Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 42
42 Lífsstíll 11.–13. janúar 2013 Helgarblað
Mæður í ofþyngd nota
sjónvarpið meira
n Ársgömul börn horfa á sjónvarp í þrjá tíma á dag
S
amkvæmt nýrri rannsókn há-
skólans í Norður-Karólínu
eru mæður í ofþyngd líklegri
en aðrar til að róa erfið börn
sín með því að koma þeim fyrir fyrir
framan sjónvarpið.
Vísindamenn sem stóðu að
rannsókninni vonast til þess að
niðurstöðurnar hjálpi þeim að
skilja af hverju æ fleiri ungbörn
þjást af offitu og hreyfingarleysi.
Niðurstöðurnar munu einnig
hjálpa heilbrigðisstarfsfólki að að-
stoða mæður við að breyta upp-
eldisaðferðum sínum. Rannsóknin,
sem birtist í tímaritinu Pediatrics,
beindi sjónum að því hvernig hegð-
un móður tengist oft hegðun barns-
ins. Fylgst var með 217 mæðrum í
Norður-Karólínu á yfir 18 mánaða
tímabili. Í rannsókninni var ekki
athuguð hegðun feðra.
Í ljós kom að of feitar mæður
horfðu mun meira á sjónvarp og
voru mun líklegri til að setja óróleg
börn sín fyrir framan sjónvarpið.
Tæp 40 prósent ársgamalla barna
sátu fyrir framan sjónvarp í þrjá
klukkutíma á dag eða einn þriðja
af sínum vökutíma. Börn ómennt-
aðra mæðra voru líklegri en önnur
til að vera mötuð fyrir framan sjón-
varpið.
„Að gefa ungbarni að borða fyrir
framan sjónvarp getur orðið til þess
að móðirin taki ekki eftir því þegar
barnið hefur fengið nóg,“ sagði
Margaret Bentley, sem var í hópi
þeirra vísindamanna sem stóð að
rannsókninni. n
1 Nekt á almannafæri Marga dreymir að þeir séu staddir í vinnu
eða skóla þegar þeir uppgötva, sér til
skelfingar, að þeir eru allsberir.
Merking: Þessi draumur gæti bent til
þess að þú búir yfir leyndarmáli sem þú
skammast þín fyrir. Á hinn bóginn gæti
þessi leiðindadraumur verið vísbending
undirmeðvitundar um að sleppa tökun-
um og láta drauma þína rætast.
2 Einhver eltir þig Eflaust kannast margir við að vakna kóf-
sveittir eftir að hafa verið eltir í draumi.
Stundum er sá sem eltir einhver sem
við könnumst við en oft er það einhver
óskilgreindur.
Merking: Þú ert undir of miklu álagi,
hvort sem það er vegna vinnu eða af
persónulegum ástæðum.
3 Meiðsl eða dauði Að slasast eða deyja eða að einhver náinn þér
slasast eða deyr er algeng martröð. Oft
fylgir henni slæm tilfinning sem verður
til þess að okkur finnst erfitt að fara að
sofa aftur.
Merking: Slíkir draumar þurfa ekki að
þýða eitthvað slæmt. Líklegra er að þú
hafir áhyggjur af einhverjum eða að þú
sért tilbúinn til að hefja nýjan kafla í þínu
lífi.
4 Fall Að dreyma að maður sé að detta af einhverju háu er algeng
martröð.
Merking: Sumir draumasérfræðingar
segja merkinguna vera þá að viðkomandi
finnist hann staddur í óyfirstíganlegum
aðstæðum og upplifi sig hjálparvana.
5 Að komast ekki út Dreymir þig stundum að þú komist ekki
út úr einhvers konar völundarhúsi, sért
fastur inni í lyftu eða eitthvað álíka?
Merking: Margir álíta að merking þessar-
ar martraðar sé svipuð þeirri og þegar við
erum elt í draumi. Aðrir telja það að vera
fastur merki ringulreið.
Algengar
martraðir
– og merking þeirra
Börn þjást
vegna offitu
Niðurstöðurnar munu
hjálpa heilbrigðisstarfs-
fólki að aðstoða mæður
við að breyta uppeldis-
aðferðum sínum.
Jákvæð heilsubót
í upphafi nýs árs
n Nóg að hreinsa út eitrið í einn dag n Stíft aðhald ekki nauðsynlegt
1 Byrjaðu daginn á heimalöguðum
heitum drykk Gott er
að sjóða vatn og setja
út í það svolítið af fersku
engifer, sítrónu og hun-
angi. Drykkurinn er hreins-
andi og hollur.
2 Borðaðu prótín í
morgunmat
Fáðu þér eggja-
hræru með
tveimur omega
eggjum, fersku
spínati og tómötum.
Ef þú vilt ekki egg, þá getur þú feng-
ið þér skyr með ávöxtum, hnetum og
ávöxtum. Þeir sem vilja, geta aðeins
notað hvítuna og borið nokkur fersk
ber eða ávexti fram með eggjunum.
3 Svitnaðu Fáðu þér rösklegan
göngutúr, farðu í rækt-
ina eða finndu þér ein-
hverjar skemmtilegar
tómstundir sem krefjast
hreyfingar. Ekki ofgera
þér í byrjun árs, það er ekki
vænlegt til árangurs.
4 Drekktu mikið af
vatni Þegar þú
ert að hreinsa
líkamann, er
mikilvægast að
drekka mikið af
vatni. Við drekkum
vanalega ekki nærri því nógu mikið
af vatni svo í hreinsunarátaki gefst
gott tækifæri til að leiðrétta slíkt.
Drekktu um tvo og hálfan lítra á
dag, gjarnan þrjá lítra ef þú stundar
líkamsrækt.
5 Borðaðu mikið af
grænmeti Gott
mataræði er í raun
afar einfalt og það
má gera orð nær-
ingarfræðingsins
Michaels Pollan að
sínum: Borðaðu grænmeti og mikið
af því!
Þegar þú ert í hreinsunarátaki þá
er mikilvægt að borða auðmeltan
mat og þótt kjöt sé næringarríkt og
í sjálfu sér hollt þá er betra að halda
sig við grænmetið um tíma sé ætlun-
in að létta á meltingunni.
6 Farðu í gufubað
Þunnt lag af eitur-
efnum hvílir und-
ir húðinni sem
gott er að hreinsa
út af og til. Með því
að fara í gott gufu-
bað svitnar þú á annan máta en við
hreyfingu og losar um eiturefnin.
mat og þótt kjöt sé næringarríkt og
í sjálfu sér hollt þá er betra að halda
sig við grænmetið um tíma sé ætlun-
in að létta á meltingunni.
DV1301106275
Farðu í gufubað
Þunnt lag af eiturefnum hvílir
undir húðinni sem gott er að hreinsa
út af og til. Með því að fara í gott
gufubað svitnar þú á annan máta en
við hreyfingu og losar um eiturefnin.
Heilbrigt matar-
æði eftir hreinsun
Eftir hreinsunarátakið á þér ekki að líða
illa. Þetta milda dagsátak er hugsað sem
íhugun um daglegt mataræði. Vellíðanin
sem fylgir því að hafa hugsað vel um
musteri sálarinnar á að vera hvetjandi til
þess að halda áfram að fylgja heilbrigðu
mataræði.
Hollur og góður morgunmatur
Eggjakaka er góður morgunmatur, gott er
að halda í hann sem morgunverð, eða skyr-
ið. Chia-grautur er líka tilvalinn prótíngjafi
og auðvelt er að laga slíkan graut.
Millimálsbiti
2–4 gulrætur með hummus
Hádegismatur
Ein sneið af grófu rúgbrauði, með kjúklinga-
áleggi eða fiski steiktum úr hveiti með
salati, tómat, hálfu avókadó og fersku
spínati. Dressing: 1 msk. sýrður rjómi, 1 tsk.
sinnep, dill og smakkað til með salti og
pipar.
Millimálsbiti
Lófafylli af ósöltuðum hnetum og ávöxtum.
Kvöldmatur
200 gr fiskur eða kjúklingur
Gufusoðið grænmeti og ferskt salat
Handfylli af brúnum hrísgrjónum
Kvöldsnarl
Fáið ykkur endilega kvöldsnarl og hlakkið til
þess. Það er erfitt að neita sér um slíkt. Gott
er að fá sér hrökkbrauð með kotasælu með
gúrku og tesopa, harðfisk og sódavatn og í
dekurskyni má skera niður epli, dreifa höfrum
og kanil yfir og baka í ofni. Með þessu er
hægt að bera fram undanrennu sem er hituð
í potti með vanillu, í heita mjólkina er bætt í
maizena-mjöli og hitað að suðu. Vanillusósan
og bökuðu eplin uppfylla vel við sætuþörfina
sem stundum gerir vart við sig.