Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 74
FORDRYKKUR – freyðivín
FORRÉTTIR
SÍLD
egg jarauðukrem, sýrðir laukar, stökkt rúgbrauð
DILL GRAFLAX
heimagert brioche brauð, dillmæjó og ást
HUMAR
rósmarín og jólatré
SVÍNASÍÐA
eplasulta og hnetur
TVÍREYKT HANGIKJÖTS TARTAR
jarðskokkauppstúfur og kartöflur
KRÓNHJARTAR „TATAKI“
bláber og gráðaostur
AÐALRÉTTIR
SALTFISKUR „CACHI“
með volgu epla- og kartöflusalati
GRILLUÐ NAUTALUND
bakaðar rauðrófur, piparrótarkrem, sveppir
og rauðrófugljái
EFTIRRÉTTUR
JÓLAKÚLA
fyllt með kirsuberjageli og hvítsúkkulaði- kirsuberjamús.
Borin fram með pan d´epice ís og piparköku “crumble”
9.500 kr.
JÓLIN Á
APOTEKINU
Jólaseðill
9 rétta jólaveisla
FRÁ KL. 17
BORÐAPANTANIR Í SÍMA 551 0011
Aðeins framreitt fyrir allt borðið.
Austurstræti 16 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR
TónlisT KammermúsíKKlúbburinn í Hörpu
Flytja verk Beethoven,
Brahms og Rebeccu Clark
K ammermúsíkklúbburinn heldur þriðju tónleika sína á þessu starfsári á sunnu-
daginn í Norðurljósasal Hörpu.
Tónleikarnir hefjast klukkan 19.30
og á efnisskránni eru verk eftir
tvo af risum tónlistarsögunnar,
þá Ludwig van Beethoven og Jo-
hannes Brahms, en einnig áhuga-
vert verk eftir enska tónskáldið
Rebeccu Clarke (1886-1979),
en tónlist hennar vekur æ meiri
athygli.
Flytjendur eru Einar Jóhannes-
son klarínettuleikari og steng-
jakvartett sem skipaður er fiðlu-
leikurunum Nicola Lolli og Mark
Reedman, víóluleikaranum Ásdísi
Valdimarsdóttur og Sigurgeir
Agnarssyni sem leikur á selló.
Kammermúsíkklúbburinn hefur
starfað óslitið frá árinu 1957 og
heldur tónleika fimm sinnum á
vetri. Fjölmargir greiða árgjald
til klúbbsins en einnig er hægt að
kaupa staka miða á tónleika klúbbs-
ins í miðasölu Hörpu og kosta þeir
3.900 kr.
Kammermúsíkklúbburinn á æfingu fyrir tónleika í Hörpu. Í fremri röð, talið frá
vinstri: Einar Jóhannesson og Ásdís Valdimarsdóttir. Aftari röð: Nicola Lolli, Mark
Reedman og Sigurgeir Agnarsson.
É g skuldaði yngstu dóttur minni eina plötu svo ég neyddist til þess að gera
þetta,“ segir Bragi Valdimar
spurður út í tildrög barnabókaplöt-
unnar. „Þetta er orðinn þríleikur.
Eitthvað af þessu efni var til eftir
að við gerðum Diskóeyjuna og
annað var nú bara gert svona með
vorverkunum. Eins og svo oft áður
þá var það Kiddi sem var nýkom-
inn af einhverjum túr og vantaði
eitthvað að gera, sem varð til þess
að við réðumst í gerð þessarar
plötu,“ segir Bragi og talar þar um
Guðmund Kristinn Jónsson, Kidda
Hjálm, sem hefur verið hans helsti
samstarfsmaður í gegnum tíðina.
Bæði með Baggalúti og öðrum
verkefnum.
„Það er enginn rauður þráður
í gegnum þessa plötu eins og á
Diskóeyjunni,“ segir hann. „Þetta
er meira í ætt við Gilligill. Hinar
ýmsu stemningar en það eru nokk-
ur kvikindi af Diskóeyjunni sem
skjóta upp kollinum, en annars er
þetta bara samsull,“ segir Bragi.
„Aðallega bara fjör.“
Á plötunni eru söngvarar sem
hafa verið áður á plötum Braga,
eins og Magga Stína, Sigríður
Thorlacius, Sigtryggur Baldurs-
son og Sigurður Guðmundsson.
Eitt nafn á meðal flytjenda vekur
aðeins meiri athygli en annarra og
er það Jón Gnarr. „Jóni rann blóðið
til skyldunnar þar sem eitt lagið
heitir Mannanafnanefnd,“ segir
Bragi.
„Að gera tónlist fyrir börn er
einhverskonar blæti hjá mér. Mað-
ur hlustaði mikið á Eniga Meniga
og Halla og Ladda og slíkt efni
þegar maður var yngri og á þeim
tíma var mikil gósentíð í barnaplöt-
um,“ segir hann. „Maður skoðaði
umslögin og slíkt. Pælingin hjá
mér var sú að í stað þess að hafa
bara plötu, að hafa líka bók sem
hægt væri að lesa á meðan hlustað
er á plötuna. Þetta eru mjög stuttar
sögur og henta vel til lesturs og til-
litssamar í garð foreldranna sem
þurfa oft að lesa þær. Ég hef reynt
að láta þessar sögur höfða til míns
sjálfs,“ segir hann. „Maður getur
leyft sér meira í barnaefni, sem er
þó um leið svolítil þversögn. Börn
eru svo fordómalaus og maður get-
ur leyft sér að fara fram af grens-
unni og látið allt flakka. Þetta er
þó bara um raunveruleikann sem
fólk þekkir,“ segir Bragi Valdimar
Skúlason texta- og lagahöfundur.
Útgáfuhóf Karnivalíu verður
á KEX hostel á sunnudaginn þar
sem margir af flytjendunum koma
fram og syngja lögin af plötunni
og Bragi les upp úr bókinni. Út-
gáfusprellið hefst klukkan 13 og er
opið öllum.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
úTgáfa Karnivalía er ný barnabóKaplaTa braga valdirmars
Skuldaði yngstu
dótturinni eina plötu
Bragi Valdimar Skúlason, sem gjarnan er kenndur við Baggalút, gaf út á dögunum barnabóka-
plötu sem heitir Karnivalía. Bragi hefur áður samið fyrir börn á plötunum Gilligill og Diskóeyjan
sem báðar nutu mikilla vinsælda hjá yngri kynslóðinni, og foreldrum hennar. Í þetta sinn er ekki
bara diskur með lögum Braga heldur er líka bók sem er nokkurskonar söngskreytt ljóðabók, eða
myndasögubók með fylgitónlist, eins og segir á bakhlið bókarinnar.
„Að gera tónlist fyrir börn er einhverskonar blæti hjá mér.
Maður hlustaði mikið á Eniga Meniga og Halla og Ladda og
slíkt efni þegar maður var yngri og á þeim tíma var mikil
gósentíð í barnaplötum.“ Ljósmynd/Hari
74 menning Helgin 20.-22. nóvember 2015