Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Qupperneq 35
Afþreying 35Helgarblað 20.–22. júlí 2012
Sakamál 28 er lágmarksfjöldi bandaríska raðmorðingjans Dean Corll. Dean hafði sér til fulltingis tvo táningsdrengi, David Owen Brooks og Elmer Wayne Henley, og á árunum 1970 til 1973 féllu 28 unglingsstrákar og ungir menn fyrir hendi þeirra. Reyndar voru hjálparhellur Dean aðallega til þess hugsaðar að aðstoða hann við að nema fórnarlömbin á brott. Þann 8. ágúst, 1973, var Dean skotinn til bana af öðrum tvímenninganna og sama dag gerði Henley sér ferð til lögreglunnar og upplýsti hana um ódæði tríósins.U m s j ó n : K o l b e i n n Þ o r s t e i n s s o n k o l b e i n n @ d v . i s
C
arol Park hvarf af yfirborði
jarðar 17. júlí 1976, og sást
ekki framar á lífi. Tuttugu og
einu ári síðar fundu áhuga-
kafarar líkamsleifar hennar
á botni Coniston-vatns í Kumbara-
landi á Englandi og skömmu síð-
ar var eiginmaður hennar, Gordon,
handtekinn, grunaður um morðið.
Þó fór svo að kærur á hendur hon-
um voru felldar niður, en ekki er
sagan öll, því 2004 var hann hand-
tekinn á ný.
Það er margt á huldu um morðið,
en þó ljóst að Carol var myrt með
þungu höggi í andlitið og talið er
að ísöxi hafi verið beitt. Síðan var
hún bundin með reipi í fósturstell-
ingu og voru hnútarnir ekki af ein-
faldari gerðinni. Síðar kom í ljós að
hnútarnir voru af sama toga og fund-
ust á reipum í bát Gordons. Við lík-
ið var fest grjót og blýrör og því síð-
an fleygt í Coniston-vatn. Carol hafði
verið í náttfötum einum fata þegar
hún var myrt.
Fyrir tilviljun lenti líkið á syllu
sem varð til þess að það fannst. Ef
það hefði lent aðeins utar hefði það
sennilega aldrei fundist.
Glímdi við þunglyndi
Fyrir hvarfið hafði Carol glímt við
þunglyndi, að sögn vina hennar.
Hún var ættleidd og hafði haft á
orði að hún hygðist finna líffræði-
lega foreldra sína. Gordon fullyrti
að Carol hefði yfirgefið hann fyr-
ir annan mann og það hefði ver-
ið ástæða þess að hann beið í sex
vikur með að tilkynna hvarf henn-
ar. Í raun var frásögn Gordons ekki
ótrúleg í ljósi þess að hjónin höfðu
glímt við erfiðleika og Carol hafði
farið af heimili þeirra í Leece í
tvígang.
Það var ekki fyrr en Carol mætti
ekki til vinnu á haustmánuðum
sem tvær grímur runnu á Gordon,
að eigin sögn, og hann tilkynnti
um hvarf hennar.
Daginn sem Carol hvarf hafði
fjölskyldan ætlað að fara til Black-
pool og eyða deginum þar, en Carol
hafði hætt við og borið við vanlíð-
an. Gordon fullyrti að hann hefði
hefði komið heim í mannlaust hús
- og hafði skilið giftingarhringinn
eftir. Eftir að Gordon hafði tilkynnt
um hvarf Carol tjáði lögreglan
honum að hann yrði efstur á lista
grunaðra ef lík hennar fyndist ein-
hvern tímann.
Slapp tímabundið
Þegar tíðindi bárust af líkfundinum
voru Gordon og þriðja eiginkona
hans, Jenny, á hjólreiðaferðalagi í
Frakklandi. Þau komu heim til Eng-
lands 24. ágúst 1997, og var Gordon
handtekinn með það sama og ákærð-
ur. Tveimur vikum síðar var honum
sleppt úr varðhaldi gegn tryggingu og
í ársbyrjun 1998 var fallið frá ákær-
um á hendur honum, vegna skorts á
sönnunargögnum.
En það var skammgóður verm-
ir, þannig séð, því Gordon var hand-
tekinn á ný um miðjan janúar 2004
á grundvelli nýrra vísbendinga.
Um var að ræða framburð Micha-
els nokkurs Wainwright sem hafði
setið í sama klefa og Gordon þann
stutta tíma sem hann hafði verið í
varðhaldi árið 1997. Í kjölfarið hafði
lögreglan kannað betur svæðið þar
sem lík Carol hafði fundist og rek-
ið augun í grjót sem átti ekki heima
þar, en samsvaraði grjóti sem var að
finna í grjóthleðslu heimilis Carol og
Gordons.
Sönnunargögn vegin og metin
Réttarhöldin yfir Gordon Park fóru
fram í Manchester og vörðu í tvo og
hálfan mánuð. Í reynd var ekki að
finna nokkuð eitt sönnunargagn sem
benti til ótvíræðrar sektar Gordons,
en saksóknari benti á að ef fyrirliggj-
andi sönnunargögn væru skoðuð
í samhengi við hvert annað þá léki
ekki vafi á sekt Gordons – að „leynd-
ur elskhugi“ kæmi hvergi við sögu.
Í reynd byggði málflutning-
ur ákæruvaldsins á óbeinum vís-
bendingum og kviðdómurum gert
að vega og meta hnúta, reipi, grjót
og ísöxi – sönnunargögn sem öll
bentu til sektar Gordons Park.
Einnig var horft til frásagnar áð-
urnefnds Wainwrights og annars
klefafélaga Gordons frá fyrri tíð.
Við réttarhöldin kom fram að
Gordon hefði í upphafi reynt að
kyrkja Carol en hún hefði barist
kröftuglega á móti. Þá hafi hann
gripið til ísaxarinnar og barið Carol
með allmiklu afli, í tvígang, í andlitið.
Eftir að hafa losað sig við líkið snéri
Gordon sér að sínu daglega lífi.
Málalyktir urðu þær að Gordon
Park var dæmdur til lífstíðarfangelsi
með fyrsta möguleika á reynslulausn
að lokinni 15 ára afplánun og hafði
dómari á orði að dómurinn tæki mið
af þeim hryllilega máta sem Gordon
hafði notað til að fela líkið.
Dómnum var að sjálfsögðu áfrýj-
að eins oft og hægt var og Gordon
átti fjölda stuðningsmanna sem
sannfærðir voru um sakleysi hans.
En allt kom fyrir ekki.
Þann 25. janúar, 2010, á 66. afmæl-
isdegi Gordons komu verðir að hon-
um meðvitundarlausum í klefa sín-
um; hann hafði hengt sig. Hann var
úrskurðaður látinn skömmu síðar.
n Gordon Park var dæmdur fyrir morð á eiginkonu sinni
sloppinn
„Við réttarhöldin
kom fram að
Gordon hefði í upphafi
reynt að kyrkja Carol en
hún hefði barist kröftug-
lega á móti.
næstum Carol Park Líkamsleifar hennar fundust fyrir tilvilj-un 21 ári eftir að hún hvarf.
Gordon Park Svipti
sig lífi í fangelsi.