Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 8
Þú getur kosið um stjórnarskrá n Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst um helgina K jörseðillinn fyrir þjóðarat­ kvæðagreiðslu um tillög­ ur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá var birtur á netinu á fimmtudag. Atkvæða­ greiðsla utan kjörfundar hefst á laugardaginn en sjálf hefst at­ kvæðagreiðslan þann 20. október. Á kjörseðlinum, sem hér er birtur, eru sex spurningar en kjós­ andi þarf ekki að svara þeim öll­ um. Í fyrstu spurningu er ein­ faldlega spurt hvort þú viljir að tillögur stjórnlagaráðs verði lagð­ ar til grundvallar nýrri stjórnar­ skrá. Við þeirri spurningu, eins og hinum fimm, eru aðeins tveir val­ möguleikar; já eða nei. Önnur spurningin lýtur að því hvort náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu verði lýstar þjóðareign. Í næstu spurningu er spurt hvort þú viljir að í stjórnar­ skrá sé ákvæði um þjóðkirkju á Ís­ landi. Fjórða spurningin lýtur að persónukjöri í alþingiskosningum, sú fimmta að jöfnu vægi atkvæða alls staðar á landinu. Í síðustu spurningunni er spurt hvort þú viljir að í stjórnarskrá verði ákvæði sem kveði á um að tiltekinn hluti kosningabærra manna geti krafist þess að mál verði send í þjóðar­ atkvæðagreiðslu. „Atkvæðagreiðslan fer fram á sömu kjörstöðum og notast er við í almennum kosningum. Skömmu fyrir atkvæðagreiðsluna mun hvert sveitarfélag auglýsa með venjulegum hætti hvar kjörstað­ ir verði, hvenær kjörfundur hefj­ ist og hvenær honum verði slitið á kjördag, hvernig skipt verði í kjördeildir, o.fl. Kjósendur eru beðnir að kynna sér vel þær upp­ lýsingar,“ segir á vefn­ um kosning.is, þar sem einnig má sjá kjörseð­ ilinn. baldur@dv.is 8 Fréttir 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað R annsóknin er ekki alveg búin en býsna langt kom­ in,“ segir Ólafur Þór Hauks­ son, sérstakur saksóknari, um rannsókn á fjárdrætti starfsmanns Sjálfstæðisflokksins af fé íhaldsflokka Norðurlandaráðs. Páll Heimisson, alþjóðafulltrúi Sjálf­ stæðisflokksins, er grunaður um að hafa dregið sér 15 til 20 milljónir af fé íhaldsflokkanna á Norðurlöndum. Ólafur segir málið að mörgu leyti flókið og því hafi það tafist. „Þetta eru mörg tilvik. Þá er það í raun þannig að hverja og eina færslu ber að skoða sem hugsanlegt og meint brot.“ Valhöll ber ábyrgð Framkvæmdastjórn íhaldsflokkahóps Norðurlandaráðs var fram til ársloka 2010 í höndum Íslendinga. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð­ isflokksins, fór með stjórn hópsins á þeim tíma en alþjóðaritari flokksins var starfsmaður ráðsins. Íhaldsflokk­ arnir, ólíkt öðrum samstarfshópum Norðurlandaráðs, hafa ekki stofnað lögaðila í kringum reksturinn. Ábyrgð og fé er því hýst hjá þeim flokki sem fer með stjórn hópasamstarfs­ ins hverju sinni. Yfirmaður Páls var því Jónmundur Guðmarsson, fram­ kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Hann vildi þó ekki gangast við ábyrgð á málinu þegar DV ræddi við hann vegna þess í desember síðastliðnum þrátt fyrir að fé íhaldshópsins hefði verið geymt á reikningi Sjálfstæðis­ flokksins, sem einnig sá um bókhald og launagreiðslur. Bara gjaldkeraþjónusta „Við lítum þannig á að hann hafi ver­ ið starfsmaður íhaldshópsins. Það er bara okkar afstaða,“ sagði Jónmund­ ur aðspurður hvort fréttatilkynn­ ing flokksins sem sagði Pál aðeins hafa haft aðsetur í Valhöll hefði verið sannleikanum samkvæm. Jónmundur sagði að bankareikn­ ingar, þar sem fjármunir íhalds­ grúppunnar voru geymdir, hefðu verið á ábyrgð Páls og flokkahóps­ ins sjálfs en að Sjálfstæðisflokk­ urinn hefði einungis séð um gjald­ keraþjónustu. „Sjálfstæðisflokkurinn sá um að greiða reikninga og ann­ að samkvæmt ósk starfsmannsins,“ sagði Jónmundur. Þetta er á skjön við upplýsingar DV innan úr flokka­ hópi íhaldsmanna en þar er litið svo á að málið sé Sjálfstæðisflokksins. Fé íhaldsflokkanna hafi verið á vakt sjálfstæðismanna en komi íhalds­ flokkunum ekki við að öðru leyti. Finnar tóku við framkvæmda­ stjórn hópsins í ársbyrjun 2011 en málið komst upp í mars í fyrra. Þá­ verandi framkvæmdastjóri hóps­ ins, Maria­Elena Cowell sem tók við framkvæmdastjórn hópsins eftir yf­ irfærslu formennsku til Finna, sagði á sínum tíma við fréttastofu RÚV að hún skildi ekki hvernig fjárdráttur­ inn ætti að hafa farið fram því fram­ kvæmdastjórinn hefði almennt ekki beinan aðgang að reikningum hóps­ ins og þyrfti að bera öll fjárútlát und­ ir yfirboðara sína. Páll er grunaður um skjalafals til fegrunar á fjárútlát­ um hans. Reglunum breytt Málið hefur dregið dilk á eftir sér en eftirlitsnefnd Norðurlandaráðs, sem Bjarni á sjálfur sæti í, hefur nokkrum sinnum fjallað um málið. Innan ráðsins er litið svo á að málið komi ráðinu ekki sérstaklega við. Peningun­ um hafi raunar verið stolið frá íhalds­ flokkunum en ekki Norðurlandaráði. Hins vegar hefur málið vak­ ið athygli á nauðsyn þess að settar séu reglur um meðhöndlun á fé frá ráðinu enda ætlunin að styrktarfé ráðsins fari í starfsemi þess en ekki einkaneyslu starfsmanna. Það mun hafa komið þingmönnum Norður­ landaráðs nokkuð á óvart hvernig staðið er að rekstri á starfsemi sam­ starfsvettvangs íhaldsflokka innan ráðsins en ólíkt flokkahópum græn­ ingja og sósíalista, jafnaðarmanna og miðjuflokka er enginn sérstakur lög­ aðili eða félag um starfsemina. Formaður eftirlitsnefndar Norð­ urlandaráðs, Sonja Mandt þingkona norska verkamannaflokksins, seg­ ir nefndina funda í september og þá verði nýju reglurnar ræddar og væntanlega ákvarðaðar. Hún sagði fjársvikamálið hér á landi verða haft í huga þegar reglurnar verða settar saman. „Við þurfum reglur. Það voru engar reglur um þessi mál. Eftirlits­ nefndin hefur komist að þeirri niður­ stöðu að við verðum að setja reglur um fjárútlát sem þessi.“ Valhallar- fjársVik enn Í rannsÓkn n Bjarni Benediktsson bar ábyrgð og er í eftirlitsnefnd „Það voru engar reglur um þessi mál Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is Bara bókhaldsþjónusta Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins, segir flokkinn hafa veitt bókhaldsþjónustu og greitt reikninga en telur ábyrgð ekki fylgja þjónustunni. Setja reglur Sonja Mandt, formaður eftirlitsnefndar Norðurlandaráðs, segir reglum um styrki ráðsins til flokkahópa verða breytt á næstunni. Dró sér fé Páll Heimisson er grunaður um að hafa dregið sér 15 til 20 milljónir af fjárstyrk Norðurlandaráðs sem Sjálfstæðis- flokkurinn hafði umsýslu með. Firra sig ábyrgð Bjarni Benediktsson fór með formennsku flokkahóps íhaldsmanna þegar fjár- drátturinn átti sér stað. Kjörseðillinn Opnað verður fyrir kosningu utan kjörfundar á laugardag. Dagur gegn kyn- bundnu ofbeldi UN Women á Íslandi stendur fyrir Appelsínugula deginum í annað sinn nú á laugardag. Með framtakinu er fólk hvatt til að taka táknræna afstöðu til mikil­ vægi þess að uppræta kynbund­ ið ofbeldi. Að þessu sinni munu verslunareigendur á Laugar­ veginum taka þátt í átakinu og skreyta búðargluggana með app­ elsínugulu. Að því er fram kem­ ur í tilkynningu verður áhersla lögð á stöðu kvenna í Afganistan, þar sem ungar stúlkur eru til að mynda seldar í hjónabönd. Í Afganistan látast 18 þúsund kon­ ur árlega við fæðingu barna vegna skertu aðgengi að læknisþjón­ ustu, skorti á nauðsynlegum lyfj­ um og einnig vegna þess að þær hafa ekki líkamlegan þroska til að ganga með og fæða barn. Dögun gagnrýnir skattahækkanir Félagsfundur Dögunar vekur athygli á að frekari skattahækk­ anir og niðurskurður muni ekki leysa skuldavanda ríkissjóðs. Þegar litið er á heildarsamhengi hlutanna er ljóst að slíkar að­ gerðir og aðrar sambærilegar smáskammtalækningar duga skammt við að ráða bót á rekstr­ arvanda ríkisins. Þetta kemur fram í ályktun frá Dögun. „Félagsfundur Dögunar ályktar að skuldastaða ríkis­ sjóðs sé ósjálfbær, vaxtakostn­ aður of mikill og grípa þurfi til annarra ráða en niðurskurðar, skattahækkana og lántöku til að koma á jafnvægi í ríkisfjármál­ um. Til að ráðast á vandann er nauðsynlegt að stöðva frekari skuldasöfnun og hefja tafarlaust endursamningaferli við lána­ drottna ríkissjóðs um höfuðstól og vexti skulda svo afborgan­ ir ógni ekki velferð þjóðarinnar, frekar en orðið er.“ Stálu sjötíu tjökkum Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú þjófnað á níu steypumótum og sjötíu tjökkum sem stolið var í Grindavík fyrr í sumar. Mótunum og tjökkun­ um hafði verið komið fyrir til geymslu á lóð. Þegar til átti að taka fannst hvorki tangur né tet­ ur af þeim. Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við lög­ reglu í síma 420–1800.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.