Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 6
Jóhanna gefur ekkert upp n Ólíklegt að hún tilkynni um framhaldið um helgina J óhanna Sigurðardóttir, forsætis- ráðherra og formaður Samfylk- ingarinnar, heldur áformum um hvort hún hyggist gefa kost á sér til áframhaldandi formannssetu leyndum. Viðmælendur DV telja afar ólíklegt að hún tilkynni nokkuð um ætlanir sínar á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á laugardag. Árni Páll Árnason segir í helgarviðtali í DV í dag að hann sé opinn fyrir for- mennsku. „Ég er ekki að fara að til- kynna neitt á laugardag,“ svaraði hann þó spurður hvort hann ætlaði að tilkynna um framboð á fundinum. Reglur við val á framboðslista verða til umræðu á fundinum. Þá er ljóst að Jóhanna mun bera undir fundinn til- lögu sína að ráðherraskipan. Katrín Júlíusdóttir snýr aftur til starfa á næst- unni eftir barneignarleyfi en Odd- ný Sturludóttir fjármálaráðherra varð ráðherra um síðustu áramót í kjölfar uppstokkunar í ríkisstjórn. Ráðherrum hefur því fækkað í átta og ljóst að hjá Samfylkingunni er einum ofaukið. Jóhanna hefur ekk- ert gefið upp en á sínum tíma sagðist Oddný aðeins verma sæti Katrínar. Prófkjörsreglur samfylkingarinn- ar voru harkalega gagnrýndar í um- bótaskýrslu flokksins þar sem þau voru kölluð „viðsjárvert sundrungar- afl“. „Eins má benda á að þeir sem ná frama innan flokksins vegna stuðn- ings hópa utan hans geta sjálfir haft tilhneigingu til að líta svo á að ábyrgð og trúnaður sé frekar við þessa hópa heldur en við flokkinn sjálfan. Van- traust flokksmanna á þessum for- ystumönnum getur því verið á rök- um reist,“ segir í umbótaskýrslunni. Deildar meiningar eru inn- an flokksins um hversu langt skuli ganga frá opnum prófkjörum. Ólík- legt er að Samfylkingin starfi enn eft- ir „galopnum prófkjörum“ þar sem öllum gefst færi á að bjóða fram og kjósa, bæði flokksfélögum og öðrum. Hópur fólks hefur hins vegar lagt til að kosningarétt í prófkjöri hafi einnig þeir sem skrifi undir stuðningsyfir- lýsingu fyrir framboðsfrest, þótt ekki verði krafist flokksaðildar. Mikl- ir hagsmunir eru í húfi fyrir sitjandi þingmenn og því ljóst að prófkjörs- mál verða þungamiðja fundarins. 6 Fréttir 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað Lilja ekki formaður Samstöðu: Axlar ábyrgð á „fylgistapi“ Þingkonan Lilja Mósesdóttir mun ekki gefa kost á sér í emb- ætti formanns Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar, á lands- fundi flokksins í byrjun október. Þannig hyggst Lilja „axla ábyrgð á fylgistapi flokksins undanfarna mánuði“ eins og hún orðaði það í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér á fimmtudag. Þrátt fyrir þetta ætlar Lilja vera félagsmaður í Samstöðu áfram en fram að næstu alþingiskosning- um ætlar hún að einbeita sér að störfum sínum á þingi. Lilja nefnir fleiri ástæður fyrir ákvörðun sinni en fylgistap flokksins undanfarna mánuði. Þannig gagnrýnir hún landslagið sem ný stjórnmálaöfl þurfa að starfa í harðlega. „Þyngst vegur mikill aðstöðumunur milli stjórnmálaflokka hvað varðar fjár- framlög úr ríkissjóði og aðgengi að fjölmiðlum. Árlegt framlag til ríkisstyrktu stjórnmálaflokkanna nemur á bilinu 22–90 milljónum, það er til: Samfylkingar, Sjálfstæð- isflokks, Vinstri grænna, Fram- sóknar og Borgarahreyfingar/ Dögunar. Nýjum stjórnmálasam- tökum er hins vegar gert að fjár- magna kosningabaráttu sína með styrkjum fram að kosningum. Markmiðið er að koma í veg fyr- ir að ný framboð ógni tilverurétti ríkisstyrktu stjórnmálaflokkanna. Á Alþingi eru ný stjórnmálasam- tök auk þess áhrifalaus,“ segir Lilja og bætir við að viðvarandi fjár- skortur nýrra stjórnmálasamtaka dragi úr möguleikum þeirra til að halda úti starfsemi, sambærilegri við þá sem gerist hjá ríkisstyrktu stjórnmálaflokkunum. Skortur á sýnileika og takmörkuð samskipti við kjósendur komi í veg fyrir að ný framboð nái nógu miklu fylgi til að verða ráðandi afl í íslenskri pólitík. Þ remur starfsmönnum hjá álverinu í Straumsvík hef- ur verið sagt upp vegna tengsla við fjársvika- mál á dekkjaverkstæðinu Sólningu. Mennirnir urðu upp- vísir að því í júní að kaupa dekk frá Sólningu í gegnum álverið og selja áfram. Grunur er um að þeir séu samverkamenn starfsmanns dekkjaverkstæðisins sem handtek- inn var í júní, grunaður um fjár- drátt úr Sólningu. Lögreglan hefur handtekið mennina og yfirheyrt vegna máls- ins og staðfestir að málin séu að öllum líkindum tengd. Rannsókn er ekki langt á veg komin vegna sumarleyfa starfsmanna hjá lög- reglunni. Forsvarsmaður Rio Tinto Alcan neitar því ekki að þremur starfsmönnum fyrirtækisins hafi verið sagt upp vegna málsins en vildi heldur ekki staðfesta frásögn- ina þegar DV hafði samband. Handteknir vegna rannsóknar Starfsmennirnir þrír urðu, eftir því sem DV kemst næst, uppvísir að því að kaupa dekk frá Sólningu í gegnum álverið og selja þau áfram sjálfir. Þeir voru handteknir af lög- reglu í tengslum við málið í Sóln- ingu. Þar var tveimur starfsmönn- um sagt upp í kjölfar málsins og annar þeirra var handtekinn. Báð- ir starfsmennirnir höfðu starfað hjá verkstæðinu um árabil. Samkvæmt einni heimild DV var einn þeirra sem var rekinn þó ekki viðriðinn fjársvikamálið, heldur var honum sagt upp vegna annars máls. Leiddur út í járnum Að sögn sjónarvotts var hinn hand- tekni leiddur í járnum út úr Sóln- ingu í júní. Síðar fannst gámur með dekkjum sem svikin höfðu verið út úr fyrirtækinu heima hjá öðrum starfsmanni Sólningar, en þetta hefur ekki fengist staðfest frá lögreglu. Það er hins vegar stað- fest af lögreglunni að starfsmenn í Straumsvík hafi einnig verið hand- teknir vegna málsins og að þeim hafi verið sagt upp í kjölfarið. Lögreglan er enn að reyna að átta sig á umfangi málsins en ein heimild nefnir við DV að umfang svikanna sé yfir hundrað millj- ónir og að þau nái yfir margra ára tímabil. Önnur heimild nefndi að svikin væru upp á að minnstu 10 til 15 milljónir. Lögreglan vill ekki tjá sig um málið og því er ekkert stað- fest í þeim efnum. Falsaðir sölureikningar Fjársvik starfsmannsins munu hafa verið afar víðtæk en samkvæmt heimildum DV var smuga í sölu- kerfi Sólningar sem gerði starfs- fólki kleift að skrifa út falsaða reikninga. Þannig hafi umræddur starfsmaður svikið út háar fjárhæð- ir með því að skrifa upp á sölur sem aldrei áttu sér stað. Mun hann hafa skrifað út reikninga fyrir vörum sem hann síðan kom sjálfur í verð. Þannig gátu svikin bæði snúið að Sólningu en einnig viðskiptavin- um fyrirtækisins. Landsbankinn seldi nýlega fyrirtækið og í kjölfarið fór það í áreiðanleikakönnun. Það mun vera þá sem að upp komst um misferlið. Sólning Kópavogi ehf. er hjólbarðaverkstæði og innflutn- ingsfyrirtæki með langa sögu að baki. Fjársvik Sólningar ná til Straumsvíkur n Fölsuðu sölureikninga verkstæðisins og komu sjálfir dekkjum í verð „Að sögn sjónarvotts var hinn handtekni leiddur út úr Sóln- ingu í járnum í júní Símon Örn Reynisson blaðamaður skrifar simon@dv.is Grunaðir Þremur starfsmönnum álversins í Straumsvík var sagt upp vegna málsins sem upp kom í Sólningu og hafði lögreglan afskipti af þeim. Sólning Starfsmaður var handtekinn hjá dekkjaverkstæðinu Sólningu, grunaður um víðtæk fjársvik með því að falsa sölureikninga. Tilkynnir ekkert Innan Sam- fylkingarinnar er talið ólíklegt að Jóhanna tilkynni um hvort hún stefni á að leiða flokkinn áfram. mynd eyþÓr árnaSon Fjórðu tónleikarnir Miðar á þriðju tónleika Stuð- manna í Eldborgarsal Hörpu seld- ust upp líkt og þeir fyrri á örfáum klukkustundum. Fjórðu og síðustu tónleikar sveitarinnar í þessari tónleikaröð verða laugardaginn 6. október klukkan 23. „Þetta er frábært!“ segir Jakob Frímann Magnússon aðspurður. „Við þurf- um heldur betur að vanda okkur núna.“ Miðasala á þessa síðustu tón- leika að sinni hefst í dag, föstudag, klukkan 12 í Hörpu og á midi.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.