Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Qupperneq 22
A
llt frá því að Deng Xiaop-
ing, sem síðar varð leið-
togi Kína, lét hin frægu
orð falla: „Það skipt-
ir ekki máli hvort köttur-
inn er svartur eða hvítur, svo lengi
sem hann veiðir mýs,“ hefur ver-
ið undraverður hagvöxtur í Kína.
Orðin, sem féllu reyndar árið 1961,
táknuðu innreið kapítalismans í
kommúnista- og alræðisríkið Kína
og í raun upphaf nútímavæðingar
Kína. En almennt er upphaf kap-
ítalískra framleiðsluhátta í Kína
miðað við árið 1970.
Af sjö milljörðum íbúa jarðar, búa
um 1,3 milljarðar í Kína og í stærstu
borginni, Shanghai, búa um 23 millj-
ónir manna. Það er álíka mikið og
allur íbúafjöldi Norðurlandanna.
Gríðarlegur hagvöxtur
Á undanförnum árum hafa hag-
vaxtartölur í Kína verið með hreinum
ólíkindum, oftar en ekki vel yfir 10
prósentum fyrir hvern ársfjórðung.
Kína er næststærsta hagkerfi heims á
eftir Bandaríkjunum, enda er í raun
erfitt í dag að finna vöru eða hluta af
vöru, sem ekki er framleiddur í Kína.
Útflutningur Kínverja er gríðar-
legur og hefur gengi gjaldmiðils-
ins, júan, verið haldið lágu og hafa
Bandaríkjamenn meðal annars
kvartað yfir þessu. En þeir kvarta
ekki yfir því að Kína sé helsti kaup-
andi bandarískra ríkisskuldabréfa
og haldi í raun Bandaríkjunum að
hluta til á floti. Talið er að Kína eigi
um trilljón dollara í bandarískum
ríkisskuldabréfum, en heildarskuldir
Bandaríkjanna sjálfra eru vel yfir 15
trilljónir dollara.
Eitt stykki Manhattan
Á undanförnum árum hafa Kínverj-
ar byggt sem brjálaðir væru og fjár-
festing verið gríðarleg. Þetta hefur
einnig þýtt mikla skuldsetningu hjá
kínverskum byggingaraðilum, borg-
um og svæðum.
Í nýlegri frétt breska ríkisútvarps-
ins, BBC, var sagt frá áformum á einu
helsta vaxtarsvæði Kína, Sjénsjén-
borg, þess efnis að reisa ætti eftirlík-
ingu af Manhattan-eyju á svæðinu. Í
fréttinni var rætt við verkamann sem
sagðist eiga mun erfiðara með að fá
vinnu um þessar mundir en í fyrra.
„… þeir segja að það sé ekkert fyrir
okkur að hafa,“ sagði verkamaðurinn
við fréttamann BBC.
Með fréttinni fylgdu myndir af
miklum skýjakljúfum, sem standa
nú meira eða minna tómir. En í
fréttinni var einnig rætt við fulltrúa
byggingaraðila, sem hafði ekki mikl-
ar áhyggju af ástandinu. „Það er til
nóg af Kínverjum til að fylla öll þessi
hús,“ sagði hann keikur á svip við
BBC. Hagvöxtur á svæðinu var um 16
prósent í fyrra, sem er með því mesta
sem þekkist á byggðu bóli.
Samdráttur
En hagvaxtartölur í Kína gefa um
þessar mundir ekki tilefni til bjart-
sýni, en talan 7,6 prósent virðist lítil
í sögulegu og kínversku samhengi.
Þetta er minnsti hagvöxtur í Kína
í þrjú ár. Minnkandi eftirspurn frá
Evrópu, víkjandi innanlandseftir-
spurn og minnkandi fjárfesting eru
sagðar helstu ástæðurnar. Þetta er
mun minna en spár gerðu ráð fyrir,
sem var upp á 10 prósent á ári, eða
þar um kring, fram til ársins 2015.
Seðlabanki Kína hefur lækkað vexti
tvívegis að undanförnu til að blása
auknu lífi í hagkerfið.
Verði um að ræða harkalega lend-
ingu í efnahag Kína er það talið geta
haft víðtæk efnahagsleg áhrif um
allan heim, en af allri framleiðslu á
heimsvísu, koma um 20 prósent frá
Kína.
Má búast við umróti
Þá má fastlega reikna með töluverðu
umróti í landinu sjálfu, þegar mikill
fjöldi atvinnulausra einstaklinga fer
á stúfana í leit að atvinnu. Síðan kap-
ítalisminn hóf innreið sína í Kína, í
kringum 1970, hafa reglulega borist
fréttir af uppþotum, verkföllum og
öðru slíku í Kína. Ef Kína hins vegar
heldur sínu striki, má búast við að
hin jákvæðu áhrif á heimsbúskap-
inn haldi áfram. Í þessu samhengi er
einnig mjög mikilvægt að millistéttin
í Kína sé viljug til neyslu, en hin vax-
andi millistétt í landinu telur nú um
250 milljónir manna.
Fjölmennasta ríki heims Minnkandi hagvöxtur er þegar farinn að hafa áhrif. Ungt
fólk á til dæmis í meiri erfiðleikum með að finna vinnu.
n Hagvöxtur hægir á sér í Kína n Gríðarleg skuldsetning og fasteignabóla
Kínverjar óttast
harða lendingu
Staðreyndir um Kína
Kína þarf að skapa fleiri störf
Kínverska ríkið þarf að skapa fleiri störf,“ segir forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, við fréttaveituna
Reuters, vegna minnkandi hagvaxtar í
Kína. Hann minnir á að á árunum 2008 til
2009 hafi komið niðursveifla sem leiddi
til þess að um 20 milljónir kínverskra
verkamanna erlendis þurftu að snúa heim
til Kína og leita sér að nýjum störfum.
Þetta getur skapað mikinn félagslegan
óstöðugleika og það reyna kínversk
stjórnvöld að forðast eins og heitan eldinn.
Óstöðugleiki innanlands getur leitt til
óeirða og uppþota.
Sífellt erfiðara er fyrir kínverska stúd-
enta að finna störf að loknu námi og fjöldi
fyrirtækja glímir við minnkandi eftirspurn,
aukinn hráefnakostnað og hærri launa-
kröfur. Uppsagnir eru því yfirvofandi.
Kínverska þingið, segir í áliti sem birt var í
vikunni, að auka verði fjárfestingar, en þó
þannig að ekki verði um sóun fjármuna að
ræða.
Forðast óstöðugleika
Wen Jiabao, forsætisráð-
herra Kína, hefur áhyggjur
af minnkandi hagvexti í
landinu.
Enginn skortur á skýjakljúfum Í borginni Sjénsjén var um 16 prósenta hagvöxtur
á síðasta ári, en nú eru blikur á lofti. Hagvöxtur í Kína er með lægsta móti um þessar
mundir og getur það haft margvíslegar afleiðingar í för með sér, innanlands sem utan.
n Fjölmennasta land heims,
1,3 milljarðar manna.
n Annað stærsta land í heimi,
á eftir Rússlandi.
n 90 sinnum stærra en Ísland.
n Næststærsta hagkerfi heims,
á eftir Bandaríkjunum.
n Stjórnað af Kommúnistaflokki Kína,
er alræðisríki.
n Leiðtogi þess er Hu Jintao, fæddur 1942.
n Kína er með fjölmennasta her heims,
2,3 milljónir manna.
n Höfuðborgin er Peking, sem hélt ÓL
árið 2008.
n Fjölmennasta borgin er Shanghai,
23 milljónir íbúa.
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
blaðamaður skrifar ritstjorn@dv.is
22 Erlent 20.–22. júlí 2012 Helgarblað
Dó eftir 40 tíma
leikjamaraþon
Átján ára unglingur lést á internet-
kaffihúsi á Taívan á dögunum eftir
að hafa spilað tölvuleikinn Diablo
3 nær látlaust í 40 klukkustundir.
Það var starfsmaður kaffihússins
sem fann drenginn og virtist hann
þá vera sofandi. Starfsmaður-
inn vakti drenginn sem stóð upp í
kjölfarið. Eftir að hafa tekið nokk-
ur skref hneig drengurinn niður
og báru endurlífgunartilraunir
ekki árangur. Samkvæmt fréttum
taívanskra fjölmiðla er talið að
drengurinn hafi ekki bragðað vott
né þurrt í tvo sólarhringa. Krufn-
ing mun þó leiða í ljós hvert bana-
mein hans var.
Tvíburar með
sömu einkunn
Tvíburasysturnar Mel og Holl-
ie Walker eru ekki bara líkar í út-
liti. Systurnar, sem eru 22 ára, út-
skrifuðust á dögunum úr lögfræði
frá Northumbria-háskólanum á
Englandi. Það sem vekur athygli
er að systurnar útskrifuðust með
nákvæmlega sömu einkunn úr
sama náminu. Stúlkurnar höfðu
ærið tilefni til að fagna því þær út-
skrifuðust með hæstu einkunn í
sínum árgangi. Mel og Hollie ætla
nú að halda út á vinnumarkaðinn
en þær hafa fengið starf hjá sama
lögfræðifyrirtækinu og munu því
vinna saman næstu misserin.
Stappaði á
grænmetinu
Starfsmaður Burger King í May-
field Hights í Ohio í Bandaríkj-
unum hefur verið rekinn úr starfi
eftir að hafa stappað ofan á græn-
metinu sem notað er á ham-
borgarana. Starfsmaðurinn birti
sjálfur mynd af athæfinu á sam-
skiptavefnum 4chan og lét þessi
skilaboð fylgja: „Þetta er græn-
metið sem þú borðar á Burger
King.“ Aðrir notendur vefsíðunnar
voru ekki hrifnir af uppátækinu og
komu sér saman um að finna um-
ræddan notanda. Þeim tókst að
rekja slóð hans til Mayfield Hights
og tók fréttamiðill bæjarins málið
upp. Nú hefur umræddur starfs-
maður misst vinnuna og vaktstjóri
staðarins einnig.