Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2012, Blaðsíða 16
Sandkorn
S
agan sýnir að á hverjum tíma
er yfirleitt verið að taka rangar
ákvarðanir fyrir hönd almenn-
ings sem koma í hausinn á okkur
síðar. Oft eru þetta ákvarðanir,
sem öllum virðast brjóta gegn almennri
skynsemi, en eru samt teknar – að sjálf-
sögðu ekki án þess að útskýra nauðsyn
þeirra.
Þannig var til dæmis brýn nauðsyn
hjá stjórnendum bankanna í góðær-
inu að borga stjórnendum bankanna
milljarða króna – svo að bankar erlendis
næðu ekki að kaupa þá til sín. Borgar-
stjóri Reykjavíkur ákvað líka að borga
580 milljónir af almannafé fyrir lítið hús
við Laugaveg, á endanum til þess að
þar væri hægt að starfrækja verslun frá
bandarísku fatakeðjunni Timberland –
í 19. aldar stíl – frekar en hótel. Það var
skipt um borgarstjórn til þess að koma
þessu brýna máli í gegn.
Og þrátt fyrir að umræðan á Íslandi
upp á síðkastið hafi mikið til snúist um
furðulegustu hluti – eins og hvort fulltrúi
Alþingis eigi að keyra til Keflavíkur og
kveðja forseta Íslands með handabandi,
áður en sá síðarnefndi fer í utanlands-
ferðir sínar, eða hvort þeir þurfi ekki
að kveðjast – er enn verið að taka stór-
ar ákvarðanir sem fara gegn almennri
skynsemi og virðast skaða almenning.
Á Vesturlöndum gengur nú yfir
kreppa sem á einn vanda sameigin-
legan: Þjóðríkin skulda svo mikið af
peningum að þeim er smám saman að
blæða út. Þegar maður skuldar svo mik-
ið að maður ræður varla við að borga
vexti segir skynsemin manni að minnka
eyðsluna og fresta stórum útgjöldum
– til að minnka skuldirnar. En þetta er
ekki gert.
Í staðinn fyrir að gera það sem
þarf að gera er ríkið núna að bæta við
skuldir sínar með 9 milljarða króna
Vaðlaheiðargöngum, 10,5 milljarða
Norðfjarðargöngum og 50 milljarða
króna hátæknisjúkrahúsi. Rannsóknir
sýna að 90 prósent af stórum verkefnum
fara fram úr áætluðum kostnaði. Harpa
kostaði til dæmis um 170 prósentum
meira en lagt var upp með í byrjun og
reksturinn gengur miklu verr en gert var
ráð fyrir. Þegar við eyðum peningunum
sem við eigum ekki vitum við fyrir víst að
það mun kosta meira en sagt er frá.
Oft er nauðsynin rökstudd með því
að ríkið þurfi að „koma hjólum atvinnu-
lífsins í gang“; að greiðslurnar sem fyr-
irtækin og fólk muni fá fyrir að vinna
við framkvæmdirnar muni dreifast um
samfélagið og valda margfeldisáhrifum.
Reynslan af fyrri framkvæmdum er hins
vegar að oft eru erlendir verkamenn
fluttir til landsins tímabundið og þeir
taka launin sín með sér úr landi þegar
verkefninu er lokið. Margfeldisáhrifin
af þeim launum, sem kínversku verka-
mennirnir fengu við byggingu Hörpu,
áttu sér frekar stað í Kína en á Íslandi.
Oft er líka vísað til að framkvæmdin auki
hagkvæmni. Það muni kosta minna að
ferðast milli staða og kostnaður minnki.
En hagkvæmasta aðgerðin er að losna
við að borga 18 prósent af tekjum ríkis-
ins í vexti af skuldum.
Venjuleg íslensk fjölskylda borgar rík-
inu milljón á ári, bara í vexti af skuldum
ríkisins.
Peningar sem ríkið tekur af fólki til
að borga af skuldum fortíðarinnar valda
ekki margfeldisáhrifum. Það veldur deil-
ingaráhrifum, því peningarnir sem fara
í vexti hverfa út úr samfélaginu. Þegar
stjórnmálamenn taka lán fyrir fram-
kvæmdum til að gíra upp hjól atvinnu-
lífsins eru þeir til lengri tíma að sjúga
peninga út úr íslenskum heimilum og
íslensku hagkerfi.
Auðvitað er betra að þjóðin eigi há-
tæknisjúkrahús, en að hún eigi ekki há-
tæknisjúkrahús. En þegar spítali hefur
varla efni á að halda í starfsfólk og getur
varla endurnýjað biluð tæki, er eitthvað
rangt við að taka lán til að byggja við
hann í heildina um 200 þúsund fermetra
fyrir 45 milljarða sem eru ekki til, og lík-
lega miklu meira.
Skuldakreppan hefur dreift sér um
helstu lýðræðisríki heims. Það virðist
vera vandi lýðræðisins í dag, að stjórn-
málamenn kaupa sér vinsældir með því
að taka lán og senda reikninginn inn
í framtíðina. Skuldirnar okkar munu
halda áfram að aukast til ársins 2015.
Margir stjórnmálamenn munu sjá hag
sinn í því að hækka þennan reikning
með því að bjóða gull og græna skóga
í kosningabaráttunni fyrir þingkosn-
ingarnar næsta vor.
Það er á ábyrgð almennings að passa
að láta þá ekki plata sig. Á endanum
erum það við öll sem gjöldum fyrir þetta,
og kannski réttilega svo, ef við veitum
þessu ekki viðnám.
Guggan gul
n Sagan endurtekur sig
gjarnan eins og sjá má
af því að Þorsteinn Már
Baldvinsson hefur nú und-
ir flaggi Síldarvinnslunnar
náð undir sig kvóta Magn-
úsar Kristinssonar í Vest-
mannaeyjum. Um er að
ræða verulegan hluta af
kvóta Eyjamanna. Mönn-
um eru minnisstæð þau
fleygu ummæli Þorsteins
á símum tíma að Guggan
yrði áfram gul og gerð út
frá Ísafirði. Það stóð stutt
og Guggan yfirgaf Vestfirði.
Ekki er ólíklegt að sama
verði upp á teningnum nú.
Davíð dýr
n Einhverjir hafa velt fyrir
sér af hverju
athafnakon-
an Guðbjörg
Matthíasdótt-
ir, eigandi
Ísfélagsins í
Eyjum, hafi
ekki stokkið
til og keypt
fyrirtæki og kvóta Magnús-
ar Kristinssonar fremur en
missa forræðið af staðnum.
Svarið kann að liggja í því
að Guðbjörg á nóg með að
halda Mogganum gangandi
undir Davíð Oddssyni og
fjármunir til annars ekki á
lausu. Dabbi er því dýr.
Bjarni og
bótasjóðurinn
n Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins,
var í miklu fegrunarvið-
tali í kvennablaðinu Nýju
Lífi. Ekki tókst betur til en
svo að blaðamaður bar
upp leiðindaspurningar
um þátt Bjarna í einkanýt-
ingu bótasjóðs Sjóvár og
þar með falli félagsins. Það
stóð ekki á svari frá Bjarna
sem endurtók að það væri
Steingrími J. Sigfússyni að
kenna að þjóðin tapaði
milljörðum króna vegna
svikamyllunnar og vafning-
anna í kringum trygginga-
félagið.
Lögbrot ráðherra
n Það er
fremur pín-
legt fyrir
ríkisstjórn
mannúðar
og jöfnuð-
ar að hafa
í tvígang
orðið upp-
vís að jafnréttisbrotum.
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra var dæmd
fyrir slíkt brot. Nú var kom-
ið að Ögmundi Jónassyni
innanríkisráðherra sem
kærunefnd jafnréttismála
úrskurðaði að hefði brot-
ið jafnréttislög með því að
sniðganga Höllu Bergþóru
Björnsdóttur þegar hann
skipaði karlmann sem
sýslumann á Húsavík.
Þetta var
slys
Ég var með ósköp
venjulegar tennur
Einar Ólafsson sá vin sinn skjóta litla bróður sinn. – DV Andrea Gylfadóttir fékk beineyðingu í tannbeinið. – DV
Mistök dagsins
M
anni rennur kalt vatn milli
skinns og hörunds við fréttir um
að íslenskir stjórnmálamenn
sæki ráðstefnu bandarísku
öfgasamtakanna G.O.P. (Rethuglicans)
– „Ragnheiður hjá Repúblíkönum: Þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokksins
gestur repúblíkana“, DV 31.8.12.
Samtökin, sem vilja draga bandarískt
samfélag aftur til miðalda, eru aðallega
þekkt fyrir heimsku, svo ramma að í
skólastofum sama tímabils hefðu læri-
meistararnir rassskellt meðlimina, sem
ekki geta opnað munninn án þess að út
leki lygar og þvættingur.
Kannski telur Ragnheiður að ís-
lenska gullfiskaminninu, sleggju-
dómunum og borgaralegri fáfræði sé
svo ábótavant að sækja þurfi áfyllingu
til Ameríku, enda framleiðslan svo stór-
tæk hjá rethuglikönum að þeir væru jafn
argavitlausir þó Sjálfgræðisflokkurinn
tæki helming heimskunnar og hellti í
viskubrunn flokksins (sem hefur verið
tómur frá þriðja áratug 20. aldar).
„Lögmæt nauðgun“ veldur „sjaldn-
ast“ þungun
E.t.v. hyggst hún nema lygatækni Pauls
Ryan eða líffræðilexíur hjá Todd Akin,
þingmanni repúblíkana, sem nýlega
sagði að „lögmæt nauðgun“ ylli „sjaldn-
ast“ þungun. „Í fyrsta lagi, eftir því sem
mér skilst af læknum, er þungun í tilviki
nauðgana afar sjaldgæf,“ sagði Akin. „Ef
um er að ræða „lögmæta nauðgun“ hef-
ur kvenlíkaminn leiðir til að kippa því
öllu [æxlunarkerfinu] úr sambandi.“
Akin á sæti í vísinda-, geim- og tækn-
inefnd Bandaríkjaþings. Já, vísindi eru
hans verksvið.
Tim Egan hjá New York Times gerði
nýlega úttekt á fræðilegu landslagi
helstu þingmanna Rethuglikanaflokks-
ins sem sýnir bæði hvers vegna flokk-
urinn er aðhlátursefni umheimsins og
hvers vegna engin vandamál fá lausn á
Bandaríkjaþingi, sem haldið er í gíslingu
af þessum fávitum.
Endalokin undir Guði komin!
Bandaríkjamenn hafa á árinu upplif-
að verstu þurrka í 60 ár, óslökkvandi
skógarelda og heitasta veður síðan
mælingar hófust. Að þetta geti stafað af
loftslagsbreytingum telja repúblikanar
ómögulegt; slíkar kenningar eru lyga-
samsæri vísinda- og menntaelítunn-
ar. Formaður nefndar um loftslags-
breytingar er þingmaður repúblíkana
frá Illinois, John Simkus, sem segir enga
ástæðu til að hafa áhyggjur af banvæn-
um loftslagsbreytingum – „biblíutáknin
eru nefnilega ekki samstillt“. „Endalok
heimsins verða þegar Guð vill!“ sagði
Simkus og vitnaði í Biblíuna. Þessi ná-
ungi er formaður nefndarinnar.
Í sömu nefnd er olíufélagaunnar-
inn Joe Barton frá Texas, þingmaður til
27 ára – sem bað forstjóra BP afsökun-
ar þegar Bandaríkjastjórn krafðist þess
að BP greiddi skaðabætur þeim sem
misstu lífsviðurværi sitt vegna olíu-
slyssins í Mexíkóflóa.
Barton vitnaði í himnaföðurinn í
umræðum um vindorku. „Guð not-
ar vind í hitajafnvægi,“ og hrein orka
myndi „hægja á vindum“ og gera veður-
far enn heitara! „Þú getur ekki stjórnað
Guði!“ gelti Barton að forseta fulltrúa-
deildarinnar.
Finnur ekki apaskottið
Langt er síðan kaþólska kirkjan og þró-
unarkenningin sættust, en repúblíkan-
ar vilja kenna skólabörnum að Adam og
Eva hafi riðið á risaeðlum til sunnudags-
guðsþjónustu. Jack Kingston frá Ge-
orgíu, þingmaður til 20 ára, er þróunar-
kenningarafneitari vegna þess að hann
finnur ekki „skarðið þar sem apaskott
forfeðra hans var“ (enda er hann senni-
lega að leita á rassinum, sem er aðsetur
heilabús repúblíkana). „Hvar er týndi
hlekkurinn?“ spurði hann. Kingston
er í nefnd sem hefur yfirumsjón með
menntamálum.
„Hvaðan fá þeir þetta rugl,“ spyr
Egan. Úr Biblíunni, en mikið af
rangupplýsingunum sem eru helsta
heilafæða repúblíkanaflokksþingmanna
eru sögusagnir og kvittir sem dreift er
eins og skít af fjölmiðlamaskínu flokks-
ins.
Michele Bachmann, þingmaður
frá Minnesota, hélt fram – vegna þess
að „kona sem ég hitti“ sagði henni –
að bóluefni gegn vírus tengdum leg-
hálskrabbameini gæti valdið vangefni
(er eitthvað nýtt PR íslenskt orð yfir
það?). Bandaríska barnalæknaakadem-
ían gaf samstundis út yfirlýsingu þess
efnis að „engin vísindaleg rök styðji
staðhæfingar“ Bachmanns.
Bachmann, sem reglulega elur fjöl-
miðla á fráleitasta uppspuna, er leiðtogi
þingflokks Teflokksins og – eins og lé-
legur brandari – meðlimur þingnefndar
um upplýsingar (e. intelligence?).
Hættulegir heimskingjar
En heimska þessara þingmanna er ekki
bara hlægileg. Hún er líka hættuleg.
Þessir einstaklingar eru allir valdamikl-
ir og hafa verulegan stuðning kjósenda.
Todd Akin gæti unnið öldungardeildar-
þingmannskosningarnar í Missouri –
skv. könnunum hefur hann 44 prósent
atkvæða, andstæðingur hans 45 prósent
– sem sýnir áhrifamátt heimskuherferð-
ar repúblíkana.
Nokkrir repúblíkanar hafa reynt að
berjast gegn fávitunum. „Ég trúi þró-
unarkenningunni og treysti vísinda-
mönnum varðandi loftslagsbreytingar,“
sagði Jon Huntsman, fyrrverandi ríkis-
stjóri Utah, sem bauð sig fram sem for-
setaefni flokksins. „Þið megið kalla mig
vitlausan.“
Joe Scarborough, fyrrverandi
þingmaður repúblíkana og MSNCB-
þáttastjórnandi, segist vera „þreyttur
á að repúblíkanar skuli vera heimski
flokkurinn“.
„Ég vorkenni honum,“ skrifar Egan.
En ekki halda að fleiri repúblíkanar
gangi í raunveruleikakórinn. Því að ef
greind væri smitandi myndi flokkurinn
bólusetja gegn henni.“
Lygatækni og líffræðilexíur
Kjallari
Íris Erlingsdóttir
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg
Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALNÚMER
RITSTJÓRN
ÁSKRIFTARSÍMI
AUGLÝSINGAR
16 3. september 2012 Mánudagur
Leiðari
Jón Trausti Reynisson
jontrausti@dv.is
„Þú getur ekki stjórnað
Guði!“ gelti Barton að
forseta fulltrúadeildarinnar.
„Venjuleg íslensk fjöl-
skylda borgar ríkinu
milljón á ári, bara í vexti.