Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.11.2015, Side 50

Fréttatíminn - 20.11.2015, Side 50
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 VERSLAÐU Á WWW.GÁP.IS JÓLAGJÖF HJÓLREIÐAMANNSINS ABUS BORDO ER FYRIRFERÐALÍTILL OG HANDHÆGUR LÁS SEM AUÐVELT ER AÐ FERÐAST MEÐ. HANN MÁ FESTA HVAR SEM ER Á HVAÐA HJÓL SEM ER OG ÞVÍ FRÁBÆR OG ÖRUGG LAUSN FYRIR ALLT HJÓLREIÐAFÓLK. ÞÚ GLEYMIR ÞESSUM EKKI HEIMA! · PASSAR VEL Á ÖLL HJÓL · MJÖG ÖRUGGUR · HANDHÆGUR · RISPAR EKKI · VERÐLAUNA HÖNNUN · FÆST Í MÖRGUM LITUM HENTAR RACER OG CYCLOCROSS MJÖG VEL! 1 2 3 4 5 6 7 8 9 1 0 1 1 1 2 1 3 1 4 1 5 S E C U R I T Y L E V E L 7 Golfboltar Golf er ekki spilað án þess að nota þar til gerða bolta. Þeir týnast eins og vinstri sokkur í þurrkara og al- veg eins og ef sá sokkur er úr ull þá skemmast þeir líka. Skemmtileg jólagjöf fyrir golfarann væri því að sérmerkja þeim svo jólaboltana. Allt frá nafni viðtakenda upp í að biðjast afsökunar á því að hafa brotið rúðu – sem gerist. Góður alhliða bolti væri til dæmis Srixon AD333 (12 stk.) sem kostar um 8.000 krónur með sérmerkingu. Draumur kylf- ingsins er þó yfirleitt hinn rándýri Titleist Pro V1 sem þó tæmir veskið helmingi hraðar. Púttbraut Skammdegisþung- lyndi golfarans má létta með því að setja púttbraut und- ir tréð. Upprúllanlegt teppi með holu á endan- um má nota til þess að þjálfa það sem fæstir æfa nógu mikið – púttin. Séu teppi á íbúðinni fyrir er hægt að kaupa bara holuna. Passa bara að sá golfþyrsti nái ekki í dósaborinn og reyni að sökkva holunni í golfið. Hún er gerð til þess að sitja ofan á golfinu. Púttholur kosta frá rétt rúmum þúsara og upp í rúmlega þrjátíu þúsund kall fyr- ir brautir með broti í. Æfingakylfa Það eru til margs- konar æfingakylf- ur, svona til þess að sveifla í stofunni án þess að lemja í neitt. Það eru til mjúkar kylf- ur til að æfa taktinn. Til að æfa gripið eru til litlar kylfur með sérstöku þjálfunargripi og svo eru meira að segja til kylfur sem líta út eins og skrítin bátaár eða risastór píla sem æfa sveifluhraða. Þetta kostar frá um það bil frá 5 upp í 15 þús- und krónur. Breytt og bætt Uppfærslur er svo hægt að gera á golf- kylfunum sem þeg- ar eru í poka kylfings- ins. Þar koma ný grip hvað sterkust inn. Þau þarf að skipta um á 1-3 ára fresti eftir því hversu mikið kylfurnar eru notaðar. Ný grip, jafnvel í uppáhalds lit jólabarns- ins eru því tilvalin í pakkann. Það er ekki súperflókið að setja ný grip á en það er öruggara að láta ásetningu fylgja með í þessum pakka. Fjarlægðar- mælar Á dögum nú- tímatækni er hægt að mæla fjarlægðina frá holunni með mýmörgum hætti. Einfaldast og ódýrast er að kaupa app í símann. Það gæti verið frá jólasveininum. Golfúr eru líka sérlega einföld leið til þess að mæla fjarlægðina en það vilja þó ekki allir spila golf með úr á hend- inni og þá er bara að splæsa í fjar- lægðakíki eða GPS staðsetningar- tæki. Þau kosta þó skildinginn og kannski hægt að láta ömmu sjá um þennan pakka. Nördagolf Golf er ekki flókin íþrótt. Setja bolta ofan í holu með sem fæstum höggum er nokkurn veginn allt sem þarf að  JólagJafir golfarans Pakkarnir undir golftréð Golftímabilið á Íslandi er stutt en það þýðir ekki að kylfingarnir sem golfið stunda hætti að hugsa um golf. Hnefafylli þeirra æfir sig meira að segja yfir veturinn. Þess vegna er alveg óhætt að skella golftengdum gjöfum undir tréð. Golfgræjur eru þó ekki alltaf alveg gefins, þessar stærri í það minnsta. Alvöru golfkylfur kosta frá u.þ.b. 20 þúsund krónum og upp í margfalda þá upphæð þegar kemur að driverum og dýrustu pútterunum. En það leynast þó innan um vörur sem setja heimilisbókhaldið ekki alveg á hliðina. vita um sportið. Það eru þó ekki allir á því að þetta sé svona einfalt og það má færa rök fyrir því. Eitt umtalaðasta æfingatæki síðasta árs var Game golf. Með því er hægt að sjá, eftir nokkra hringi, nákvæmlega hversu langt er slegið með hverri kylfu og það sem mikilvægara er hvað þarf að bæta. Þessi græja er þó ekki alveg ókeypis. Kostar um það bil 40.000 krón- ur í Hole in one en sé henni beitt rétt er þetta græjan fyrir golfarann sem vill halda utan um alla tölfræðina sem golf- ið vissulega býður upp á. Golfferð Þegar klukkan fer að slá sex á aðfanga- dagskvöld og kalt er úti er fátt betra en að ylja sér við tilhugsunina um að fara í golfferð til útlanda. Það er þó ekki al- veg ókeypis, eins og gefur að skilja, en á hinn boginn þarf sá golfari sem veit að hann eða hún er að fara í margra daga golfveislu, til dæmis um páskana, ekki á þunglyndislyfjum að halda og því sparast heilmiklir peningar þar. Allt hitt Svo eru auðvitað alls konar fylgihlutir sem hægt er að splæsa í. Það þarf regn- fatnað hér á Fróni. Regnhl í far eru líka nauðsynlegar í golfið og þær eru sérstaklega stórar og sterkbyggðar. Tí þarf alltaf að brúka. Aukabúnaður á golfkerrur eru vinsæl viðbót og hetturnar á tré- kylfurnar eru alltaf vinsælar. Haraldur Jónasson hari@frettatiminn.is 50 jolagjafir Helgin 20.-22. nóvember 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.