Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 26
njóta aðstoðar. Við bjuggum í skjóli foreldra hennar og foreldrar mín­ ir aðstoðuðu okkur fjárhagslega. Ég áttaði mig á því að það er ekk­ ert sjálfgefið að klára nám og koma undir sig fótunum við þessar að­ stæður. Sem gerði það að verkum að í pólitík hef ég verið mjög upp­ tekinn af því að skapa tækifæri fyr­ ir ungt fólk. Það fyrsta sem ég gerði sem félagsmálaráðherra var að taka á vanda atvinnulauss ungs fólks án starfsmenntunar sem sat fast í að­ stæðum sem það komst ekki út úr. Mér hefur líka alltaf fundist öfug­ snúið að vera með kerfi þar sem fólk getur fengið námslán í háskóla en fólk með börn á framfæri fær ekki námslán í framhaldsskóla. Ég var heppinn en það eru ekki allir svona heppnir. Það er mjög auðvelt að detta úr skóla og missa taktinn. Þess vegna skiptir svo miklu máli að tæki­ færin séu til staðar, svo fólk geti axl­ að ábyrgð og þroskast um leið.“ Þótt barneignir hafi ekki ver­ ið á dagskrá var það heldur ekk­ ert áfall að verða pabbi svo ungur. „Þetta bara gerðist og ég hafði ekk­ ert val um það hvort ég væri tilbú­ inn eða ekki. Ég varð bara að axla þessa ábyrgð og það stórkostlega við mannlegt eðli er að geta mín óx með mér. Hæfileiki mannsins til að rísa undir erfiðum aðstæðum er svo mikill og fólk kemst í gegnum ótrú­ legustu aðstæður. Börn eru blessun. Þetta er hluti af lífinu og eins og önnur reynsla hjálp­ ar það þér að vaxa að verða foreldri.“ Saknaði fjölskyldulífsins Fimm árum síðar var sambandið komið að endimörkum og þau slitu samvistum. Árni Páll var enn ungur maður en hann hafði enga löngun til að rasa út, eins og það er kallað. „Þroskinn er svo sérkennilegur að þá upplifði ég ákveðið misvægi í þroska. Ég var ungur maður sem upplifði söknuð eftir daglegu samneyti við barn og fjölskyldulífi. Lífsreynslan breytir þér og lifir með þér alla tíð. Þú verður ekki aftur sautján ára. Þú heldur áfram þar sem frá var horfið.“ Nokkrum árum síðar rakst hann á konu á ganginum í utanríkisráðu­ neytinu. Hann var þá nýkominn heim eftir nám og farinn að vinna þar. Þessi kona, Sigrún Eyjólfsdótt­ ir, vakti áhuga Árna Páls, sem sótt­ ist mikið í að tala við hana og bauð henni síðan á stefnumót. Sam­ bandið vatt hratt upp á sig og nú eru þau búin að vera saman í tutt­ ugu ár. Hann er þó ekki með hring og aðspurður segist hann aldrei hafa komið því í verk að gifta sig. „Ég sé heldur ekki að það breyti neinu.“ Laustengdur heimilinu Hjónaband segir ekkert til um það hversu heitt maður elskar maka sinn og það bindur enga saman, ekki frekar en sambúð. Það sem þarf hins vegar til að samband gangi er samvinna, frelsi og traust. „Síð­ an þarf maður að sýna maka sín­ um skilning,“ bætir hann við og segir að Sigrún sé ótrúleg. „Hún hefur náttúrulega þurft að ganga í gegnum ýmislegt. Þessum tíma frá hruni fylgdi svo mikið rót og ég varð skyndilega mjög laustengdur heim­ ilinu. Í raun breyttist allt. Fram að hruni var pólitík mikið líkari venju­ legu starfi en þarna fór allt á hvolf. Ég gleymi því aldrei þegar ég var að ganga eftir götu í bænum fyrstu dagana eftir hrun og bláókunn­ ugt fólk kom upp að mér í losti og óskaði okkur stjórnmálamönnunum góðs gengis. Þetta var einstakt. Síðan skapaðist órói þegar fólki fannst það ekki fá skýr svör. Þetta var trauma­ tískt ástand, óvissa um afkomu, ótti um framtíðina og vonleysi. Seinna kom upp reiði og hún þarf að fá útrás og þróast yfir í rökræðu sem þarf síðan að fá að þroskast. Við erum í þessu ferli núna, það hefur tekið tíma og það hefur verið sérstakt að upplifa þetta.“ Hann snýr kaffibollanum í hönd­ um sér á meðan hann rifjar þetta upp. „Það var gæfa að ég var ekki með ung börn.“ Yngsti sonur hans er 19 ára og stjúpsonur hans er 22 ára. „Dóttir mín á hins vegar fjögurra ára gamlan dreng og ég sá ekki mik­ ið af honum á þessum tíma,“ segir Árni Páll og andvarpar. „Fólk í öll­ um starfsgreinum upplifir mikl­ ar vinnutarnir og álag einhvern tí­ mann. Það var hins vegar skrýtið að lifa langan tíma þar sem það er aldrei hægt að ýta hlutunum á und­ an sér og velja það að fara heim úr vinnunni því verkefnin sem bíða úr­ lausnar eru endalaus. Árum saman ertu stöðugt að afstýra brýnu hættu­ ástandi eða taka á málum sem þarfn­ ast tafarlausrar úrlausnar. Hugurinn er stöðugt við verkefnin. Fyrir maka minn var það eins og að vera ekki í sambúð en vera það samt. Þannig að það fylgdi því ákveðinn léttir þegar þessu tímabili lauk.“ Óttast rangar ákvarðanir Árni Páll er samt hvergi nærri hættur. Hann ber Jóhönnu vel söguna og segir að hún hafi reynst honum vel þegar hann var að stíga sín fyrstu skref sem ráðherra en hafi á sama tíma verið hörð og veitt að­ hald. Hún eigi glæstan feril að baki. Það sé hins vegar umhugsunar­ vert að allir sem eru í fararbroddi í þjóðlífinu hafi verið í lykilhlutverk­ um í kosningabaráttunni árið 1987. „Það er kominn tími til að færa stjórnmálin til framtíðar og takast á við viðfangsefni dagsins í dag. Við verðum að finna nýja leið til þess að tala saman og nálgast verkefnin af þeirri alvöru sem þau eiga skil­ ið. Ópin og köllin á Alþingi eru eng­ um til hróss en þau eru afleiðing af því að við tölum ekki saman, stjórn og stjórnarandstaða. Ótrúlega lítill hluti stórra mála er ræddur þannig að um þau náist samstaða. Annars staðar á Norðurlöndunum er mun algengara að stór mál séu afgreidd með miklum meirihluta. Það ger­ ir það að verkum að þau breyt­ ast í lýðræðislegri meðferð en fyrir vikið sameinast menn um grund­ vallarhagsmuni.“ Nú er brýnt að greina hvað fór úr­ skeiðis, segir hann: „Hvað gerði það að verkum að við sitjum uppi með bankahrun og gjaldeyrishöft eftir stutt tímabil þar sem milliríkjavið­ skipti voru frjáls. Ég óttast að ef við greinum þetta ekki rétt munum við taka rangar ákvarðanir. Ég óttast líka að við munum ekki megna að halda samfélaginu opnu og frjálsu heldur leka aftur inn í haftasamfélagið, sem þýðir þá að lífskjör hér dragast aftur úr og okkar besta fólk fer úr landi.“ Breyttar áherslur Hann er fastur fyrir en vill ekki stað­ festa formannsframboð. „Það eina sem ég er algjörlega sannfærður um er að við þurfum sterka nýja og skýra framtíðarsýn sem mun leiða landið og flokkinn í rétta átt. Ég ver allri minni orku í það að leggja mitt af mörkum til að skapa hana og mun halda því áfram. Hvert það leiðir mig mun flokk­ urinn ákveða. Flokkurinn mun finna mér stað. Ef þær aðstæður skapast og það er vilji flokksmanna geng ég í það verk eins og önnur sem mér hafa verið falin. Ég þarf ekki að vera ráðherra til að vera ráðherra. Það sem skiptir máli núna er hvernig við tökum stjórnmálin úr fornu fari og færum þau inn í fram­ tíðina. Hins vegar get ég ekki tekið ákvörðun um framboð til formanns sem ég veit ekki hvenær eða hvern­ ig á að velja. Jóhanna hefur sagt að hún ætli að gefa út yfirlýsingu um sína stöðu og sína framtíð núna í haust. Mér finnst eðlilegt að heyra hvað hún hefur að segja.“ Tíminn frá hruni hefur markað sín spor. „Þessi reynsla hefur litað mig mjög. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að koma að úrlausn erfiðra mála en það breytti mér líka. Það breytti því til dæmis hvað mér þykir mikilvægt, í pólitík og lífinu. Ég var ráðherra í erf­ iðu embætti á mesta örlagatíma í sögu þjóðarinnar og það er eiginlega ekkert sem kemur í staðinn fyrir það. Mínum persónulega metnaði er fullsvalað og núna er það mikið skýrara fyrir mér af hverju ég er að þessu. Ég vil hafa áhrif á samfélagið. Við þurfum að skilja ný­ fengna reynslu, bæta úr veikleikum og hafa sjálfstraust og metnað til að vera þjóð meðal þjóða.“ 26 Viðtal 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað Ódýr Heilsársdekk Á Tilboði Dekkverk Lyngási 20 Garðabæ Við erum alltaf með ódýrasta verðið sem við getum boðið upp á :D Opið alla daga 10-19 Laugardaga og Sunnudaga líka Þó að við sofum stundum yfir okkur um helgar ;) Stærð Verð 4stk undirsett Verð 4stk án vinnu Verð áður 175/65R14 44.000 kr. 39.000 kr. 59.000 kr. 165/70R14 44.000 kr. 41.000 kr. 62.000 kr. 175/70R14 47.000 kr. 42.000 kr. 63.000 kr. 185/60R14 47.000 kr. 42.000 kr. 63.000 kr. 185/65R14 47.000 kr. 42.000 kr. 63.000 kr. 185/70R14 49.000 kr. 44.000 kr. 66.000 kr. Stærð Verð 4stk undirsett Verð 4stk án vinnu Verð áður 175/65R15 53.000 kr. 48.000 kr. 71.000 kr. 185/60R15 54.000 kr. 49.000 kr. 72.000 kr. 185/65R15 52.000 kr. 47.000 kr. 70.000 kr. 195/50R15 54.000 kr. 49.000 kr. 72.000 kr. 195/60R15 55.000 kr. 50.000 kr. 74.000 kr. 195/65R15 56.000 kr. 51.000 kr. 75.000 kr. 215/65R15 68.000 kr. 63.000 kr. 91.000 kr. 235/75R15 95.000 kr. 89.000 kr. 127.000 kr. Stærð Verð 4stk undirsett Verð 4stk án vinnu Verð áður 205/50R16 69.000 kr. 64.000 kr. 92.000 kr. 205/55R16 66.000 kr. 61.000 kr. 88.000 kr. 205/60R16 71.000 kr. 66.000 kr. 95.000 kr. 215/55R16 69.000 kr. 64.000 kr. 92.000 kr. 215/65R16 79.000 kr. 73.000 kr. 106.000 kr. 215/60R16 79.000 kr. 74.000 kr. 106.000 kr. 225/55R16 77.000 kr. 72.000 kr. 103.000 kr. 225/60R16 75.000 kr. 69.000 kr. 100.000 kr. Stærð Verð 4stk undirsett Verð 4stk án vinnu Verð áður 205/50R17 76.000 kr. 71.000 kr. 102.000 kr. 225/45R17 74.000 kr. 69.000 kr. 99.000 kr. 215/55R17 85.000 kr. 80.000 kr. 114.000 kr. Ódýr Heilsársdekk Á Tilboði Dekkverk Lyngási 20 Garðabæ Við erum alltaf með ódýrasta verðið sem við getum boðið upp á :D Opið alla daga 10-19 Laugardaga og Sunnudaga líka Þó að við sofum stundum yfir okkur um helgar ;) e kverk Lyngási 20 Garða æ Við erum alltaf með ódýrasta verðið sem við getum boðið upp á. Opið all d ga frá 10-19, laugardaga o s nnudaga líka. Þó að við sofum stundum yfir okkur um helgar. Sjá nánar á www.dekkverk.is „Ég var ungur mað- ur sem upplifði söknuð eftir daglegu samneyti við barn og fjölskyldulífi. „Þá hugsaði ég bara: Vá! Þetta eru íslensk stjórnmál í hnot- skurn. Best að gera ekk- ert nýtt og halda áfram með sama leikritið. Annar maður Árni Páll er þakklátur fyrir að hafa fengið að koma að úrlausn erfiðra mála en segir að það hafi breytt sér og sínum áherslum. Hann hafi verið ráðherra á mesta örlagatíma í sögu þjóðarinnar og í raun komi ekkert í staðinn fyrir það.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.