. Að endingu höfðu öryggissveitir ríkisstjórnarinn­ ar tekið 45 af lífi. Þetta umrædda fjöldamorð er ekki það eina sem hefur átt sér stað í landinu en í síðustu viku voru til að mynda um 200 tekin af lífi í þorpi í landinu. Það er ljóst að hér er um borgarastyrjöld að ræða þar sem að líf óbreyttra borgara er einskis metið. Rússar og Kínverjar stöðva tillögur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur haft málið til umfjöllunar en Rússar og Kínverjar standa nú í vegi fyrir því að ályktun um refsi­ aðgerðir gegn Sýrlandi verði sam­ þykktar. Rússar vilja ekki ganga lengra en að hvetja báða aðila í deilunni til þess að hætta öllu of­ beldi. Kínverjar og Rússar hafa fellt tvær ályktanir með neitunar­ valdi sínu. Íslenska ríkisstjórnin hefur lýst yfir stuðningi sínum við tillögurnar og vill að hafnar verði refsiaðgerðir gegn sýrlensku rík­ isstjórninni. Borgarastyrjöldin á sér rætur í mótmælum þar í landi, en þá var krafist stjórnarfarslegra endurbóta. Ríkisstjórnin brást við af hörku. Núverandi forseti lands­ ins, al­Assad hefur verið við völd frá árinu 2000. Hann tók við af föð­ ur sínum sem hafði verið við völd frá árinu 1971. Erlent 23Helgarblað 20.–22. júlí 2012 Símon Örn Reynisson blaðamaður skrifar simon@dv.is n Miskunnarlausar aftökur n Stúlka myrt þegar hermenn leituðu að vopnum Látinn Dawood Rajiha, varnarmála- ráðherra Sýrlands lét lífið í sprengingu á miðvikudaginn. mynd ReuTeRs „Þetta var frændi hans, hann reyndi að bjarga honum. Borgarastyrjöld Hér logar í Homs-borg í Sýrlandi. Borgarastyrjöld geisar í landinu. mynd ReuTeRs Hraunborgir eru í 70 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu og eru í næsta nágrenni við margar helstu náttúruperlur landsins, þar er einnig kjörin aðstaða til útivistar. Eigum til ráðstöfunar nokkrar sumarbústaða- lóðir á einu vinsælasta sumarbústaðasvæði landsins Að Hraunborgum í Grímsnesi við Kiðja- bergsveg eru nokkrar 5000m2 lóðir til leigu. Heitt og kalt vatn er á svæðinu og eru lóðirnar tilbúnar til afhendingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.