Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Síða 18
Veldi Björgólfs Thors
18 Fréttir 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
n Félögin eru í skattaskjólum n Á hlut í þremur stórum fyrirtækjum á Íslandi n Umsvifin eru aðeins brot af því sem var fyrir hrun
Þ
ó að Björgólfur Thor Björg-
ólfsson sé langtum umsvifa-
minni fjárfestir hér á Íslandi
en hann var fyrir hrun er
veldi hans enn stórt. Í hans
eigu eru fjarskiptafyrirtækið Nova og
lyfjafyrirtækið Actavis, ásamt því að
hann á þriðjungshlut í tölvuleikja-
framleiðandanum CCP. Þar að auki
á hann fjórðungshlut í nýju gagna-
veri á varnarliðssvæðinu sem áður
var í eigu bandaríska hersins nærri
Keflavík. Erlendis á hann til dæmis
hluta í farsímafyrirtækinu Play í Pól-
landi. En hann er líkt og margir aðrir
klyfjaður skuldum sem hann vonast
til að geta borgað upp á næstu fjór-
um til fimm árum.
Segist ætla að greiða allt upp
Að sögn Ragnhildar Sverrisdóttur,
talskonu Björgólfs, mun arðurinn
af þessum eignarhlutum Björg-
ólfs og verðmæti – kæmi til sölu
þeirra – ganga til uppgjörs skulda
hans. Slíkt hið sama gildi um ýms-
ar persónulegar eigur hans, þar
á meðal húseign í Reykjavík og
sumarhús við Þingvelli. Björgólfur
segist ætla að vinna í þágu lánar-
drottna sinna um ókomin ár, þar til
skuldirnar eru greiddar.
Björgólfur segist hafa tapað
miklu í hruninu. „Persónulegt
tjón mitt vegna hruns bankakerf-
isins [nemur] nærri 100 milljörð-
um króna,“ skrifar hann á vefsíðu
sína. Ragnhildur vildi ekki tíunda
það hver hlutur Björgólfs væri í
áður nefndum eignum, en DV hef-
ur grandskoðað málið og byggja
upplýsingar blaðsins á hluthafa-
skrám hjá lánstraustsfyrirtækjum
um félög tengd honum, ásamt öðr-
um heimildum. Björgólfur býr í
London og hefur búið erlendis um
árabil og leiðir eignarhaldskeðja
þeirra fyrirtækja sem hann á hér á
landi í flestum tilfellum til félaga í
skattaskjólum.
Risinn sem fór í þrot
Samson eignarhaldsfélag ehf. er
eina félag Björgólfs Thors sem hef-
ur farið í þrot svo vitað sé. Sjálf-
ur segir hann að aðeins eitt félag í
hans eigu hafi orðið gjaldþrota en
faðir hans, Björgólfur Guðmunds-
son, var meðeigandi í félaginu.
Hagnaður félagsins árið 2007
var rúmlega 35 milljarðar króna.
Skuldir og eigið fé alls nam rúmum
142 milljörðum og voru eignir um-
fram skuldir rúmir 54 milljarðar. Í
kjölfar hrunsins fór Samson í þrot.
Í frétt Stöðvar 2 frá árinu 2010
kemur fram að skiptastjóri þrota-
bús Samsonar eigi erfitt með að
átta sig á bókhaldi félagsins, að svo
virðist sem ekki hafi verið gerðir
samningar vegna lána undir millj-
arði króna og hafi það torveldað
starf skiptastjórans. Meðal annars
finnast ekki samningar vegna lána
til fjögurra aflandsfélaga á Tortóla
upp á 800 milljónir króna.
Þær skýringar sem stjórn Sam-
sonar, sem var skipuð Björgólfi
Guðmundssyni, Sigþóri Sigmars-
syni og Ágústi Leóssyni, gaf á þessu
á sínum tíma voru að fjármálastjóri
Samsonar hefði glímt við veikindi
og því hefði bókhaldið ekki verið í
lagi. Kröfurnar í búið námu sam-
tals 80 milljörðum króna. DV hefur
fjallað ítarlega um eignarhaldsfé-
lögin Givenshire og Hersi og að-
komu þeirra að eignarhaldinu á
Samson.
Fordæmdur í skýrslunni
Björgólfur Thor er fordæmdur í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is ásamt föður sínum, Björgólfi
Guðmundssyni, vegna þess hvern-
ig þeir stýrðu Landsbankanum á
meðan þeir áttu hann og hvernig
þeir létu bankann lána sér og sín-
um miklu meira en þeir máttu lög-
um samkvæmt.
Árni Mathiesen, fyrrverandi
fjármálaráðherra, fór ekki fögr-
um orðum um Björgólf í skýrsl-
unni þar sem rædd voru samskipti
sem fram fóru í Ráðherrabústaðn-
um við Tjarnargötu í aðdraganda
hrunsins. „Og verstur var Björgólf-
ur [Thor Björgólfsson] [...] og hann
var að ljúga að hinum líka og þeir
komu svo bara um kvöldið og
sögðu: Það er ekkert að marka það
sem þessi maður segir. Þeir voru
að reyna að finna leið til að sam-
eina Kaupþing og Landsbankann
til þess að þeir gætu staðið þetta
og Björgólfur sagði bara: Við redd-
um þessu og við reddum þessu,“
sagði Árni en af þessum orðum
ráðherrans fyrrverandi má draga
þá ályktun að Björgólfur hafi ekki
verið heiðarlegur þessa örlagaríku
daga.
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
„Persónulegt tjón
mitt vegna hruns
bankakerfisins [nemur]
nærri 100 milljörðum
króna.
Skuldum vafinn Björgólf-
ur Thor Björgólfsson var
einn umsvifamesti fjárfestir
Íslands fyrir hrun og er
það í raun enn. Hann er þó
skuldbundinn lánardrottn-
um sínum og segist hafa það
markmið að borga allar sínar
skuldir.
Húsið í London Björgólfur býr í þessu húsi í Notting Hill-hverfinu í London samkvæmt heimildum DV. Flestir eru sammála um að fá hverfi
í Lundúnum séu fallegri og það er í hjarta borgarinnar. Samkvæmt Spegli RÚV frá árinu 2010 er húsið metið á 1,5 milljarða króna. Hann hefur
átt það lengi, frá árinu 2001, eða frá því áður en eignarhaldsfélag þeirra Björgólfsfeðga, Samson, keypti Landsbankann árið 2002.