Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Síða 40
40 Lífsstíll 20.–22. júlí 2012 Helgarblað PEPSI-DEILD KVENNA Mánudagur 23. júlí 18:30 Þór/KA - KR Þriðjudagur 24. júlí 18:00 ÍBV - FH 19:15 Stjarnan - Fylkir 19:15 Afturelding - Breiðablik 19:15 Selfoss - Valur Allir á völlinn! PEPSI-DEILD KARLA Laugardagur 21. júlí 16:00 Sunnudagur 22. júlí 16:00 19:15 19:15 19:15 19:15 Stjarnan - KR ÍBV - Selfoss Grindavík - FH Keflavík - Fylkir Valur - Fram ÍA - Breiðablik V E R T Þ að vilja allir hafa hvítar tennur og heillandi bros en það er eðlilegt að litur tanna breytist með tíman- um þar sem matur og drykk- ur litar þær. Það má fá þær hvíttað- ar á nokkrum stöðum á Íslandi og má þar nefna lasermeðferð á þar til gerðum stofum. Þó geta komið upp þær aðstæður að maður vill fá hvítari tennur strax, og á síðu Total Beauty eru ráðleggingar nokkurra tann- lækna um hvernig má fara að því. 1 Fáðu þér vodkaskot Þetta andfýluráð hefur þú væntanlega aldrei heyrt um eða prófað áður. Fáðu þér kokteil með vodka, en það er bakteríudrepandi og eyðir því þeim bakteríum sem orsaka andfýluna. Passaðu þig bara á því að drekka það ekki í mjög sykruðum drykk því sykurinn gefur sömu bakteríum auka kraft. 2 Vertu með rauðan varalit (með bláum undirtón) Þetta ráð er sérstaklega skemmtilegt fyrir þær sem eru hrifnar af rauðum varalit. Veldu rauðan varalit með bláum undirtón en þessi blanda mun láta tennurnar virka mun hvítari en þær eru í raun og veru, er haft eftir Gregg Lituchy, tannlækni í New York. Blái liturinn er kaldur litur andstætt hlýjum tónum guls og appelsínuguls. Ef þú ert með bláan tón á vörunum dregur hann úr gula litnum á tönnunum og þær virð- ast hvítari. Aftur á móti verða þær gular ef þú ert með appelsínugulan varalit. 3 Settu á þig sólarpúður Hér er annað snyrti- vöruráð sem gerir tennur þínar hvítari á að líta. „Þegar þú setur það á þig verða andstæð- ur á milli húðlitar og tanna meiri. Passaðu að velja púður sem er matt og berðu það á þig eins og þú sért að teikna tölustafinn 3, frá gagnauga, niður að kinnbein- um og loks niður í átt að hökunni.“ 4 Berðu vaselín á tennurnarÞetta hljómar kannski ekki vel en þetta alhliða krem verndar tennur þínar gegn óæskilegum lit. Settu þunnt lag af vaselíni yfir tennurnar og það mun koma í veg fyrir að matur og drykkir liti tennurnar. Þetta getur verið svolítið óþægilegt en þetta er þess virði. 5 Borðaðu jarðarber í eftirmat Tannlæknar hvetja okkur til að bursta helst tennur eftir hverja máltíð en stundum leyfa að- stæður það ekki. Þá höfum við hinn ljúffenga valkost; jarðarber. Þessi rauði ávöxtur inniheldur mikið af fólínsýru sem hreinsar tennurnar á náttúru- legan máta, að sögn Irwins Smigel tannlæknis. Hann bendir á að við getum jafnvel maukað jarðarber, bætt út í maukið smá matarsóda og burstað tennurnar með því og gert þær hvítari. 6 Fáðu þér ost með víninu Við vitum að kaffi, gos og rauðvín lita tennurnar. Færri vita kannski að hvítvín er alveg jafn mikill skað- valdur í þeim efnum og litar í raun meira en rauðvín. Ástæð- an fyrir því er að í hvítvíni er meiri sýra en í rauðvíni. Samkvæmt tann- lækninum Lauru Torrado þá brýtur sýran niður kalkið í tönnunum sem gerir þær skörðóttari og þar með móttækilegri fyrir lit. Við ættum því að halda okkur í rauðvíninu og fá okkur ostbita með en Torrado segir að kalkið í ostinum myndi filmu yfir tönnunum sem verndar þær gegn sýrunni í víninu. n Nokkur einföld og ódýr ráð til að fá hvítar tennur Svona hvíttar þú tennurnar á skömmum tíma Hvítt bros Flestum þykir hvítar tennur fallegri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.