Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 21
V ið rætur Telaithrion-fjalls á grísku eyjunni Evia býr hóp- ur fólks sem á það sameigin- legt að hafa flúið slæmt efna- hagsástand á meginlandi Grikklands. Fólkið býr þar í eins konar komm- únu og ræktar meðal annars græn- meti og ávexti sem það borðar eða selur á mörkuðum í skiptum fyr- ir önnur matvæli og nauðsynjavörur. Tíu manns hafa fasta búsetu í komm- únunni en mun fleiri hafast þar við að jafnaði; hátt í hundrað manns hafa búið í kommúnunni síðan henni var komið á laggirnar fyrir tveimur árum. Margir koma og fara og dvelja þar allt frá nokkrum dögum til nokkurra vikna eða mánaða. Fékk nóg „Kreppan virtist hafa áhrif alls staðar – í heilbrigðisþjónustunni, mennta- kerfinu og innviðum samfélagsins. Þannig að við ákváðum að prófa eitt- hvað annað,“ segir Apostolos Sianos, 29 ára vefsíðuhönnuður og einn stofn- enda kommúnunnar, í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC. Sianos var í góðu starfi í höfuðborginni Aþenu þegar efnahagsþrengingarnar fóru að hafa sín áhrif. Vorið 2010, þegar grísk stjórnvöld tilkynntu um stórtækar niðurskurðaraðgerðir, segist Sianos hafa fengið nóg. Hann sagði upp starfi sínu, losaði sig við íbúð sína og flutti frá Aþenu til Evia ásamt þremur kunn- ingjum sínum frá Aþenu. Var stressaður Það var árið 2008 sem Sianos kynnt- ist einstaklingum á spjallsíðu á netinu sem aðhylltust sömu hugmyndafræði og hann. Þeir spjölluðu um kosti og galla þess að setja upp sjálfbært sam- félag og létu loks verða af því fyrir tæp- um tveimur árum. „Ég var svolítið stressaður þegar ég ákvað að segja skilið við borgarlífið og láta verða af þessu,“ viðurkennir Sianos en bætir við: „En nú get ég ekki ímyndað mér að ég vilji lifa þeim lífsstíl aftur.“ Fyrst um sinn bjuggu aðeins þeir fjórir í kommúnunni. Á undanförnum mánuðum hefur áhugi fólks á þessu litla samfélagi aukist mikið í kjöl- far versnandi stöðu efnahagsmála í Grikklandi; sífellt fleiri verða atvinnu- lausir á sama tíma og gjaldþrotum fyr- irtækja fjölgar. Samkvæmt niðurstöðum könnun- ar sem háskólinn í Þessalóníku fram- kvæmdi sögðust 76 prósent Grikkja vilja flytja úr landi. En þar sem fjöl- margir hafa ekki efni á því er dreifbýli og sveitir Grikklands annar möguleiki og segir Sianos að margir virðist hafa áhuga á að lifa í sjálfbærum samfélög- um þar sem lífið snýst um annað en peninga. Hann segir að margir hafi haft samband til að fá ráðleggingar um sjálfbæran lífsstíl og lífræna rækt- un. Kreppan ekki neikvæð „Gríska kreppan er ekki neikvæð að öllu leyti,“ segir Sianos en eflaust eru ekki allir á sama máli um þá skoðun hans enda hafa lífsgæði margra Grikkja versnað mikið. Hann bend- ir á að kreppan ætti að vekja fólk til umhugsunar um samfélagið sem það býr í og vekja upp spurningar um það hvort kerfið virki í raun og veru. „Það sem aðrir sáu sem alþjóðalega fjár- málakreppu sáum við einfaldlega sem samfélagskreppu.“ Landið sem kommúnan stendur á er í eigu föður Sianos og hafast íbúar þar við í tjöldum og litlum kofum sem byggðir hafa verið á undanförnum mánuðum. Sianos og félagar undir- bjuggu sig vel áður en þeir létu til skarar skríða; þeir notuðu veraldar- vefinn til að fá ýmsar ráðleggingar, meðal annars um það hvernig á að búa til sápu og hvernig er best að losna við lífrænan úrgang án þess að skaða náttúruna. Enn sem komið er hefur lífið í kommúnunni gengið vel fyrir sig og eru flestir íbúar þar komnir til að vera, það á að minnsta kosti við í til- felli Sianos. Flúði kreppuna og stoFnaði samFélag n Búa í kommúnu á grísku eyjunni Evia n Sáu tækifæri í slæmu efnahagsástandi Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Í sátt og samlyndi Tíu einstaklingar hafa fasta búsetu í kommúnunni. Fleiri dvelja þó þar alla jafna enda kemur fólk og fer. Smeykur fyrst Sianos segist hafa verið stressaður áður en hann ákvað að yfirgefa borgarlífið. Í dag er hann þó mjög ánægður með þá ákvörðun sína. Sjálfbært samfélag Íbúar rækta meðal annars ávexti og grænmeti. Allt sem þeir borða ekki sjálfir fer á markað þar sem því er skipt út fyrir aðrar nauðsynjarvörur. „Gríska kreppan er ekki neikvæð að öllu leyti Erlent 21Helgarblað 24.–26. ágúst 2012 www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu Sjóðheit á toppnum! Forvitnileg bók fyrir helgina Vasabrotsbæ kur/skáldverk 15.–21.08.2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.