Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2012, Side 6
Fagráðið aðeins
Fjallað um eitt mál
„Hann var yndislegur“
n Halda tónleika í minningu Lofts n Allur ágóði rennur til bættrar aðstöðu fyrir útigangsmenn
V
ið gerum þetta til að halda
minningunni um hann á
lofti,“ segir Þórunn Brands-
dóttir, móðir Lofts Gunnars-
sonar sem lést 20. janúar á þessu
ári, um minningartónleika sem
haldnir verða á afmælisdegi Lofts
þann 11. september næstkomandi.
Hann hefði orðið 33 ára þann dag.
Margir þekktu Loft en hann var
síðustu árin meðal útigangsmanna
í Reykjavík og eftir lát hans hefur
hann að vissu leyti orðið táknmynd
baráttunnar um bættan aðbúnað
útigangsmanna.
Liður í því er minningarsjóður
sem stofnaður hefur verið í nafni
Lofts. Þórunn móðir hans hef-
ur ásamt góðum hópi fólks, vin-
um og ættingjum Lofts, ákveðið
að láta allan ágóða af tónleikunum
renna til bættrar aðstöðu útigangs-
manna. „Við viljum safna pening
til þess að bæta aðstöðu útigangs-
manna enda ekki vanþörf þar á,“
segir hún.
Á afmælisdeginum kemur
einnig út ljóðabók með ljóðum
eftir útigangsmenn en haldin var
ljóðasamkeppni á dögunum. All-
ur ágóði af sölu hennar fer líka í
minningarsjóðinn. Auk þess hefur
Jón Sæmundur Auðarson, Nonni
Dead eins og hann er gjarnan kall-
aður, hannað boli með mynd af
Lofti sem seldir verða á tónleikun-
um.
Móðir Lofts segir hann hafa
verið hjartahlýjan og að fjölskyld-
an sakni hans mikið. „Hann var
svo ofboðslega góður og við áttum
mjög góðar stundir með honum.
Hann var yndislegur. Við söknum
hans en gerum þetta í staðinn, til
þess þá að hjálpa hinum.“
Á tónleikunum sem haldnir
verða í Vídalínskirkju í Garðabæ
kemur fram tónlistarfólkið Pétur
Ben, Ómar og Óskar Guðjóns-
synir, Esja, Ellen og KK og Frizko.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 en
þeir sem eiga ekki heimangengt
en vilja gefa í minningarsjóðinn er
reikningsnúmerið 318-26-5070 og
kennitalan er 021051-7569.
viktoria@dv.is
6 Fréttir 3. september 2012 Mánudagur
n Lítið hefur verið að gera hjá fagráði um meðferð kynferðisbrota
F
agráð æskulýðsvettvangs-
ins um meðferð kynferðis-
brota, sem sett var á stofn
í byrjun sumars í fyrra, hef-
ur aðeins fjallað um eitt mál
frá því að það tók til starfa. KFUM
og K hafði forgöngu um stofnun
fagráðsins, en það er sameiginlegt
ráð æskulýðsvettvangsins; KFUM
og K, Ungmennafélags Íslands,
Landsbjargar og Skátanna. „Það
hafa komið upp mál á undanförn-
um árum sem hafa átt rætur í okk-
ar félagi,“ segir Auður Pálsdóttir,
formaður stjórnar KFUM og K, um
ástæðu stofnunar ráðsins.
Þolandinn beið lengi
Ráðið hafði starfað í tæpt ár þegar
það tók sitt fyrsta mál til umfjöll-
unar, en það var tekið fyrir í byrj-
un sumars. Um er að ræða kyn-
ferðisbrot sem á að hafa átt sér
stað í starfi KFUM; framið af starfs-
manni. „Málið sem þú ert að vísa í
er gamalt mál og er eina málið sem
fagráðið hefur fengið til umfjöll-
unar,“ segir Auður en samkvæmt
öruggum heimildum DV hafði
þolandi í téðu kynferðisbrota-
máli lengi beðið þess að mál hans
fengi afgreiðslu. Þolandinn, sem er
karlmaður, hafði í mörg ár þrýst á
KFUM og K um að fá mál sitt tek-
ið fyrir – án árangurs. Auður kveðst
ekki vita hvar eða hvenær brot-
ið á að hafa átt sér stað. „Það eru
upplýsingar sem fagráðið geymir.
Það eina sem ég veit er að þetta er
gamalt mál. En það er alveg skýrt
að viðkomandi starfsmaður er í
dag ekki í neinu starfi hjá okkur.“
Lítið kynnt
Aðspurð hvort ekki sé undarlegt að
fagráðið hafi ekki fengið nein kyn-
ferðisbrotamál á borð til sín fyrr
en nú segir Auður: „Nei. Ég veit
ekki á hvaða mælikvarða þú ert
að tala um fátt eða margt. Fagráð
fjalla bara um mál sem til þeirra
berast. Það er þannig með svona
mál að fólk kemur ekki fram nema
það sé fullvisst um að mál þeirra
fái vandaða umfjöllun. Þess vegna
var fagráðið kynnt vel í fjölmiðlum
á sínum tíma.“ Blaðamaður fram-
kvæmdi, til að kanna sannleiks-
gildi orða Auðar, einfalda Google-
leit. Samkvæmt henni er ljóst að
fagráðið hefur litla fjölmiðlaum-
fjöllun fengið. Auk þess er ekk-
ert fjallað um ráðið á heimasíðu
KFUM og K.
Ekki óeðlilega mörg brot
Innt svara við því hvort hún viti
til þess að mörg kynferðisbrota-
mál hafi komið upp í starfi KFUM
og K segir Auður: „Svona ofbeldi
er því miður hluti af okkar raun-
veruleika. Að sjálfsögðu kemur
það upp hjá okkur – eins og í öllu
öðru starfi.“ Hún telur að þau kyn-
ferðisbrotamál sem hafa komið
upp innan samtakanna séu ekki
óeðlilega mörg.
En hvers vegna, í ljósi þess að
svona mál hafa áður komið upp,
var ekki löngu búið að stofna slíkt
fagráð? „Það er bara mjög góð
spurning,“ segir Auður en bætir
við að hún sé mjög stolt af því að
KFUM og K hafi átt forgöngu að
því að ýta þessu úr vör síðastliðið
sumar. Æskulýðsvettvangurinn
naut, að sögn Auðar, leiðsagnar
Þjóðkirkjunnar við að setja fagráð-
ið á stofn.
Kirkjan og KFUM og K
KFUM og K ert frjáls félagssam-
tök sem standa á sama grunni og
evangelísk-lútherska þjóðkirkjan á
Íslandi. Á heimasíðu samtakanna
kemur fram að þau vilji starfa inn-
an kirkjunnar og með kirkjunni,
en séu þó sjálfstæð og lúti eigin
stjórn. Samtökin vilja styðja for-
eldra í trúarlegri mótun barna
sinna.
Þjóðkirkjan starfrækir svipað
fagráð um meðferð kynferðisbrota.
Fagráð Þjóðkirkjunnar hefur tek-
ið á móti ásökunum á hendur alls
18 starfsmönnum kirkjunnar. Í
þremur þessara 18 tilvika hefur
fagráðinu borist fleiri en ein ásök-
un á hendur sama aðila. Árið 2010
komu tíu mál inn á borð fagráðs
Þjóðkirkjunnar.
Krefjast sakavottorðs
Að sögn Auðar þurfa þeir, sem vilja
vera leiðtogar í sumar- og vetr-
arstarfi KFUM og K á Íslandi, að
gefa skriflegt samþykki sitt fyrir
því að leitað sé upplýsinga í saka-
skrá þeirra. Um er að ræða sam-
þykki fyrir því að skoða megi fulla
sakaskrá, sem er sama skilyrði
og Barnaverndarstofa setur sínu
starfsfólki.
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is „Svona ofbeldi er því miður
hluti af okkar raun-
veruleika. Að sjálf-
sögðu kemur það upp
hjá okkur – eins og í
öllu öðru starfi.
Áttu forgöngu um
stofnun ráðsins
Meintur kynferðisbrota-
maður var starfsmaður
KFUM og K.
Meint lögbrot
stjórnmálaflokka
Margrét Tryggvadóttir, þingkona
Hreyfingarinnar, hefur ósk-
að eftir því að stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd Alþingis komi
saman og fundi með ríkisend-
urskoðanda vegna meintra lög-
brota Sjálfstæðisflokks, Sam-
fylkingar og Framsóknarflokks.
Álfheiður Ingadóttir hefur tek-
ið undir ósk Margrétar. Mál-
ið snýr að of háum fjárframlög-
um tengdra útvegsfyrirtækja til
stjórnmálaflokka en samkvæmt
lögum má lögaðili styrkja stjórn-
málaflokk um 400 þúsund krón-
ur að hámarki á ári.
Þórður Björn Sigurðsson,
starfsmaður Hreyfingarinnar,
vakti athygli á málinu í blogg-
færslu á heimasíðu sinni. Þar
skoðar hann fjárframlög Sam-
herja, Gjögurs og Síldarvinnsl-
unnar til stjórnmálaflokka árin
2009 og 2010.
Slegin í höfuðið
Snemma á sunnudagsmorgun
var stúlka slegin í höfuðið í mið-
bæ Reykjavíkur. Var hún flutt á
slysadeild til aðhlynningar en
ekki er vitað hver árásarmann-
inn er. Skömmu áður var maður
fluttur á slysadeild með höfuð-
áverka eftir slagsmál í mið-
bænum og er gerandi í því máli
einnig óþekktur.
Nokkuð var um hávaðaút-
köll og ýmiss konar útköll tengd
ölvun um helgina samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu auk þess
sem einn maður var tekinn við
ölvunarakstur. Þó var næturvakt
lögreglunnar aðfaranótt sunnu-
dags nokkuð róleg.
Kirkjugjöld
hækka
Kirkjuþing hefur samþykkt
ályktun þar sem þess er kraf-
ist að sóknargjöld verði hækk-
uð að nýju. Í ályktuninni segir
að leiðrétting sóknargjalda sé
nauðsynleg og að sóknir lands-
ins hafi tekið á sig skerðingu
sem sé 25 prósent umfram aðrar
stofnanir sem heyra undir inn-
anríkisráðuneytið.
Aukakirkjuþing kom saman
á laugardag til að fjalla um
þjóðaratkvæðagreiðslu um til-
lögur stjórnlagaráðs, þar sem
meðal annars þarf að taka af-
stöðu til ákvæðis um þjóðkirkju
í stjórnarskrá.
Minningin lifir Móðir Lofts segir
hann hafa verið hjartahlýjan. Hún hefur
stofnað minningarsjóð og vonast til að
geta hjálpað öðrum útigangsmönnum.