Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Blaðsíða 6
Íhugar klósettgjald
n Ekki sjálfgefið að ferðamenn noti klósettin frítt, segir eigandi Baulu
K
ristberg Jónsson, eigandi Baulu
í Borgarfirði, er orðinn lang
þreyttur á rútum sem stoppa við
sjoppuna í þeim eina tilgangi að
nota salerni staðarins. „Ég er bara far
inn að ergja mig út af þessum árans
hlandrútum,“ segir Kristberg, eða Kibbi
eins og hann er jafnan kallaður, í sam
tali við blaðamann DV. „Það er náttúru
lega óþolandi að það komi hérna 50–60
manns í rútu, fari bara á klósettið og svo
beinustu leið út. Það þarf að fara að gera
eitthvað í þessum málum,“ segir Krist
berg en bætir við að það sé hægara sagt
en gert. „Svo hóta þeir manni ef maður
er eitthvað að setja út á þetta. Þá segjast
þeir bara hætta að stoppa hérna.“ Krist
berg segist í raun lítið geta aðhafst nema
að vekja máls á vandanum og vona að
ferðaskrifstofur taki á þessu. Fleiri aðil
ar eru í sömu sporum og hann.
Kristberg hefur rætt málið við
nokkra leiðsögumenn og segir við
brögðin misjöfn. „Sumir bregðast ægi
lega illa við, aðrir ekki.“
Í sumum tilfellum segir Kristberg
að rútur staldri við, ferðamenn fari
á klósettið, kaupi ekkert og svo komi
leiðsögumenn og biðji um ókeypis
veitingar. „Sumir koma bara og heimta
eitthvað frítt, ís, kaffi, mat eða eitt
hvað,“ segir Kristberg og bendir á að
leiðsögumenn séu á dagpeningum.
„Ég er svo sem ekkert nískur á að gefa
fólki kaffi ef það hefur ekki efni á ein
um kaffibolla.“
Sérstakt klósettgjald gæti komið
til greina. „Það er ekkert sjálfgefið að
fólk fái að nota klósettin við þjóðvegi
landsins frítt,“ segir Kristberg og nefnir
í því samhengi salernisferðir á erlendri
grundu. „Þegar við ferðumst erlendis
förum við ekki á klósett í vegasjoppum
landsins án þess að borga fyrir það.“ Til
dæmis segist hann sjálfur hafa greitt
einn dollara í Bandaríkjunum síðasta
sumar fyrir frekar lítilfjörlegan útikam
ar. „Þetta er farið að pirra mig alveg
ægilega.“
6 Fréttir 20.–22. júlí 2012 Helgarblað
Kristberg argur Kristberg segist ekki
útiloka að taka upp það sem hann kallar
klósettgjald. Það sé ekki sjálfgefið að nota
klósettin við þjóðvegi landsins frítt.
E
f þetta mál, sem snertir
Árvakur og Morgunblaðið,
kæmi til umfjöllunar í stjórn
þá yrði ég að víkja sæti
um málefnið. Einfaldlega
vegna þess að sonur minn er fram
kvæmdastjóri Ísfélags Vestmanna
eyja.
Friðrik Sophusson, stjórnarfor
maður Íslandsbanka, þyrfti að víkja
sæti ef skuldamál Árvakurs, útgáfu
félags Morgunblaðsins, færi fyrir
stjórn bankans. Hann segir það
gegn reglum bankans að stjórnar
menn komi að málum sem tengjast
þeim hagsmunatengslum. Slíkt hið
sama eigi við þegar fjölskyldutengsl
eða önnur vensl eigi í hlut. Mál fara
einungis í undantekningartilfellum
fyrir stjórnina.
Sonurinn er hjá Ísfélaginu
Friðrik er tengdur Morgunblaðinu á
þann hátt að sonur hans, Stefán B.
Friðriksson, er framkvæmdastjóri Ís
félagsins, sem er einn þriggja stærstu
hluthafa í Árvakri. Hlutafé Ísfélags
ins í Árvakri nemur 164 milljónum
króna og er hlutur félagsins 13,43
prósent. Friðrik er einnig tengdur
Davíð Oddssyni, ritstjóra Morgun
blaðsins, en hann var varaformaður
Sjálfstæðisflokksins árin 1981–1989
og 1991–1999, og gegndi þingsetu
fyrir flokkinn á árunum 1979–1998.
Þá var hann einnig fjármálaráðherra
í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar árin
1991–1998.
Stjórnarmenn eiga að víkja
Friðrik segir í samtali við DV að hann
megi lögum samkvæmt ekki tjá sig
um málefni einstakra viðskipta
vina, en í bankanum sé sú regla að
stjórnar menn víki þegar fjallað er um
málefni sem séu tengd þeim venslum
eða hagsmunatengslum. „Ef þetta
mál, sem snertir Árvakur og Morgun
blaðið, kæmi til umfjöllunar í stjórn
þá yrði ég að víkja sæti um málefnið.
Einfaldlega vegna þess að sonur
minn er framkvæmdastjóri Ísfélags
Vestmannaeyja. Þessar starfsreglur
eru einmitt settar til þess að koma í
veg fyrir að hagsmunaárekstrar verði
í ákvörðun stjórnar, og tryggja að það
séu armslengdarsjónarmið í umfjöll
unum og ákvörðunum stjórnar um
einstök mál.“
Bankinn starfi eftir
ströngum reglum
Segir Friðrik einnig að starfsmenn
bankans vinni samkvæmt ákveðnum
reglum og skilgreindum heimildum,
sem settar séu af stjórninni, og að mál
komi ekki til umfjöllunar í stjórninni
nema að það fari út fyrir þær heim
ildir eða sé utan vinnurammans.
„Mál berast ekki til stjórnarinnar
nema það sé álitið að þarna sé um
einhver sérstök tilvik að ræða. En það
sem skiptir mestu máli er að bank
inn verður að fara að öllum lögum
og reglum, þar á meðal samkeppn
islögum, í úrlausn skuldamála fyr
irtækja. Til viðbótar er bankinn
settur undir sérstakt eftir lit nefnd
ar sem Alþingi hefur sett á laggirnar,
og sú nefnd hefur aðgang að öllum
upplýsingum,“ segir Friðrik Sophus
son, stjórnarformaður um málið.
Árvakur fékk hátt í
milljarð afskrifaðan
Árvakur fékk afskrifaðar 994 milljónir
hjá bankanum árið 2011. Þetta var
gert gegn því að greiddar yrðu rúmar
325 milljónir inn á lánið á þessu ári.
Þetta kemur fram í ársreikningi fé
lagsins. Björn Valur Gíslason, þing
maður VG, sagði að spurningar vakni
í málinu. Grunaði hann að Morgun
blaðið hefði fengið sérmeðferð hjá
Íslandsbanka – sagði hann að utan
frá liti það að minnsta kosti þannig
út.
Íslandsbanki fór ekki eftir yfirlýst
um viðmiðum sem auglýst eru á vef
síðu bankans en Guðný Helga Her
bertsdóttir, talsmaður bankans, segir
hann mega fara út fyrir þau viðmið
og að það sé reglulega gert. Guðný
tók einnig fram að bankinn færi að
lögum í meðferð fyrirtækja í skulda
aðlögun og að bankinn væri undir
eftirliti sérstakrar nefndar sem skip
uð væri af Alþingi.
Þyrfti að víkja
vegna sonarins
n Sonur Friðriks Sophussonar er framkvæmdastjóri Ísfélagsins
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
Myndi víkja Friðrik Sophusson,
stjórnarformaður Íslandsbanka,
segir að hann þyrfti að víkja
sæti, kæmu málefni Árvakurs til
umfjöllunar í stjórninni.
Djúp lægð
um helgina
„Um helgina verða miklar veðra
breytingar, þær fyrstu í nokkrar vik
ur af þessum toga,“ segir Sigurður
Þ. Ragnarsson veðurfræðing
ur. „Þetta mun hafa í för með sér
grundvallarbreytingu á veðrinu á
landinu. Nokkuð sem menn hafa
haft miklar áhyggjur af – hvað væri
eiginlega gerast?“ Einar Svein
björnsson veðurfræðingur segir
eina þá dýpstu lægð sem sést hafi
yfir norðanverðu Atlantshafi stefna
á landið um helgina. Það var síð
ast árið 1901 sem svo djúp lægð fór
yfir landið í júlí. Sigurður telur að
lægðin gæti bundið enda á mikla
þurrka sem verið hafa á landinu.
„Það þýðir að menn þurfa ekki að
hafa áhyggjur af þurrkum, frekar
að menn á ferðalagi verði leiðir á
bleytu. Síðan er stutt í næstu lægð
á miðvikudag með rigningu á
sunnan og vestanverðu landinu,“
segir hann.
Réðst á fyrrver-
andi eiginkonu
Kona slasaðist eftir að fyrrverandi
eiginmaður hennar réðst á hana
með hníf. Árásin átti sér stað á
heimili hennar í miðborg Reykja
víkur um klukkan tíu á miðviku
dagskvöld. Konan hlaut ekki lífs
hættulega áverka. Fréttastofa
RÚV greindi frá því á fimmtudag
að fólkið hefði rifist í aðdraganda
árásarinnar. Málið er til rann
sóknar hjá lögreglunni á höfuð
borgarsvæðinu og var maðurinn
látinn gista fangageymslur lög
reglunnar eftir að hann var hand
tekinn. Hann var yfirheyrður á
fimmtudag.