Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Blaðsíða 32
32 20.–22. júlí 2012 Helgarblað Stórafmæli Harpa Hrönn Frankelsdóttir vefstjóri hjá Múrbúðinni 40 ára 20. júlí 61 ára 21. júlí Gamanleikarinn Robin Williams, en hann fékk óskarsverðlaunin fyrir hlutverk í Good Will Hunting. 20 ára 22. júlí Selena Gomez, en hún er ein öfundaðasta kona heims því hún er kærasta Justins Bieber. 32 ára 20. júlí Brasilíska nærfatamódelið hjá Victoria ś Secret, Gisele Bundchen. 20. júlí 1198 – Bein Þorláks Þórhalls- sonar biskups tekin upp og lögð í skrín í Skálholti. 1627 – Guðbrandur Þorláksson biskup á Hólum lést eftir 56 ár í embætti. Hann var dugmikill og sat lengur í embætti biskups en nokkur annar. 1783 – Eldmessa Jóns Stein- grímssonar sungin á Kirkjubæj- arklaustri. Stöðvaðist þá framrás hrauns- ins skammt þaðan frá og var þakkað trúarhita prestsins. 1798 – Þeir fáu menn sem sótt höfðu Alþingi fóru heim frá Þing- völlum vegna slæms aðbún- aðar. Þar með lauk þinghaldi á Þingvöllum. 1946 – Áætlunarbifreið hvolfdi við Gljúfurá í Borgarfirði og kom upp eldur í henni. Um borð voru 22 farþegar og slösuðust fimmt- án þeirra. 1968 – Opnuð var vatns- leiðsla sem lögð var til Vest- mannaeyja frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum. 1969 – Appollo 11 lenti giftusam- lega á tunglinu. 1973 – Stofnfundur Flugleiða hf. var haldinn og sameinuð- ust Flugfélag Íslands og Loftleið- ir þá í eitt félag. 1989 – Hvalveiðum Ís- lendinga lauk um sinn er síðasti hvalur samkvæmt vísindaáætlun var veiddur. 21. júlí 1456 – Umsátrið um Belgrad. 1808 – Sveitalögreglu Ís- lands komið á með tilskip- un og hreppstjórar gerðir að lögregluþjónum. 1846 – Sigurður Breiðfjörð, eitt helsta rímnaskáld nítjándu aldar, lést í Reykjavík 48 ára að aldri. Hann var vinsæll af alþýðu, en hafði sætt mikilli gagnrýni fyrir rímnakveðskapinn. 1914 – Sigurður Eggerz varð Ís- landsráðherra og sat í tíu mánuði. 1936 – Á Breiðdalsvík rak á land sverðfisk. 1963 – Skálholtskirkja vígð við hátíðlega athöfn. Voru þar saman komnir áttatíu prestar, pró- fastar og biskupar. 1987 – Héðinn Steingríms- son vann heimsmeist- aramót barna 12 ára og yngri í skák. 22. júlí 1245 – Kolbeinn ungi Arnórsson, höfðingi af ætt Ásbirninga, lést um 37 ára að aldri. 1581 – Hundrað ára stríð- ið hófst: Norðurhéruð Niður- landa sóru afneitunareiðinn og sögðu sig úr lögum við Filippus II Spánarkonung. 1910 – Zeppel- in-loftfarinu var flogið í fyrsta skipti. 1939 – Tveir þýsk- ir kafbátar komu til Reykjavíkur. Þetta voru fyrstu kafbátar sem komu til Íslands. 2011 – Mannskæð hryðju- verk framin í Noregi, fyrst með sprengjuárás á stjórnarbyggingar í Ósló og skömmu síðar með skotárás á samkomu ung- mennahreyfingar í Útey. 76 féllu. Öfgamaðurinn Anders Behring Breivik var handtekinn vegna árásanna. Merkis- atburðir Var sportstelpa og lestrarhestur H arpa Hrönn Frankels- dóttir er fædd og upp- alin í Reykjavík. „Ég er alin upp rétt hjá KR í Vesturbænum, ég var mikið í fótbolta og öðrum íþróttum, algjör sportstelpa. Ég var lestrarhestur líka, þannig að á milli þess sem maður var að lesa spilaði maður fótbolta,“ segir Harpa um æskuárin í KR- hverfinu. Mikil samheldni í hverfinu Harpa fór í Melaskóla og síð- an í Hagaskóla en að eigin sögn þótti henni ofboðslega skemmtilegt að læra og búa í Vesturbænum. „Þetta er rót- gróið hverfi, skemmtilegt fólk og ég átti marga vini. Sam- heldnin var mikil í hverfinu.“ Harpa ákvað að fara í MH en ekki MR eins og venjan er oft hjá Vesturbæingum. „Systur mínar fóru í MH þannig að ég ákvað að fara í þann skóla sem er með áfangakerfi, sem mér þótti spennandi. Fór ég á félagsfræðibraut og síðan að læra stjórnmálafræði í HÍ með lögfræði í vali.“ Eftir menntaskólagönguna fór Harpa til náms í Essex-há- skóla í Bretlandi en þar lagði hún stund á Evrópufræði. Svo var ferðinni heitið aftur heim til Íslands, þar sem Harpa fór í mastersnám í stjórnsýslufræð- um við Háskóla Íslands. Pabbi skírður eftir norðurpólfara Sagan á bak við nafn föður Hörpu, Frankel, er skemmtileg: „Sænskur leiðangur fór á norð- urpólinn í loftbelg árið 1897 og einn leiðangursmannanna hét Knut Frænkel. Þetta var stórfrétt á sínum tíma.“ segir Harpa. „Síðan spurðist ekkert frekar til leiðangursmanna fyrr en lík þeirra fundust árið 1930, sama ár og pabbi fæddist. Þetta kom í fréttum á sínum tíma svo amma hefur heyrt nafnið Frankel og skírði son sinn eftir honum.“ Harpa vinnur nú sem vef- stjóri hjá Múrbúðinni. Áður hefur hún unnið sem verk- efnastjóri hjá Mími-símenntun og Ferðamálastofu, og sér- fræðingur hjá ríkisskattstjóra. Þá vann hún við sérverkefni fyrir sendiráð Íslands í Ósló í Noregi árið 2003 og einnig var hún lærlingur hjá Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB gagn vart Íslandi og Noregi árið 2003. Fjölskylda Hörpu n Foreldrar: Ágúst Frankel Jónasson, f. 21.7. 1930 Helga Birna Jónasdóttir, f. 17.10. 1932 – d. 22.1. 1979. n Systkin: Dagbjört Kristín Ágústsdóttir, f. 10.2. 1954 Jónas Ingi Ágústsson, f. 9.3. 1955 Unnur Svava Ágústsdóttir, f. 9.5. 1956 Svala Ágústsdóttir, f. 14.10. 1959 Eplakaka með rúsínum n Með þeyttum rjóma eða ís G amla góða eplakak- an er alltaf góð. Þessi er aðeins öðruvísi því hún er með rúsínum sem gefa henni aðeins meiri sætu. Flott í kökuboðið eða sem eftirréttur. Eplakaka með rúsínum n 125 gr smjör n 125 gr sykur n 1 egg n 125 gr hveiti n 2 tsk. lyftiduft n 2–3 epli n 1/2 dl rúsínur n Kanill og sykur Þeytið sykur og egg vel saman, bætið smjöri út í og blandið vel. Bætið síðan við hveiti og lyftidufti, síðast rúsínum (má alveg sleppa fyrir þá sem ekkert eru fyrir rúsínur). Deigið sett í mót og eplin skorin í þunna báta, kanilsykri stráð yfir og eplunum raðað ofan á. Bakað í hálftíma við 175–200°C. Borið fram með þeyttum rjóma eða vanillu- eða súkkulaðiís.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.