Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 38
Í sland fyrir stríð er önnur veröld, tilheyrir öðrum heimi,“ segir Páll Baldvin Baldvinsson.
Í vikunni kom út vegleg bók hans,
Stríðsárin 1938-1945. Í bókinni
fjallar Páll um allar hliðar þessa
merka tímabils en sérstaka athygli
vekur umfjöllun hans um hlut
kvenna á þessum árum.
„Þegar styrjöldinni lýkur
hefur samfélagið hér nyrðra tekið
risavaxin skref til nútímans, til
þeirra lífshátta sem við þekkjum:
skóflan víkur fyrir skurðgröfunni,
ryksuga tekur við af vinnukonunni.
Stríðsárin eru mestu byltingarár
íslenskrar sögu, aldrei hafa
orðið önnur eins umskipti
á þjóðfélagsháttum og
þá.“
Samfélag stöðnunar
Páll segir að á stríðsár-
unum hafi fjöldi kvenna
enn verið bundnar við
þjónustustörf hjá öðrum.
„Kaupakonur í sveitum
eru að vísu flestar yfir
sumartímann meðan mest vinnuafl
þarf um allt landið, en heimili til
sjávar og sveita eru mannfrek
þegar engin tæki létta heimilis-
störfin. Hús eru hituð með mó eða
kolum, sumstaðar þarf að bera
vatn í hús. Umskiptin sem verða
á högum kvenna eru gífurleg. Í
svokölluðum undirstöðuatvinnu-
vegum eru konur íhlaupavinnuafl:
vinna árstíðabundið í landbúnaði
og sjávarútvegi sem hálfdrættingar
karla í launum.“
Konur í vítahring fátæktar og
óreglu
„Þær sem höfðu fasta vinnu
á sjúkrahúsunum unnu
tíu tíma á dag sex daga
vikunnar. Stúlkur
sem voru í húsi, það
er vinnukonur höfðu
helmingi lægri laun
en þjónustur á veit-
ingastöðum eða í versl-
unum. Verka-
konur voru
með
tæp-
an
helming þess sem karlmaður fékk í
árslaun,“ segir Páll Baldvin.
Hann segir að ein stærsta bylting
sem hersetan hafði í för með sér
var sú að konur komust betur af,
eftirspurn eftir kröftum þeirra
jókst. „Fyrir þann tíma bjuggu
margar konur við mikla félags-
lega eymd. Sterkar líkur benda
til að konur hafi stundað vændi í
stærri bæjum. Sökum atvinnuleysis
bjuggu margar þeirra í vítahring
fátæktar og óreglu, heimilisofbeld-
is og ófriðar.“
Hörð kjör
Staða barna og unglinga var ekki
góð á þessum árum. „Í þorpunum
og bæjum fóru börn og unglingar
að vinna um leið og þau gátu. Stórir
skarar af ungum stúlkum voru við
barnagæslu og heimilisaðstoð því
leikvallakerfið var ekki komið á svo
börnin voru á götunum. Sá fjöldi
barna sem deyr við leik í höfnum
landsins er mikill. Þegar umferð
eykst að mun þegar erlent herlið er
komið til landsins taka umferðar-
slysin við. Þá er farið að líta á sam-
búð barna og herliðs í þéttbýli sem
óæskilegt ástand og börn eru flutt
burt til sveita í hundraða tali, ekki
bara frá Reykjavík, heldur Hafnar-
firði, Akureyri, jafnvel Siglufirði,
bæði af ótta við loftárásir og líka
vegna þess að breska setuliðið sest
að í þéttbýli til að spara flutnings-
Leik- og söngkonan Sigrún Magnúsdóttir frá Ísafirði flaug upp á stjörnuhimin
Reykjavíkur veturinn 1938 í revíunni Fornum dyggðum sem leikin var í tvo vetur,
hún fór með stórhlutverk í söngleikjunum Nitouche og Brosandi landi og lék Mjall-
hvít í sviðsetningu breskra hermanna fyrir átta hundruð gesti í fiskvinnsluhúsi við
Skerjafjörð. Á myndinni er hún í útvarpssal ásamt breskum leikurum úr sýningunni um
Mjallhvíti. Ljósmyndari ókunnur.
Stórleikkonan Anna Borg kom til landsins
1939 og lék ásamt manni sínum, Poul Reumert, í
tveimur verkum í Iðnó, en hún var virtur listamaður í
Danmörku. Þau hjón voru um tíma í Svíþjóð meðan á
hernámi Danmerkur stóð og höfðu hægt um sig. Anna
lék í tveimur kvikmyndum 1945 en sneri sér þá aftur að
sviðsleik. Ljósmyndari ókunnur.
Elsa Sigfúss hélt nokkra tónleika á Íslandi fyrir upphaf
stríðsins en var vinsæl af hljóðritunum sínum. Hún lokaðist
inni í Danmörku stríðsárin en þá jukust vinsældir hennar á
Íslandi með frekari dreifingu útvarps og aukinni gramma-
fónaeign. Hún kom aftur til Íslands strax sumarið 1945 og hélt
tónleika, en margar hljóðritanir hennar frá tímabilinu eru sígildar. Ljósmyndari ókunnur.
Vinsælasti skemmtikraftur Íslands á þessum árum var
Hallbjörg Bjarnadóttir frá Akranesi. Hún snéri heim frá
námi og söng í Höfn 1938 og næstu ár var hún mikilvirk
í tónleikahaldi um allt land, einkum þó í Reykjavík. Hún
kom fram á sólótónleikum með stórum og smáum hljóm-
sveitum og undir handarjaðri hennar hóf Steinunn yngri
systir hennar feril sinn sem lauk með hinu kunna lagi
Stuðmanna: Strax í dag. Hallbjörg gerði sér vonir um að
komast til Bretlands til að syngja inn á plötur og til Banda-
ríkjanna en af því varð ekki. Stríðsárin voru blómatími
hennar sem listamanns. Ljósmynd: Vigfús Sigurgeirsson
Lóló Ólafs var fyrsta
fegurðardrottning Íslands,
kosin af lesendum Vikunnar sem
efndi til keppninnar. Lóló var
komin af auðugu fólki í útgerð
og var sigld, hafði ferðast um
meginlandið. Í viðtölum vegna
keppninnar kvaðst hún hafa
mestan áhuga á ferðalögum og
lestri góðra bóka. Ljósmynd: Vigfús
Sigurgeirsson.
Ellen Kid var frá Dresden og kynntist þar Jóhann
Briem listmálara og fluttist með honum til Íslands.
Hún var menntuð í listdansi, hafði komið fram í
vinsælum dansmyndum í Þýskalandi og unnið í
stórsýningum söngleikjahúsanna. Hingað komin
stofnaði hún listdansskóla og kom fram á skemmt-
unum með frumsamda dansa. Hún stóð nokkrum
sinnum fyrir danssýningum sem þóttu nýstárlegar
enda tilheyrði hún hreyfingu nútímadansara þess
tíma. Ljósmynd: Vigfús Sigurgeirsson.
Önnur ung danskona sem hóf
feril sinn á þessum árum var Elly
Þorláksson. Elly stóð líka fyrir
danskennslu en dansmenntun
var vinsælt tómstundagaman,
bæði ungum og gömlum áhuga-
mönnum. Um þessar mundir var
farið að auglýsa gömlu dansana
en á gólfum danssalanna voru
suðuramerískir dansar teknir
að sjást og skammt var í að með
bandarískum hermönnum kæmu hingað djæf og jitterbug. Ljósmynd: Vigfús Sigurgeirsson.
Frægar konur á stríðsárunum
Konur voru áberandi í skemmtanalífi þess tíma sem fjallað er
um í bókinni.
Kvenþjóð fyrir stríð
Stríðsárin 1938-1945 eftir Pál Baldvin Baldvinsson verður fyrirferðarmikil á boðstólum
bóksalanna í ár, ekki bara vegna stærðar og þyngdar, nær 1100 síður með um 3000 myndum og
á annað þúsund greinum. Þar er rakin í tímaröð eftir íslenskum og erlendum heimildum saga ís-
lensks samfélags, karla og kvenna, ungra og aldinna.
Páll Baldvin Bald-
vinsson hefur
ritað sögu
stríðsáranna
á Íslandi á
1.100 síðum.
Ljósmynd/
Hari
38 viðtal Helgin 20.-22. nóvember 2015