Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 54
Bjarni og blámennirnir n Bjarni Harðarson sýpur enn seyðið af eldfimum ummælum um „blámenn“ í Reykjavík F ræg urðu ummæli Bjarna Harðarsonar, þá upplýsinga- fulltrúa Jóns Bjarnasonar fyrrverandi sjávarútvegs -og landbúnaðarráðherra, um blá- menn. Sagði hann á málefnafundi Vinstri grænna um aðild að ESB árið 2010 að sumir Íslendingar byggðu andstöðu sína við inn- göngu í Evrópusambandið á því að vilja ekki mæta „blámönnum“ á götu í Reykjavík. Sjálfur gerði hann ekki athugasemdir við slíka afstöðu – sagðist vel geta unnið með þeim sem hefðu uppi slík viðhorf. Ummælin voru eldfim og því var meðal annars haldið fram að Bjarni vildi vinna með rasistum. Það þótti því mörgum kostulegt að mæta Bjarna á götu í Reykja- vík með þeldökkum Frökkum sem hann aðstoðaði við vinnslu heim- ildarmyndar. „Þeir eru að vinna þátt um kynjaverur á Íslandi, álfa og huldufólk og við erum einmitt að tala við hana Sigríði Klingen- berg núna,“ sagði Bjarni í samtali við blaðamann. „Þeir eru frá franskri sjónvarps- stöð, G8 og jú, þetta hefur vakið athygli og það er bara kostulegt að súpa enn seyðið af þessu,“ sagði hann glaður í bragði. 54 Fólk 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað Aðstoðar við gerð heim- ildarmyndar „Þeir eru frá franskri sjónvarpsstöð, G8, og jú, þetta hefur vakið athygli og það er bara kostulegt að súpa enn seyðið af þessu,“ sagði Bjarni glaður í bragði. Fékk og gaf á lúðurinn Halldór Halldórsson – Dóri DNA – stundar um þessar mundir box af miklu kappi hjá Box-skólanum. Halldór hefur lengi haft áhuga á bardagaíþróttum og meðal annars séð um að lýsa UFC á Stöð 2 Sport. Það er eini atvinnuboxari Íslands fyrr og síðar, Skúli Ármannsson, sem rekur Box-skólann og þjálfar þar. Á Facebook-síðu skólans má sjá Halldór berjast við Sigurð Gústavs- son ljóðskáld og fráfarandi formann Orator, félags lögfræðinema við HÍ. Bardaginn er jafn og spennandi og skiptast þeir félagarnir, sem báð- ir eru aldir upp í Mosfellsdalnum, á að gefa hvor öðrum „nice ones“ eins og Skúli kallar jafnan góð högg. „Mjög sárir“ „Við vorum mjög sárir eftir tapið,“ segir grínistinn Steindi Jr. um sig og Auðun Blöndal félaga sinn í nýjasta tölublaði Monitor. Steindi vísar þar í þáttinn Evrópska drauminn þar sem Steindi og Auddi töpuðu á síðustu metrunum með minnsta mun. „Við vorum líka búnir að leggja helling á okkur. Ég var til dæmis búinn að fara í fallhlífar- stökk og ég er loft- og flughrædd- asti maður í heimi.“ Steindi segir þó sárindin hafa staðið stutt yfir enda lokakvöldið í Amsterdam á föstu- degi og ekki hægt annað en að vera kátur þar. Steindinn er þó ákveðinn og segist vilja „rematch“ við þá Sveppa og Pétur Jóhann. Hús fyrir 100 milljónir Heiðar Helguson hefur keypt sér hús á Sunnuvegi í Reykjavík sem kostaði litlar 100 milljónir króna. Frá þessu greinir Fréttablaðið en íþróttamaður ársins spilar nú með Cardiff City eftir að hafa fært sig um set frá QPR þar sem hann átti stórgott tímabil framan af en var mikið meiddur eftir áramót. Heið- ar hittir fyrir aðra knattspyrnugoð- sögn á Sunnuveginum en þar á Ríkharður Daðason einnig hús en hann þótti standa sig með prýði í EM-sjónvarpi RÚV í sumar og aldrei að vita nema Ríkharður verði áberandi á skjánum næstu árin. „Var alltaf í góðu skapi“ T ony var alltaf í góðu skapi og það var alltaf frábært and- rúmsloft í kringum myndirnar hans,“ segir kvikmyndafram- leiðandinn Sigurjón Sighvats- son um vin sinn Tony Scott sem nú- verið féll fyrir eigin hendi. Sigurjón og Tony kynntust þegar leikstjórinn var að vinna að frægustu mynd sinni, Top Gun, árið 1986. „Það var mjög gaman að vinna með Tony og í gegnum árin óx með okkur kunningsskapur,“ en minnstu munaði að Sigurjón tæki að sér að stýra stórfyrirtæki Tony og bróð- ur hans Ridley Scott. „Ég framleiddi tónlistarmynd- böndin við lögin í Top Gun,“ segir Sig- urjón um hvernig hann kynntist Tony. „Ég hafði þá nýlega stofnað fyrirtækið mitt, Propaganda films, og var frekar nýr í bransanum en einhver mælti með mér við Tony,“ en Sigurjón gerði meðal annars myndböndin við hina ódauðlegu smelli Take My Breath Away og Dangerzone. Það fyrrnefnda hlaut bæði Óskarsverðlaun og Golden Globe-verðlaun auk fjölda annarra verðlauna. „Það má segja að þetta hafi verið með fyrstu skiptunum þar sem tónlist úr kvikmynd sló svona rosalega í gegn.“ Sigurjón segir að vinnudagarn- ir með Tony hafi alltaf verið langir en þrátt fyrir það hélt hann alltaf góð- um móral á vinnustað. „Eins og ég sagði þá var alltaf frábært andrúms- loft í kringum Tony og alltaf mikið af góðu fólki,“ en Tony gerði auk Top Gun myndir eins og Days of Thunder, True Romance, Crimson Tide og Deja Vu. Tony er bróðir stórleikstjórans Ridley Scott sem var hér á landi í fyrra að taka upp myndina Prometheus  en Tony var einn framleiðenda hennar. „Þeir báðu mig um að reka fyrirtækið sitt Scott Free árið 1999 og samninga- viðræðurnar um það voru langt á veg komnar. En svo gekk það ekki upp. Ég var þarna sem maður Tony´s og það hefði getað orðið erfitt starfsumhverfi þar sem Ridley var svona stærri bróð- irinn í þessu fyrirtæki. Þannig að um- boðsmennirnir mínir mæltu ekki með því.“ Sigurjón segir að fráfall Tony hafi komið mjög á óvart. „Maður trúði því ekki að eitthvað svona gæti komið fyr- ir Tony,“ segir Sigurjón en leikstjór- inn svipti sig lífi með því að stökkva fram af Vincent Thomas-brúnni í San Pedro. „Maður er ekki alveg bú- inn að setja þetta saman ennþá. Þetta er frekar mikið sjokk.“ Sigurjón segir Tony hafa verið ungan í anda og alltaf vel á sig kominn líkamlega. „Hann var mikill klifurgarpur og alltaf í rosa formi,“ sagði Sigurjón að lokum um Tony en hann verður borinn til graf- ar við einkaathöfn í Los Angeles um helgina. Tony skilur eftir sig eiginkonu og tvo syni. asgeir@dv.iss n Sigurjón Sighvats um Tony Scott n Var boðið að stýra Scott Free Tony Scott Gerði auk Top Gun myndir eins og Days of Thunder, True Romance, Crimson Tide og Deja Vu. Ridley Scott Kveður bróður sinn hinsta sinni um helgina. Sigurjón Sighvats Kynntist Tony í kringum Top Gun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.