Fréttatíminn - 20.11.2015, Síða 50
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200
VERSLAÐU Á
WWW.GÁP.IS
JÓLAGJÖF HJÓLREIÐAMANNSINS
ABUS BORDO ER FYRIRFERÐALÍTILL OG HANDHÆGUR LÁS SEM AUÐVELT ER AÐ FERÐAST MEÐ.
HANN MÁ FESTA HVAR SEM ER Á HVAÐA HJÓL SEM ER OG ÞVÍ FRÁBÆR OG ÖRUGG LAUSN FYRIR ALLT HJÓLREIÐAFÓLK.
ÞÚ GLEYMIR ÞESSUM EKKI HEIMA!
· PASSAR VEL Á ÖLL HJÓL
· MJÖG ÖRUGGUR
· HANDHÆGUR
· RISPAR EKKI
· VERÐLAUNA HÖNNUN
· FÆST Í MÖRGUM LITUM
HENTAR
RACER OG
CYCLOCROSS
MJÖG VEL!
1 2
3
4
5
6 7 8 9 1 0 1
1
1 2
1
3
1
4
1
5
S E C U R I T Y
L E V E L
7
Golfboltar
Golf er ekki spilað
án þess að nota
þar til gerða bolta.
Þeir týnast eins
og vinstri sokkur
í þurrkara og al-
veg eins og ef sá
sokkur er úr ull þá
skemmast þeir líka.
Skemmtileg jólagjöf
fyrir golfarann væri því að
sérmerkja þeim svo jólaboltana. Allt
frá nafni viðtakenda upp í að biðjast
afsökunar á því að hafa brotið rúðu
– sem gerist. Góður alhliða bolti
væri til dæmis Srixon AD333 (12
stk.) sem kostar um 8.000 krónur
með sérmerkingu. Draumur kylf-
ingsins er þó yfirleitt hinn rándýri
Titleist Pro V1 sem þó
tæmir veskið helmingi
hraðar.
Púttbraut
Skammdegisþung-
lyndi golfarans má
létta með því að
setja púttbraut und-
ir tréð. Upprúllanlegt
teppi með holu á endan-
um má nota til þess að þjálfa
það sem fæstir æfa nógu mikið –
púttin.
Séu teppi á íbúðinni fyrir er hægt
að kaupa bara holuna. Passa bara að
sá golfþyrsti nái ekki í dósaborinn
og reyni að sökkva holunni í golfið.
Hún er gerð til þess að sitja ofan á
golfinu.
Púttholur kosta frá rétt rúmum
þúsara og upp í rúmlega
þrjátíu þúsund kall fyr-
ir brautir með broti í.
Æfingakylfa
Það eru til margs-
konar æfingakylf-
ur, svona til þess að
sveifla í stofunni án
þess að lemja í neitt.
Það eru til mjúkar kylf-
ur til að æfa taktinn. Til að
æfa gripið eru til litlar kylfur með
sérstöku þjálfunargripi og svo eru
meira að segja til kylfur sem líta út
eins og skrítin bátaár eða risastór
píla sem æfa sveifluhraða.
Þetta kostar frá um það
bil frá 5 upp í 15 þús-
und krónur.
Breytt og bætt
Uppfærslur er svo
hægt að gera á golf-
kylfunum sem þeg-
ar eru í poka kylfings-
ins. Þar koma ný grip
hvað sterkust inn. Þau þarf að skipta
um á 1-3 ára fresti eftir því hversu
mikið kylfurnar eru notaðar. Ný
grip, jafnvel í uppáhalds lit jólabarns-
ins eru því tilvalin í pakkann. Það er
ekki súperflókið að setja ný grip á
en það er öruggara að láta ásetningu
fylgja með í þessum pakka.
Fjarlægðar-
mælar
Á dögum nú-
tímatækni er
hægt að mæla
fjarlægðina frá
holunni með
mýmörgum
hætti. Einfaldast
og ódýrast er að
kaupa app í símann. Það
gæti verið frá jólasveininum. Golfúr
eru líka sérlega einföld leið til þess
að mæla fjarlægðina en það vilja þó
ekki allir spila golf með úr á hend-
inni og þá er bara að splæsa í fjar-
lægðakíki eða GPS staðsetningar-
tæki. Þau kosta þó skildinginn og
kannski hægt að láta ömmu sjá um
þennan pakka.
Nördagolf
Golf er ekki flókin íþrótt. Setja bolta
ofan í holu með sem fæstum höggum
er nokkurn veginn allt sem þarf að
JólagJafir golfarans
Pakkarnir undir golftréð
Golftímabilið á Íslandi er stutt en það þýðir ekki að kylfingarnir sem golfið stunda hætti að hugsa um golf.
Hnefafylli þeirra æfir sig meira að segja yfir veturinn. Þess vegna er alveg óhætt að skella golftengdum
gjöfum undir tréð. Golfgræjur eru þó ekki alltaf alveg gefins, þessar stærri í það minnsta. Alvöru golfkylfur
kosta frá u.þ.b. 20 þúsund krónum og upp í margfalda þá upphæð þegar kemur að driverum og dýrustu
pútterunum. En það leynast þó innan um vörur sem setja heimilisbókhaldið ekki alveg á hliðina.
vita um sportið. Það eru þó
ekki allir á því að þetta sé
svona einfalt og það má
færa rök fyrir því. Eitt
umtalaðasta æfingatæki
síðasta árs var Game
golf. Með því er hægt að
sjá, eftir nokkra hringi,
nákvæmlega hversu langt
er slegið með hverri kylfu og
það sem mikilvægara er hvað þarf
að bæta. Þessi græja er þó ekki alveg
ókeypis. Kostar um það bil 40.000 krón-
ur í Hole in one en sé henni beitt rétt
er þetta græjan fyrir golfarann sem vill
halda utan um alla tölfræðina sem golf-
ið vissulega býður upp á.
Golfferð
Þegar klukkan fer að slá sex á aðfanga-
dagskvöld og kalt er úti er fátt betra en
að ylja sér við tilhugsunina um að fara
í golfferð til útlanda. Það er þó ekki al-
veg ókeypis, eins og gefur að skilja, en
á hinn boginn þarf sá golfari sem veit
að hann eða hún er að fara í margra
daga golfveislu, til dæmis um páskana,
ekki á þunglyndislyfjum að halda og
því sparast heilmiklir peningar þar.
Allt hitt
Svo eru auðvitað alls
konar fylgihlutir sem
hægt er að splæsa
í. Það þarf regn-
fatnað hér á Fróni.
Regnhl í far eru
líka nauðsynlegar
í golfið og þær eru
sérstaklega stórar
og sterkbyggðar. Tí
þarf alltaf að brúka.
Aukabúnaður á golfkerrur
eru vinsæl viðbót og hetturnar á tré-
kylfurnar eru alltaf vinsælar.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
50 jolagjafir Helgin 20.-22. nóvember 2015