Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 24
24 Viðtal 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað S trax í æsku hafði hann brennandi áhuga á pólitík og var farinn að þvælast um skrifstofur Alþýðubandalags- ins í Kópavogi tíu ára gam- all. Pólitíkin heillaði því að í gegn- um hana var hægt að gera breytingar á samfélaginu og hann hafði þungar áhyggjur af þjóðfrelsismálum, her í landi og því öllu saman. Reynd- ar var hann líka mjög upptekinn af réttindabaráttu blökkumanna, las sér til um hana og gaf út blað þar sem hann skrifaði greinar um aðskilnað- arstefnuna. Hann var frekar alvörugefið barn sem las mikið og gekk Keflavíkur- göngur, söng í kór, þar sem fámenn- ur en harðsnúinn hópur stráka sýndi fram á að þeir gætu alveg sungið í kór eins og stelpurnar, og reyndi fyrir sér í fótbolta, þótt hann væri reynd- ar ekkert sérstakur og hreyfði sig helst til lítið á vellinum. Annað en nú þegar hann hleypur maraþon sér til skemmtunar. Þrátt fyrir að nú séu liðin 35 ár frá þessum þvælingi í Kópavogi er áhugi hans á pólitík jafnbrennandi og áður. Þrátt fyrir allt sem á undan er geng- ið, hér varð hrun, hann varð ráðherra og var síðan fleygt úr ríkisstjórninni, heldur hann ótrauður áfram. Mark- miðið er að gera flokkinn að leið- andi afli í íslenskum stjórnmálum til frambúðar og tryggja íslensku þjóð- inni opið og frjálst samfélag. Árni Páll Árnason tekur brosandi á móti mér á ganginum í Austurstræti 14, þar eru þingmenn Samfylkingarinnar með skrifstofur og hann á hornið, hefur útsýni yfir bæði Austurstræti og Póst- hússtræti og nýtur þess mjög. Stend- ur stundum og starir út um gluggann, fylgist með mannlífinu og hugsar. Mótmæli pabba Hann snýr sér svo að mér og segir: „Pabbi var dæmdur. Hann var einn af þeim sem réðust inn í Alþingishús- ið 30. mars 1949 þegar Ísland gekk í Nató. Það varð honum og mömmu dýrt spaug. Pabba var meinað að kenna vegna skoðana sinna, tapaði prestkosningum og í á annan ára- tug átti hann erfitt með að fá vinnu. Mamma hafði fengið styrk til náms í Bandaríkjunum en hann var aftur- kallaður vegna þess að þau byrjuðu saman. Kannski kviknaði minn pólitíski áhugi út frá þessari sögu. Pabbi var alveg laus við flokkslínuhugsun og var enginn Moskvu-agent. Hann var bara ungur maður sem óttaðist um sjálfstæði þjóðarinnar og hafði áhyggjur af því að hún myndi sog- ast inn í alvarleg átök,“ segir Árni Páll sem gekk sína fyrstu Keflavíkurgöngu þegar hann var níu ára. Hann gekk einn, pabbi hélt sig heima. „Hann lét aldrei sjá sig nálægt mótmælum framar. Hann var bólusettur fyrir lífs- tíð í íslenskum stjórnmálum,“ segir Árni Páll hlæjandi. Að lokum fennti yfir og faðir hans fékk prestakall fyrir vestan árið 1961. Þá höfðu þau hjónin verið að kenna vandræðaunglingum og seinna varð það grunnur að fornámi fyrir krakka sem höfðu dottið úr skóla. Þar fæddist Árni Páll og bjó til sex ára aldurs. Það er hans heima og í hvert sinn sem hann fer vestur hitnar hon- um um hjartað. Nú er hann á leið þangað í bláberjaleit. Fylgst með honum En þótt hann hafi ekki verið fæddur þegar foreldrar hans gengu í gegnum mestu erfiðleikana markaði reynsla þeirra hann að mörgu leyti. „Þetta hafði djúpstæð áhrif á mig þannig að þrátt fyrir að ég hafi frá barnæsku haft óseðjandi áhuga á pólitík hef ég algjöra óbeit á pólitísku ofstæki. Það hefur fylgt mér. Að sjá það tjón sem pólitísk rétttrúnaðarstefna getur haft olli því að ég varð mjög var um mig. Þó að ég hafi byrjað minn feril í Al- þýðubandalaginu, hinu ysta vinstri, hef ég allaf átt mjög erfitt með póli- tískan trúarhita og um leið og menn fara í dogmatískar trúarstellingar í pólitík vakna með mér efasemdir. Það var holl lexía frá föðurhúsum,“ segir hann alvarlegur. Eftir þetta tóku foreldrar hans aldrei opinberlega þátt í pólitískri um- ræðu og voru alla tíð óflokksbundnir. „Þau höfðu líka óskaplegar áhyggj- ur þegar ég gekk í Alþýðubandalagið og óttuðust að það myndi verða mér mikið fótakefli og valda því að ég gæti ekki fengið vinnu framvegis.“ Kaldhæðni örlaganna hagaði því þannig að hann upplifði síðan hvern- ig fennti yfir kalda stríðið. „Ég var for- maður æskulýðsfylkingar Alþýðu- bandalagsins og fór að ég held í fyrstu boðsferðina til Bandaríkjanna sem al- þýðusambandsmanni var boðið í árið 1990. Ég fór síðan að vinna í utanríkis- þjónustunni og fór þaðan til Nató árið 1995. Það hefði þótt óhugsandi fimm árum fyrr.“ Aðspurður hvort sími hans hafi verið hleraður á þessum tíma segist hann ekki vita það en hann hafi ver- ið upplýstur um að með honum var fylgst. Það hafi seinna verið staðfest. Hins vegar hafi hann alltaf gert ráð fyrir því að hann væri undir eftirliti á meðan hann starfaði fyrir Nató, enda stór njósnamál nýafstaðin í höfuð- stöðvunum þegar hann kom þangað. „Þetta sýnir kannski hvað hlutirnir breyttust hratt við lok kalda stríðsins.“ Leikur í bíómynd Árni Páll stendur upp og fer fram að sækja kaffi. Hann er orðinn grá- skeggjaður. Húð hans er þó sólbrún að vanda, en það hefur verið umtalað hversu dökka húð hann hefur. „Ég skil að menn tali um það eins og hvað annað en þegar menn í pólitík eru farnir að gera húðlit manna að um- talsefni í pólitískri orðræðu þá finnst mér þeir almennt vera „off limits“,“ segir Árni Páll. Hann tekur það þó ekki mjög nærri sér. Það er heldur ekki eins og hann sé alltaf í ljósum. Liturinn kemur frá móðurættinni, þar eru all- ir svona, og hann þyrfti að pakka sér í plast ef hann ætlaði ekki að fá lit. „Mér er bara ómögulegt að fara út fyr- ir hússins dyr án þess að verða svona dökkur. Húðliturinn virðist reyndar ágerast með aldrinum, ég verð alltaf dekkri og dekkri.“ Skeggið er aftur á móti til komið vegna þess að hann er að leika í bíó- mynd. „Ég er statisti. Hlutverkið er í sjálfu sér ekkert merkilegt en það veldur því að ég mun ekki raka skegg- ið fyrr en tökum lýkur. Benedikt Er- lingsson er gamall vinur minn og ég held að hann þurfi að níðast á vin- um sínum til að fá statista sem eru til í að húka dögum saman á hestum á Kaldadal. Ég fæ ekkert að segja og á allt eins von á því að verða klippt- ur út.“ Það væri þá ekki í fyrsta sinn. Þegar hann var tólf ára gekk hann Keflavíkurgöngu fyrir Punktur punkt- ur komma strik. „Ég var í svo góðri æfingu í að ganga Keflavíkurgöngu að það var lítið mál. En ég sást aldrei í myndinni,“ segir hann og hlær. „Það er spurning hvort ég muni sjást í þessari.“ Sér ekki eftir neinu Hann kemur sér betur fyrir í brún- um leðursófanum. Í gluggakistunni á bak við hann eru myndir frá ferlin- um. Þær eru reyndar allt í kring. Árni Páll hefur raðað í kringum sig hlutum sem eru honum kærir, honum þykja skondnir eða marka feril hans með einhverjum hætti. Á einni myndinni syngur hann baráttusöng verkamanna af mikilli innlifun með steyttan hnefann á lofti. Við hlið hans standa Ögmundur Jón- asson innanríkisráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson forseti. „Þeir höfðu vit á því að halda að sér höndum,“ segir Árni Páll og hlær. Þetta er reynd- ar ein af uppáhaldsmyndum hans. Hér er líka skipunarbréf forsetans frá því að Árni Páll tók við efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Skjalið er út- krotað því forsetinn prófarkalas það og leiðrétti villurnar með penna áður en hann skrifaði undir og afhenti Árna Páli skjalið. Þegar hann horfir til baka er hann sáttur við lífið og þær ákvarðanir sem hann hefur tekið. „Þegar ég horfi til baka yfir líf mitt finnst mér allt hafa farið á besta veg. Jafnvel hlutir sem ég var ósáttur við þegar þeir urðu hafa reynst mér til góðs.“ Sem ráðherra þurfti hann að vinna hratt og hugsa hratt. „Allar stórar ákvarðanir hef ég tekið að yfirveguðu ráði samkvæmt bestu vitund. Í ein- hverjum tilvikum hefði ég tekið aðrar ákvarðanir ef ég hefði haft meiri tíma og upplýsingar. Þegar á heildina er litið er ég samt sáttur. Ég held að það hafi tekist vel að vinna úr mesta áfall- inu. En þótt það sé liðið hjá þurfum við enn að vinna að því að halda sam- félaginu opnu og tryggja samkeppn- ishæf lífskjör hér á landi. Það hefur ekkert gengið neitt sérstaklega vel undanfarin ár.“ Stjórnmálin sem leikrit Hann segir frá því af mikilli innlif- un að hann hafi orðið fyrir sérstæðri upplifun þegar hann var við tökur í vikunni. „Það þurfti að taka sömu senuna aftur og aftur. Aðstoðarleik- stjórinn kallaði síðan yfir hópinn: „Núna höldum við áfram. Við skul- um gera klárt. Við erum enn að leika sama leikritið. Allir gera eins og þeir gerðu áður, við höldum bara áfram.“ Þegar ég heyrði þetta þá hugsaði ég bara: Vá! Þetta eru íslensk stjórnmál í hnotskurn. Best að gera ekkert nýtt og halda áfram með sama leikritið. Það er minn ótti, að menn sýni með verkum sínum að þeir hafi ekk- ert lært. Kannski er þetta bara leik- rit sem enginn hefur hug á að breyta. Það er ágætt að það komi þá í ljós. Ég vona að svo verði ekki en kannski verður ekki við það ráðið.“ Fram undan er kosningabarátta. Þá kemur best í ljós hvort einhver lær- dómur hafi verið dreginn af hruninu. „Við megum ekki missa okkur í hefð- bundna kosningabaráttu með enda- lausum yfirboðum og gamaldags rugli. Við erum í viðkvæmri stöðu og þurfum að rjúfa einangrun okkar og gæta þess að það sé afgangur í ríkis- kassanum. Við getum ekki talað með steigurlæti og karlagrobbi og látið eins og við búum í besta heimi allra heima. Ef kosningabaráttan verður þannig núna að ríkisstjórnarflokk- arnir stæra sig og lofa ríkisútgjöld- um út um allar trissur og stjórnar- andstaðan yfirbýður í allar áttir, þá er greinilegt að enginn hefur lært neitt af því sem gerðist hérna.“ Hústökumenn á þingi Þrátt fyrir hrakspár telur hann Sam- fylkinguna hafa burði til að vera leið- andi afl í íslenskum stjórnmálum. „Ég tek eftir því að allt of margir tala eins og þeir hafi þegar gefist upp. Sumir af mínum vinum virðast upplifa það þannig að við eigum ekki möguleika til þess að vera burðarflokkur leng- ur en eitt kjörtímabil. Það er eins og menn líti á sig sem hústökumenn í húsi Sjálfstæðisflokksins. Þeir hafi óvart náð tökum á húsinu og ætli að gera allt sem þeir mögulega geta þar til hinn réttborni húsráðandi kem- ur heim. Þá ráði hann að sjálfsögðu öllu. Ég neita að trúa því,“ segir hann ákveðinn. „Það er ekkert í spilunum sem segir að íslensk þjóð hafi áhuga á framtíðarsýn sem felur í sér hafta- samfélag og einangrunarhyggju sem virðist vera það eina sem Sjálfstæð- isflokkurinn hefur fram að færa. Ég sé ekki að hann verði ráðandi afl eft- ir næstu kosningar. Það verður þá af því að við ákveðum að gera hann að ráðandi afli með því að gefa eftir hug- myndalega forystu og afhenda hon- um hana.“ Sjálfur hefur hann nýtt tímann frá því að hann hætti sem ráðherra til að hugsa, skrifa og móta hugmynd- ir. „Í grunninn snýst þetta allt um hugmyndir. Flokkur sem hefur ekki skýra framtíðarsýn hefur lítil áhrif. Núna nýti ég reynslu mína til þess að hugsa hluti upp á nýtt og leggja það betur fyrir mér í hvaða átt við eigum að fara.“ Árni Páll hefur sent frá sér hvern greinaflokkinn á fætur öðrum og seg- ir að það hjálpi honum að skilja allt sem á undan er gengið. „Ég er að klára einn greinaflokkinn núna. Ég hefði kannski ekki átt að birta fyrstu greinarnar fyrr en ég var búinn með þær allar en stundum þarf þetta að- eins að setjast. Þá tek ég pásu og finn taktinn. Svo get ég haldið áfram.“ Þjóðin á betra skilið Sem kunnugt er var Árni Páll látinn víkja eftir tæplega 500 daga í starfi. Hann hefur blendnar tilfinningar gagnvart því. „Á þessu eru tvær hlið- ar. Önnur er sú hvernig það bar að og sá ráðherrakapall sem þar var lagð- ur og ekki sér fyrir endann á. Ég held að engum sé greiði gerður með los- arabrag á stjórn efnahags- og ríkis- fjármála á þessum tímum og fráleitt að fjármálaráðherra sé skipaður til nokkurra mánaða í senn. Ég held að þjóðin og flokkurinn eigi betra skilið.“ Hann krossleggur hendurnar og segir að það hafi hins vegar verið mjög hollt fyrir hann persónulega. „Það eina sem þú veist þegar þú verð- ur ráðherra er að þú hættir að vera ráðherra. Þú átt enga heimtingu á að fá morgundaginn. Þetta starf er öðru- vísi en öll önnur störf að því leyti. Þú verður að hegða þér eins og hver dag- ur sé þinn síðasti og afkasta miklu hratt.“ Hann segist heldur ekki vilja vera ráðherra bara til að vera ráðherra. „Ástæðan fyrir því að ég vil vera í stjórnmálum er til þess að breyta ein- hverju og þú verður að hafa umboð til þess. Það eru margar stöður sem geta skapað möguleika til breytinga og það að sitja inni á ráðherraskrifstofu er ekkert endilega besta leiðin. Þú kannt að hafa betri tækifæri til þess annars staðar. Sem ráðherra þarftu líka að taka endalausar ákvarðanir um það hvernig landinu er stjórnað sem hefur kannski ekkert með póli- tík að gera.“ Dagskráin tæmdist Nýtt ár markaði nýtt upphaf og Árni Páll hætti þann 31. desember 2011. Hann hafði þá starfað sem félags- málaráðherra og seinna tók hann við sem efnahags- og viðskiptaráð- herra, stöðu sem Steingrímur J. Sig- fússon gegnir núna. Í nokkrar vik- ur hafði verið umtalað að Árni Páll yrði mögulega settur af en sjálfum var honum haldið utan við þær um- ræður. „Ég vissi ekki neitt fyrr en ég mætti á þingflokksfundinn kvöldið fyrir gamlársdag og heyrði tíðindin um leið og félagar mínir. Það hefði ekkert skaðað að fá að vita þetta fyrr en ég uni ákvörðunum flokksfélaga minna,“ segir hann hugsi. Næstu dagar voru svolítið skrýtn- ir, svo ekki sé meira sagt. „Ég var enn með Blackberry-símann sem ráð- herrar hafa þegar dagbókin mín var færð til eftirmannsins. Allt í einu var ekkert á dagskrá hjá mér nema klipp- ing 8. febrúar. Ég var búinn að vera að glíma við öll þessi þungu og erf- iðu verkefni og skyndilega voru engar væntingar um mitt vinnuframlag. Ég var ekki inni í lúppunni lengur og það Hann var ráðherra í tæpa 500 daga áður en hann var settur af. Eftir miklar annir þagnaði síminn skyndilega og tölvupósturinn hætti að berast. Hann fór því til Afríku þar sem hann fann gleðina. Árni Páll Árnason fer yfir ferilinn með Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur en hann er hvergi nærri hættur og útilokar ekki formannsfram- boð. Hann segir einnig frá kvikmyndinni sem hann leikur í, hvernig það var að verða faðir sautján ára og alast upp hjá föður sem var dæmdur fyrir mótmæli. „Pabba var meinað að kenna vegna skoðana sinna, tapaði prestkosningum og í á annan áratug átti hann erfitt með að fá vinnu. NÁÐI ÁTTUM Í AFRÍKU Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Viðtal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.