Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 82
Það hefur gengið
bara vel. Ég er
í kór sem heitir
London Contem-
porary Voices og
var stofnaður í
kringum tón-
listarkonuna
Imogen Heap.
Við höfum
sungið þrisvar
með henni og
líka með öðrum
stórum nöfnum
eins og Basem-
ent Jaxx.
„Ég gróf því upp einhver gömul leðurstígvél, pússaði þau og fann svo afsökun til þess að fara og kaupa mér eitthvað nýtt og
flott.“ segir Helga Ragnarsdóttir. Ljósmynd/Hari
TónlisT Helga Hleypur í skarðið með skálmöld
m ér líst nú bara vel á þetta. Ég hef nú farið á túra áður þó þetta verði samt öðruvísi
en það sem ég hef vanist,“ segir Helga
Ragnarsdóttir, söngkona og tónskáld,
sem starfar meðal annars með hljóm
sveitinni Rökkurró en hleypur í skarðið
sem hljómborðsleikari Skálmaldar á
Evróputúr sveitarinnar.
„Þetta er töluvert ólíkt því sem ég hef
verið að fást við. Á öllum sviðum. Tón
listin er ólík, áhorfendur verða öðruvísi
og félagsskapurinn líka,“ segir hún. „Ég
hef heldur aldrei farið á svona túr þar
sem sofið er í rútunni á milli staða. Auð
vitað hjálpar til að ég þekki alla í Skálm
öld og bræður mínir eru með mér, þó
ég viti ekki hvort það er einhver vernd í
því. Minn undirbúningur fólst mest í því
að læra þessa músík,“ segir Helga.
„Þetta er allt annað en ég er vön að
spila og maður er bókstaflega að nota
aðra vöðva í þessari spilamennsku.
Ég þekkti tónlistina af fyrstu tveimur
plötunum vel en var ekki búin að hlusta
eins mikið á síðustu plötuna, sem mér
finnst svo skemmtilegasta platan,“ segir
hún.
„Svo þarf maður að pakka eins litlu
og maður getur, en ég er nú vön því þar
sem ég hef verið ásamt Baldri bróður í
Leikhópnum Lottu þar sem ferðalögin
voru löng. Svo er það fatnaðurinn. Ég
er ekki þekkt fyrr það að ganga mikið
í svörtu,“ segir Helga. „Ég gróf því upp
einhver gömul leðurstígvél, pússaði
þau og fann svo afsökun til þess að fara
og kaupa mér eitthvað nýtt og flott. Ég
keypti því bara sett af fötum sem ég
getið verið í á sviði með Skálmöld. Ég
veit ekki hvursu margir mundu vera
hrifnir ef ég kæmi á svið í blómakjól
unum mínum,“ segir hún. „Það er líka
bara gaman að fara í gervi og taka þetta
alla leið.“
Helga er búsett í London þar sem
hún vinnur að tónlist, bæði sinni eigin
og einnig með öðru tónlistarfólki. „Ég
flutti út og tók mastersgráðu í tónlist
og hef síðan verið harkinu,“ segir hún.
„Það hefur gengið bara vel. Ég er í
kór sem heitir London Contemporary
Voices og var stofnaður í kringum tón
listarkonuna Imogen Heap. Við höfum
sungið þrisvar með henni og líka með
öðrum stórum nöfnum eins og Basem
ent Jaxx. Þetta var alger heppni að kom
ast í þennan kór sem er að verða stærri
og stærri. Ég tók mér samt jólapásu til
þess að fara með Skálmöld. Ég hef verið
mjög dugleg í því að segja bara já og sjá
hvert það tekur mig,“ segir Helga Ragn
arsdóttir tónlistarkona.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Hljómsveitin Skálmöld lagði af stað í vikunni í þriggja vikna tónleikaferðalag um Evrópu þar
sem sveitin mun spila á 19 tónleikum á 22 dögum. Hljómborðsleikari sveitarinnar, Gunnar Ben,
komst ekki í ferðina sökum anna í vinnu sinni hjá Listaháskólanum og mun Helga Ragnarsdóttir
því fylla hans skarð á meðan ferðin stendur yfir. Helga er systir þeirra Snæbjörns og Baldurs
sem eru í Skálmöld og segist vera spennt fyrir ferðalaginu. Hún segir félagsskapinn vera
frábæran en þurfti þó að endurnýja aðeins í fataskápnum áður en haldið var af stað.
Blómakjólar eiga ekki
heima á sviði með Skálmöld
orðspil nefndu3 er HressT íslenskT fjölskylduparTíspil
Þrjár sekúndur til að nefna gjöf handa tengdamömmu
Borðspilið Nefndu3 kemur á markað í desem
ber og eru það vinirnir Arnaldur Gauti Jo
hnson og Kristinn Pálsson sem eru höfundar
og framleiðendur spilsins. „Þetta er svona
hresst íslenskt fjölskyldupartíspil, sem við
settum saman,“ segir Arnaldur Gauti. „Maður
þarf ekkert að vita svör við neinum spurn
ingum í þessu. Það eru spurningar, en þær
eru allar almenns eðlis,“ segir hann. „Nefndu
þrennt sem þú tekur með þér í útilegu, eða
gefur tengamömmu þinni eða tekur með þér
á eyðieyju eða slíkt. Þú færð samt bara þrjár
sekúndur til þess að svara spurningunni og
þess vegna verða svörin oft mjög fyndin,“ segir
hann.
„Það sem er svo alveg nýtt í þessu er að á
einum reit þarf að hringja í númer sem er gefið
upp. Þar svarar símsvari sem segir hvað þú átt
að gera, og hann er aldrei sá sami. Við getum
breytt honum með jöfnu millibili. Við vorum
eiginlega búnir að hanna spilið í nóvember á
síðasta ári en þá var tíminn of naumur fyrir
þau jólin, svo við ákváðum að bíða með það í
eitt ár. Það er hægt að kaupa það aðeins ódýr
ara í forsölu á Karolina Fund en það kemur í
allar stærstu verslanirnar í byrjun desember.
Við erum búnir að prófa það á allskonar hópum
og allir sem hafa spilað eru mjög sáttir og vilja
spila aftur,“ segir Arnaldur Gauti Johnson,
annar höfunda Nefndu3 borðspilsins. -hf
Stúdíó A snýr aftur
Tónlistarþættirnir Stúdíó A snúa aftur á
dagskrá RÚV á næstu dögum. Þættirnir
hafa verið mjög vinsælir undanfarin ár og
skemmtileg innsýn inn í hvað heitustu
hljómsveitir landsins eru að senda
Norsk yfirtaka á Mikkeller
Norska brugghúsið
Lervig Aktiebryggeri
frá Stavanger í Noregi
tekur yfir dælurnar á
Mikkeller & Friends
Reykjavík í dag,
föstudag frá klukkan 14
og til lokunar.
Lervig Aktie-
bryggeri var stofnað af
hinum bandaríska Mike
Murphy í Stavanger
árið 2003 og er hann
stórt nafn í handverks-
bruggsenunni í Evrópu.
Brugghúsið er virtasta
handverksbrugghús
Noregs og er talið eitt
besta brugghús Skandi-
navíu að mati heimasíðna
á borð við Ratebeer og
BeerAdvocate.
Lervig er þekkt fyrir sína
bragðgóðu bjóra og ekki
síður fyrir það að brugga
tvo af þekktustu bjórum
Mikkeller, Beer Geek
Breakfast og Beer Geek
Brunch Weasel.
Barði vinsæll í Kína
Bang Gang hefur á undanförnum dögum
ferðast um Kína og spilað á nokkrum tón-
leikum. Barði er vinsæll í Asíu og eftir eina
tónleikana sat hann í tvo tíma og áritaði
plötur og myndir fyrir kurteisa aðdáendur
sína.
frá sér. Í þessari seríu munu meðal annars
Agent Fresco, Axel Flóvent, Gréta Salóme,
Úlfur Úlfur og Glowie koma fram. Þættirnir
verða fjórir talsins.
Dóri og Saga koma
suður
Uppistandssýningin Þetta er grín – án
djóks sem gengið hefur fyrir fullu
húsi á Akureyri undanfarnar vikur
verður sýnd í Reykjavík þann 28.
nóvember. Sýningin sem er flutt
og samin af þeim Dóra DNA og
Sögu Garðarsdóttur verður í
Hörpu. Þetta verður
eina sýningin sunnan
heiða.
Demantshringar frá 80.000 kr.
82 dægurmál Helgin 20.-22. nóvember 2015