Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Side 4
4 Fréttir 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
Skaut í gólfið
úr veiðiriffli
„Það kom í ljós að þarna hafði veik
ur aðili verið að meðhöndla skot
vopn með þessum afleiðingum,“
segir Margeir Sveinsson, fulltrúi hjá
lögreglunni í Hafnarfirði, um atvik
ið sem átti sér stað í Garðabæ síð
degis á miðvikudag.
Tilkynnt var um skothvell í ein
býlishúsi þar í bæ og var lögregla
og sérsveit kölluð til eins og greint
var frá á miðvikudagskvöld. Hverf
inu var lokað um tíma og tugir lög
reglumanna voru á vettvangi þegar
mest lét. Maðurinn var handtekinn
og hald lagt á vopnið.
Maðurinn sem hleypti skotinu
af hafði komist yfir stóran riffil og
hleypt af skoti í gólf einbýlishússins.
Að sögn Margeirs standa yfir við
töl og skýrslutökur vegna málsins
þar sem meðal annars mun skýr
ast hvort um slysaskot hafi verið að
ræða eða hvort maðurinn hafi skot
ið í gólfið af ásetningi. Margeir segir
að rifflinum hafi ekki verið beint að
neinum og býst hann við að í fram
haldinu verði viðkomandi einstakl
ingi veitt viðeigandi aðstoð.
Lítið launaskrið
Laun hækkuðu lítillega í júlímánuði
samkvæmt launavísitölunni sem
Hagstofa Íslands birti á fimmtudag.
Þannig hækkuðu laun um 0,1 pró
sent í júlí frá fyrri mánuði. Í júní
mánuði var launavísitalan óbreytt.
Greining Íslandsbanka gerir þess
ar tölur að umtalsefni á heima
síðu sinni. Þar segir meðal annars:
„Þessi þróun undanfarna mánuði
virðist benda til þess að launa
skrið sé lítið um þessar mundir.
Undanfarna 12 mánuði hafa laun
hækkað um 6,9 prósent og er 12
mánaða takturinn óbreyttur frá
fyrri mánuði. Árstakturinn í launa
vísitölunni hefur komið hratt niður
síðustu mánuði, en í marsmánuði
nam árshækkun launa 12,1 pró
senti. Núna yfir sumarmánuðina
hefur árstakturinn hinsvegar lækk
að skarpt enda eru nú að detta út úr
12 mánaða taktinum miklir hækk
unarmánuðir frá því fyrir rúmu ári
þegar ákvæði kjarasamninga tóku
gildi. Þannig hækkaði launavísi
talan um 6,1 prósent yfir þriggja
mánaða tímabil í fyrrasumar þegar
almenn hækkun á launatöxtum
upp á 4,25 prósent tók gildi.“
M
ennirnir tveir sem réðust
inn á heimili karlmanns
á sjötugsaldri aðfaranótt
6. júlí játuðu við þing
festingu málsins í Héraðs
dómi Reykjavíkur á fimmtudag hluta
þeirra sakargifta sem þeir eru ákærð
ir fyrir. Mennirnir, Daniel Arcisewski
og Snorri Sturluson, voru ákærðir
fyrir að hafa í félagi svipt manninn
frelsi sínu á heimili hans í Breiðholti
og haldið honum nauðugum til
klukkan 11 sama dag, beitt hann of
beldi og hótað líkamsmeiðingum
og lífláti í því skyni að ná af honum
verðmætum.
Bundinn við stól með límbandi
Samkvæmt ákæru ýttu þeir mann
inum meðal annars í stól inni í stofu
og bundu hann við stólinn með lím
bandi, ógnuðu honum með hagla
byssu og skipuðu honum að skrifa
undir skjal þess efnis að hann skuld
aði þeim peninga. Þá leystu þeir
hann og skipuðu honum að milli
færa peninga á bankareikning þeirra
í gegnum heimabanka. Þegar ekki
tókst að tengjast internetinu færðu
þeir fórnarlambið inn í baðherbergi
og ýttu honum ofan í baðkar þar
sem hann var bundinn á höndum
og fótum með rafmagnssnúru sem
fest var við blöndunartæki og settu
tusku upp í munn hans og límband
yfir. Síðan neyddu þeir fórnarlambið
til að gefa upp PINnúmer á debet
korti sínu á meðan annar þeirra ógn
aði honum með tréstaf, samkvæmt
ákæru.
Rændu strætómiðum
Í kjölfarið fór Snorri í hraðbanka og
tók 20 þúsund krónur út af reikningi
hans.
Snorra er gefið að sök að hafa
slegið fórnarlambið einu höggi í
höfuðið en báðir eru sagðir hafa
hótað manninum lífláti og líkams
meiðingum ef hann hringdi á lög
reglu.
Samkvæmt ákæru neyddu þeir
manninn til að millifæra af reikningi
sínum 453.000 krónur inn á reikning
Daniels. Snorri játaði að hafa tekið
sjónvarp og tölvuskjá úr íbúðinni en
neitar að hafa afhent munina ókunn
ugum manni eins og honum er gefið
að sök í ákæru. Ásamt sjónvarpinu og
tölvuskjánum hurfu af heimilinu aðr
ir munir, svo sem ullarteppi, seðla
veski með tíu til fimmtán þúsund
krónum, strætómiðar og debetkort.
Fórnarlambið hlaut blóðmar á
úlnliðum og ökklum og áverka á
skyntaugum í framhandleggjum.
Það var klukkan 11 um morguninn
að vinnufélagar mannsins komu
heim til hans þar sem þeir undruðust
að hann væri ekki mættur til vinnu.
Við það flúðu Daniel og Snorri og
maðurinn losnaði úr prísundinni.
Sögðu manninn „barnaperra“
Við þingfestingu málsins játuðu
Daniel og Snorri, eins og fyrr segir,
hluta af sakargiftum en neituðu að
hafa ógnað manninum með hagla
byssu og staf. Þeir sögðu einnig að
honum hefði ekki verið hótað lífláti
eða líkamsmeiðingum.
Þeir játuðu að hafa ráðist inn til
mannsins en sögðu ástæðuna fyr
ir innrásinni vera þá að þeir töldu
að maðurinn væri „barnaperri“. Á
Snorri að hafa komist yfir tölvu sem
innihélt barnaklám, en tölvunni átti
að hafa verið rænt frá fórnarlambinu
áður. Hefðu þeir því ákveðið að refsa
manninum fyrir meint brot. Dani
el, sem er 33 ára og flutti til Íslands
frá Póllandi 18 ára að aldri, sagðist
hafa verið í mikilli neyslu í tvö ár fyr
ir brotið og sem tveggja barna faðir
hefði hann reiðst þegar hann heyrði
að maður með slíkar kenndir væri að
vinna með börnum. „Ég er nú búinn
að sitja á LitlaHrauni og er laus við
eiturlyfin. Það eina sem ég get gert er
að biðjast afsökunar.“
Sprautuðu sig á vettvangi
Snorri játaði að hafa rænt manninn
en neitaði að stór hluti verknaðar
lýsingar eins og hún kemur fram í
ákæru væri réttur. Hann neitaði að
hafa veitt manninum högg og hótað
honum lífláti og líkamsmeiðingum.
Snorri sagði við þinghaldið
að hann hefði einnig verið í mik
illi neyslu undanfarið en hefði ver
ið að reyna snúa lífi sínu á rétta
braut. Hann væri sjómaður og
hefði á tveggja ára edrútímabili fyr
ir nokkrum árum skráð sig í Stýri
mannaskólann.
Verjandi Daniels, Jón Egilsson,
ítrekaði hversu slæmt ástandið á
honum hefði verið frá því að hann
féll fyrir tveimur árum og benti á að
hann hefði verið að sprauta sig með
morfíni og rítalíni. Mennirnir hefðu
meðal annars sprautað sig inni á
baðherbergi á heimili fórnarlambs
ins. Í dag væru þeir báðir á með
ferðargangi á LitlaHrauni og iðr
uðust gjörða sinna. Daniel teldi það
vera lukku fyrir sig að hafa verið tek
inn og þar með fengið tækifæri til að
hætta í neyslu.
„Ætti að taka þá til
fyrirmyndar“
Með játningu mannanna á hluta sak
argiftanna féllst saksóknari á að falla
frá ákærulið varðandi haglabyssuna,
en sagði brotið vera svívirðilegt og
alvarlegt.
Saksóknari fór fram á tveggja ára
fangelsisdóm yfir mönnunum en
vegna fyrri dóms Daniels myndu
leggjast ofan á hann sex mánuðir.
Verjandi Daniels sagði tveggja
ára dóm of þungan og benti á að litlu
sem engu ofbeldi hefði verið beitt.
Hann benti á að fórnarlambið hefði
sjálft náð að losa sig úr böndum og
undraðist að það hefði ekki veitt
mótspyrnu eða hringt á lögreglu.
Vegna vímuefnanotkunar sinnar á
staðnum hefðu þeir verið „hálfrænu
lausir mestallan tímann“.
„Að ákæruvaldið haldi því fram
að þetta hafi verið svívirðileg árás
er ekki rétt. Maður myndi halda að
ákæruvaldið teldi það þeim til tekna
að hafa vit á því að hafa ekki beitt of
beldi. Fleiri ættu að taka sér þá til
fyrirmyndar.“ Hann hélt því fram að
mennirnir hefðu ekki ráðist inn til
mannsins í auðgunartilgangi heldur
til að vernda börn frá því að lenda í
frekara ofbeldi.
Lögreglan rannsakar nú tölvur fórn
arlambsins til að athuga hvort ásakanir
mannanna séu á rökum reistar.
Gæsluvarðhald yfir mönnunum
rennur út 7. september og verður
reynt að ljúka málinu fyrir þann tíma.
n Héldu manni í gíslingu í Breiðholti n Héldu að hann væri „barnaperri“
Mannræningjar í
Breiðholti iðrast
„Maður myndi
halda að ákæru-
valdið teldi það þeim til
tekna að hafa vit á því að
hafa ekki beitt ofbeldi.
Fleiri ættu að taka sér þá
til fyrirmyndar.“
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Sakborningar Daniel
Arcisewski og Snorri Sturlu-
son fyrir dómi á fimmtudag.