Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Qupperneq 4
4 Fréttir 7.–9. september 2012 Helgarblað
Gælir við þingframboð
n Gunnar I. Birgisson hefur ekki tekið ákvörðun
M
enn hafa rætt það við mig
en ég er ekki búinn að taka
ákvörðun,“ segir Gunn-
ar I. Birgisson, fyrrverandi
bæjarstjóri í Kópavogi, aðspurður
hvort hann ætli sér í prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins fyrir alþingiskosn-
ingar. Hann bætir við: „Ég hef enga
ákvörðun tekið um það.“
Gunnar er bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í Kópavogi en það var fyrir
þremur árum sem hann lét af störfum
sem bæjarstjóri Kópavogsbæjar eftir
umfjöllun um viðskipti sveitarfélags-
ins við útgáfufyrirtækið Frjálsa miðl-
un.
Framsóknarmenn í Kópavogi
höfðu þá krafist þess að Gunnar viki
úr bæjarstjórastólnum eftir að upp-
lýsingar lágu fyrir um tugmilljóna við-
skipti bæjarins við fyrirtæki dóttur
hans Frjálsa miðlun.
Gunnar fór í prófkjörsslag við Ár-
mann Kr. Ólafsson, núverandi bæjar-
stjóra Kópavogsbæjar, um fyrsta sætið
á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu
sveitarstjórnarkosningar en Ármann
hafði betur í þeirri baráttu og lenti
Gunnar í þriðja sæti á lista flokksins.
Í maí síðastliðnum var hann
dæmdur til að greiða 150 þúsund
krónur í sekt vegna brota tengdra
störfum hans fyrir Lífeyrissjóð starfs-
manna Kópavogs. Féll dómur um
málið í Héraðsdómi Reykjaness en
þar var hann dæmdur ásamt Sigrúnu
Ágústu Bragadóttur fyrir að hafa veitt
Fjármálaeftirlitinu rangar upplýs-
ingar um lánveitingar lífeyrissjóðsins
til bæjarsjóðs Kópavogsbæjar. Gunnar
var stjórnarformaður sjóðsins og Sig-
rún Ágústa framkvæmdastjóri.
R
íkisbankinn Landsbankinn
hf. afskrifaði rúmlega millj-
arð króna af 1.800 milljóna
króna skuldum pítsukeðj-
unnar Domino’s þegar fyr-
irtækið var selt til Birgis Bieltvedt og
meðfjárfesta hans í fyrra. Þetta kem-
ur fram í ársreikningi móðurfélags
Domino’s á Íslandi, Pizza-Pizza ehf.,
sem skilað var til ársreikningaskrár
ríkisskattstjóra í lok ágúst síðast-
liðins. Orðrétt segir í ársreikningnum
um fjárhagslega endurskipulagningu
félagsins: „Nettó áhrifin af fjárhags-
legu endurskipulagningunni eru
1.069 millj.kr. og eru sýnd sérstaklega
í rekstrarreikningi.“
Birgir Bieldvedt hafði átt Dom-
ino’s á Íslandi um árabil áður en hann
keypti fyrirtækið í fyrra og var hluti
af skuldunum tilkominn í eigenda-
tíð hans. Árið 2005 seldi Birgir pítsu-
keðjuna til Magnúsar Kristinssonar,
fjárfestis og útgerðarmanns í Eyjum.
Þá þegar var fyrirtækið orðið mjög
skuldsett. Í ársreikningi Pizza-Pizza
það ár kom fram að heildarskuld-
ir félagsins hefðu aukist um milljarð
á milli ára – farið úr 200 milljónum
króna og upp í 1.200 milljónir. Þessi
mikla skuldsetning hvíldi á félaginu
næstu árin á eftir.
Hagnaður upp á nærri 900 milljónir
Vegna áhrifa fjárhagslegrar endur-
skipulagningar Domino’s – niður-
fellingar á skuldum félagsins – skil-
aði Pizza-Pizza hagnaði upp á 885
milljónir króna í fyrra. Tekjur Pizza-
Pizza námu rúmlega 1.855 milljón-
um og skilaði félagið ríflega 30 millj-
óna króna hagnaði áður en tekið er
tillit til bókfærðs hagnaðar vegna
fjárhagslegrar endurskipulagningar
félagsins. Því var hagnaður af rekstri
Domino’s á Íslandi í fyrra sem er
breyting frá árinu 2010 þegar tap var
á rekstrinum upp á nærri 17 milljón-
ir króna.
Heildarskuldir Pizza-Pizza í árs-
lok 2011 námu rúmlega 526 milljón-
um króna en höfðu numið rúmlega
1.824 milljónum í árslok 2010. Miðað
við ársreikning Pizza-Pizza er Dom-
ino’s á Íslandi komið aftur á beinu
brautina í kjölfar efnahagshrunsins,
afskrifta og eigendabreytinga.
Birgi stór hluthafi
Í ársreikningnum kemur auk þess
fram að stærsti birgir Pizza-Pizza
ehf., Nautica ehf., sé jafnframt ann-
ar af stærstu hluthöfum félagsins.
Birgir Bieltvedt á Eyju fjárfestingar-
félag, sem á 55 prósenta hlut í
Domino’s, en Nautica á 35 pró-
senta hlut. Eigendur Nautica eru
Högni Pétur Sigurðsson og Sigurð-
ur S. Pétursson og tveir Þjóðverjar.
Skuldir Pizza-Pizza eru að hluta til
við Nautica.
Nautica er íslenskt eignarhalds-
félag sem sérhæfir sig í heildsölu
á matvörumarkaði. Félagið er í
eigu sömu aðila og þýska fyrirtæk-
ið Intertrade Sigurdsson & Partner
í Hamborg í Þýskalandi en það fyr-
irtæki sérhæfir sig meðal annars í
heildsölu á matvöru til Domino’s-
pítsustaða. Í ársreikningi félagsins
kemur fram að eignarhluturinn í
Domino’s er bókfærður á 91 milljón
króna. Félagið á eignir upp á rúm-
lega 194 milljónir króna og skuldar
rúmlega 57 milljónir.
Afskrifuðu milljArð
hjá Domino’s pizzA
n Domino‘s komið á beinu brautina eftir afskriftir og eigendabreytingar„Nettó áhrifin
af fjárhagslegu
endurskipulagningunni
eru 1.069 millj.kr. og eru
sýnd sérstaklega í rekstr-
arreikningi.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Afskriftir staðfestar
Afskriftir Domino’s á
Íslandi eru staðfestar í
ársreikningi móðurfélags
pítsukeðjunnar. Birgir
Bieltvedt var eigandi
Domino‘s til ársins 2005
og stofnaði til skuldanna
að hluta og keypti félag-
ið svo aftur í fyrra.
Hagfræðingur
hrósar stjórninni
Jón Steinsson, dósent í hagfræði
við Columbia-háskólann í New
York, segir óvinsældir ríkisstjórn-
arinnar vera einkennilegar í ljósi
þess hversu vel hefur gengið að
koma hagkerfinu aftur á rétta
braut eftir hrunið. Hann segir
núverandi ríkisstjórn hafa kom-
ið mörgum stórum og mikilvæg-
um málum í gegn á skömmum
tíma. Þetta skrifar hann í grein í
Fréttablaðið á fimmtudag þar sem
hann segir: „Ísland er í ótrúlega
góðri stöðu í dag aðeins þremur
árum eftir að hafa verið í ótrúlega
vondri stöðu. Erfiðar ákvarðanir
sem þessi ríkisstjórn tók eiga mik-
inn þátt í þessum viðsnúningi. Ég
vona að hún njóti sannmælis hvað
það varðar.“ Jón var efnahagsráð-
gjafi Geirs Hilmars Haarde, sem
gegndi forsætisráðherraemb-
ættinu þegar hrunið varð. Þá nefn-
ir hann þá aðgerð stjórnarinnar
að hafa rekið Davíð Oddsson úr
Seðlabankanum. „Ég hvet lesend-
ur til þess að reyna að hugsa þá
hugsun til enda að Davíð væri enn
seðlabankastjóri.“
Selja Hús-
gagnahöllina
Jón Helgi Guðmundsson, oftast
kenndur við Byko, og fjölskylda
hans, hafa ákveðið að selja Hús-
gagnahöllina úr Norvikur-versl-
unarveldinu. Þetta kom fram í
Viðskiptablaðinu. Húsgagnahöll-
in var í eigu Norvikur sem á með-
al annars Byko, Elko, Intersport
og Kaupás sem rekur Nóatún og
Krónuna. Kaupendur eru að sögn
Viðskiptablaðsins bræðurnir Guð-
mundur Gauti og Egill Reynisson
sem eiga verslanirnar Betra bak
og Dorma. Kaupverðið er ekki gef-
ið upp en í umfjöllun Viðskipta-
blaðsins kemur fram að Hús-
gagnahöllin hafi ekki þótt „passa
inn í púsluspil Norvikur“ og því
var ákveðið að selja. Einnig kemur
fram að húsnæði Húsgagnahallar-
innar, sem Kaupás keypti upphaf-
lega árið 2000, verði áfram í eigu
Norvikur.
Á þing? Orðrómur hefur verið uppi um að
Gunnar stefni á Alþingi.