Fréttatíminn - 20.11.2015, Side 60
volundarhus.is · Sími 864-2400
Vel valið fyrir húsið þitt
RÝMINGARSALA
ÚTSALA
Á GARÐHÚSUM
VH
/1
5-
01
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
Allt á að seljast · Fyrstur kemur fyrstur fær
Tilboðin gilda 13. - 30. nóvember
Sjá eiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
34 mm bjálki / Einföld nótun
GARÐHÚS 9,7 m²
Verð nú kr. 239.900
Verð áður kr. 299.900
www.volundarhus.is
28 mm bjálki / Einföld nótun
Verð nú kr. 215.900
Verð áður kr. 269.900
GARÐHÚS 9,7 m²
VERÐTILBOÐ
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
Verð nú kr. 234.900 - áður kr. 299.900
VERÐTILBOÐ - GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs
Verð nú kr. 135.900 - áður kr. 169.900
VERÐTILBOÐ - GARÐHÚS 4,4 m²
Verð nú kr. 149.900 - áður kr. 189.900
VERÐTILBOÐ - GARÐHÚS 4,7 m²
Allt að 20%afslátturaf öðrumgarðhúsum semtil eru á lager
Hvernig byrjar þú dag-
inn?
Ég vakna flesta morgna
klukkan 5, fæ mér
vatnsglas og morgun-
mat. Ég er svo mættur í
vinnu rétt fyrir klukkan
sex.
Hvernig er hefðbundinn
morgunmatur hjá þér?
5-6 egg, mikið af
grænmeti, 1 ávöxtur
og mikið af jómfrúar
ólífuolíu.
Hvers konar hreyfingu
stundar þú?
Crossfit.
Hvað gerir þú til að
slaka á?
Blanda af nuddi, inn-
rauðri gufu og heitum
og köldum potti er
rútína sem ég fer í
gegnum á hvíldardög-
um frá æfingum. Í við-
bót við það finnst mér
mjög gott að setjast
niður á kaffihúsi með
góða bók eða tímarit til
að slaka á.
Lumar þú á einu heilsu-
ráði sem hefur gagnast
þér vel í gegnum tíðina?
Það er mjög mikilvægt
fyrir alla líkamsrækt og
íþróttaiðkun að gefa sér
góðan tíma í „mobility“
æfingar, það er nudd
með boltum, rúllum
eða öðrum nuddg-
ræjum og fjölbreyttum
teygju- og liðlosunaræf-
ingum. Þetta flýtir fyrir
bata eftir æfingar, eyk-
ur hreyfigetu, styrk og
úthald og kemur í veg
fyrir meiðsli. Þessar
æfingar eru mikilvægar
fyrir alla, íþrótta- eða
kyrrsetufólk. Þær
losa um vöðvabólgu
og almennan stífleika
sem er oft erfitt að eiga
við. Ég fer einnig til
kírópraktors einu sinni
í viku til að rétta stoð-
kerfið af og endurstilla
taugakerfið. Það hefur
hjálpað mér óendanlega
mikið og heldur mér
sterkum og tilbúnum
í hvaða átök sem lífið
bíður upp á.
Hvað er það síðasta sem
þú gerir áður en þú ferð
að sofa?
Það er misjafnt, en ég
bursta alltaf tennur og
klára armbeygjurnar
mínar. Ég geri 100 arm-
beygjur á hverju kvöldi.
Hvert er furðulegasta
heilsuráð sem þú hefur
heyrt?
Líklega að bjór sé góð-
ur „recovery“ drykkur.
Minn heilsutíMi: evert víglundsson Crossfit þjálfari
Vaknar klukkan fimm og fær sér sex egg
Evert Víg-
lundsson er
nýkrýndur
Íslandsmeistari
í Crossfit í
flokki 40-44
ára. Crossfit er
óneitanlega stór
hluti af daglegu
lífi Everts sem
er yfirþjálfari
hjá Crossfit
Reykjavík. Hann
hefur einnig
verið að gera
það gott sem
þjálfari í Biggest
Loser þáttunum,
en nú standa
yfir tökur á
nýrri þáttaröð.
Þegar kemur að
heilsu, mataræði
og hreyfingu
veit Evert hvað
hann syngur og
hér segir hann
frá því hvernig
hann ver sínum
heilsutíma.
Evert stóð uppi sem sigurvegari á Íslandsmeistaramótinu í Crossfit í flokki 40-44 ára, sem fram fór um síðustu helgi. Myndir/
Daníel Rúnarsson
Kraftmikið krydd
Kanill er kraftmikið krydd sem hefur verið notað í þúsundir ára
af margvíslegum ástæðum. Margir tengja kanil við jólin enda er
ilmurinn sætur og kanill tilvalinn í jólabaksturinn. Kanill hefur þó
mörg önnur jákvæð áhrif.
Andoxun: Af öllum kryddum heimsins inniheldur kanill
mest af andoxunarefnum.
Bólgueyðandi: Andoxunar-efnin hafa bólgueyðandi áhrif
sem samkvæmt rannsóknum
getur minnkað líkur á hjarta-
og æðasjúkdómum.
Lækkar blóðsykur: Kanill getur hjálpað til við að lækka
blóðsykur og er því gagnlegur
í baráttunni gegn sykursýki.
Tannheilsa: Rannsóknir hafa sýnt að kanill ræðst á bakterí-
ur í munni sem valda andfýlu
og tannskemmdum. Kanill
getur því nýst sem náttúrulegt
munnskol, í litlu magni þó.
Náttúrulegt sætuefni: Kanill er tilvalið sem náttúrulegt
sætuefni. Með því að nota
kanil í stað sykurs má minnka
sykurnotkunina en viðhalda
samt sem áður sætubragðinu
í matnum.
Helgin 20.-22. nóvember 201560