Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Side 56
Prímatar
eða
píratar
– þar er
efinn!
Spenntur
þingmaður
n Athygli vakti þegar fréttir bárust
af hjólreiðatúr Hollywood-leik-
arans Russells Crowe. Hann sagði
frá því á Twitter-síðunni sinni á
miðvikudag að hann hefði hjólað
tuttugu kílómetra hring um
Reykjavík sem hann sagði vera
samþjappaða en fallega borg.
Einn þeirra sem bíða
spenntir eftir næstu
fréttum af fólki á hjóli
er þingmaðurinn Guð-
mundur Steingrímsson.
„Spennandi verð-
ur að vita hver
fer út að hjóla
í dag,“ sagði
þingmaðurinn
á Facebook-
síðu sinni
á fimmtu-
dag, en hann
slakar nú á í
sumarfríi frá
þingstörfum.
Bað um
Sævar Karl
n Þorbjörg Marinósdóttir, Tobba
Marinós eins og hún er kölluð,
reyndi árangurslaust að ná sam-
bandi við verslunina Sævar Karl
á fimmtudag. Hún hafði sam-
band við símaskrána Já og bað
um að fá samband við Sævar Karl.
„Þögn… svo spurði hún: hvers
son?“ segir Tobba frá á Facebook-
síðu sinni um svarið sem hún
fékk frá símadömu Já. „Ég kvaddi
nokkrum mínútum síðar … hún
fann aldrei númerið!“ Engum
sögum fer af því
hvort Tobba hafi
á endanum
náð í versl-
unina en til
gamans má
geta þess
að Sævar
Karl, fyrr-
verandi
eigandi
verslun-
arinnar, er
Ólason.
Píratar eða
prímatar?
n Birgitta Jónsdóttir þingmaður
er búin að kljúfa sig út úr Dögun
og vinnur að stofnun nýs pírata-
stjórnmálaflokks. Pírata-flokkar
eru á ensku nefndir sjóræningja-
flokkar og hefur íslenska nafn-
giftin vakið athygli. Erla Hlyns-
dóttir, fréttamaður á Stöð 2, sagði
til að mynda frá því á Facebook-
síðu sinni að hún ætti
erfitt með nafnið.
„Á í smá erfiðleik-
um með orðið
„píratar“ því ég les
það ósjálfrátt sem
„prímatar“,“ skrif-
aði hún.
Ú
skrifaðir nemendur úr Kvik-
myndaskóla Íslands vinna nú
að stuttmynd sem gerð er eftir
handriti þrettán ára stúlku,
Maríu Carmelu Torrini. Snædís
Snorra dóttir vinnur að myndinni
ásamt fleirum og segir hún hópinn
einfaldlega hafa heillast af hand-
ritinu og að höfundurinn hafi geng-
ið hart á eftir því að myndin yrði að
veruleika.
„Á endanum sáum við að hún var
ekkert að grínast með þetta þannig
að við slógum til og ákváðum að
fara í þetta af fullum krafti,“ segir
Snædís um myndina. „Hún er aðal-
leikkonan sjálf og leikstýrir ýms-
um skotum og ýmsum leik líka. Við
erum orðinn samheldinn hópur og
erum öll að hjálpast að við þetta.“
María komst í kynni við nem-
endur Kvikmyndaskólans þegar
hún lék í stuttmynd sem nemendur
skiluðu inn sem lokaverkefni á síð-
ustu önn námsins. Eftir það hafði
hún aðgang að sameiginlegri Face-
book-síðu nemendanna þar sem
hún kom á framfæri hugmyndum
sínum um að gera stuttmynd. Snæ-
dís segir að María hafi sjálf gert
stutt myndir áður, en núna hafi hún
fengið fjölmennan hóp kvikmynda-
gerðarmanna með sér í lið. Leikarar
í myndinni eru heldur ekki af verri
endanum og er Magnús Ólafsson
meðal leikara í myndinni.
Snædís segir að Dagur Ólafsson,
framleiðandi og tökumaður myndar-
innar, sé sá sem hafi gert verkefnið að
veruleika með dyggum stuðningi frá
kvikmyndafyrir tækinu Pegasus sem
hafi lánað búnað svo hægt væri að
gera myndina. Gert er ráð fyrir að
tökum ljúki um helgina.
Þrettán ára handritshöfundur
n Leikur aðalhlutverkið og aðstoðar við leikstjórn
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 20.–22. Júlí 2012 83. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Hópurinn María hefur fengið fyrrverandi nemendur Kvikmyndaskólans í lið með sér.