Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Side 16
Þ
essi rökstuðningur er bara
rugl. Þar er sagt að hann
passi ekki þarna inn. Hvað
eru þá krakkarnir sem eru
með sömu röskun og hann
að gera í Klettaskóla ef hann á ekki
samleið með nemendum skólans.
Eru þeir þá bara út undan í kerfinu
þar?“ segir Ágúst Kristmanns, fað-
ir Inga Kristmanns, um rökstuðning
Fræðsluráðs sem fjölskyldan fékk
sendan frá menntamálaráðuneytinu
vegna synjunar um skólagöngu í
Klettaskóla.
Inga var synjað á þeim grundvelli
að hann uppfyllti ekki inntökuskil-
yrði í skólann. Klettaskóli er ætlað-
ur börnum sem eru með alvarlegar
og miðlungs þroskahamlanir ásamt
þeim börnum sem eru með vægar
þroskahamlanir og viðbótarfatlan-
ir. Ingi er með viðbótarfötlun en hún
telst ekki nægileg til að hann fái inn-
göngu samkvæmt inntökuskilyrðun-
um sem tóku gildi 2008.
Hentar ekki öllum
Ef Ingi hefði farið strax í Klettaskóla
í upphafi skólagöngu sinnar væri
hann hins vegar enn í skólanum.
Foreldrar hans ákváðu að láta hann
taka fyrsta skólastigið, 1.–4. bekk, í
sínum heimaskóla svo hann myndi
kynnast krökkunum í hverfinu.
Hann myndi hins vegar fara í sér-
skóla þegar hann færi á næsta skóla-
stig þar sem þroskamunurinn væri
orðinn meiri líkt og sannast núna.
Það var örlagarík ákvörðun því árið
2008 var inntökuskilyrðum í skól-
ann breytt. Nú virðist Ingi ekki kom-
ast inn í skólann og foreldrar hans
eru ráðalausir þar sem þeim finnst
hann vera kominn á endapunkt í al-
menna skólakerfinu. „Þessi stefna,
skóli án aðgreiningar, hentar sum-
um en ekki öllum. Það er ekki það
að skólinn hans standi sig ekki. Þau
standa sig mjög vel en hann upplif-
ir sig samt alltaf einan því þroska-
munurinn er svo mikill. Hann getur
aldrei litið á sig sem jafningja hinna
krakkanna í almenna skólanum. Þó
að hann sé í venjulegum bekk er
hann kannski með bekknum svona
20 prósent af tímanum,“ segir Ágúst
en tekur fram að skólafélagar Inga
séu mjög góðir við hann. Hins vegar
er það heitasta ósk foreldranna að
Ingi fái að upplifa sig í jafningja-
samfélagi með öðrum þroskahöml-
uðum einstaklingum.
Senda rökstuðning á móti
„Hann á ekki heima í almenna skóla-
kerfinu og samkvæmt rökstuðningn-
um frá Fræðsluráði á hann ekki held-
ur heima í Klettaskóla. Hvar á hann
þá heima? Hann virðist hvergi eiga
heima í skólakerfinu. Það vantar ein-
hvers konar milliskóla þarna á milli
fyrst hann kemst ekki þarna inn, eitt-
hvað fyrir þessi börn sem lenda á
milli,“ segir Ágúst.
Foreldrar Inga urðu fyrir miklum
vonbrigðum með svarið sem þeir
fengu frá menntamálaráðuneytinu í
vikunni en þeir höfðu beðið þess síð-
an þeir lögðu fram kæruna um miðj-
an maí. „Þetta er ekkert svar, það
kemur ekkert frá þeim heldur senda
þau okkur bara þennan rökstuðn-
ing Fræðsluráðs. Það var búið að lofa
okkur svari síðan um miðjan júlí.
Núna ætlum við að senda þeim okk-
ar rökstuðning á móti og vona að þau
taki tillit til þess en það er svo margt
sem er ekki rétt í þeirra rökstuðn-
ingi,“ segir hann en greiningin sem
synjun Inga byggir á var gerð þegar
hann var fimm ára gamall. Hann er
nú orðinn 11 ára og foreldrar hans
segja margt hafa breyst síðan grein-
ingin var gerð. „Við vonum bara að
þau taki þetta til greina,“ segir Ágúst.
16 Fréttir 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
Upplifir sig alltaf einan
n Foreldrar Inga eru ósáttir við rökstuðning Fræðsluráðs n Ætla að svara bréfi ráðuneytisins
Eygja enn von Foreldrar Inga vonast til að ráðuneytið skoði rökstuðning þeirra og segja margt í rökstuðningi Fræðsluráðs ekki vera rétt.
„Þau standa sig
mjög vel en hann
upplifir sig samt alltaf
einan því þroskamunur-
inn er svo mikill.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4