Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Qupperneq 12
12 Fréttir 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
A
rion banki hefur þurft að af
skrifa rúmlega 961 milljón
króna hjá félaginu Blásalir ehf.
sem úrskurðað var gjaldþrota
í febrúar síðastliðnum. Athygli vekur
að félagið, sem var í byggingarstarf
semi og rekstri fasteigna, hefur ver
ið í eigu bankans um árabil, allt frá
því að Búnaðarbanki Íslands var og
hét. Engin starfsemi eða rekstur hef
ur verið í félaginu svo árum skipt
ir og skuldir þess aðeins hækkað um
tugi milljóna milli ára. Eða eins og
skiptastjóri þrotabús félagsins, Jó
hannes Ásgeirsson, sagði í samtali við
DV: „Það hefur legið dautt í mörg ár.“
Átti hús ríkislögreglustjóra
Samkvæmt tilkynningu í Lög
birtingablaðinu á mánudag voru
lýstar kröfur í þrotabú Blásala
961.252.392 krónur. Engar eignir
fundust í búinu og var skiptum lokið í
apríl án þess að nokkuð fengist upp í
kröfurnar. Arion banki var eini kröfu
hafinn, samkvæmt upplýsingum frá
skiptastjóra.
Fyrirtækið Blásalir var upphaf
lega stofnað í byrjun tíunda áratugar
síðustu aldar en einn upprunalegu
stofnenda félagsins segir í samtali
við DV að meðal eigna félagsins hafi
verið byggingin að Skúlagötu 21, þar
sem Ríkislögreglustjóraembættið er
til húsa. En í byrjun síðasta áratugar
var félagið tekið yfir af Búnaðarbank
anum og hefur það rúllað í gegnum
dótturfélög Búnaðarbankans, KB
Banka, Kaupþings og loks undir það
síðasta Arion banka sem átti það að
fullu samkvæmt síðasta ársreikningi
félagsins, fyrir árið 2011.
Flakkað milli dótturfélaga
Samkvæmt ársreikningi fyrir árið
2004 var félagið í eigu Grænabæjar
ehf. sem var eignarhaldsfélag Bún
aðarbanka Íslands. Í ársreikningi ári
síðar var félagið komið í eigu Viðja
ehf., sem stofnað var af Búnaðar
bankanum og Urði ehf., og var síð
ar sameinað Kaupþingi. Tilgangur
Viðja var meðal annars að fara með
eignarhluta í öðrum félögum sem
höfðu það að markmiði að tryggja
fullnustu og efndir krafna Kaup
þings Búnaðarbanka á sínum tíma.
Eftir því sem næst verður kom
ist var félagið yfirtekið vegna skuld
ar við bankann og vissu fyrrverandi
eigendur ekki betur en löngu væri
búið að ganga frá félaginu.
Það hefur hins vegar þvælst um í
eignasafni bankans í hátt í áratug og
safnað skuldum með dráttarvöxtum
án þess þó að vera í rekstri. Sam
kvæmt síðasta ársreikningi Blásala,
fyrir árið 2011, námu skuldir félags
ins rúmum 363 milljónum króna. Til
samanburðar voru skuldir félags
ins í árslok 2008 rúmar 270 milljón
ir króna.
Bankamenn hissa
Arion banki erfði þetta félag og sam
kvæmt upplýsingum sem DV fékk
þegar grennslast var fyrir um gjald
þrot Blásala kom það á óvart hversu
lengi félagið hafði verið í eigu bank
ans án þess að gengið væri frá því.
Sérstaklega í ljósi þess að enginn
rekstur hefur verið í því undanfarin
ár, skuldirnar bara hækkað og engar
eignir eru í því. Samt hefur félagið
ávallt skilað ársreikningum og full
trúar bankans setið í stjórn þess. Að
öðru leyti var litlar sem engar upp
lýsingar að fá um Blásali hjá bank
anum sem tók skuldaskell eigin fé
lags með afskriftum.
n Bankinn afskrifar hjá eigin félagi n Þvældist í eignasafni bankans um árabil
Dularfullt félag
í eigu Arion í þrot
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Blásalir ehf. Voru ekki úrskurðaðir gjaldþrota fyrr en í febrúar. Í tæpan áratug hafði fyrir-
tækið þvælst í eignasafni bankans.
OPNUN Á NÝJU NATUZZI GALLERÝ : Undir áhrifum Ítalskrar hönnunar.
Uppgötvið nýja Natuzzi gallerýið okkar og hvernig Ítalir búa.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi .
Staður þar sem fólki líður vel.
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Við bjóðum velkomna Ítalska hönnun.
100% made in Italy
www.natuzzi.com
Skeifan 8, 108 Reykjavik, Tel: +354 5880640 Komið og upplifi ð nýja Natuzzi gallerýið okkar.
Tilboð 199.000.kr
3. sæta 217cm, Cat.78 Tau. h