Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Page 2
2 Fréttir 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
Ráku hreindýr
í dauðann
3 Veiðimenn fyr
ir austan urðu
uppvísir að því
að nota flug
vél til að reka
lúsgæfa hrein
dýrahjörð af
friðlandi. Örn
Þorleifsson,
bóndi og eigandi
farfuglaheimilisins Húseyjar á Aust
urlandi, fordæmdi þessa hegðun, en
veiðimennirnir flugu ítrekað lágt yfir
hjörðinni til þess að reka hana yfir
á jörð þar sem þeir gátu skotið dýr
in. „Þetta er eilíf barátta við þessa
skotsóða, þetta eru örfáir menn sem
haga sér svona,“ sagði hann í samtali
við blaðið.
Þráast við
að víkja
2 DV birti þriggja
síðna úttekt um
embættis menn
sem hafa ekki
vikið úr emb
ætti þrátt fyrir að
hafa orðið upp
vísir að mistök
um. „Fólk á það
fyrst og fremst við
sjálft sig hvenær
það telur rétt að fara, starfsins og
sjálfs sín vegna,“ sagði Björn Valur
Gíslason þingmaður, annar af við
mælendum, blaðsins í úttektinni.
DV taldi upp fjölmörg dæmi þar
sem menn hafa þráast við að hætta
störfum þrátt fyrir að hafa orðið á í
messunni.
Taka smálán
fyrir dópi
1 DV ræddi við for
eldra fíkla sem
eiga það sam
eiginlegt að hafa
safnað skuldum
hjá smálánafyr
irtækjum til að
fjármagna neyslu
fíkniefna. Móðir
19 ára fíkils sagði
að sonur sinn væri nú stórskuldug
ur eftir slíkar lántökur. Foreldrarnir
spurðu hvort talist gæti eðlilegt að
fyrirtækin lánuðu ungum einstak
lingum sem aldrei myndu fá lán hjá
öðrum lánastofnunum, fyrir vímu
efnaneyslu þeirra. Áfengisráðgjafi
á Vogi tók í sama streng og sagði
vandamálið víðtækt.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Særún býr
í bílnum
Sínum
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð
d a g b l a ð
20.–21. ágúst 2012 Mánudagur/Þriðjudag
ur
9
5
. t
b
l
.
10
2
. á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
unglingar í skuldafeni
smálánin
fara
í dóp„Þetta er svo siðlaust
n Foreldrar eru ráðþrota
n „Stórt vandamál,“ segir ráðgjafi á Vogi
n „Kallaði þetta bara glæpafyrirtæki“
bjarni fluttur
í glæsihús
í Köben „Já, ég er bara nýfluttur „Ég vona
að enginn
sjái mig
Veldu réttu fartölvuna
n Allt sem þú þarft að vita um skólatölvuna n
Tölvur sem sérfræðingar mæla með
Pete
burns í
reðasafnið
Aldrei fleiri
svipt sig lífi
ný leka-
síða á
íslandi
bandarískir hermenn í krísu 14–1510–11
18–19
brasilíumenn vilja fjölmiðlaveldi 8
26
12
íslenskir
fangar
erlendis
ekki gleymdir
ræðismenn vinna launalaust
n Öryrki í fjötrum fátæktar
útt
ekt
Við
tal
4
2–3
fæstir
axla
ábyrgð
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð
d a g b l a ð
22.–23. ágúst 2012 miðvikudagur/fimmtu
dagur
9
6
. t
b
l
.
10
2
. á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
sitja sem fastast þrátt fyrir mistök
Þau viðurkenndu mistök sín
n Erfitt að segja embættismönnum upp
n Telja sig saklausa n Njóta víða hylli
n Móðir drengs sem svipti sig lífi hvetur til umr
æðu
Flugvél rak
hreindýr í
dauðann
gegn einelti
í minningu
Dagbjarts
Með ömmu í
flúðasiglingu
Andri Ólafsson fréttamaður
Barist um
leiguíbúðir
„Pínulitlar íbúðir á uppsprengdu verði
svona aug-
lýsa þeir
smálánin
Pólitísk ráðning
n Flokksbróðir ráðherra ráðinn til Þróunarsam
vinnustofnunar
Patti Smith
í Hróknum
Gerð að heiðursfélaga
26
27
4
8
10
n „Eilíf barátta við þessa skotsóða“
Albert Guðmundsson Guðmundur Á. Stefánss
on Þórólfur Árnason Steinunn V. Óska
rsdóttir Bjarni Harðarson Eyþór Arn
alds
3
12–14
Dagbjartur Heiðar Arnarsson
fæddur 15.02.2000 – dáinn 23.09.2011
2
Þ
etta er eilíf barátta við þessa
skotsóða, þetta eru örfáir
menn sem haga sér svona,“
segir Örn Þorleifsson, bóndi
og eigandi farfuglaheimilisins
Húseyjar á Austurlandi. Veiðimenn
notuðu flugvél á laugardagskvöldið til
þess að hrekja hóp hreindýra frá jörð
Arnar og á stað þar sem þeir gátu skot-
ið þau. „Þetta er bara svo ljótt,“ ítrekar
Örn. Hann leyfir ekki veiðar á hrein-
dýrum á sinni jörð og því er ólöglegt
að skjóta þau þar. Venjulega leita þau
af sjálfsdáðum út fyrir jörðina í sept-
ember en Örn segir veiðimennina
hafa verið óþreyjufulla og æsta í að ná
í tarfana, sem hafi verið einstaklega
stórir og glæsilegir. Hann vill halda
verndarhendi yfir dýrunum og ferða-
menn eru almennt mjög hrifnir af
þeim. „Þetta er spurning um náttúru-
vernd og svo er hreindýrið aðalsmerki
ferðaþjónustunnar hér,“ segir Örn um
málið.
„Ekki í anda veiðimennsku“
Örn rekur farfuglaheimilið Húsey.
Hann segir dýrin hafa verið mjög gæf
þar sem umgangur manna hafi verið
mikill í kringum þau. „Þau voru ekki
mjög stygg dýrin – við höfum riðið
framhjá þeim með gesti tvisvar sinn-
um á dag og það þótti ekkert sport að
veiða þau. Þetta var bara slátrun sem
slík,“ segir Örn og bætir við að þau
hafi verið skotin af stuttu færi. Hann
kveðst ekkert hafa á móti veiðum en
svona veiði sé ekki til eftirbreytni:
„Það er ekki í anda veiðimennsku
að gera svona. Þetta er ekki það sem
veiðimenn eiga að stunda. En þess-
ir menn eru mjög hreyknir af þessu.“
Það voru sautján tarfar á jörðinni og
nú eru ellefu eftir. Dýrin sem voru
felld voru stór og mikil.
Á skjön við siðareglur
Samkvæmt siðareglum Skotvíss eiga
menn að ráðfæra sig við landeigendur
þegar þeir veiða, en það var ekki gert
í þessu tilfelli. Eins og áður segir leyf-
ir Örn ekki veiðar á jörð sinni. Það er
einnig gegn siðareglunum að stæra sig
af bráð sinni. Örn leitaði bæði til flug-
turnsins á Egilsstöðum og lögreglunn-
ar vegna málsins enda taldi hann að
athæfi veiðimannanna hlyti að vera
glæpsamlegt – þannig hafi tilþrifin
verið hjá flugmanninum. Hann segir
að flugvélinni hafi ítrekað verið steypt
niður til þess að reka dýrin af jörð
hans og þangað sem þau væru löggilt
bráð. Lögreglan á Egilsstöðum sagðist
í samtali við DV þekkja til málsins þó
að það hafi ekki verið kært til hennar
formlega.
Segir Umhverfisstofnun að-
gerðalausa
Örn kveðst hafa leitað til Um-
hverfisstofnunar vegna málsins
og segir að lítið hafi verið um við-
brögð hjá stofnuninni. Samkvæmt
upplýsingum frá Umhverfisstofn-
un er ólöglegt að smala hreindýr-
um, með hvaða hætti sem er, en
sé það gert er það í höndum lög-
reglunnar að framfylgja þeim lög-
um. Starfsmaður stofnunarinnar
sem DV ræddi við sagðist þó ekki
þekkja nægilega mikið til um mál-
ið til þess að geta tjáð sig um það.
Örn segist lengi hafa barist fyrir því
að dýrin séu ekki skotin á hans jörð
enda rekur hann ferðaþjónustu á
svæðinu, en litla hjálp sé að fá hjá
yfirvöldum vegna málsins.
Flugvél til að reka
hreindýr í dauðann
n Landeigandi segir veiðimenn hafa steypt flu
gvél að hreindýrum
Öfgafemínista blæðir
n Umdeildur pistill á Knúz.is
H
eimurinn er þannig að blæð-
ingar eru kvenna og aðeins
kvenna. Það er mín reynsla
að blæðingar eru jaðarsettari
sem umræðuefni í kynjablönduðum
hópum en kynlíf, hægðir og jafn-
vel sjálfsfróun,“ skrifar Hildur Lilli-
endahl á vefsíðuna Knúz.is á þriðju-
dag, en þar fjallar hún um blæðingar
og vitnar til orða Gloriu Steinem
um það hvernig heimurinn væri ef
blæðingar væru hlutskipti karla en
ekki kvenna. Þar að auki segir Hild-
ur frá sinni eigin reynslu um það
hvernig það er að byrja skyndilega
á túr, óviðbúin í strætó. Pistillinn
reyndist vera mjög umdeildur og
setti athugasemdakerfi DV.is nánast
á hliðina þegar fjallað var um málið.
Í pistlinum bendir Hildur á að
Gloria Steinem, sem er banda-
rískur femínisti, blaðamaður og að-
gerðasinni, taldi að ef það væri hlut-
skipti karla að hafa á klæðum þá
myndi hægri vængur stjórnmála-
manna og bókstafstrúarmenn túlka
blæðingar sem ótvíræða sönnun
þess að einungis karlar gætu þjón-
að Guði og þjóð í stríði, setið í æðstu
pólitískum embættum og fleira. Í
stað þess að gera lítið úr þeim fyr-
ir að hafa tíðir væri þeim því þess í
stað hampað.
En Hildur bendir á það að í
raunveruleikanum eru blæðingar
kvenna og aðeins kvenna og kon-
ur eiga það til að afsaka sig þegar
þær ræða blæðingar þannig að karl-
menn heyri til. „Af því að við erum
allar búnar að læra að beygja okk-
ur undir þá hugmynd að karlar eigi
ekki að þurfa að hlusta á blæðinga-
tal,“ segir Hildur „Mig langar að
snúa þessu við. Mig langar að geta
sagt hverjum sem er að ég sé á bull-
andi túr án þess að uppskera grettur
eða taugaveiklun eða hroll eða
skilaboð sem segja á einn eða ann-
an hátt: þú hefðir ekki átt að segja
mér þetta, ég vil ekki vita þetta, láttu
mig í friði, ég er vandræðalegur, mig
langar að æla etc.“
Hildur segir í kjölfarið sína eigin
sögu af því hvernig það er að byrja
skyndilega og óviðbúið á túr í strætó
á leiðinni í vinnuna og hvernig hún
þurfti að fara rakleiðis heim, sitjandi
á plastpoka.
Fréttir 3
Miðvikudagur 22. ágúst 2012
„Þetta er ekki það
sem veiðimenn
eiga að stunda. En þess-
ir menn eru mjög hreyknir
af þessu.
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
Ósáttur Örn Þorleifsson landeigandi
segist þurfa að heyja eilífa baráttu við
skotsóða.
Smalað Hreindýrunum
var smalað af landi Arnar
með flugvél og síðan voru
þau skotin.
Á túr í strætó Hildur seti
netheima í talsvert uppnám
með pistli sínum.
Pólitísk ráðning
Reynsla frá þróunarlöndum
„æskileg“
Góðir kostir fyrir starfið eru tald-
ir háskólamenntun sem nýtist í
starfi, þekking af verkefnastjórn
og áætlanagerð sem og „Þekking
á þróunarmálum og á að minnsta
kosti einu af þeim sviðum sem
stofnunin vinnur að í Malaví, eink-
um lýðheilsu.“ Lipurð í samskipt-
um og upplýsingamiðlun eru
kostir en sama gildir um reynslu
af störfum í þróunarlöndum sem
er talin „æskileg“. Almennt virð-
ist sem starf Guðmundar í bæjar-
stjórnarmálum í Hafnarfjarðarbæ
sé talið honum til kosta en Þró-
unarsamvinnustofnun starfar náið
með héraðsstjórn Mangochi-hér-
aðs.
Lipurð í samskiptum
Reynsla Guðmundar af sveitar-
stjórnarmálum er töluverð. Auk
bæjarstjórnarstólsins hefur hann
setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar
frá árinu 2002 og var varabæjar-
fulltrúi kjörtímabilið þar á undan.
Hann hefur meðal annars átt sæti
í bæjarráði og var formaður þess.
Hann hefur jafnframt verið for-
maður Fjölskylduráðs og forseti
bæjarstjórnar. Guðundur Rún-
ar tók þátt í forvali Alþýðubanda-
lagsins árið 1982 og var kosninga-
stjóri flokksins í Hafnarfirði árið
1994. Hann hefur ítrekað skrifað
stuðningsgreinar til handa Lúðvík
Geirssyni, fyrrverandi bæjarstjóra
Hafnarfjarðar og þingmanni Sam-
fylkingarinnar en Lúðvík sest nú
aftur í bæjarstjórn í fjarveru Guð-
mundar enda fyrsti varamaður
Samfylkingarinnar. Guðmund-
ur beitti sér innan Samfylkingar-
innar í formannsslag Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur fyrrver-
andi utanríkisráðherra og Össur-
ar. Guðmundur virðist almennt
vel liðinn, varkár og hófsamur ef
marka má ummæli þeirra sem til
hans þekkja. n
Ísland og
Malaví
Malaví er land á stærð við Ísland í
suðausturhluta Afríku og telst lítið
land á afrískan mælikvarða, eða um
120 þúsund ferkílómetrar að stærð.
Landið er eitt það þéttbýlasta í Afríku
með um 13 milljónir íbúa og jafnframt
meðal fátækustu landa í heimi. Fjöl-
breytt náttúra einkennir landið, með
hásléttum og gróðursælu láglendi.
Landið er þéttbýlt en frjósamt og
mikill meirihluti landsmanna lifir af
landbúnaði; te-, kaffi-, gúmmí-, og
tóbaksrækt til útflutnings, en maís,
kassavarót, hrísgrjón og kartöflur
eru helstu matvælategundirnar sem
ræktaðar eru til neyslu innanlands.
Flest verkefni Þróunarsamvinnu-
stofnunarinnar í Malaví eru í
Mangochi héraði. Verkefni ÞSSÍ eru
á sviði heilbrigðismála, menntunar,
fiskimála og vatns- og hreinlætisver-
kefna. Auk þess styður ÞSSÍ fjárhags-
lega við sjúkrahús í höfuðborginni
Lilongwe og styður við verkefni sem
snýr að konum sem hafa orðið fyrir
heimilisofbeldi.
Þróunarsamvinna ÞSSÍ og malavíska
ríkisins hófst árið 1989 og af verkefn-
um Þróunarsamvinnustofnunar fær
Malaví stærstan hluta aðstoðarinnar.
HEiMiLd: VEfSíða ÞRÓUnaRSaMVinn
UStofnUnaR
Henti sígarettu
og velti bílnum
Ökumaður á þrítugsaldri missti
stjórn á bifreið sinni á þriðjudag
þegar hann henti sígarettu út um
þaklúgu bílsins. Maðurinn hefði
betur sleppt því en bifreiðin valt
tvo hringi og stórskemmdist.
Sauma þurfti á annan tug spora í
höfuð ökumannsins og allmörg í
hægri hönd hans.
Við rannsókn lögreglunn
ar á Suðurnesjum á vettvangi
kom í ljós að bíllinn hafði hafn
að á þriðja tug metra fyrir utan
Garðskagaveg og hafnað þar á
hjólunum. Maðurinn var með
útrunnið ökuskírteini að því er
segir í tilkynningu frá lögreglu.
Þetta var ekki eina umferðar
óhappið sem lögreglan á
Suðurnesjum hefur þurft að
sinna í vikunni því á miðvikudag
gerðist það á Reykjanesbraut
inni að hjólbarði losnaði und
an rútu sem ekið var áleiðis til
Reykjavíkur. Ekki vildi betur til
en svo að hjólbarðinn kastað
ist yfir veginn og lenti á annarri
bifreið. Sem betur fer urðu ekki
slys á fólki.
Harmleikur í
Lautasmára
Ekki er talið að það hafi borið að
með saknæmum hætti þegar ung
ur maður féll fram af svölum á
11. hæð blokkar við Lautasmára í
Kópavogi á þriðjudag samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu. Málið
er því ekki rannsakað sem saka
mál.
Tilkynnt var að maður hefði
fallið fram af svölum háhýsisins á
þriðjudagsmorgun og var lögregla
og sjúkralið kallað til. Maðurinn
var samkvæmt fyrstu fregnum af
atvikinu fluttur mjög alvarlega
slasaður á slysadeild Landspítal
ans í Fossvogi þar sem hann var
úrskurðaður látinn.
Dalvegi 16b Sími: 554-2727
ERTU ÖRUGGUR?
Gardsman
Hugna ehf býður sumarhúsa eigendum aflátt
á GSM öryggiskefurm frá GARDSMAN fram
til mánaðarmóta. Komið og skoðið möguleika
og verð. Engin áskrift, þitt eigið kerfi.
www.hugna.is
SÝNDU FYRIRHYGGJU
EKKI VERÐA FYRIR STÓRTJÓNI
S
ú var tíðin að forstjóri Flug
félags Íslands, sem nú heit
ir Icelandair slóst í för með
fylgdarsveit forsetans í
þau skipti sem þjóðhöfð
inginn flaug með félaginu. Mörg
ár eru síðan sú hefð var lögð nið
ur innan fyrirtækisins enda nokk
uð algengara en áður að Bessa
staðabændur nýti sér þjónustu
fyrirtækisins. Fylgdarsveit forset
ans hefur nokkuð verið til umfjöll
unar undanfarið. Í bréfaskriftum
milli Jóhönnu Sigurðardóttur for
sætisráðherra og Ólafs Ragnars
Grímssonar forseta Íslands sem
RÚV birti á dögunum sést að for
sætisráðuneytið vill leggja fylgdina
af. Því hefur Ólafur Ragnar and
mælt enda sé vinnuframlag hand
hafanna þá orðið að engu.
Forsætisráðherra leggur til að
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
fái það hlutverk að fylgja Ólafi í flug
ferðir enda fari umdæmið þegar
með öryggismál og skipulagningu
þegar kemur að ferðalögum Ólafs
Ragnars í gegnum Keflavíkurflug
völl. Þessu hefur forsetaembættið
andmælt enda telur embættið að
formlegt valdaafsal fari fram með
handabandi á flugvellinum. Þá
benti forseti á í bréfaskriftum við
forsætisráðherra að sé fylgdinni
ekki viðhaldið sé sem skyldu hand
hafa forsetavaldsins vinnuframlag
þeirra nánast orðið að engu.
Kvarnast úr fylgdinni
Nokkuð hefur kvarnast úr
fylgdarliði forsetans undanfarin
ár. Þannig tíðkaðist það áður fyrr
að þrír handhafar forsetans fylgdu
honum á flugvöllinn eða niður
á höfn sem reyndar var algengt
á þeim árum sem hefðin er sótt
til. Auk handhafatríósins máttu
fyrri forsetar eiga von á fylgd for
stjóra Flugleiða á völlinn. Með því
vildi fyrirtækið sýna embættinu
virðingu. Ólafur hefur mátt gera
sér fylgd Markúsar Sigurbjörns
sonar, forseta hæstaréttar, að góðu
en mörg ár eru síðan ákveðið var
að tíma forsætisráðherra væri bet
ur varið á öðrum vettvangi. Þá hef
ur forseti Alþingis gjarnan komið
sér undan því að fljóta með forset
anum.
Farþegar og forseti
Líkt og fylgd handhafanna hafði
aðkoma forstjóra Flugleiða ekkert
lögformlegt gildi og byggði aðeins
á hefð. Mörg ár eru síðan siður
inn var lagður af innan fyrirtækis
ins. Icelandair hefur þó ekki lagt af
allt pjátur eða prótókól þegar flytja
á persónugerving íslenska lýðveld
isins á milli landa. „Þegar forset
inn er í opinberum erindagjörðum
þá tekur flugstjórinn á móti hon
um við innganginn í vélinni,“ seg
ir Guðjón Arngrímsson talsmað
ur Icelandair. Guðjón segir þá hefð
hafa myndast innan fyrirtækisins
að flugstjórinn komi fram og taki í
hönd forsetans og bjóði hann vel
kominn. „Síðan er forsetinn ávarp
aður sérstaklega í ávarpinu til far
þega,“ segir Guðjón og bætir við
að með þessu vilji fyrirtækið ein
faldlega votta forsetaembættinu
virðingu. Ef svo óheppilega vill til
að erlendir viðskiptavinir félags
ins þekki ekki til starfa og persónu
Ólafs Ragnars er gengið úr skugga
um að þeim sé fullkunnugt um að
forseti Íslands sé um borð. Sú til
kynning er reyndar bæði flutt á
ensku og íslensku.
Tímafrekt vesen
Fyrir hinn almenna flugfarþega
er ekki án hindrana að fljúga, skrá
þarf inn töskuna, ganga í gegnum
öryggishlið og bíða í röð. Fljúg
andi forsetar sleppa að mestu við
vandræðagang eins og langar rað
ir og tafir við að bóka inn töskur.
Hins vegar hefur sú hefð myndast
að forsetinn fari síðastur um borð
í flugvél, á eftir öðrum farþegum.
Þannig þarf forsetinn að bíða eftir
öðrum farþegum á afviknum stað á
stöðinni. Það er lögregluembættið
á Suðurnesjum sem fer með ör
yggismál forsetans innan vallar
ins. Þar vildu menn ekki upplýsa
blaðið um nákvæma útlistun á
ferðum Ólafs í gegnum flugvallar
bygginguna þar sem huga yrði að
öryggi forsetans.
Miðað við þetta er því sama
hversu tímanlega er lagt af stað frá
Bessastöðum til Keflavíkur, ávallt
skal biðin lengst hjá þjóðhöfðingj
anum. Fremstur meðal jafningja
virðist því leiða hjá sér að stíga síð
astur inn á Saga Class.
n Forstjóri flugfélagsins fylgir ekki lengur n Forsetinn síðastur í vélina„Síðan er forsetinn
ávarpaður sérstak-
lega í ávarpinu til farþega.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Síðastur á Saga Class
Fylgdin Ólafur Ragnar Grímsson forseti
Íslands ásamt fylgdarmanni, Markúsi Sigur-
björnssyni forseta Hæstaréttar.
Stjórnsýslan og lýðveldið
Forsætisráðherra hefur ekki
fylgt forsetanum til Keflavíkur í
áraraðir. Myndin er því ekki tekin
af tilefni ferðalaga forsetans.