Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 46
É g byrjaði að hjóla í maí í fyrra þegar Rikka, samstarfskona mín, fékk mig til að taka þátt
í WOW Cyclothoninu. En ég byrj-
aði ekki að hjóla af alvöru fyrr en
að því loknu,“ segir Kolla. „Ég var
rosa fín að peppa í bílnum. Það voru
mun sterkari hjólreiðamenn í liðinu
og það hvatti mig til að fara á fullt
í hjólreiðunum.“ Hún tók svo aftur
þátt í ár með liði Kríu en það er lið
sem hún setti saman af tíu konum.
„Markmiðið með liðinu var að hjóla
hratt en fyrst og fremst að njóta
þess að hjóla saman hringinn. Það
tókst svo sannarlega, við komum
skælbrosandi í mark og enduðum í
2. sæti í kvennaflokki.“
Hjólreiðar eru karllæg íþrótt
Líf Kollu einkennist nú meira og
minna af hjólreiðum. „Ég átta mig
ekki alveg á því hvernig það gerð-
ist,“ segir hún og hlær. Hún starfar
í hjólabúðinni Kríu ásamt því að fara
fyrir hópi kvenna sem hittist reglu-
20%
HEIMILISVÖRUR
AFSLÁTTUR
· Helgartilboð ·
Gildir 19.-22. nóvember
1. hæð | Kringlan | 588 2300
Líður best í góðum
hópi hjólakvenna
Kolbrún Björnsdóttir tók þátt í WOW Cyclothon í fyrra og í ár.
Fyrir rúmu ári hafi hún varla stigi fæti á hjól síðan hún var
lítil stelpa. Hún smitaðist hins vegar af hjólabakteríunni eftir
keppnina og nú eru hjólreiðar bæði atvinna og áhugamál Kollu,
sem starfar í hjólreiðaversluninni Kríu. Kolla óskar sér ekki
hjóls í jólagjöf, þar sem hún er vel sett með þrjú, en það er þó
margt hjólatengt að finna á óskalistanum.
Á Facebook síðunni Kría
wmn ride má finna allar
upplýsingar um hjólahópinn.
Hópurinn hittist annarn
hvern laugardag og saman-
stendur af fjölbreyttum hópi
kvenna, byrjendum sem
keppniskonum. Ljósmynd/Kol-
brún Björnsdóttir
Hjólaskór
Sérstakir vetrarskór ætlaðir til hjólreiða.
Þeir sem eignast þá sjá eftir því að hafa ekki
eignast slíka löngu fyrr.“
Kolla tók þátt í WOW Cyclothon í annað skipti í sumar og hjólaði mun meira (og
hraðar) en í keppninni í fyrra. Liðið samanstóð af 10 konum og lentu þær í 2. sæti í
kvennaflokki. Ljósmynd/Björg Vigfúsdóttir
Jólagjöf hjólreiðamannsins
Góð ljós
Það sem skiptir
miklu máli að sé
í lagi eru ljósin,
sérstaklega
þegar dagarnir
eru stuttir eins
og núna.
Hlýr fatnaður
„Það skiptir máli að halda á sér
hita og þá eru höfuð, hend-
ur og tær erfiðastar.
Góðir hanskar eru því
málið og hlýjar húfur.
Og svo er alltaf gaman
að eiga hjólafatnað til
skiptanna, rétt eins og
föt í ræktina.“
lega og hjólar saman. „Ég var svo
mikið niðri í Kríu að ég gat alveg
eins farið á launaskrá þar. Strák-
arnir í Kríu voru að leita að konu
í vinnu, sem ég reyndar vissi ekki.
En mig langaði að breyta til og þetta
passaði því svona vel.“ Aðspurð um
kynjahlutföllin segir Kolla hjólreið-
arnar karllægar eins og svo margar
aðrar íþróttir. „Það eru til dæmis til
miklu fleiri tegundir af hjólum fyrir
karla en konur, en konum fer ört
fjölgandi og framleiðendur eru bún-
ir að átta sig á því og eru að reyna
að bæta sig. Það hefur orðið ástríða
mín í gegnum tíðina að hvetja konur
áfram með einum eða öðrum hætti
og nú geri ég það á þessum vett-
vangi.“ Fyrir ári setti hún af stað
kvennahóp sem hittist annan hvern
laugardag og hjólar saman um borg-
ina. „Við borðum svo saman að ferð-
inni lokinni og það myndast alveg
ótrúlega góð stemning. Við höfum
mest verið um 70 talsins, en þátttak-
an fer aðeins eftir árstíma og veðri.
En þetta hefur verið virkilega góður
kjarni sem mætir og ég er búin að
kynnast ótrúlega flottum konum í
gegnum þennan hóp. Ég hvet konur
til að koma með okkur, það eru allar
velkomnar á hvernig hjóli sem er og
það er engin skilin eftir.“
Skemmtilegt og fróðlegt að
hjóla í hópi
Kolla nýtur sín best þegar hún
hjólar í hópi. „Eins og það getur
verið gott að fara ein út að hjóla og
hreinsa hugann þá er alveg ótrú-
lega gaman að hjóla með öðrum.
Þetta er skemmtilegur félags-
skapur og maður lærir líka eitt-
hvað nýtt. Maður veit heldur ekki
alltaf allt og þegar maður hjólar
með öðrum er gott að fá ráðlegg-
ingar, til dæmis um hvernig á að
beita sér á hjólinu, hvernig hnakk-
urinn er stilltur, í hversu þungum
gír maður á að hjóla og svo fram-
vegis.“ Í ferðunum er hins vegar
ekki eingöngu talað um hjólreiðar.
„Við spjöllum við líka um eitthvað
allt annað.“
Sport fyrir græjufíkla
„Hjólreiðar eru klárlega sport fyrir
græjufíkla, en það er samt alveg
nóg að eiga bara hjól og hjálm, það
þarf ekkert að flækja hlutina,“ seg-
ir Kolla. En það er þó lítið mál að
fara alla leið í græjunum og er Kolla
ein af þeim. „Ég sé alveg fyrir mér
hvernig ég mun græja hjólin mín
næsta eina og hálfa árið. Ég var að
fá mér æðisleg ný ljós og get ekki
beðið eftir að nota þau í skammdeg-
inu.“ Hún óskar þó ekki eftir nýju
hjóli í jólagjöf. „Ég er vel sett, en það
er alltaf hægt að bæta við sig fylgi-
hlutum.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
46 jólaagjafir Helgin 20.-22. nóvember 2015