Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Blaðsíða 10
Ó
ánægju gætir á meðal bæði
atvinnu- og áhugaljós-
myndara vegna mynda-
samkeppna sem fram
fara á netinu hjá ýmsum
fyrirtækjum og stofnunum þar
sem myndum er safnað saman
í myndabanka sem ekki er svo
greitt af. Keppnirnar sem um ræðir
ganga út á að fólk sendir inn mynd-
ir sem það á sjálft höfundarréttinn
að og á þá möguleika á verðlaun-
um. Í smáa letrinu í flestum svona
keppnum kemur hins vegar fram
að fyrirtækin eða stofnanirnar sem
halda keppni af þessu tagi áskilja
sér rétt til að nota myndirnar eftir
að keppninni lýkur í kynningar- og
markaðsefni.
Gagnrýna Umhverfisstofnun
Ein af keppnunum sem nú eru
gagnrýndar af ljósmyndurum er
ljósmyndakeppni Umhverfisstofn-
unar þar sem keppt er um Canon
EOS-myndavél, ljósmyndaprent-
ara og þrífót. Fólk er hvatt til að
senda inn myndir af friðlýstum
svæðum á Íslandi en stofnunin hef-
ur meðal annars eftirlit með slík-
um svæðum. Í reglum keppninn-
ar kemur fram að stofnunin áskilji
sér rétt til þess að nota myndirnar
án sérstakrar greiðslu til höfundar
í kynningarefni fyrir og í tengslum
við gerð fræðsluefnis um viðkom-
andi svæði. Í raun og veru þýðir
þetta að eftir keppnina mun stofn-
unin standa eftir með talsvert magn
af ljósmyndum sem hún getur not-
að, án þess að greiða fyrir, í öllu efni
sem unnið er um svæðin.
Ekki að búa til myndabanka
Fulltrúi Umhverfisstofnunar segir
stofnunina ekki vera að koma sér upp
myndabanka heldur hafi keppnin að-
eins verið hugsuð til að vekja athygli
á friðlýstum svæðum á Íslandi. Hún
kannast þó við gagnrýnina og segir að
nokkrar kvartanir hafi borist og þeim
hafi verið svarað. „Við teljum bara að
þetta sé skemmtileg keppni sem við
fórum af stað með og erum að reyna
að vekja athygli á friðlýstu svæðunum
okkar, að fólk deili reynslu sinni af frið-
lýstum svæðum með okkur,“ segir Að-
albjörg Birna Guttormsdóttir, deildar-
stjóri á deild náttúruverndar, .
Aðalbjörg segir að myndirnar
verði hugsanlega notaðar á heima-
síðu stofnunarinnar og kannski á
skilti. „Ég tel það ekki vera þannig
að þetta komi í veg fyrir að við
kaupum ljósmyndir af atvinnuljós-
myndurum í framtíðinni eins og
við höfum verið að gera í mörgum
tilfellum,“ segir hún.
Ekki fylgst með höfundar-
réttinum
Aðalbjörg bendir á að fólk þurfi að
samþykkja sérstaklega skilmálana
fyrir keppnina og því sé gert ráð fyr-
ir að þeir sem sendi inn myndir þekki
reglurnar sem gilda um hana. Þar
komi skýrt fram að notkun á myndun-
um sé heimil í ákveðnum tilgangi og
að hún verði ekki afhent þriðja aðila.
Ábyrgðin sé því hjá þeim sem taka þátt
að ákveða hvort þeir vilji gefa heimild
fyrir birtingu á myndinni.
Til eru dæmi um að ekki sé fylgst
með því sérstaklega hver eigi höf-
undarrétt að þeim myndum sem
sendar eru inn í keppnir af þessu
tagi. Vinningsmynd í keppni WOW
air og Vísis nú fyrr í sumar var til
að mynda tekin af atvinnuljós-
myndara en ekki þeirri konu sem
sendi myndina inn í keppnina.
Fleiri dæmi eru um að höfundar-
réttarvarðar myndir séu sendar inn
í slíkar keppnir og að slíkt hafi kom-
ist upp fyrir tilviljun en ekki við sér-
staka eftirgrennslan, samkvæmt
heimildum DV.
Ekki lengur í eigu Sigurðar
n Glæsihöllin í Borgarfirði var færð yfir í annað félag fyrir skemmstu
V
ið erum bara að vinna fyrir
viðskiptavini okkar og höldum
trúnaði við þá,“ segir Þorkell
Guðjónsson, stjórnarmaður
Rhea ehf. Eins og fram kom í miðviku-
dagsblaði DV varð nafn- og stjórnar-
breyting í einkahlutafélaginu Veiði-
læk ehf. sem Sigurður Einarsson,
fyrrverandi stjórnarformaður Kaup-
þings, stofnaði. Tilgangur félags-
ins var að halda utan um rekstur og
eignarhald á 843 fermetra sumarhúsi
Sigurðar í Borgarfirði. Kallast einka-
hlutafélagið nú Rhea ehf. Eigend-
urnir vilja ekki gefa upp hverjir þeir
eru en Þorkell segir Sigurð Einarsson
ekki eiga hlut í Rhea ehf. Þar með er
sumarhúsið í Borgarfirði ekki lengur í
hans eign.
Samfara nafnbreytingunni fór
Sigurður Einarsson úr stjórn félagsins
og Þorkell varð stjórnarmaður ásamt
Kristjáni Val Gíslasyni en þeir starfa
báðir hjá Virtus.
Spurður hvers vegna svo mikil
leynd hvíli yfir hverjir eigendur Rhea
ehf. séu, segist Þorkell ekki geta svar-
að því. „Þetta er samt ekki leynifélag
eins og fram kom í síðustu grein DV.
Engar athugasemdir hafa verið gerð-
ar við þetta félag og það er ekki á van-
skilaskrá.“ Aðspurður hvernig hann
svarar getgátum um að hann og Krist-
ján Valur Gíslason, starfsmenn Virtus,
séu að leppa fyrir Sigurð Einarsson,
segist hann ekki ætla að svara því.
Skúli Jónsson, sviðsstjóri skráa-
sviðs ríkisskattstjóra, segir eigendur
einkahlutafélaga ekki skuldbundna
samkvæmt lögum til að gefa upp-
lýsingar um nafn sitt nema þeir eigi
meira en 10 prósenta hlut í félaginu.
Þá komi nafn þeirra fram á ársreikn-
ingum.
Miklar vangaveltur hafa verið um
hvaða áform séu um sumarhúsið
stóra, Veiðilæk, sem eitt sinn átti að
verða glæsihöll Sigurðar Einarssonar.
Samkvæmt teikningum var gert ráð
fyrir fimm baðherbergjum, vínkjallara,
gufuböðum og skotheldu gleri. Áform-
in hafa ekki gengið eftir og stendur
húsið nú aðeins fokhelt en þó er búið
að setja skothelt gler í gluggana.
Enn og aftur náðist ekki í Sigurð
Einarsson til að spyrja hann nánar út í
nafn- og stjórnarbreytinguna á Veiði-
læk ehf. þar sem hann er á ferðalagi
um Vesturlandið.
elin@dv.is
10 Fréttir 20.–22. júlí 2012 Helgarblað
Ekki ánægðir mEð
UmhvErfisstofnUn
n Ljósmyndarar gagnrýna myndasamkeppni Umhverfisstofnunar„Ég tel það ekki
vera þannig að
þetta komi í veg fyrir að
við kaupum ljósmyndir af
atvinnuljósmyndurum í
framtíðinni.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Myndir af friðlýstum svæðum
Myndasamkeppnin er á vefjum
Umhverfisstofnunar og Vatnajökuls-
þjóðgarðs sem áskilja sér birtingarétt
á myndum sem berast í keppnina eftir
að keppninni lýkur. Mynd SiGtryGGUr Ari
Ók niður
metandælu
Strætisvagnabílstjóri ók nið-
ur metangasdælu sem stendur
við bensínstöð N1 á Ártúnshöfða
um klukkan hálffjögur aðfaranótt
fimmtudags. Bílstjórinn ætlaði
að fylla á tankinn á strætisvagn-
inum þegar rör rifnaði með þeim
afleiðingum að metangas lak úr
dælunni. Starfsfólk bensínstöðv-
arinnar kallaði til slökkvilið sem
rýmdi svæðið og lokaði fyrir um-
ferð í kringum bensínstöðina.
Slökkviliðið kallaði til sérfræðinga
Sorpu, sem sjá um dæluna, til að
reyna að stöðva lekann. Mikil eld-
hætta skapaðist á meðan lak, stóð
þar sem metangas er afar eldfimt
efni.
Ölvaðir menn
í Reykjavík
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
þurfti aðfaranótt fimmtudags að
hafa afskipti af ungum manni sem
beraði sig á Klambratúni í Reykja-
vík. Lögreglan handtók manninn
eftir að hafa borist tilkynning um
athæfi hans. Var hann vistaður í
fangageymslu á meðan beðið var
eftir því að það rynni af honum.
Lögreglan þurfti einnig að hafa
afskipti af utanbæjarmanni sem
reyndi að komast inn í bíla við
Smiðjuveg. Sá reyndist einnig ölv-
aður. Hann bar því við að hann
vantaði næturgistingu og væri að-
eins að reyna að komast inn í bíl-
ana til að fá skjól til að sofa. Þess
í stað var hann vistaður í fanga-
geymslu þar sem hann fékk að
sofa úr sér.
Varð undir
dráttarvél
Um kvöldmatarleytið á miðviku-
dag varð maður á níræðisaldri
undir afturhjóli dráttarvélar. At-
vikið átti sér stað í Brynjudal í
botni Hvalfjarðar. Talið er að mað-
urinn hafi rifbeinsbrotnað. Verið
var að gangsetja vélina með því
að láta hana renna. Vinnueftirlit
Ríkisins fer með rannsókn máls-
ins ásamt lögreglu, samkvæmt til-
kynningu frá lögreglunni.
Veiðilækur Ekki lengur sumarhús
Sigurðar Einarssonar.