Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Qupperneq 15
Á heimasíðu Múla kemur fram
að „Þökk sé þrotlausri vinnu hug-
búnaðarsérfræðinga okkar getur
Múla metið greiðsluhæfi lántakenda
sinna án þess að þeir þurfi að fram-
vísa einu einasta bréfi eða afhenda
nokkur gögn.“ Á Facebook-síðu fyr-
irtækisins vekur maður athygli á
þessu og fær þau svör frá Múla að
þetta sé gert með rafrænu greiðslu-
mati þeirra, þeir fái þó ekki upplýs-
ingar frá viðskiptabanka viðkomandi
en þeir hafi aðrar leiðir til að athuga
hvort viðkomandi segi satt og rétt frá
í greiðslumatinu.
Mikill gróði
Þar sem þrjú fyrirtækjanna fimm
eru tiltölulega ný á markaði þá hafa
þau ekki skilað ársreikningum. Elstu
fyrirtækin, Kredia og Hraðpeningar
hafa hins vegar skilað ársreikning-
um fyrir 2009 og 2010. Árið 2010
skilaði Kredia tæplega 16 milljóna
króna hagnaði og það sama ár skil-
aði Hraðpeningar rúmlega 14 millj-
óna króna hagnaði. Ársreikingar frá
fyrirtækjunum fyrir árið 2011 eru
væntanlegir og líklega má búast við
að hagnaðurinn hafi aukist í takt við
ört vaxandi fyrirtækin.
Frumvarp til laga um neytenda-
lán er nú til meðferðar hjá efna-
hags- og viðskiptanefnd Alþing-
is. Frumvarpið tekur meðal annars
til smálánafyrirtækja og eru þeim
sett ítarleg skilyrði fyrir lánveiting-
um. Taki lögin gildi munu fyrirtæk-
in þurfa að greina frá öllum kostn-
aði vegna lántöku í kynningarefni
sínu auk þeirrar heildarfjárhæðar
sem lántakandi þarf að greiða. Þá
þurfa fyrirtækin, áður en lánin eru
veitt, að kynna lántakendum af-
leiðingar þess að standa ekki í skil-
um. Upplýsa þarf lántakendur um
allar breytingar á vaxtakjörum áður
en þær taka gildi og verða fyrirtækin
jafnframt skylduð til að meta láns-
hæfi viðskiptavina. Neytendastofa
mun annast eftirlit með starfsemi
smálánafyrirtækja. n
EigEndur í fElulEik
Fréttir 15Helgarblað 24.–26. ágúst 2012
Grafarvogur / Bakkastaðir 6 - 12 ára
ALMENN NÁMSKEIÐ
k e r a m i k
m á l u n - v a t n s l i t u n - l i t a s k y n j u n
l j ó s m y n d u n
i n d e s i g n - p h o t o s h o p
VETRARNÁMSKEIÐ
www.myndlistaskolinn.is
t e i k n i n g
f o r m - r ý m i
Almenn námskeið byrja 15. september
Barna- og unglinganámskeið byrja 22. sept.
15.15-17.00 fim. 6 - 9 ára Myndlist - Bakkastöðum / Brynhildur Þorgeirsd
15.00-17.15 mið. 10 - 12 ára Myndlist - Bakkastöðum / Brynhildur Þorgeirsd.
17.30-21.30 mán. Teikning 1 Sólveig Aðalsteinsdóttir
17.30-21.30 þri. Teikning 1 Þóra Sigurðardóttir
17.30-21.30 mið. Teikning 2 Sólveig Aðalsteinsdóttir
09.00-11.45 fim. Teikning 1 morguntímar Katrín Briem
17.45-21.30 mán. Módelteikning Þorbjörg Þorvaldsdóttir
09.00-11.45 mán. Módelteikning morguntímar Þóra Sigurðardóttir
17.45-20.30 mið. Módelteikning framhald Katrín Briem
11.00-12.00 lau.20/10 Teikning þvert á tíma og tækni Þóra Sigurðardóttir
17.30-20.15 mið. tímabil: 20.10-07.11.2012
17.30-20.15 mán. Málun 1 Jón Henrysson
17.30-20.15 mið. Málun 2 Sigtryggur B. Baldvinss.
17.30-20.15 þri. Málun framhald Jón B.K. Ransú
13.15-16.00 fös. Frjáls málun Sigtryggur B. Baldvinss.
16.15-19.00 fim. Frjáls málun Sigtryggur B. Baldvinss.
17.30-20.40 mán. Litaskynjun Didda Leaman
09.00-11.45 þri. Málun 1 morguntímar Jón Henrysson
09.00-11.45 fim. Málun 2 morguntímar Sigtryggur B. Baldvinss.
09.00-11.45 mið. Málun framh. morguntímar Jón B.K. Ransú
10.00-12.45 lau. Málun framh. Portrettmálun Halldór Baldursson,
Louise Harris og Stephen Lárus Stephen
17.30-20.15 þri. Vatnslitun framhald Hlíf Ásgrímsdóttir
09.00-11.45 mið. Vatnslitun -Teikning morgunt. Hlíf Ásgrímsdóttir
14.30-17.00 þri. Tilraunastofa í myndlist fyrir
hreyfihamlaða Kristinn G. Harðarson
og Sólveig Aðasteinsd.
17:30-20.40 fim. Form, rými og hönnun Sólveig Aðalsteinsdóttir
Þóra Sigurðardóttir og Guja Dögg Hauksdóttir
17.30-20.15 mán. Leirkerarennsla Guðbjörg Káradóttir
10.00-15.30 lau. Ljósmyndun svart/hvít Erla Stefánsdóttir
17.30-20.20 þri. tímabil: 6.10-6.11.2012 og Vigfús Birgisson
09.00 -14.00 lau. Ljósmyndun stafræn Vigfús Birgisson
17.30-20.20 mán. tímabil: 8.10-10.11.2012
17.30-21.10 má-fi InDesign-Photoshop Magnús Valur Pálsson
10.00-13.40 lau 5 daga: 24.9-29.9.2012
INNRITUN stendur yfir
BARNANÁMSKEIÐ
MUNIÐ
Frístundakortið
15.15-17.00 þri. 4 - 5 ára Myndlist Guðrún Vera Hjartardóttir
15.15-17.00 mið. 4 - 5 ára Myndlist Guðrún Vera Hjartardóttir
10.15-12.00 lau. 4 - 5 ára Myndlist Sigríður Helga Hauksd.
og Helga Óskarsdóttir
12.30-14.15 lau. 4 - 5 ára Myndlist Sigríður Helga Hauksd.
og Helga Óskarsdóttir
15:15-17.00 mán. 6 - 9 ára Myndlist Ína Salóme Hallgrímsd.
15.15-17.00 mán. 6 - 9 ára Myndlist Brynhildur Þorgeirsdóttir
15.15-17.00 þri. 6 - 9 ára Myndlist Brynhildur Þorgeirsdóttir
15.15-17.00 þri. 6 - 9 ára Myndlist Ína Salóme Hallgrímsd.
15.15-17.00 mið. 6 - 9 ára Myndlist Ragnheiður Gestsdóttir
15.15-17.00 mið. 6 - 9 ára Myndlist Karlotta Blöndal
15.15-17.00 fim. 6 - 9 ára Myndlist Karlotta Blöndal
10.15-12.00 lau. 6 - 9 ára Myndlist Ragnheiður Gestsdóttir
og Karlotta Blöndal
12.30-14.15 lau. 6 - 9 ára Myndlist Ragnheiður Gestsdóttir
og Karlotta Blöndal
15.15-17.30 fim. 8 - 11 ára Leirrennsla og mótun Guðbjörg Káradóttir
15.00-17.15 mán. 10 - 12 ára Myndlist Þorbjörg Þorvaldsdóttir
15.00-17.15 fim. 10 - 12 ára Video og hreyfimynd.gerð / Ragnheiður Gestsd.
15.00-17.15 fim. 10 - 12 ára Teikning-Málun-Grafík / Þorbjörg Þorvaldsdóttir
10.00-12.15 lau. 10 - 12 ára Myndasögur Inga María Brynjarsdóttir
10.00-12.15 lau. 10 - 12 Leir og Skúlptúr / Guðbjörg Kárad. og Anna Hallin
UNGLINGANÁMSKEIÐ
15.00-17.55 fös. 13 - 16 ára Ljósmyndir-sígildar aðf. / Sigurður Gunnarsson
18.00-20.55 fim. 13 - 16 ára Video og hreyfimyndagerð / Ragnheiður Gestsd.
16.00-18.55 fös. 13 - 16 ára Teikning-Málun-Grafík / Þorbjörg Þorvaldsdóttir
og Jón B.K. Ransú
16.00-18.55 fös. 13 - 16 ára Leirmótun / Guðný Magnúsd. og Anna Hallin
16.00-18.55 fös. 13 - 16 ára Myndasögur / Jean Posocco
Innritun er hafin á www.myndlistaskolinn.is
sími 551-1990 á skrifstofutíma mán-fim kl.13-17 og fös kl.13-16
n Erfitt að ná tali af eigendum smálánafyrirtækjanna n Hafa stofnað með sér samtök
Svörin frá Múla:
Eru ekki Ævar Rafn Björnsson og Gunnar
Snævar Sigurðsson eigendur Múla?
„Múla er í dreifðri eignaraðild og
rétt er að Ævar er einn eigand-
anna.“
Hvað finnst ykkur um þá gagnrýni sem
hefur verið uppi um:
1. Að þið starfið eins og okurlánarar?
„Umræðan hefur verið óvægin og
stór orð fallið á síðustu dögum.
Afar ósanngjarnt er að setja alla
aðila undir sama hatt enda hefur
Múla frá upphafi gengið lengst
í að upplýsa lántakendur um
kostnað við lánin, hvort sem um
er að ræða vexti, lántökukostnað
og seðilgjald. Múla er einfald-
lega valkostur þeirra sem þurfa
tímabundna lausn með skömmum
fyrirvara þar sem allt er uppi á
borðum.“
2. Að þið lánið ungmennum sem engar
tekjur hafa?
„Sú gagnrýni er ósanngjörn í
garð Múla þar sem fyrirtækið
hefur frá upphafi aðeins boðið
lán eftir að umsækjandi hefur
farið í greiðslumat á vefnum. Að
auki hefur Múla markað sér þá
sérstöðu að viðskiptavinir þess
eru í yfirgnæfandi meirihluta
yfir 30 ára aldri. Þá sérstöðu má
meðal annars merkja í auglýsing-
um Múla þar sem meðal annars er
varað við að taka lán til dæmis til
pizzukaupa.“
3. Kannið þið greiðslugetu fólks áður en
lánað er?
„Sjá svar 2.“
4. Að algengt sé að vímuefnafíklar séu
að fá smálán til að fjármagna neyslu?
Kannist þið við það?
„Starfsfólk Múla kannast ekki við
nein tilfelli þar sem lán hafa verið
veitt á slíkum forsendum.“
5. Að starfsemin sé siðlaus þrátt fyrir að
vera lögleg?
„Fjölmargar starfsstéttir hafa
síðustu misseri fengið á sig
þann stimpil að vera siðlausar
en löglegar, allt frá stjórnmála-
mönnum til tryggingasala. Múla
hefur frá upphafi haldið sig vel
innan ramma allra laga og reglna
og mun gera það um ókomna
framtíð.
6. Að þið séuð sérstaklega að reyna höfða
til ungmenna og þeirra sem eru lægra
settir?
„Múla hefur frá stofnun markað
sér þá sérstöðu að viðskiptavinir
þess eru í yfirgnæfandi meirihluta
yfir 30ára aldri. Þá sérstöðu má
meðal annars merkja í auglýsing-
um Múla þar sem meðal annars er
varað við að taka lán til dæmis til
pizzu kaupa. Múla höfðar því ekki
til ungmenna eða þeirra sem eru
lægra settir.“
7. Að auglýsingarnar séu siðlausar og sér-
staklega hannaðar með ungt fólk í huga?
„Slíkt á ekki við um auglýsingar
Múla.“
Hafið þið einhverjar tölur um meðalaldur
lántaka hjá ykkur?
„Meðal lántakandi Múla er á fer-
tugsaldri.“
Hvaðan koma peningarnir sem þið lánið
út?
„Fyrirtækið er fjármagnað af
eigendum þess.“
Múla
Eigendur: Gunnar
Sigurðsson og Ævar
Rafn Björnsson
n Gunnar Sigurðsson (f. 1976) var
forstjóri Baugs og hefur verið yfirheyrður
í tengslum við rannsóknir á málum sem
tengjast efnahagshruninu. Hann hefur
starfað í Bretlandi frá árinu 2003. Ævar
Rafn (f. 1965) er ekki eins þekktur og
Gunnar en hann er lögmaður og hefur
starfað hjá EFTA og síðar ESA, sem er
eftirlitsstofnun EFTA. Þá hefur hann
starfað sem lögfræðingur á viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Meðstjórnendur í fyrirtækinu ásamt
þeim Ævari og Gunnari eru Birkir Björns-
son, Gunnar Hafsteinsson og Jökull
Tómasson.
Kredia og
Smálán
Eigandi: Leifur Alexander
Haraldsson
n Leifur er 35 ára og
stofnandi Dempsey & Clark,
sem er ráðgjafarfyrirtæki sem
sérhæfir sig í markaðssetningu á netinu
ásamt veflausnum, sérforritunarlausn-
um og hýsingarþjónustu. Leifur er einn í
stjórn en varamaður beggja félaganna
er faðir Leifs, Haraldur Leifsson, sem
er framkvæmdastjóri Würth á Íslandi.
Leifur er auk þess skráður stofnandi fé-
laganna Novuz ehf og Gríshóll ehf. Hann
er prókúruhafi hjá Hópkaup, Hóptilboð,
Pageflipper og 3 geitur ehf.
Hraðpeningar
og 1909
Eigandi: Skorri Rafn
Rafnsson.
n Þrátt fyrir að vera
aðeins 27 ára gamall þá
virðist Skorri hafa komið víða
við. Hann stofnaði Hraðpen-
inga árið 2009 og 1909 stofnaði
hann í gegnum Hraðpeninga árið
2012 en félagið hét upprunalega Micro
Finance og var stofnað árið 2011. Skorri
er í stjórnarformaður og prókúruhafi
félaganna Frontur ehf, Móberg ehf, S.R
import ehf og Skífan ehf. Auk þess er
hann varamaður í Icelimo ehf, og stjórn-
armaður og prókúruhafi í Kerfisvirkni
ehf.
Í stjórn Hraðpeninga er bróðir Skorra,
Fjölvar Darri Rafnsson sem hefur komið
nokkuð víða við.
Hann er stjórnarformaður og pró-
kúruhafi Skífunnar, var á tímabili fram-
kvæmdastjóri Office 1 Superstore og var
framkvæmdastjóri Pharma Investment,
dótturfélags Milestone, en það rak á
tímabili 180 apótek í fimm löndum.
n Hraðpeningar skilaði rúmlega 14
milljóna króna hagnaði árið 2010. Skorri
Rafn var á lista yfir 110 menn, sem DV
birti í janúar 2010, sem flugu með einka-
þotum á vegum Glitnis og Milestone.
Smálánafyrirtækið 1909 er stofnað af
Hraðpeningum.
Í stjórn er Óskar Þorgils Stefáns-
son (f. 1983). Hann er ekki þekktur úr
viðskiptalífinu, frekar en margir aðrir
eigendur smálánafyrirtækjanna. Vara-
maður í eins manns stjórn félagsins er
Fjölvar Darri Rafnsson, sem einnig situr í
stjórn Hraðpeninga og er bróðir eiganda
þess félags. Fyrsta rekstrarár félagsins
var í fyrra.