Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 80
Í takt við tÍmann EydÍs Blöndal
Einhverjir gætu sagt að ég sé of mikið á
netinu... og það er líklegast rétt hjá þeim
Staðalbúnaður
Ég hef mikinn áhuga á tísku. Eða
réttara sagt þá pæli mikið í því
hvað er flott og hvað það er sem
gerir lúkk að flottu lúkki. Akkúrat
núna er ég viss um að þægindi spili
stórt hlutverk í því að líta vel út. En
þægindi eru ekki einsleitt fyrir-
bæri, svo þetta er kannski frekar
opin skilgreining hjá mér. Þægindi
geta snúið að því að líða vel á eigin
skinni, það er að segja klæðast
mjúkum, vönduðum fötum sem
þrengja ekki of mikið að og svo
framvegis, og þau geta snúið
að því að líða vel í eigin
skinni, sem spilar meira
inn á okkar persónu-
lega smekk og einnig
sjálfstraust. Þetta tvennt
helst náttúrulega mikið
í hendur og ég held
að fólk leyfi þessum
þáttum oft að mæt-
ast á miðri leið.
Þannig að góðar
og vel sniðnar
joggingbuxur
eru algjörar
lykilflíkur í
mínum fataskáp.
Hugbúnaður
Ég fer sjaldan langt út fyrir hverfið
mitt því hér hef ég allt sem ég þarf!
Ég hjóla allt þegar veður leyfir, ann-
ars tek ég strætó, sem mér finnst
þægilegt. En það hefur samt stóra
galla að vera í sama umhverfinu
alla daga. Allt fólk sem ég hitti er
meira og minna með sömu skoð-
anir og ég sjálf, og ef það er ekki
nógu einangrandi þá er internetið
líka farið að velja hvaða upplýs-
ingum það matar mig á. Það getur
því oft verið sjokkerandi að sjá
þegar einhverjir á netinu, eða jafn-
vel skyldmenni manns í jólaboðum,
eru gjörsamlega ósammála manni.
Ég þarf stundum að minna mig á
það að fólk á rétt á því að hafa sínar
skoðanir, svo lengi sem þær eru
ekki skaðlegar öðrum, og að mínar
skoðanir séu ekki betri en annarra.
Ég er samt ekki að segja að ég ætli
að sýna því skilning þegar fólk er
með kvenfyrirlitningu eða rasisma.
En maður mætti kannski að víkka
sjóndeildarhringinn. Ferðast meira
um landið og tala við fólk. „Fol-
lowa“ einhverja á Twitter sem búa
við annan veruleika, í öðru póst-
númeri jafnvel.
Vélbúnaður
Ég er gjörsamlega límd við sím-
ann minn eða tölvu allan daginn.
Stundum bæði í einu! En það er ein-
faldlega af því að þar er allt hægt
að gera. Ég get sinnt öllum mínum
erindum þar, talað við vini mína,
svarað tölvupóstum og lesið mér
til um bókstaflega allt. Einhverjir
gætu alveg sagt að ég sé of mikið
á netinu, og við það fólk vil ég
segja: það er líklegast alveg rétt hjá
ykkur. Ég er mjög virk á Twitter og
hef mjög gaman af þeim miðli af því
að þar kemst fólk ekki jafn auðveld-
lega upp með röfl og leiðindi af því
að þú hefur bara 140 stafabil! Það
gerir það líka að verkum að hug-
myndirnar sem fólk er að ræða á
Twitter eru hnitmiðaðri og skýrari
og oftar en ekki er ég að fá frétt-
irnar fyrst á Twitter.
Ljósmynd/Hari
Eydís Blöndal er 21 árs og ólst upp í Safamýri en býr nú í miðbænum. Hún sendi frá sér ljóðabókina
Tíst og bast í haust og er einn af skemmtilegri tísturum landsins. Eydís segir að vel sniðnar jogging-
buxur séu lykilflíkur í fataskáp sínum.
Jólamatarhátíð
Búrsins haldin í
Hörpu um helgina
J ólamarkaður Búrsins verður haldinn í Hörpu um helgina. Á markaðnum verða um 40
aðilar víðs vegar að af landinu sem
kynna framleiðslu sína; bændur, sjó-
menn og smáframleiðendur. Með-
al þeirra framleiðenda sem kynna
vörur sínar og þjónustu eru Móðir
jörð, Friðheimar, Tefélagið, Vínekr-
an og Omnom.
Markaðurinn verður opinn frá
klukkan 11-17 báða dagana. Fyrir-
komulagið er með örlítið breyttu
sniði frá síðustu mörkuðum. Að-
gangseyrir er 1.000 krónur en
gestir fá endurgreitt í hlutfalli við
það sem þeir versla á markaðinum,
hundrað krónur af hverjum þúsund
krónum sem verslað er fyrir. Þannig
er hægt að fá allt að 800 krónur end-
urgreitt, auk þess sem gestir fá að-
gang að örkynningum og taka þátt
í happdrætti þar sem veglegar mat-
aröskjur af markaði eru í verðlaun.
Öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá frítt
inn sem og börn undir 16 ára aldri.
Á markaðnum verður að venju
allskonar góðgæti og má þar nefna
kálfapylsur, hangikjöt á beini, líf-
rænt súrdeigs bakarí, panetone,
jólasúkkulaði, hvannarsúpu, kan-
ínukjöt, rjómaís, mysu, heitreykta
þorsklifur, regnbogasilung, lífrænt
lambakjöt, sinnep, jólakaffi, te, jóla-
síld og lostalengjur, svo eitthvað sé
nefnt.
Súkkulaðið frá Omnon verður kynnt á jólamatarhátíð Búrsins í Hörpu um helgina.
Einstök safari ferð til Tanzaniu á slóðir villtra dýra,
ósnortinna náttúru og fornrar menningar.
Tanzania
22. janúar – 4. febrúar
Við sjáum óviðjafnanlegt dýralíf í sínu náttúrulega umhverfi og
kynnumst menningu heimamanna m.a. Masai þjóðflokknum.
Ferðin er eitt ævintýri, einstök upplifun sem lætur engan ósnortin.
*Verð per mann í 2ja manna herbergi
675.900.-*
588-8900
Transatlantic.is
Innifalið:
Allt flug með sköttum og gjöldum. Allur flutningur milli staða með
5–7 manna safaríbílum. Innlendur og íslenskur fararstjóri.
Gisting og matur á upptöldum (eða sambæri-legum)
gististöðum eins og er í ferðalýsingu.
Öll gjöld vegna aðgangs í þjóðgarða eins og lýst er.
Fararstjóri er Dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir, eigandi TanzaNice Farm í Tansaníu.
588-8900
Transatlantic.is
Innifalið:
Allt flug með sköttum og gjöldum. Allur flutningur milli staða með
5–7 manna safaríbílum. Innl ndur og íslensk r fararstjóri.
Gisting og matur á upptöldum (eða sambæri-legum)
gististöðum eins og er í ferð lýsingu.
Öll gjöld vegna aðg ngs í þjóðgarða eins og lýst er.
Fararstjóri er Dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir, eigandi TanzaNice Farm í Tansaníu.
588 8900 – transatlantic.is
80 dægurmál Helgin 20.-22. nóvember 2015