Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 10
10 Fréttir 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað L aun handhafa forsetavalds hafa ekki verið lækkuð á kjör- tímabilinu þrátt fyrir að lækk- un þeirra hafi verið á dag- skránni í rúmlega þrjú ár. Tvívegis hafa frumvörp um lækk- un handhafalaunanna dagað uppi á borðum forseta Alþingis við þing- lok. Þó er nokkuð rík samstaða með- al þingmanna um lækkun launanna samkvæmt heimildum DV. Í júní árið 2009 lýsti Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, því yfir að afnema ætti greiðslur til handhafa forseta- valds en af því hefur ekki orðið. Helgi Hjörvar og Árni Þór Sigurðs- son, flutningsmenn frumvarpanna tveggja, segja báðir í samtali við DV að til standi að taka málið upp aftur á næsta þingi. Lögðu til 80 prósenta lækkun Undir forystu Helga Hjörvar, þing- manns Samfylkingarinnar, lagði efna- hags- og viðskiptanefnd fram frum- varp í ágúst árið 2009 þar sem kveðið var á um umtalsverða lækkun hand- hafalaunanna. Í því var gert ráð fyr- ir að handhafarnir nytu samanlagt fimmtungs launa forseta í fjarveru hans og var því um að ræða 80 pró- senta launalækkun. Helgi Hjörvar segir samstöðu hafa ríkt um málið í nefndinni. „En í þing- lok, þegar samið var milli stjórnar og stjórnarandstöðu um hvaða mál næðu fram að ganga og hver ekki, þá var andstaða við að afgreiða þetta og þess vegna varð það ekki að lögum,“ seg- ir Helgi í samtali við DV. Þá hafi fram- sóknarmenn mælt gegn frumvarpinu með Vigdísi Hauksdóttur í fararbroddi. „Við munum taka málið aftur upp í haust,“ segir Helgi að lokum. Í höndum þingforseta Þingmenn Framsóknarflokksins virðast ekki á einu máli þegar kem- ur að launum staðgengla forseta. Til dæmis var Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður flokksins, í hópi sjö þing- manna sem lögðu fram frumvarp á liðnu þingi um að laun handhafa forsetavalds skyldu aflögð með öllu. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins var Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna. Þetta frumvarp hlaut sömu örlög og það fyrra. „Ég fékk þetta frumvarp ekki á dagskrá en ég reikna með að endurflytja það á næsta þingi,“ seg- ir Árni Þór en kveðst ekki vita hvers vegna frumvarpið hafi ekki verið tek- ið fyrir. „Ég get ekki svarað því, ég ræð náttúrulega ekki dagskrá þings- ins. Þetta snýst bara um dagskrár- valdið á þinginu. Það er hjá forseta þingsins sem er einvaldur um það hvaða mál fara á dagskrá.“ Um 10 milljónir á ári Handhafar forsetavaldsins eru for- sætisráðherra, forseti Alþingis og for- seti Hæstaréttar. Í fjarveru forseta njóta þeir samanlagt jafnhárra launa og for- setinn gerir alla jafnan. Samkvæmt greinargerð nokkurra þingmanna, sem lögðu á liðnu þingi fram frumvarp um launalækkun handhafanna, nem- ur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa um 10 milljónum á ári. Það gerir um 280 þúsund krónur í mánaðartekjur fyrir hvern handhafa sem leggjast ofan á aðrar launagreiðslur þeirra. „Mjög svo takmarkað vinnuframlag“ Skyldur handhafa forsetavalds felast aðallega í lögbundnum aðgerðum líkt og að staðfesta lög frá Alþingi. Þar að auki er hefð fyrir því að einn handhafanna fylgi forseta til og frá Keflavíkurflugvelli vegna utanferða forseta. Að undanförnu hefur ver- ið deilt nokkuð um nauðsyn þeirrar hefðar. Forsætisráðherra hefur lýst því yfir að sér þyki fylgdin óþörf en forsetinn er ekki á sama máli. Í kvöldfréttum RÚV á þriðju- daginn var fjallað um bréfaskipti forseta og forsætisráðherra vegna fylgdar handhafanna. Í bréfi sínu til forsætisráðherra víkur forseti að launagreiðslum staðgengla sinna og minnir á orð forsætisráðherra um að afnema ætti launin. Þar talar forset- inn meðal annars um „hið mjög svo takmarkaða vinnuframlag handhaf- anna“ og segist ekki vilja taka afstöðu til forsetafylgdar handhafanna uns ljóst er hvort þær breytingar sem for- sætisráðherra hefur boðað varðandi laun þeirra verði að veruleika. Í svar- bréfi forsætisráðherra, sem dagsett er í febrúar árið 2011, er ítrekuð fyrri yfirlýsing um að til standi að endur- skoða lög um launagreiðslur til stað- gengla forseta. Laun handhafa eru enn óbreytt n Frumvörp um launalækkun handhafa forsetavalds ekki tekin fyrir „Þetta snýst bara um dagskrárvaldið á þinginu. Það er hjá for- seta þingsins sem er ein- valdur um það hvaða mál fara á dagskrá. Handhafar á góðum launum Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Markús Sigur- björnsson, forseti Hæstaréttar, eru handhafar forsetavalds í fjarveru forseta. Á árunum 2004–2009 voru mánaðarlaun hvers handhafa að meðaltali um 280 þúsund krónur ofan á aðrar tekjur. Lagði til afnám handhafalauna Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, fór fyrir hópi þingmanna sem lögðu á síð- asta þingi til algjört afnám launa til handa staðgenglum forseta. Frumvarpið var ekki tekið fyrir. Ólafur Kjaran Árnason blaðamaður skrifar olafurk@dv.is Leituðu konu Björgunarsveitamenn á Aust- urlandi leituðu á miðvikudags- kvöld franskrar konu sem skil- aði sér ekki á tilsettum tíma úr göngu. Starfsfólk gistiheimilis, þar sem konan var gestur, hafði samband við lögreglu og til- kynnti að hennar væri saknað. Konan hugðist ganga Hvannagil í Lóni en gangan tekur að jafnaði 4–5 tíma. Björgunarsveitir frá Höfn og Djúpavogi voru kallaðar til leit- arinnar, sem og leitarhunda- teymi af Austurlandi og fannst konan rétt eftir klukkan hálf tíu. Hún var þá á göngu í Hvannagil- inu og hafði villst af leið en var komin á slóðann aftur þegar hún fannst. Amaði ekkert að henni. Ökumaður í vímu með þýfi Lögreglan á Suðurnesjum handtók á þriðjudag ökumann sem grun- aður var um akstur undir áhrif- um fíkniefna. Hann heimilaði leit í bifreið sinni. Í farangurgeymslu hennar fundust fimm verkfæra- töskur og tvö iðnaðarvesti. Í einni töskunni fannst meðal annars hæðarkíkir að verðmæti á þriðja hundrað þúsund. Í kjölfar þessa gerði lögregla húsleit heima hjá manninum, að fenginni heimild. Í geymslu sem hann hafði til afnota fundust ýmis tæki og tól, þar á meðal höggborvél og stingsög. Grunur leikur á að um þýfi sé að ræða að sögn lögreglu. Mældist á 150 kílómetra hraða Lögreglan á Suðurnesjum klippti í vikunni númer af sex bifreiðum sem voru ýmist óskoðaðar eða ótryggðar. Þá óku fjórir ökumenn yfir löglegum hámarkshraða á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 150 kílómetra hraða. Loks voru höfð afskipti af öku- manni sem hafði ekki spennt bíl- belti og talaði í síma, án handfrjáls búnaðar, meðan á akstrinum stóð. Klæðningar og viðgerðir á gömlum húsgögnum Iðnbúð 5 - 210 Garðabæ - Sími: 554 1133 - asgrimur@bolstra.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.