Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 34
34 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
ára var raðmorðinginn Jeffrey Dahmer þegar hann framdi sitt fyrsta morð. Dahmer er einn þekktasti raðmorðingi
Bandaríkjanna en á 13 ára tímabili, frá 1978 til 1991, myrti hann sautján drengi eða unga karlmenn. Dahmer var haldinn ná-
hneigð og stundaði einnig mannát. Flest fórnarlamba Dahmers voru af afrískum eða asískum uppruna. Hann fékk fimmtán-
faldan lífstíðardóm, 957 ára dóm, árið 1992. Tveimur árum eftir að hann hóf afplánun var hann myrtur af samföngum sínum.
A
nthony Walker var breskur
drengur af afrísku bergi
brotinn. Hann var fædd-
ur 21. febrúar 1987 og
átti heima í Liverpool á
Englandi ásamt móður sinni, Gee
Walker, föður sínum, Steve Wal-
ker, og þremur systkinum. Anthony
náði ekki tuttugu ára aldri því hann
var myrtur þann 30. júlí 2005.
Þann örlagaríka dag beið Ant-
hony í mestu makindum, ásamt
kærustu sinni Louise Thompson
og frænda, Marcus Binns, á strætó-
stoppistöð við Huyton-garð í Liver-
pool. Birtist þá ekki unglingur í
hettupeysu og réðst að Anthony að
ósekju með ógnandi tilburðum og
rasískum ummælum.
Louise og Marcus leist ekki á
blikuna og hlupu eftir hjálp og
þegar þau snéru aftur komu þau að
Anthony, nær dauða en lífi, enda
með ísaxarblað á kafi í höfðinu.
Sjúkraflutningamenn komu Ant-
hony á sjúkrahús, en hann komst
aldrei til meðvitundar og lést af
áverkum sínum sex klukkustund-
um síðar.
Handteknir á John
Lennon-flugvellinum
Ódæðismennirnir, Paul Taylor og
frændi hans Michael Barton (hálf-
bróðir knattspyrnumannsins Joey
Barton, fyrir þá sem fylgjast með
enska boltanum), höfðu í kjölfar
verknaðarins fataskipti og fóru til
Amsterdam í Hollandi.
En því fór fjarri að þeir þyrftu
ekki að svara fyrir glæp sinn því þeir
voru handteknir á John Lennon-
flugvellinum í Liverpool (nefndum
í höfuðið á Bítlinum John Lennon,
fyrir þá sem ungir eru að árum og
kannast kannski ekki við þá hljóm-
sveit), þegar þeir snéru aftur til Eng-
lands. Foreldrum tvímenninganna
var tilkynnt að óbermin væru sterk-
lega grunuð um árásina – reyndar
þeir sem helst væru grunaðir.
Síðar var réttað yfir þessum fé-
legu frændum og lýsti Paul Taylor
sig sekan um morðið, en Michael
Barton neitaði sök. Barton var engu
að síður sakfelldur fyrir morðið á
grundvelli þess að hann hafði átt
upptökin á strætóstoppistöðinni og
að auki útvegað morðvopnið.
Þann 30. nóvember, 2005, voru
þeir sakfelldir fyrir morð af rasísk-
um toga og dómur kveðinn upp
daginn eftir.
Þrír vitorðsmenn
Þegar upp var staðið fékk Paul
Taylor, sem hafði veitt Anthony
síðasta höggið, 23 ára dóm og átta
mánuðum betur. Michael Barton
fékk 17 ára og átta mánaða dóm
fyrir sinn þátt. Gert er ráð fyrir því
að sá fyrrnefndi losni úr fangelsi í
ágúst 2028, þá 43 ára að aldri, og sá
síðarnefndi í ágúst 2023, þá 35 ára.
Dómarinn hafði á orði að frænd-
urnir hefðu gerst sekir um „hrylli-
lega fyrirsát“ og „rasíska árás sem
væri eitur í beinum allra siðaðra
samfélaga“.
En ekki voru öll kurl komin til
grafar því frændurnir höfðu notið
hjálpar við flóttann til Amsterdam
og síðar voru þrír menn sakfelldir
vegna þess.
Þann 10. maí 2006 var Robert
Williams sakfelldur fyrir að hafa út-
vegað Paul og Michael fé og bókað
fyrir þá hótelherbergi í Amsterdam
– hann fékk tveggja ára og fjögurra
mánaða dóm fyrir vikið. Paul nokk-
ur Morson fékk ellefu mánaða dóm
fyrir að útvega frændunum bíl til að
flýja á og Trace Garner viðurkenndi
að hafa veitt þeim aðstoð og fékk fyr-
ir sinn þátt ellefu mánaða skilorðs-
bundinn dóm og var gert að skila 50
klukkustundum í þegnskylduvinnu.
Fyrirgefning og hatur
Viðhorf móður Anthonys og kær-
ustu hans til morðingja hans eru
afar ólík. Móðir Anthonys lýsti
viðhorfum sínum á eftirfarandi
máta: „Ég verð að fyrirgefa þeim.
Ég má ekki upplifa reiði og hatur,
því það er það sem varð syni mín-
um að bana.“
Louise, kærasta Anthonys, er á
öndverðum meiði og sagðist hún
aldrei munu fyrirgefa morðingjun-
um: „Ég hata þá fyrir það sem þeir
gerðu. Nú hafa þessir tveir illu menn
tekið hann [Anthony] frá mér. Mér
finnst enn eins og hann sé nálægur.
Í gær sendi ég Anthony smáskilaboð
og sagði honum að hann [Michael
Barton] hefði verið sakfelldur. Mér
fannst eðlilegt að gera það.“
Í óspurðum fréttum má geta
þess að í apríl 2006 bárust frétt-
ir þess efnis að samfangar Micha-
els Barton hefðu gengið í skrokk
á honum þar sem hann afplánar
dóm sinn í Moorland-fangelsinu
skammt frá Doncaster í Suður-Jór-
víkurskíri.
kolbeinn@dv.is
n Anthony fórnarlamb kynþáttahaturs n Beið blásaklaus eftir strætó
Banað á Biðstöð
Leystu óvænt gamalt morðmál
Tveir
morðingjar
í hverfinu
Þ
egar lögreglan leitaði
fórnarlamba Cleveland-
fjöldamorðingjans
Anth ony Sowell árið 2009
fann hún líkamsleifar konu sem
ljóst var að hann hafði ekki myrt,
en DNA úr öðrum karlmanni
fannst á líkinu. Sowell myrti
ellefu konur á árunum 2007 til
2009 og faldi lík þeirra bæði á
heimili sínu og í grennd við það.
Hann var dæmdur til dauða-
refsingar í ágúst árið 2011 fyrir
morðin. Lögreglan hafði búist
við að finna fleiri fórnarlömb
Sowells en það hvarflaði ekki að
þeim að þeir myndu finna ann-
an morðingja og leysa þannig
mun eldra morðmál.
Eftir að tólfta líkið fannst
án DNA úr Sowell var rann-
sóknarteymi falið að rann-
saka 75 óupplýst morðmál frá
árinu 1980 í um sex kílómetra
radíus frá heimili hans. Rann-
sóknarlögreglan áttaði sig fljót-
lega á að annar morðingi hlyti
að hafa látið til skarar skríða í
hverfinu. Í ljós kom að tólfta lík-
ið sem fannst var af hinni 27 ára
gömlu Mary Thomas sem hvarf
árið 1989. DNA á líkamsleifum
hennar tengdi Joseph Harwell
við morðið en þegar Thomas
fannst sat hann inni fyrir morð
á annarri konu. Thomas var
ákærður fyrir að nema á brott,
nauðga og myrða tvær konur.
„Ég hata þá
fyrir það
sem þeir gerðu
Myrtur með ísöxi
Anthony Walker var
fórnarlamb tveggja
kynþáttahatara.
18