Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2012, Síða 17
Hann var svo-
lítið stressaður
Það þarf
ekkert einelti
Suphansa Phongsa fæddi dóttur í bíl. – DVForeldrar þroskahamlaðra barna finna til vanmáttar. – DV
Spurningin
„Ekkert rosalega vel.“
Horst Korta
38 ára atvinnulaus
„Það leggst bara ágætlega í
mig.“
Atli Steinn Bjarnason
21 árs nemi
„Ágætlega bara.“
Natalia Björnsdóttir
19 ára nemi
„Bara mjög vel, margt spennandi
að gerast og svona.“
Febie Mae Divinagracia
19 ára nemi
„Bara mjög vel. Maður verður að
taka því eins og öðru.“
Lilja Ingjaldsdóttir
64 ára vinnur á Listasafni Íslands.
Hvernig leggst
haustið í þig?
1 Keypti sér glæsivillu Ungstirnið Selena Gomez fjárfesti í glæsilegri villu
á dögunum en húsið var áður í eigu
leikarans Jonah Hill.
2 Dómari í X-Factor táraðist yfir Degi Gestadómari þáttanna í
Bretlandi, Anastacia, táraðist á meðan
ungur Íslendingur flutti lag sitt.
3 „Sá vin minn sitja með bróður sinn dáinn í fanginu“
Einar Ólason ljósmyndari segir frá
harmleik sem markaði líf hans í
helgarblaði DV.
4 Bruggar hunangsbjór í Hvíta húsinu Uppskrift að bjór Obama
gerð opinber.
5 Stúlka slegin í höfuðið í mið-bænum Var hún flutt á slysadeild
til aðhlynningar en ekki er vitað um
árásarmanninn.
6 Björn Valur hæðist að Vigdísarveislu Þingflokksfor-
maður Vinstri grænna gerir grín að
samkundunni í bloggfærslu undir
yfirskriftinni „Grjót úr steinhúsi“.
7 Fundur um meint lögbrot þriggja stjórnmálaflokka
Þingkona Hreyfingarinnar hefur óskað
eftir að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Alþingis fundi með ríkisendurskoðanda
vegna meintra lögbrota þriggja flokka.
Mest lesið á DV.is
Skilaboð til mótorhjólatöffara
B
ifhjólamenn eru áberandi
þjóðfélagshópur, sem sumum
stendur stuggur af. En undir
leðrinu eru þeir raunverulega
bestu skinn. Hins vegar eru sumir
þeirra haldnir djúpstæðum misskiln-
ingi sem hér er reynt að leiðrétta.
Þegar þetta afbrigði bifhjóla-
manna sem um ræðir hjólar um
götur miðborgarinnar hefur það til-
hneigingu til að gefa hraustlega í og
þenja vélhjólið sitt með hvellum og
brestum. Þeir hafa orðið þess áskynja
að fólk horfir til þeirra og veitir þeim
sérstaka athygli þegar þeir gera þetta.
Það lætur þeim líða vel.
Sumir þeirra ganga lengra
en þetta til þess að fanga athygli
annarra. Þeir merkja jakkana sína
sérstaklega með því að þar sé
glæpon á ferðinni. Flestir þeir sem
merkja sig Vítisenglum eru einmitt
bestu skinn, undir leðrinu, en vilja
að fólk taki eftir þeim. Þar sem
mörgum þeirra var strítt í æsku vilja
þeir líka láta fólk vita, að ef það stríð-
ir þeim eigi þeir vini sem eru sko
glæponar.
Kæru mótorhjólatöffarar. Lík-
lega hefur enginn sagt ykkur þetta,
en þegar þið gefið í og þenjið vélina
horfir allt fólkið ekki á ykkur vegna
þess að þið eruð töff eða hjólin ykkar
flott. Þegar einhver ófögnuður sker
inn í hljóðhimnu manns lítur maður
sjálfkrafa í áttina að honum. Eflaust
eruð þið þá þegar þotnir fram hjá
þegar fólk hristir höfuðið þreytulega
yfir því að þið skulið leggja lykkju á
leið ykkar til að í rauninni öskra inn
í eyrað á fólki sem tekur sér frí frá
amstri dagsins til að rölta í miðbæn-
um eða setjast á kaffihús. Tillitssemi
er töff.
n Hvort viltu að Guðmundur í Brimi
eigi kvótann eða þjóðin?
n Hvort viltu að ríkisstjórnin geti
þröngvað þér í ESB með undirskrift
forsetans einungis eða með undir-
skrift forsetans OG þjóðarinnar?
n Hvort viltu að ráðherra geti ráð-
ið Soffíu frænku í dómaraembætti ef
hann er í þannig stuði eða ekki?
n Hvort viltu að eina vopn þitt gegn
valdhöfum sé gamalt grænmeti sem
þú hendir í Alþingishúsið af og til eða
þjóðaratkvæðagreiðslur?
n Hvort viltu að flokkarnir ráði hvern-
ig þitt atkvæði telur eða þú sjálf/ur?
n Hvort viltu einn maður, eitt atkvæði
eða ekki?
n Hvort viltu að þingmenn geti
greitt atkvæði um mál sem snerta þá
persónulega eða ekki?
n Hvort viltu að ráðherrar ráði öllu,
þar með talið lögum og dómurum,
eða ekki?
Ef þú skilur ekki ofantaldar spurn-
ingar er þér ráðlagt að leita til Birgis
Ármannssonar, þingmanns Sjálfstæð-
isflokksins. Hann skilur þær ekki né
það ferli sem hefur leitt til þess að
þjóðin sé spurð þessara spurninga
yfirleitt.
Ef þú hins vegar skilur spurn-
ingarnar er þér boðið til lýðræðis-
veislu 20. október næstkomandi. Því
aldrei áður hefur þjóðin verið spurð
þessara augljósu grundvallarspurn-
inga. Valdhöfum hefur þótt þægilegra
að ráða þessu barasta sjálfir.
Í takt við tímann Þessi kona sat í Ingólfsstræti í síðustu viku og las af Kindle-lestölvu, tækni sem sífellt fleiri nýta sér. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Svarthöfði
Umræða 17Mánudagur 3. september 2012
Ég iða í
skinninu
Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri á von á barni í janúar. – DV
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV.is í vikunni
„Ég borða kjöt, mér
finnst kjöt mjög gott
og geri mér grein
fyrir því að það verður ekki
til í kjötborðinu. Ég geri mér
grein fyrir því að dýrinu var
á einhvern hátt slátrað. Það
þýðir samt ekki að ég vilji sjá
dýrið drepið eða dautt, hvað
þá afhausað einhverstaðar
á kerru fyrir utan matvöru-
verslun.“
Ólöf Ögn Ólafsdóttir við frétt af
hauslausu hreindýri á Egilsstöðum.
„Hildur Lilliendahl,
þín er þörf útí heimi,
viltu ekki fara að
koma þér þangað??“
Einar Jóhann Jónsson um frétt af aug-
lýsingaherferð Jane Pain þar sem konur
sitja fyrir í klámfengnum stellingum.
46
37
Af blogginu
Daði Ingólfsson
Hvort viltu?