Fréttatíminn - 20.11.2015, Page 12
H öfuðpaur hryðjuverkanna í París, hinn 28 ára gamli Abdel Hamid Abu Oud, lést í áhlaupi lögregl-
unnar á íbúð hans í St.Denis hverfi Parísar
síðastliðinn miðvikudag. Franska lög-
reglan bar kennsl á líkið í gær. Tveir létust
í árásinni, Abu Oud, og frænka hans sem
sprengdi sjálfa sig í loft upp við upphaf
áhlaupsins.
Belgi af marokkóskum uppruna
Abu Oud var Belgi af marokkóskum upp-
runa sem ólst upp í úthverfi Brussel,
Molenbeek. Hann er talinn hafa gengið til
liðs við Ríki íslams þegar hann fór til Sýr-
lands fyrir tveimur árum og er talinn hafa
verið einn aðalmanna belgískra liðsmanna
hryðjuverkasamtakanna síðan þá. Faðir
Abu Oud sagði í viðtali við fréttaveituna
AFP að sonur sinn hafi orðið öfgamaður
eftir að hann fór til Sýrlands og að hann
hafi velt því fyrir sér af hverju hvern ein-
asta dag síðan. Sonur hans hafi ekki verið
erfitt barn og hann hafi aldrei sýnt trú-
málum neinn áhuga.
Abu Oud komst fyrst í kast við lögin
fyrir fimm árum þegar hann var saksóttur
fyrir aðild að þjófnuðum og öðrum glæpum
en í janúar á þessu ári komst hann á lista
belgísku lögreglunnar yfir eftirlýsta
öfgamenn, grunaður um að hafa skipulagt
og fjármagnað hóp íslamskra öfgamanna í
Belgíu. Hann var dæmdur í 20 ára fangelsi
í júlí síðastliðnum en stærði sig af því í við-
tali stuttu síðar við Dabiq, tímarit íslamska
ríkisins, að hafa auðveldlega komist undan
belgísku lögreglunni.
Vesturlönd í viðbragðsstöðu
Forsætisráðherra Frakklands, Manuel
Valls, lofaði störf frönsku lögreglunnar
í gærdag þegar í ljós kom að heilinn á
bak við árásirnar væri fallinn. Bernard
Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakk-
lands, sagði við tækifærið að af sex mis-
heppnuðum hryðjuverkatilraunum frá því
í vor hefði Abu Oud átt þátt í fjórum. Hann
hvatti evrópska stjórnmálamenn til að
herða allt landamæraeftirlit og skiplagða
vopnaleit og óskaði eftir neyðarfundi inn-
anríkisráðherra sambandsins ekki síðar en
í dag, föstudag.
Vestræn ríki eru í viðbragðsstöðu vegna
hryðjuverkanna, þeirra mannskæðustu
síðan í annarri heimsstyrjöldinni en fyrr
í vikunni varaði Manuel Valls við því að
Frakkland gæti mögulega orðið fyrir efna-
eða sýklavopnaárás. Franska þingið sam-
þykkti í gær að framlengja neyðarástand í
landinu fram í febrúar. Belgíski forsætis-
ráðherrann, Charles Michel, hefur boðað
aukin fjárframlög, 400 milljónir evra, í
baráttunni gegn hryðjuverkum. Lögreglan
í New York sagðist á miðvikudag vera í við-
bragðsstöðu vegna myndbands þar sem
Ríki íslams talar um borgina sem mögu-
legt skotmark hryðjuverkasamtakanna
en borgarstjórinn, Bill de Blasio, hefur nú
sagt að borgarbúar séu ekki í meiri hættu
en venjulega, engin ástæða sé til að óttast.
Forsetar funda um framhaldið
Forseti Frakklands, François Hollande,
vill að lönd heimsins sameinist í að útrýma
hryðjuverkasamtökunum og hafa Frakkar
gert þrjár stórar skotárásir á Raqqa, höfuð-
vígi Ríkis íslams, frá því að árásirnar áttu
sér stað í París. Rússar hafa líka látið
sprengjum rigna á Raqqa eftir að hryðju-
verkasamtökin lýstu yfir ábyrgð sinni á því
að hafa sprengt rússnesku farþegaþotuna
yfir Sínaí skaganum í síðasta mánuði, með
þeim afleiðingum að 224 létust. Hollande
og forseti Rússlands, Vladimir Pútín,
munu hittast í Moskvu þann 26. nóvember
næstkomandi til að fara yfir þær aðgerðir
sem gerðar verða í framhaldinu, tveimur
dögum eftir áætlaðan fund Hollande og
forseta Bandaríkjanna, Barak Obama.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Hryðjuverkin í París
Höfuðpaur hryðju-
verkanna fallinn
Abdel Hamid Abu Oud, heilinn á bak við hryðjuverkin í París, lést í áhlaupi frönsku lögreglunnar
á íbúð í St. Denis-hverfinu síðastliðinn miðvikudag. Þetta staðfesti franska lögreglan í gær. Abu
Oud er talinn hafa gengið til liðs við Ríki íslams eftir heimsókn til Sýrlands fyrir tveimur árum.
Bernard Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakklands, hvatti í gær evrópska stjórnmálamenn til að
herða allt landamæraeftirlit og óskaði eftir neyðarfundi innanríkisráðherra sambandsins ekki
síðar en í dag, föstudag.
Abdel Hamid Abu Oud lést í áhlaupi frönsku lögreglunnar á íbúð í St.Denis hverfinu í París síðastliðinn miðvikudag. Hann er
sagður vera heilinn á bak við hryðjuverkin. Samverkamaður hans, Salah Abdeslam, er enn á flótta. 129 manns létust í hryðju-
verkunum í París síðastliðinn föstudag og yfir 350 slösuðust. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
Abu Oud ...
var dæmdur
í 20 ára
fangelsi í
júlí síðast-
liðnum
en stærði
sig af því
í viðtali
stuttu síðar
við Dabiq,
tímarit ísl-
amska ríkis-
ins, að hafa
auðveldlega
komist und-
an belgísku
lögreglunni.
12 fréttaskýring Helgin 20.-22. nóvember 2015
Audi A4
1.8T 163Hö
2.150.0002008
137
VW Polo
1.2 TDI Trendline
BMW 520D
Skoda Citigo
Active 1.0
Toyota
Aygo
2.250.000
3.490.000
1.680.000
890.000
2014
2008
2014
2007
23
60
142
9
Audi Q7
3.0 TDI 240Hö
4.890.0002008
VW Golf
A7 Highline 1.4
Hyundai IX35
GLS
Skoda Octavia
Ambiente 1.6 TDI
Mazda 2
3.790.000
2.390.000
3.340.000
1.580.000
2015
2011
2014
2012
65
Klettháls 13 · HeklaNotadirBilar.is · 590 5040
149
40
4
160
Stálslegnir
morgunhanar
Heimavanir
Raf / Bensín
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
30