Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Page 38
Karlar fara í
brasilísKt vax
Skolaðu ofnæminu burt
n Nefskolunarkannan NoseBuddy við frjókornaofnæmi
N
ú er frjókornatímabilið í há-
marki og þeir sem glíma
við frjókorna- og gróðurof-
næmi finna vel fyrir því
þessa dagana. Í apótekum er hægt
að fá allskyns úða og pillur sem
virkar misvel en svo eru til ein-
faldari og náttúrulegri leiðir eins og
NoseBuddy.
NoseBuddy er nefskolunar kanna
sem Eirberg flytur inn og selur og
samkvæmt heimasíðu þeirra hefur
nefskolun jákvæð áhrif á kinn- og
ennisholur og nærliggjandi svæði;
augu, eyru, háls og heila og þar með
hugarástandið. Einungis er notuð
blanda af kranavatni og salti. Nef-
skolun örvar bifhár öndunarvegar-
ins svo að ryk, frjóduft og bakteríur
geta skolast út eins og á færibandi.
Þannig sér skolunin um að halda
hreinsunar- og varnarkerfi öndunar-
vegarins í góðu formi.
Þessi aðferð er þekkt víða um
heim sem gamalt og gott hús-
ráð gegn kvefi. Í byrjun tuttug-
ustu aldar var til dæmis hægt að
kaupa sérstakar nefskolunarkönn-
ur og sprautur í apótekum Norður-
Evrópu en síðan „hvarf“ aðferðin
þangað til í kringum 1970 þegar
farið var að nota hana aftur vegna
aukins áhuga á jóga.
38 Lífsstíll 20.–22. júlí 2012 Helgarblað
n Ekki vilja allar snyrtistofur veita körlum brasilíska vaxmeðferð
Í
dag þykir það ekki neitt tiltöku-
mál að konur fari í brasilískt
vax, en það eru ekki mörg ár síð-
an það þótti ekki svo sjálfsagt og
konur hvísluðust á um þetta. Nú
eru karlmenn sumir hverjir farnir að
skella sér í brasilískt vax en mörgu
karlmenninu þykir það vera alveg út
í hött og algerlega tilgangslaust.
Þægilegt og hreinlegt
DV ákvað að kynna sér málið og
talaði við nokkra karlmenn sem hafa
farið í brasilískt vax og eins starfs-
fólk á snyrtistofum sem bjóða upp
á þetta. Einn viðmælenda sagði að
hann hefði gert þetta til að prófa
því hann fari alltaf í vax á bringunni
og finnist það mjög þægilegt eftir á.
Hann sagði líka að það væri alltaf
vont að fara í vax en samt misvont
eftir því hver það væri sem sæi um
framkvæmdina. Versti staðurinn
væri í náranum.
Annar viðmælandi er búinn að
fara í brasilískt vax í fimm ár og
finnst það æðislegt. Hann segir þetta
hafa verið vont fyrst en svo hafi það
vanist og sé alveg þess virði í dag.
Fáar stofur bjóða upp á
brasilískt vax fyrir karla
Við vinnslu greinarinnar kom í ljós
að fæstar snyrtistofur bjóða upp á
þetta og fengust sums staðar þau
svör að „það þætti bara ekki smekk-
legt“ og aðrar svöruðu því til að þetta
væri eitthvað sem þau hefðu „ekki
sérhæft sig í“.
Einn af snyrtifræðingunum sem
hefur framkvæmt brasilíska vax-
meðferð á karlmönnum, en vill
ekki koma fram undir nafni, segir
að þeir karlmenn sem komi til sín
séu margir hverjir að koma vegna
þrýstings, bæði frá maka og um-
hverfinu. Ungu strákarnir séu farn-
ir að líta á líkamshár sem eitthvað
sem eigi ekkert að vera og fyrst kon-
ur láti fjarlægja þau þá geri þeir það
líka. Hún er með nokkra fastakúnna
og svo spyrst þetta út en eins og er sé
hún ekki til í að auglýsa þetta. Karl-
menn eru líka að hennar sögn tölu-
vert viðkvæmari en konur því þeir
kvarti mun meira í brasilísku vaxi en
konurnar geri, í það minnsta heyrist
fjórfalt meira í þeim.
Skiptir ekki máli hvort kynið
kemur í vax
Rósa á snyrtistofunni Neglur og
list, einni af fáum stofum sem býð-
ur upp á þessa þjónustu, segir það
vera að færast í aukana að karl-
menn komi í brasilískt vax. „Ég
get ekki svarað fyrir alla en ég veit
að margar stofur vilja ekki vinna
á karlmönnum á þessu svæði en
fyrir mér eru þetta bara hár sem
þarf að fjarlægja, skiptir ekki máli
hvar á líkamanum það er eða hvort
kynið er um að ræða,“ segir Rósa.
Hún segir það líka algengt að það
sé komið með stráka til þeirra sem
verið sé að steggja og þá sé viðkom-
andi ekki alltaf til í að láta verða af
þessu en í flestum tilfellum séu þeir
sem komi að sjálfsögðu að koma
því þeir vilji það sjálfir. Rósa segir
líka ástæður fyrir vaxinu vera mis-
jafnar: „Stundum eru karlmenn að
koma af því þeim finnst þægilegt
að vera lausir við hárin og finnst
þetta bara einfaldlega hreinlegra og
betra. Svo eru líka margir hlauparar
sem koma til okkar því oft koma
sár undan hárunum á þeim sem
hlaupa mikið.“
Vel vaxaður Sumir ganga
enn lengra með þetta og fara
í brasilískt vax.
Brasilískt vax Karlmenn eru í auknum
mæli farnir að skella sér í vax.
IKEA á flug-
velli í París
Nú geta ferðamenn sem eiga
leið um Charles de Gaulle-flug-
völlinn í París kost á því að
skoða VIP-stofu IKEA. IKEA hef-
ur sett upp þessa stofu
tímabundið og verður hún opin
til 15. ágúst næstkomandi. Far-
þegar sem eiga leið um flug-
stöðina eru hvattir til að eyða
tímanum í VIP-stofunni og er
allt til alls þar. Það er hægt að
leggjast í rúm eða sófa, horfa á
sjónvarpið eða lesa.
Eins og allir vita getur maður
þurft að bíða lengi á flugvöllum
og þá er æðislegt að geta látið
fara vel um sig. Það eru níu her-
bergi í stofunni og eitt af þeim er
aðgengilegt fyrir fatlaða, svo er
einnig 50 fermetra ókeypis leik-
aðstaða fyrir börn.
NoseBuddy Einungis
er notuð blanda af
kranavatni og salti.
Silfurhreinsir
Það finnst fæstum gaman að
pússa silfurbúnað og skartgripi.
Það er hægt að hreinsa silfur-
skart á mjög einfaldan máta
heima – án þess að kaupa rán-
dýran fægilög.
Þú byrjar á því að setja ál-
pappír í botninn á potti.
Svo blandar þú saman 1/4
bolla af matarsóda, 2 teskeiðum
af salti og 1 desílítra af sjóðandi
vatni og hellir ofan í pottinn.
Settu silfurskartið ofan í pott-
inn og settu lokið á. Bíddu í
nokkrar sekúndur og þá á silfrið
að vera orðið fínt. Skolið með
köldu vatni.
Sundsporður
Nú getur þú keypt þér sporð til
að synda með. Hann er gerður í
mörgum litum og allir sem
kunna að synda geta notað
hann. Þeir eru hannaðir af fyrir-
tækinu 3-Fins og eru ekki fram-
leiddir sem búningar heldur til
að hjálpa þér við að synda.
Þeir eru úr hágæða, endingar-
góðu efni sem hentar í sund-
laugar, vötn og sjó úti um allan
heim. Með sporðinum kynnist
þú nýjum víddum hvað varðar
sund og nærð hraða sem þig
óraði ekki fyrir að hægt væri að
ná í sundi. Það eru margar stúlk-
ur sem væru alveg til í að eiga
svona eða í það minnsta að prófa
þetta.