Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2012, Side 2
2 Fréttir 3. september 2012 Mánudagur
Brotið ógnar ekki
ráðherrastólnum
Þ
að er náttúrulega ekki þægilegt
fyrir þennan flokk sem kenn
ir sig við femínisma og er með
svona skýra femíníska áherslu,
að sitja uppi með slíkar ásakanir og
umræðu,“ segir Grétar Þór Eyþórs
son, stjórnmálaprófessor við Há
skólann á Akureyri. Kærunefnd jafn
réttismála komst að þeirri niðurstöðu
á þriðjudag að Ögmundur Jónas
son innanríkisráðherra hefði brot
ið jafnréttislög þegar hann skipaði
karlmann í embætti sýslumannsins
á Húsavík í fyrra. Annar umsækjandi
kærði málið til kærunefndar sem
komst að fyrrgreindri niðurstöðu.
Ögmundur viðurkennir niður
stöðu kærunefndarinnar en telur sig
þó hafa farið eftir lögum við ráðn
inguna og biðst því ekki afsökunar.
Grétar Þór segist ekki viss um að
málið muni hafa mikil áhrif á flokk
inn og er fullviss um að þetta marki
ekki endalok Ögmundar í Vinstri
grænum.
Ögmundur með sterkt bakland
„Þetta er auðvitað mjög vandræða
legt fyrir flokkinn en ég held að Ög
mundur standi sterkur í ákveðn
um hópum innan hans og eigi sér
sterkt bakland þó að hann lendi í
smá erfiðleikum. Þetta ógnar því
ekki stöðu hans innan flokksins né
breytir henni. Hann má þó búast við
að þetta mál verði alltaf dregið upp
þegar minnst verður á jafnréttismál
eins og Jóhanna hefur upplifað. Svo
leiðis umræða þarf þó ekkert endi
lega að vera skaðleg fyrir viðkom
andi.“ Grétar Þór segist því ekki eiga
von á að málið muni skipta miklu
máli þegar upp er staðið. Hann yrði
þó ekki hissa ef það kæmi ályktun
innan VG og að Ögmundur fengi að
finnslur úr eigin herbúðum. „Ég held
að þetta muni þó ekki ógna hans ráð
herrastóli, ef maður tekur mið af því
hvernig svona mál hafa leikið fólk
áður.“
Grétar Þór bendir á að Ögmundur
sé mjög harður á því að verja sig og
virðist mjög einarður í að hafa ekki
gert neitt rangt. „Mér virðist sem
hæfniskröfurnar séu ekki algjörlega
klipptar og skornar og það getur ver
ið ástæða þess að slíkar kærur séu
að koma upp. Þetta er greinilega allt
matskennt þegar verið er að togast á
um ráðningar, hæfni og samanburð
umsækjenda.“
Aðspurður hvort úrskurðurinn og
umræðan muni hafa áhrif á flokkinn
í næstu kosningum segist hann ekki
búast við því. „Ég get ekki ímynd
að mér það eins og málið er vaxið
núna og get ekki sagt að það muni
þvælast fyrir Vinstrigrænum. Þetta
verður samt örugglega dregið upp í
kosningabaráttunni,“ segir hann að
lokum.
Gagnrýni úr ýmsum áttum
Úrskurðurinn hefur valdið miklu
fjaðrafoki og ekki síður viðbrögð Ög
mundar. Hann segist sjálfur hafa ráð
ið viðkomandi í góðri trú og að hann
ætli hvorki að segja af sér né biðjast
afsökunar. Hann hefur verið gagn
rýndur harðlega fyrir viðbrögð sín og
hefur sú gagnrýni komið úr ýmsum
áttum.
Þórhildur Þorleifsdóttir, formað
ur Jafnréttisráðs, segir það sérkenni
legt að ráðherranum finnist í lagi að
brjóta lög og að í nágrannalöndum
hefði honum verið gert að segja af
sér samdægurs. „Það er ekki nokkur
vafi að ef þetta hefði gerst í Bretlandi,
á Norðurlöndunum eða í Þýska
landi hefði hann þurft að segja af sér
samdægurs. Dagur hefði ekki verið
að kvöldi kominn þegar afsögn hefði
verið komin. En það er bara tómt mál
um að tala á Íslandi,“ sagði Þórhildur
í samtali við Stöð 2 um helgina.
Jóhanna baðst afsökunar
Formaður Vinstrigrænna i Reykja
vík, Líf Magneudóttir, hefur sagt að
viðbrögð Ögmundar séu ekki góð
og heiðarlegast væri fyrir hann að
viðurkenna mistök sín. Hann þurfi
eins og allir að fara lögum og hann
hljóti að íhuga stöðu sína en ef hún
væri í hans sporum myndi hún taka
það alvarlega til greina að segja af
sér. Steingrímur J. Sigfússon sagði
að þetta væri ákveðið áfall en hann
sæi þó ekki ástæðu til að Ögmundur
segði af sér.
Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi
Vinstrigrænna, segir að það gangi
ekki að jafnréttislög séu brotin trekk í
trekk og á þar við brot Ögmundar og
Jóhönnu Sigurðardóttur en Jóhanna
braut einnig jafnréttislög þegar hún
skipaði skrifstofustjóra í ráðuneytið
á síðasta ári. Sóley sagði í þættinum
Vikulokin á Rás 1 að þegar Jóhanna
hefði verið í sömu sporum og Ög
mundur hefði hún viðurkennt brot
sitt, beðist afsökunar og leitað sátta.
„Ögmundur Jónasson minnir mig
eiginlega meira á Björn Bjarnason
sem á sínum tíma talaði um barn
síns tíma. Hann minnir mig eigin
lega meira á það en á ráðherra í nú
tíma femínískri ríkisstjórn.“
Viðbrögð til jafnréttislaga
forneskjuleg
Í þessu samhengi hafa verið rifjuð
upp hörð viðbrögð þegar Björn
Bjarnason, þáverandi dómsmála
ráðherra, gerðist brotlegur við sömu
lög fyrir níu árum þegar hann skip
aði karlmann í embætti hæstaréttar
dómara. Þá sögðu samráðsráðherrar
Ögmundar að um valdhroka, vald
níðslu og fólskuverk væri að ræða.
Össur Skarphéðinsson sagði að
skipan Björns væri valdníðsla sem
bæri öll merki þess valdhroka sem
væri orðið aðalsmerki Sjálfstæð
isflokksins. Jóhanna sagði að við
brögð ráðherra Sjálfstæðisflokksins
til jafnréttislaga væru forneskjuleg og
vankunnátta þeirra hrópandi. Bæði
hún og Ögmundur lögðu til að þáver
andi ríkisstjórn yrði sett á skólabekk
til að læra um jafnréttislög. Þess skal
getið að Björn sat áfram eftir dóm
inn.
Ögmundur segir vafasamt að bera
þessi ólíku mál saman því þau séu
ekki sambærileg. Skoða þurfi þau
með hliðsjón af aðstæðum og efnis
þáttum og ekki sé hægt að alhæfa um
slík mál.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
n Stjórnmálafræðiprófessor telur málið vandræðalegt fyrir Vinstri-græna „Hann má þó búast við því
að þetta mál verði alltaf
dregið upp þegar minnst verður
á jafnréttismál eins og Jóhanna
hefur upplifað
Biðst ekki afsökunar Inn-
anríkisráðherra telur sig hafa
farið eftir lögum þegar hann
skipaði karlmann í embætti
sýslumanns á Húsavík.
Mynd: SiGtryGGur Ari JóhAnnSSon
Sjö ráðherrar sem
brutu jafnréttislög
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er
sjöundi ráðherrann sem brýtur jafnréttislögin
vegna ráðningar karlmanns í stað konu. Aðrir
ráðherrar sem gerst hafa brotlegir við lögin eru:
n Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra
n Guðni Ágústsson, sem landbúnaðarráðherra
n Björn Bjarnason, sem dómsmálaráðherra
n Sólveig Pétursdóttir, sem dóms- og kirkju-
málaráðherra
n Halldór Ásgrímsson, sem utanríkisráðherra
n Páll Pétursson, sem félagsmálaráðherra
Köttur olli raf-
magnsleysi
Rafmagnslaust varð á Þórshöfn
rétt fyrir miðnætti á laugardags
kvöld og myrkvaðist allt þorpið.
Hjá Ísfélaginu stöðvaðist vinnsla
á meðan, en rafmagnsleysið var
í kringum vaktaskiptin svo pása
varð þá hjá starfsfólkinu þar til
rafmagn komst á að nýju. Raf
magnsleysið er rakið til villikatt
ar sem klifraði upp í mastur
spennistöðvar Rarik og lenti í
háspennukefli. Kötturinn lést
samstundis. Rafmagn komst aft
ur á eftir um 40 mínútur.
Fullt af
hvölum
Mikill fjöldi hvala er í Skjálf
andaflóa og segja forsvarsmenn
hvalaskoðunarfyrirtækja aldrei
hafa verið eins mikið af hvöl
um og nú. Þetta kom fram á
RÚV. Hnúfubakar hafa verið afar
áberandi, bæði hvalaskoðunar
fyrirtækjum og ferðamönnum
til mikillar gleði. Stefán Guð
mundsson, framkvæmdastjóri
Gentle Giants, segir þetta hafa
verið algjört ævintýri í ár. „Ég
held það hafi aldrei verið jafn
mikið af stórhvelum frá því að
Skjálfandaflói varð hreinlega til.
Bara flugeldasýning í allt sum
ar frá því að vertíðin hófst og er
enn,“ sagði Stefán í samtali við
RÚV. Hann segir margt spila inn
í aukinn fjölda hvala á svæðinu.
Bæði hafi loftslag og sjór hlýnað
og mikið sé um æti.
Strætó
keyrir lengra
Strætó bs. stækkaði á sunnu
daginn þjónustusvæði sitt þegar
akstur hófst til Stykkishólms,
Búðardals, Hólmavíkur og Reyk
hóla.
Þá ætlar fyrirtækið einnig að
bjóða upp á ferðir til Grundar
fjarðar, Ólafsvíkur, Hellisands,
Rifs, Reykholts, Hvammstanga
og Skagastrandar en þær ferð
ir verður að panta sérstaklega
tveimur tímum fyrir brott
för. Boðið er upp á þráðlaust net
í öllum vögnum sem aka vest
ur og norður nema þeim sem
eru hluti af pöntunarþjónustu
strætó.
Á sunnudag hófst einnig
akstur aftur á milli Reykjavíkur
og Akureyrar.