Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Qupperneq 38
38 Lífsstíll 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
Reynir
Traustason
Baráttan
við holdið
H
ekla, með hvítfexta kórónu
sína, gnæfir yfir sitt næsta
nágrenni á Suðurlandi. Og
sökum þess að hún gýs með
nokkurra ára millibili eru margir
smeykir við fjallið. Ekki er talið
ráðlegt fyrir stóra hópa að fara
upp á þetta tæplega 1.500 metra
háa fjall.
Í tvö ár hafði ég látið mig
dreyma um að klífa eldfjallið. En
einhvern veginn frestaðist það
alltaf. Kannski vegna óttans um
að allt yrði vitlaust
þegar ég kæmi
þangað upp. En
svo las ég frá
sögn ágæts fél
aga sem lýsti
göngu sinni upp.
Frásögn hans var
hjúpuð dulúð og ótta manns sem
vissi að jörðin gæti fyrirvaralítið
opnast undir fótum hans og eld
ur og eimyrja brotist út. Þetta
gat verið spurning um að vera
á kolvitlausum stað á röngum
tíma með skelfilegum afleiðing
um. Félaginn lýsti því vel þegar
hann kom að einum gígnum og
ákvað að hita sér kaffi. Allt í einu
hrökk hann í kút við tilhugsunina
um að óvarleg meðferð elds gæti
framkallað gos. En jörðin opnað
ist ekki og hann slapp niður aftur.
Þessi frásögn varð til þess að ég
herti upp hugann og gekk ásamt
eiginkonunni á virkasta eldfjall
Íslands.
Við hittum á stórkostlegt veð
ur. Lengst af er leiðin stikuð og
auðgengin. Þó
koma erfiðir
kaflar þar sem
klöngrast þarf
um úfið hraun
með tilheyrandi
erfiðleikum.
Og því var ekki
að neita að á köflum var manni
órótt. Hvað væri til ráða ef drottn
ingin færi að gjósa? Mér skilst að
jarðfræðingar myndu vita þetta
með klukkustundar fyrirvara.
Það var stórkostleg tilfinn
ing að standa á efsta tindi Heklu.
Þetta var landslag eins og á tungl
inu. Þar var að sjá jarðskjálfta
mæli sem vaktar eldfjallið óró
lega. Ég hafði spurnir af geðlækni
og félaga hans sem hoppuðu
ákaft í kringum mælinn. Við
heimkomuna flýttu þeir sér síð
an á netið til að sjá hvort hopp
ið hefði mælst. Það kom í ljós að
það mældist einn á
Richter. Þess
ir sömu félagar
áttu að baki
hrekk í Nor
egi. Í frostatíð
höfðu þeir tekið
til kerti og eldfæri
og fundið hitamæli
norsku veðurstofunnar. Logandi
kertinu var komið fyrir undir
mælinum. Svo biðu þeir eftir veð
urfregnum í útvarpinu. Norski
veðurfræðingurinn gekk í gildr
una og lýsti því að sjö stiga hiti
væri í miðborg Oslóar í miðjum
frostakaflanum.
Við hjónin stigum varlega til
jarðar í því skyni að vekja ekki
upp eitthvað sem við réðum ekki
við. Við dvöldum drykklanga
stund á efsta tindi og sigruð umst
á óttanum áður en haldið var
niður aftur. Daginn eftir fékk ég
SMS frá félaga mínum þar sem
upplýst var að Hekla væri farin að
gjósa. Félaginn vitnaði til fésbók
arsíðu manns sem var við rætur
eldfjallsins. „Þarna munaði litlu,“
sagði ég við konuna. Örskömmu
síðar kom annað SMS um að
maðurinn við Heklu hefði upp
lýst að bólstrarnir á toppi fjalls
ins væru ský. Enn er beðið eftir
Heklu.
Hoppað á Heklu
É
g ætlaði aldrei að vera svona
lengi en svo kynntist ég barns
föður mínum, stofnaði fjöl
skyldu og startaði fyrirtæki.
Eitt leiddi af öðru og áður en ég
vissi var ég farin að lifa þessu danska
lífi og fannst ég ekki vera að missa af
neinu á Íslandi. Í haust fann ég í fyrsta
skiptið fyrir raunverulegri heimþrá
og tók ákvörðun um að fara aftur á
heimaslóðirnar,“ segir athafnakon
an Marín Manda Magnúsdóttir sem
flutti heim til Íslands í nóvember eftir
tíu ára dvöl í Danmörku.
Enn svolítið útlensk
Marín Manda er enn að koma sér inn
í íslenskt samfélag eftir langa fjar
veru. „Ég er svolítið útlensk ennþá.
Það hefur tekið tíma að komast með
fæturna niður á jörðina,“ segir Marín
Manda sem hefur komið sér og börn
unum fyrir í íbúð í Kópavogi. Hún
skildi við barnsföður sinn í lok árs
2010 en Alba Mist er sjö ára og Bast
ian Blær er fjögurra ára. „Strákurinn
er kominn inn á leikskóla þar sem
hann blómstrar og hún fer að byrja
í skóla. Þau tala bæði tungumálin og
eru alsæl hér á landi. Frelsið hérna er
nýtt fyrir þeim; að geta bara farið út
að leika. Í Danmörku viðgengst það
ekki. Þá er maður meira með börn
in í bandi. Mér finnst þau hafa þrosk
ast svo ótrúlega mikið á svo stutt
um tíma. Hér í Kópavogi eru flestar
af mínum bestu vinkonum með sín
börn og hér er fjölskyldan mín. Ég
flutti að heiman 18 ára gömul og
hafði ekki búið í sama landi og for
eldrar mínir fyrr en núna. Þau bjuggu
úti í Bandaríkjunum um tíma og svo
flutti ég út. Þetta er því bara eitt stórt
„reunion“. Við erum öll að tengjast
aftur,“ segir hún brosandi og bætir
við að vissulega séu börnin ánægð að
vera komin nær ömmu sinni og afa.
„Fjölskyldan hefur hins vegar meiri
áhyggjur af því að fá engan frítíma
lengur; að núna þurfi þau að fara að
passa,“ segir hún hlæjandi.
Með vinnuleiða
Um svipað leyti og Marín Manda
gekk í gegnum skilnaðinn var henni
boðið starf á Íslandi. „Ég hugs
aði það sem stökkpall og ákvað að
prófa. Ég sé ekki eftir því. Fyrir mér
var þetta rétti tíminn þótt margir
hafi sagt að ég væri rugluð að flytja
heim á krepputímum. En ég var til
búin að hefja nýtt líf og er komin á
þá braut sem ég þurfti á að halda.
Ég hafði verið meira og minna í bis
ness síðan ég fór út en er núna kom
in í skóla. Ég hafði staðið í verkefn
um, vinnu og barnauppeldi í langan
tíma og var komin með ákveðinn
vinnuleiða. Mér fannst ég þurfa að
gera eitthvað nýtt til að rækta sjálfa
mig. Þess vegna ákvað ég að skella
mér í nám í Háskólanum í Reykjavík.
Skólinn er rétt byrjaður og ég er alls
ekki ellismellurinn á svæðinu, eins
og ég hafði óttast. Það er samt alltaf
jafn fyndið að segja við dóttur mína
að við verðum að drífa okkur í skól
ann,“ segir Marín Manda sem er að
læra viðskiptafræði.
Spennandi tímar
Hún stofnaði og rak barnafataversl
unina BabyKompagniet.dk og sá
um tíma um vefverslunina skor.is.
Þrátt fyrir að vera ekki í rekstri í dag
segir hún margt í pípunum. „Ég er
alltaf með einhverjar hugmyndir. Það
vantar ekki. Það eru spennandi tímar
fram undan en það er ekki tímabært
að fara nánar út í það eins og stend
ur. Annars er ég að selja föt á netinu,
þótt það kallist kannski ekki bisness.
Þegar maður hefur átt barnafatabúð
hefur maður sankað að sér mörgu
í gegnum tíðina. Þess vegna ákvað
ég að skella í eina svona Facebook
síðu og sjá hvort fólk vildi kaupa eitt
hvað af þessu. Ef maður getur komið
þessu í pening þá flott en ef ekki þá
fær Rauði krossinn þetta,“ segir hún
en markaður hennar heitir MM Fata
markaður.
Hamingjan mikilvægust
Hún segist ekki merkja mikinn mun
á íslensku samfélagi á þessum tíu
árum sem hún var í burtu. „Auðvitað
eru margir sem hafa lent í hremm
ingum og peningavandræðum en
annars er tíðarandinn svipaður.
Mér finnst fólk að vísu opinskárra,
fleiri tala um sín vandamál en eru
ekki að sópa þeim undir teppið eins
og hér áður. Í dag eru margir í svip
aðri stöðu og fólk skammast sín ekki.
Samheldnin er líka meiri. Fyrir sjálfa
mig var nauðsynlegt að koma aftur. Í
dag er meiri ró í mínu hjarta; hér fæ
ég að halda áfram að lifa eðlilegu lífi.
Fyrir kreppu ætluðu sér allir að verða
stórlaxar, frægir og ríkir, en nú er fólk
sáttara og ánægðara í eigin skinni.
Fólk hefur minna á milli handanna
og er ánægðara með það sem það
hefur. Ef einhver hefur svo mikið sem
efni á Stöð 2 er því póstað á Facebook
því það er svo mikið ánægjuefni. Fólk
gleðst yfir hlutum sem það pældi lítið
í áður. Og það er jákvætt. En svo eru
alltaf einhverjir sem geta ekki sætt sig
við hlutina. Sjálf er ég mikill bóhem.
Ég hef verið fátækur námsmaður en
líka haft það alveg ofsalega gott. Ég er
búin að upplifa allan pakkann og veit
að peningar skipta ekki máli ef þú get
ur fundið hamingjuna í því sem þú ert
að gera akkúrat núna.“
Heillaðist af glaðlyndinu
Aðspurð segist hún hamingjusöm í
dag. „Algjörlega. Og ég er mjög skot
in. Ég hef fundið einhverja ró sem
ég hafði ekki áður,“ segir hún en sá
heppni er söngvarinn og Game Tíví
umsjónarmaðurinn Sverrir Berg
mann. „Við þekktumst ekki hér áður
fyrr og ég vissi voðalega lítið um
hann. Það sem heillaði mig við hann
var það hvað hann er ótrúlega hreinn
og beinn. Hann er algjörlega niðri á
jörðinni, glaðlyndur og svo góður við
fólk,“ segir hún brosandi.
Hún segir skilnaðinn hafa ver
ið í góðu og að forræðið yfir börnun
um sé sameiginlegt. „Við erum góðir
vinir og sem betur fer höfum við náð
að gera þetta allt sem auðveldast fyr
ir krakkana. Ég sé ekki eftir neinu. Ef
ég hefði ekki hitt þennan mann ætti
ég ekki þessi yndislegu börn. Vissu
lega eiga þau eftir að snúa til baka
einhvern tímann en þá fer ég með. Ég
er fylgifiskur í þeirra lífi. Börnin munu
alltaf ganga fyrir. Ég mun þá bara að
laga mig.“
Elskar Kolaportið
Marín Manda hefur alltaf haft áhuga
á tísku og hönnun og það er ekki hægt
að sleppa henni án þess að spyrja
hana hvað henni finnist um tískuna
á Íslandi. „Við erum rosalega dug
leg að herma eftir hvert öðru,“ seg
ir hún hlæjandi en bætir við að það
séu í rauninni tveir tískustraumar
hér á landi. „Eins og ég lít á það eru
það annars vegar hipsterar, bóhemar
og þessar Spútniktýpur og svo þeir
sem klæða sig eins og eru venjulega
í þessum Sautjánfatnaði. Ég vildi
að við værum duglegri að versla að
utan. Eflaust eiga verslunarmenn eft
ir að hata mig fyrir að segja þetta. Það
hafa ekki allir efni á að fara í verslun
arferðir en það eru margar vefsíður í
boði með flottum vörum. Auðvitað
vilja allir vera fínt klæddir en búðirn
ar hér bjóða mikið upp á það sama og
svo verður líka að segjast eins og er að
fatnaður á Íslandi er ofboðslega dýr.
Sjálf versla ég ekki mikið hér heima.
Ég nota gjarnan síðurnar Asos, Nelly.
com, eBay og Boho og fer á alla mark
aði sem ég kemst á. Ég fer reglulega
í Kolaportið og elska það; þrátt fyrir
fisklyktina. Ég er ánægðust ef ég næ
að gera góð kaup þar. Þá finnst mér ég
rosalega rík.“ n
Börnin alltaf í forgangi
Athafnakonan Marín Manda Magnúsdóttir er
flutt heim eftir tíu ára dvöl í Danmörku. Hún er skilin
og búin að koma sér og börnunum vel fyrir í Kópa-
vogi. Hún er komin í skóla og er hamingjusöm, enda
skotin upp fyrir haus.
„Ef ég hefði
ekki hitt
þennan mann
ætti ég ekki þessi
yndislegu börn
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Viðtal
Marín Manda Er alltaf
með einhver járn í eldinum.
Nú er hún að læra við-
skiptafræði og ætlar svo að
halda áfram í bissness.