Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 46
A ron Kristjánsson, þjálfari karlaliðs Hauka í hand- knattleik, mun fá það verð- uga verkefni að taka við íslenska landsliðinu í hand- bolta. Tilkynnt var um ráðningu Arons á blaðamannafundi á Hótel Loftleið- um á miðvikudag. Aron mun þar með reyna að feta í fótspor Guðmundar Guðmundssonar, sigursælasta þjálf- ara Íslands frá upphafi, sem hætti með liðið eftir Ólympíuleikana í London. Guðmundur vann til verðlauna með liðinu á tveimur stórmótum; silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og brons á Evrópumótinu í Austurríki 2010. DV ræddi við tvo handbolta- spekinga og fékk þá til að leggja mat á það sem koma skal undir stjórn Arons. Það rétta í stöðunni „Mér finnst þessi ráðning vera sú rétta í stöðunni,“ segir handbolta- þjálfari sem þekkir vel til Arons um ráðninguna. Hann segir að í raun hafi enginn annar þjálfari kom- ið til greina, að minnsta kosti ekki sem starfar hér á landi, þó þjálfarar á borð við Dag Sigurðsson og Patrek Jóhannesson hefðu verið góðir kost- ir. Dagur Sigurðsson er sem kunnugt er þjálfari Füchse Berlin en Patrekur er þjálfari austurríska landsliðsins. Sem fyrr segir verður ekki auðvelt að feta í fótspor Guðmundar, þjálf- arans sem kom Íslandi í fremstu röð meðal handboltaþjóða. „Það verð- ur ekki auðvelt en ég held samt að honum muni farnast vel. Hann er toppþjálfari og hefur sýnt það hér á landi,“ segir viðmælandi DV en rifjar þó upp að Aron hafi átt erfiðan tíma sem þjálfari í Þýskalandi. Hann tók við Hannover-Burgdorf í mars 2010 en var látinn taka pokann sinn í febr- úar 2011, þar sem gengi liðsins þótti ekki standa undir væntingum. Aðspurður hvort Aron muni koma með einhverjar áherslubreytingar segir viðmælandinn að hann hafi ekki trú á því. „Ég held að hann muni reyna að byggja á sama grunni. Mér fannst hann tala þannig eftir blaða- mannafundinn.“ Guðjón áfram – Ólafur út? Flest bendir til þess að Ólafur Stef- ánsson, einn besti handknattleiks- maður heims og máttarstólpi liðsins undanfarinn áratug, muni leggja skóna á hilluna. Ólafur hefur þó ekki gefið það formlega út og sagð- ist Aron á fundi með blaðamönn- um vona að Ólafur spilaði áfram með liðinu. Þá gaf hornamaður- inn Guðjón Valur Sigurðsson það til kynna eftir tapið gegn Ungverjum á Ólympíuleikunum að möguleiki væri á að hann myndi hætta að leika með landsliðinu. „Ég held að enginn muni hætta nema Ólafur Stefáns- son kannski. Guðjón Valur verð- ur yngri en Ólafur er núna á næstu ólympíuleikum og hann hefur enga ástæðu til að hætta,“ segir þjálfarinn. Áhyggjur af reynsluleysi DV ræddi einnig við fyrrverandi leik- mann íslenska landsliðsins um ráðn- ingu Arons. Óhætt er að segja að hon- um lítist vel á ráðninguna þó hann hafi vissulega áhyggjur af reynsluleysi hans með landslið. Það sé erfitt verk- efni að stilla saman strengina á stór- mótum þegar stutt er á milli leikja og það muni taka á taugarnar. Aron sé þó sterkur karakter en hafi þó ekki endi- lega verið besti kosturinn. „Auðvitað hefði Dagur Sigurðsson verið vænleg- asti kosturinn. En Aron er flottur þjálf- ari og er búinn að vinna sér inn mikla virðingu síðustu árin,“ segir lands- liðsmaðurinn fyrrverandi sem telur að Aron muni ekki eiga í erfiðleikum með að vinna sér inn virðingu meðal leikmanna landsliðsins. Öfugt við þjálfarann sem DV ræddi við telur hann að Aron muni koma með áherslubreytingar í hópinn og væntanlega yngja liðið talsvert upp. „Ef hann gerir eins og Viggó Sigurðs- son gerði árin 2004 til 2007 og yngir liðið upp þá mun hann fá kredit fyr- ir það. Ég er að vona að hann taki tvö ár í að yngja hópinn upp. Króatar og Slóvenar hafa gert þetta með góðum árangri.“ Varðandi breytingar á leikskipulagi segir viðmælandi blaðsins að Aron muni örugglega breyta varnarleikn- um og jafnvel fleiri þáttum í leik liðsins. „Ég sé hann fyrir mér fara sín- ar leiðir. Hann mun ekki halda sama varnarleik til dæmis. Það var fáránlegt að þetta skyldi virka – þannig séð. Það spilar ekkert lið þennan varnarleik í heiminum þannig að ég held að hann muni koma með einhverjar nýjungar inn í þetta.“ Ástríðufullur Aðspurður hvernig karakter Aron hafi að geyma segir landsliðsmaðurinn fyrrverandi að Aron sé mikill ástríðu- maður. „Þegar hann var sjálfur að spila var hann rosalega blóðheitur. Hann hefur samt elst vel – eins og gott rauð- vín. Hann er greindur og skynsamur og hefur róast með árunum. Hann er með mikla ástríðu fyrir handbolta; hann skilur leikinn og er góður stjórn- andi. Hann fær alla til að virka, er ná- inn leikmönnum og það kemur til með að hjálpa.“ Aron hóf þjálfaraferil sinn í meist- araflokki árið 2004 þegar hann tók við liði Skjern í Danmörku en hann lék áður með liðinu og á um það bil 100 landsleiki að baki sem leikmað- ur. Eftir að hann hætti með Hannover- Burgdorf árið 2011 tók hann við Haukaliðinu og gerði það að deildar- meistara í vor. Landsliðsmaðurinn fyrrverandi sem DV ræddi við seg- ir að árangur hans með Hauka á síð- asta tímabili hafi verið athyglisverður. „Hann gerði tiltölulega lélegt Haukalið að frábæru liði. Í fyrra rúlluðu þeir upp deildinni með nánast sama liði og var árið áður þegar það gat ekki neitt. Hann er rosalega góður í að mótivera leikmenn en það er vissulega svolítið öðruvísi að mótivera leikmenn í ís- lensku deildinni en leikmenn lands- liðsins sem spila í bestu liðum í heimi.“ Erfiðir tímar í nánd Þó að Aroni sé lýst sem góðum þjálf- ara segir landsliðsmaðurinn fyrrver- andi að almenningur verði að stilla væntingum sínum í hóf. Kynslóða- skipti séu hjá íslenska landsliðinu með brotthvarfi Ólafs og nú sé erf- iður tími til að taka við landsliðinu. „Það hvílir þvílík ábyrgð á herðum hans og það er ekki öfundsvert að taka við liðinu eftir árangurinn sem Gummi náði. Ég hefði ekki treyst mér í það sjálfur. Fólk verður að gera sér grein fyrir því að landsliðið er ekki að fara í sömu hæðir og það gerði undir stjórn Gumma þannig að fólk verður að stilla væntingum í hóf.“ Hann bætir við að Ólafur Stefáns- son og Guðjón Valur Sigurðsson hafi ávallt verið bestu leikmenn Íslands á stórmótum síðustu ára og verið leið- togar liðsins. Eitt af erfiðustu verk- efnum Arons verði að finna leikmenn sem geti verið leiðtogar – sérstaklega ef Guðjón Valur gefur ekki kost á sér áfram. „Það þarf sterka karaktera til að ná árangri og bera þetta uppi. Það er rosalega mikilvægt að leikmenn haldi jafnvæginu.“ Viðmælandi blaðsins segist ekki hafa trú á öðru en að leikmenn landsliðsins muni taka nýja þjálfar- anum vel og segir hann að ráðning Arons hafi legið í loftinu lengi. Allir sem koma að landsliðinu hafi því vit- að hver yrði næsti þjálfari fyrir löngu. „Ég held að þetta sé verst geymda leyndarmál ársins. Allir í hand- boltaheiminum vissu að hann væri að taka við þessu og ég held að allir séu búnir að sætta sig við það enda var hann besti kosturinn. Ég held að hann muni standa sig. Þessi gaur er fáránlega lunkinn við að ná árangri og ég hef fulla trú á honum.“ 46 Sport 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað Verkefnin sem eru fram undan Undankeppni EM 2014 6. riðill Ísland Hvíta-Rússland Rúmenía Slóvenía 31. september Ísland – Hvíta-Rússland 4. október Rúmenía – Ísland 3. eða 4. apríl 2013 Slóvenía – Ísland 6. eða 7. apríl 2013 Ísland – Slóvenía 12. eða 13. apríl 2013 Hvíta-Rússland – Ísland 15. eða 16. júní 2013 Ísland – Rúmenía HM 2013 á Spáni B-riðill Ísland Makedónía Katar Rússland Danmörk Chile 12. janúar Ísland – Rússland 13. janúar Chile – Ísland 15. janúar Ísland – Makedónía 16. janúar Ísland – Danmörk 18. janúar Ísland – Katar Stóra prófið Aron var kynntur sem nýr þjálfari landsliðsins á miðvikudag. Hans bíður verðugt verkefni en viðmælendur DV hafa mikla trú á honum. Mynd EyÞÓr ÁrnaSon n Aroni Kristjánssyni er lýst sem ástríðufullum toppþjálfara n Smááhyggjur af reynsluleysi Aron mun fArA sínAr eigin leiðir „Fólk verður að gera sér grein fyr- ir því að landsliðið er ekki að fara í sömu hæðir og það gerði undir stjórn Gumma þannig að fólk verður að stilla vænting- um í hóf. „Hann er greindur og skynsamur og hefur róast með árunum Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.