Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 12
VANTREYSTU BJÖRT
12 Fréttir 11.–13. janúar 2013 Helgarblað
n Stjórnarmeðlimir Geðhjálpar segist hafa verið beittir blekkingum af fyrrverandi formanni félagsins
V
antrauststillaga var sam-
þykkt á hendur fyrrver-
andi formanni Geðhjálpar,
Björt Ólafsdóttur, áður
en hún sagði af sér for-
mennsku í félaginu um miðjan des-
ember. Ástæðurnar, að sögn núver-
andi formanns og meðstjórnanda,
eru starfshættir formannsins fyrr-
verandi, meint smölun í félagið fyrir
kosningar til stjórnar árið 2011 og
falsanir á kjörgögnum 2012. Þau
segja einnig að stjórn og umsækj-
endur hafi verið blekkt í tengslum
við ráðningu framkvæmdastjóra fé-
lagsins. Í ósk um úttekt á málefnum
félagsins sem lögð var fram 28. nóv-
ember síðastliðinn af Svandísi Nínu
Jónsdóttur, er gerð krafa um svör við
ýmsum álitamálum, meðal annars
hvernig farið sé með fé Geðhjálpar
og hversu stór hluti þess nýtist not-
endum, um gagnsæi í ákvarðana-
töku og hvernig stjórnir Geðhjálpar
séu myndaðar. Björt vísar þessum
ásökunum á bug.
Gjaldkeri sem mætti ekki
Forsögu málsins má rekja allt til
þess þegar Björt var kosin formaður
félagsins, í apríl 2011. Þá hafði hún
nýlega skráð sig í félagið en það
gerði hún 22. febrúar sama ár. „Frá
og með síðasta hausti fór að bera
á vissum misklíðum innan núver-
andi stjórnar, en taka ber fram að
átök innan stjórnar voru í raun við-
varandi frá upphafi formannstíðar
Bjartar. Upphaflegu athugasemd-
irnar sem ég hafði við þetta að gera
voru í raun stjórnarhættir formanns
sem mér fannst einhvern veginn al-
veg út úr öllu korti,“ segir Jón Birgir
Einarsson, núverandi formaður
félagsins, sem var kosinn í stjórn í
marsmánuði síðastliðnum. „Þetta
er fyrsta stjórnin sem ég sit í þannig
ég vissi ekki almennilega hverju ég
átti að búast við. Það atvik sem þó
sannfærði mig um að eitthvað mik-
ið væri að var skeytingarleysi fráfar-
andi formanns um ábyrgð og skyld-
ur stjórnarmanna.
Í ágúst kaus stjórnin gjaldkera
en félagið þiggur um það bil 25
milljónir í opinbera styrki og veltir
í heildina um 50 milljónum á ári.
Þessi gjaldkeri mætir svo á einn
fund á tæplega þriggja mánaða
tímabili og hafði á þeim tíma ekkert
sett sig inn í bókhald félagsins. Ég
bar þá upp fyrirspurn hvort þetta
væri ásættanlegt og, að tilstuðlan
annars meðstjórnanda, var stungið
upp á að annar gjaldkeri, sem hefði
tíma til að sinna þessu embætti,
yrði kosinn. Þessi gagnrýni þótti
afskaplega ósmekkleg og var talin
fyrir neðan virðingu stjórnar. Síð-
an var gengið til atkvæða um mál-
ið án stuðnings formanns sem tók
ekki afstöðu til þess hvort ætti að fá
nýjan gjaldkera, sem myndi sinna
starfinu, eða hvort það ætti áfram
að vera gjaldkeri sem hugsanlega,
mögulega myndi kíkja á bókhaldið.
Björt tók það sérstaklega fram að
hún gerði engar sérstakar kröfur til
stjórnarmanna, þeir ættu bara að
gera sitt besta og fannst þessi kosn-
ing ekki eiga neinn rétt á sér,“ segir
Jón Birgir og segist hafa furðað sig á
þessum stjórnarháttum Bjartar. „Því
fylgir ábyrgð að vera í stjórn félaga
og er það eitt af hennar hlutverkum
að sjá til þess að bókhald félagsins
sé í lagi. Þetta var upphafið að ferl-
inu; þarna fer að myndast töluvert
vantraust og í kjölfarið urðu sam-
skiptin frekar furðuleg,“ segir hann
og tekur fram að önnur tilvik og sem
þau telji ekki síður ámælisverð hafi
orðið til þess þau, ásamt fleirum
innan stjórnarinnar, hafi farið að
efast um hæfni og heilindi Bjartar
sem formanns félagsins.
Segja smölun hafa átt sér stað
Jón Birgir segir að í kjölfarið hafi þau
farið að skoða bakland formannsins
innan félagsins en sögusagnir
höfðu verið á kreiki þess efnis að
nýjum félagsmönnum hefði ver-
ið smalað í félagið fyrir kosningu
til stjórnar 2011, þegar Björt kom
ný inn. Einkennilegt hefði þótt að
einstaklingur sem ekki væri kunn-
ugur málefnum félagsins hefði ver-
ið kosinn til að stýra því. „Okkur
lék forvitni á að vita hvert hennar
bakland væri, ég hafði heyrt ýmis-
legt skrýtið varðandi kosningarnar
2011. Ég fór í félagatalið og athugaði
nýskráningar á heimasíðu félagsins
í aðdraganda kosninganna. Björt
kannaðist ekki við neitt óeðlilegt
þegar hún var spurð út í þetta. Frá-
farandi ritari sagði að auki að þetta
hefði verið athugað og ekkert óeðli-
legt komið í ljós. Það sem kom síð-
an á daginn, þegar ég kíkti á þessar
nýskráningar 2011, að mjög greini-
leg smölun hafði átti sér stað þegar
tæpur mánuður var í aðalfund.
Samkvæmt lögum Geðhjálpar þá
þurfa félagsmenn að hafa verið í fé-
laginu í að minnsta kosti mánuð til
þess að vera kjörgengir og atkvæða-
bærir. Þessi smölun tengdist öll
Björt sjálfri og vinkonu Bjartar sem
var þá starfsmaður á skrifstofu Geð-
hjálpar. Þegar ég fór að skoða þetta
kom í ljós að á þriðja tug aðila, sem
tengjast starfsmanninum og fráfar-
andi formanni beint, skráðu sig í fé-
lagið á þessum tæpa mánuði fyrir
aðalfund og þar til nokkrum dög-
um fyrir hann. Það er einkennilegt
í ljósi þess að það blasir við að þetta
fólk hefði að öllu jöfnu ekki orðið
atkvæðabært fyrir aðalfundinn,“
segir Jón Birgir. Að hans sögn, er
um að ræða fjölskyldumeðlimi, vini
og fyrrverandi samstarfsfólk starfs-
mannsins og fráfarandi formanns.
„Allt er þetta fólk sem tengist þeim
beint en málstaðnum mjög svo
óljóst. Baklandið kemur allt utan
frá,“ segir hann.
Utanaðkomandi
yfirtaka á félaginu
Aðalfundur félagsins átti að vera
19. mars 2011 en var seinkað vegna
þess að fundarboð var sent út degi of
seint. „Það uppgötvaðist að gleymst
hafði að senda út fundarboð í tæka
tíð, en engu að síður var það sent
út, þó menn vissu að það væri of
seint,“ segir hann og bætir við að
þegar nálgaðist aðalfund, hafi Björt
sent þáverandi framkvæmdastjóra
tölvupóst þar sem hún krafðist
þess að boðað yrði til fundarins að
nýju. „Aðalfundi var síðan seink-
að um heilan mánuð og því urðu
allir nýir félagsmenn sem tengd-
ust framboði Bjartar kjörgengir á
einu bretti. Þetta lítur skringilega
út, enda hefði verið langauðveldast
að seinka fundinum um viku þegar
þetta komst upp, og forða sér frá
þessum tvíverknaði og aukakostn-
aði,“ segir hann. „Hvort sem það
er tilviljun eða ekki þá var þessi
gleymska mjög heppileg fyrir Björt.
Allir hennar stuðningsmenn urðu
atkvæðabærir án þess að hætta væri
á smölun úr annarri átt, hefðu aðr-
ir viljað beita sömu aðferðum,“ segir
Svandís Nína Jónsdóttir. „Þarna var
í raun bara um utanaðkomandi yfir-
töku á félaginu að ræða. Björt hlaut
um 30 atkvæði á móti öðrum sem
hafði áður setið í stjórn sem fékk
líka 30 atkvæði en þriðji frambjóð-
andinn fékk einungis tvö atkvæði.“
Aðalfundurinn var sá fjölmennasti
frá upphafi að sögn viðstaddra. Þar
sem atkvæðin skiptust jafnt milli
tveggja var kastað hlutkesti sem
leiddi þess að Björt vann.
Skráningin fölsuð
Í kjölfar atkvæðagreiðslunnar varð
Björt formaður og segja þau marga
hafa furðað sig á því þar sem hún
hafði ekki tengst félaginu á nokkurn
hátt áður. Árið 2012 var aftur kosið
til stjórnar félagsins og fyrir þær
kosningar var hringt í Svandísi sem
hafði ekki tengst félaginu áður og
hún beðin um að bjóða sig fram í
stjórn þess. „Það var hringt í mig
viku fyrir aðalfund, ég vissi mjög
lítið um þetta félag. Ég hafði skrif-
að pistil um geðsýki. Fyrst hringdi
þessi starfsmaður í mig og svo for-
maður og vildu endilega að ég byði
mig fram í stjórn. Ég var mjög hik-
andi, ég taldi mig ekki hafa tíma
og svo framvegis. Þær hvöttu mig
til þess og sögðu að það skipti ekki
máli þó ég hefði ekki tíma, það væri
fullt af fólki sem hefði lítinn tíma
en gæti samt verið í stjórn. Ég lét til
leiðast. Viku fyrir aðalfund skráði
ég mig og sendi þetta framboð.
Síðan ákvað ég að mæta ekki einu
sinni á aðalfundinn því ég hugsaði
að það myndi enginn kjósa mig því
það þekkti mig enginn þarna,“ segir
Svandís.
Þrátt fyrir það hlaut hún 23 at-
kvæði af 32 gildum. „Þarna voru
þær að reyna taka til í stjórninni og
fá út fólk sem var ekki hliðhollt sér,“
segir Svandís. Hún segist fyrst um
sinn ekki hafa haft neitt við stjórn-
ina að athuga enda þekkti hún
ekki til mála innan félagsins. „Síð-
an þegar ég fór að lesa lög félagsins
brá mér eðlilega í brún þegar ég tók
eftir því að ég sæti ólöglega í stjórn
þar sem ég hafði verið skráð í fé-
lagið viku fyrir aðalfund og því ekki
kjörgeng,“ segir hún. Þegar hún fór
að kanna málið betur segir hún það
hafa komið betur í ljós að eitthvað
væri bogið við félagatal Geðhjálpar.
„Ég fékk að sjá hjá bókara skrán-
inguna og í skjalinu stendur að ég
hafi verið skráð í félagið 22. febrú-
ar, fimm vikum fyrir aðalfund, sem
fæst ekki staðist. Þær vissu ekki að
ég væri til fyrr en eftir 16. mars út af
þessum pistli. Þarna fóru að renna
á mig tvær grímur og gott betur en
það því að skráning mín hafði aug-
ljóslega verið fölsuð,“ segir Svandís.
Hún segist hafa reynt að tala um
málið á stjórnarfundi og hafi búist
við viðbrögðum vegna þess. „Það
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„Ég tók leigubíl
fram og til baka
á kostnað Geðhjálpar og
mitt atkvæði gulltryggði
hennar ráðningu.
Kurr í fyrri stjórn Nokkrir fyrrverandi stjórn-
armeðlima lýstu yfir vantrausti á fyrrverandi
formann félagsins, Björt Ólafsdóttur. Skömmu
seinna sagði hún af sér formennsku og fór í
Hús Geðhjálpar Núverandi
formaður og annar stjórnarmeð-
limur segja fyrrum formann hafa
beitt blekkingum við ráðningu á
framkvæmdastjóra félagsins.