Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Page 56
Karlar í krapinu! Rakst á póli- tískan vegg n „Rakst á fyrsta pólitíska vegginn í dag,“ sagði Atli Fannar Bjarkason, fyrrverandi blaðamaður Frétta­ blaðsins og núverandi kynningar­ fulltrúi stjórnmálaflokksins Bjartr­ ar framtíðar. Atli leitar að húsnæði fyrir flokkinn þar sem meðlim­ ir hans geta ráðið ráðum sínum og hringdi í eiganda húsnæðis í borginni og óskaði eftir leiguverði. Atli fékk skýr svör að eigin sögn: „Enga helvítis pólitík,“ sagði leigu­ salinn. „Krosslegg fingurna og vona að starfsfólk Búllunnar eða Ísbúðar Vesturbæjar taki fram­ tíðarerindum mínum með opnari huga,“ sagði Atli Fann­ ar á Facebook­síðu sinni og bætti við orð sín að þetta þýddi ekki að eitt af kosningaloforðum Bjartrar framtíðar væri óheftur aðgang­ ur að ham­ borgurum og ís. Fetuðu í fót- spor Bítlanna n Meðlimir hljómsveitarinn­ ar Of Monsters and Men dvelja í Englandi þessa dagana. „Við erum bara að túra og svo kemur platan okkar út þann 27. ágúst næstkomandi hérna í Englandi,“ segir Kristján Páll Kristjánsson, bassaleikari hljómsveitarinn­ ar, um ástæðu heimsóknarinn­ ar. Hljómsveitin er búin að bralla ýmislegt í Englandi; tók meðal annars upp lag í hinu sögufræga Abbey Road hljóðveri. Auk þess fetaði hún í fótspor bítlana – bók­ staflega – eins og meðfylgandi mynd er til vitnis um. Áhyggjur Önnu óþarfar n Anna Kristjánsdóttir, transkona og baráttukona fyrir réttindum transfólks, hefur þungar áhyggjur af því að búið sé að afnema bann við farsímanotkun við akstur. Hún lýsti þessum áhyggjum á fés­ bókarsíðu lögreglunnar á höfuð­ borgarsvæðinu. Lögreglan svar­ aði Önnu um hæl og fullvissaði hana um að bannið sé sannar­ lega ennþá í gildi og á hverju ári séu mörg hundruð manns sektaðir vegna þessa. Hins vegar efast lögreglan um það að viðurlögin við téðu broti, 5.000 íslenskar krónur, hafi nægan fæl­ ingar­ mátt. T ilgangur ferðarinnar er að heimsækja nokkra fjölmiðla, skoða nokkur fyrirtæki og sjá hvernig Bretarnir gera þetta. Þeir eru miklir fagmenn,“ segir Þor­ björn Þórðarson, fréttamaður á Stöð 2, sem nú er staddur í London ásamt nokkrum samstarfsfélögum. Með í ferðinni eru háttsettir menn hjá 365, þar á meðal Ólafur Stephensen, rit­ stjóri Fréttablaðsins, Freyr Einars­ son, fréttastjóri Stöðvar 2 og Vísis, og Magnús Halldórsson, sem er við­ skiptaritstjóri Stöðvar 2. Þeir Þórður Snær Júlíusson og Jón Hákon Halldórsson, sem eru frétta­ menn hjá 365, eru einnig með í för. Á dagskránni eru heimsóknir á frétta­ miðlana Sky News, Channel 4, The Guardian og Evening Standard. Þeir fengu styrk úr fræðslusjóði Blaða­ mannafélagsins til þess að fara í ferðina. Aðspurður hvers vegna engar konur séu með í för segir Þor­ björn það vera hendingu háð. Þar séu engin kynjamiðuð sjónarmið á ferð, heldur hafi hann, Magnús, Jón Hákon og Þórður borið hitann og þungann af skipulagningu ferðar­ innar og svo hafi hinir bæst í hópinn. Þorbjörn segir það ekki með vilja gert að engar konur séu með í för en hann vill taka það sérstaklega fram að blaðamennska DV snúist um að skapa tortryggni. „Ykkar blaðamennska gengur út á það að gera allt tortryggi­ legt,“ segir Þorbjörn við blaðamann. simon@dv.is Karlaferð 365 til London n Fréttamenn og ritstjórar 365 kynna sér fjölmiðla í Bretlandi Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 24.–26. ágúst 2012 97. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. topparnir til London Engin kynjamiðuð sjónarmið réðu að sögn för þegar ákveðið var hverjir fóru út.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.