Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 15
14 Fréttir Epal | Kastanía, Höfðatorgi | Meba-Rhodium, Kringlu og Smáralind | Gilbert úrsmiður, Laugavegi | GÞ skartgripir, Bankastræti Dýrfinna Torfa, Akranesi | Georg V. Hannah, Reykjanesbæ | Karl R. Guðmundsson, Selfossi | Gullsmiðir Sigtryggur og Pétur, Akureyri Jón Bjarnason tilkynnti að hann hygðist ekki bjóða sig fram í kom- andi kosningum. Kom sú ákvörðun fáum á óvart sem DV ræddi við enda Jón orðinn 69 ára. Afar ólíklegt þykir að hann hyggist fara í sérframboð. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir lét af þingmennsku um síðustu áramót og áður höfðu þau Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir yfirgefið flokkinn og þá skipti Ásmundur Einar Daðason yfir í Framsóknarflokkinn. Ögmundur verður því einn eftir af þeim þingmönnum Vinstri-grænna sem lýst hafa yfir sem mestri óá- nægju með störf flokksins á tímabil- inu. Vildi einn viðmælandi sem DV ræddi við meina að Steingrímur hafi verið að biðla til Ögmundar þegar hann lét þau orð falla í nýárskveðju til flokksmanna Vinstri-grænna að óumflýjanlegt væri að endurmeta stöðu viðræðna við Evrópusam- bandið í ljósi breyttra forsendna. Það kom þó ekki fram í nýárskveðju Steingríms hverjar þessar breyttu forsendur væru. Á það var einnig bent af einum viðmælanda DV að ekki megi gleyma því hverjir hafi verið arkitektar nú- verandi ríkisstjórnarsamstarfs. Talið er að þeir Steingrímur J. Sigfússon, Ögmundur Jónasson, Össur Skarp- héðinsson og Lúðvík Bergvinsson hafi átt fund á heimili Lúðvíks þegar í byrjun árs 2009. Þar hafi grunnur- inn verið lagður að núverandi sam- starfi Samfylkingarinnar og Vinstri- grænna sem nú hefur staðið í nærri fjögur ár. Það var heldur ekki sjálf- gefið að Samfylkingin og Vinstri- grænir tækju upp samstarf eftir kosningarnar 2009. Samfylkingin hafi verið í mjög góðri stöðu eftir að hafa flotið nærri 30 prósenta fylgi. Henni hafi verið fært að mynda ríkis- stjórn með Framsóknarflokknum og Borgarahreyfingunni. Þurfa að ná til yngri kjósenda Þá var einnig bent á það að flokksmönnum Vinstri-grænna væri hollt að rifja upp hvað stóð í ríkisstjórnarsáttmála Samfylk- ingarinnar og Vinstri-grænna. „Ákvörðun um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði í hönd- um íslensku þjóðarinnar sem mun greiða atkvæði um samning í þjóðaratkvæðagreiðslu að loknum aðildarviðræðum. Utanríkisráð- herra mun leggja fram á Alþingi til- lögu um aðildarumsókn að Evrópu- sambandinu á vorþingi,“ segir í honum. Því er þó ekki að neita að líklega hefði verið mun farsælla fyrir samstarf núverandi ríkis- stjórnar ef þjóðaratkvæðagreiðsla hefði verið haldin um það hvort Ís- land ætti að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Á það benti Margrét Tryggvadóttir, þingmað- ur Hreyfingarinnar, í áramótagrein sinni sem birtist í Morgunblað- inu. En líkt og Svanur Kristjánsson bendir í viðtali við DV er það mikil- vægasta verkefni Vinstri-grænna að virkja yngri flokksmenn sem og að ná yngri kjósendum á kjörstað. Ef það tekst vel gæti flokkurinn náð allt að 15 prósenta fylgi í komandi kosningum. n‘ Fréttir 15 Helgarblað 11.–13. janúar 2013 var í kringum 1.000 punkta í byrjun febrúar árið 2009 þegar Vinstri-græn- ir hófu stjórnarsamstarf við Samfylk- inguna og Steingrímur tók við sem fjármálaráðherra. Samkvæmt vefsíð- unni keldan.is er skuldatryggingar- álag ríkissjóðs nú komið í 175 punkta og er því nærri sex sinnum lægra nú en þegar hann varð fjármálaráðherra. Einnig nefnir Svanur að það verði ekki öfundsvert hlutskipti fyrir for- menn annarra stjórnmálaflokka að mæta Steingrími í kappræðum í kom- andi kosningabaráttu. „Steingrímur J. Sigfússon er einn málsnjallasti og sterkasti stjórnmálaforingi sem fram hefur komið á Íslandi og hefur marga fjöruna sopið. Hann mun því ekkert leggjast niður fyrir komandi kosningar og láta rúlla yfir sig í kosningabarátt- unni – hann mun sækja fram og telur sig hafa gert vel,“ segir hann. n Svanur segir áframhaldandi stjórnarsamstarf vera útilokað É g hyggst ekki gefa kost á mér til áframhaldandi varafor- mennsku í okkar góða jafnaðar- mannaflokki á komandi lands- fundi,“ skrifar Dagur B. Eggertsson í bréfi sem hann sendir flokksfélög- um sínum í Samfylkingunni. Hann segir ýmsar ástæður fyrir þessari ákvörðun sinni. Á hinum pólitíska vettvangi segir hann vega þyngst að borgarmálin muni eiga hug hans næstu árin þar sem Samfylk- ingin myndar meirihluta með Besta flokknum. „Í Reykjavík bíða áfram stór verk- efni, uppbygging og uppskera af því tiltektarstarfi sem við höfum tekist á hendur og að sjálfsögðu í anda jafn- aðarstefnunnar,“ skrifar Dagur og bætir við: „Ég ætla svo ekki að leyna því að til viðbótar erilsömu starfi í borginni fara verkefni varaformanns misvel með því að eiga tíma með börnum og fjölskyldu. Eggert og Móeiður hafa nú bæst í hóp þeirra Heiðu og Steinars Gauta sem við Arna áttum fyrir þegar ég var kjörinn varaformaður 2009 og það munar um minna.“ Dagur segir það hafa verið sannan heiður að fá að starfa við hlið Jóhönnu Sigurðardóttur, for- sætisráðherra og formanns Samfylk- ingarinnar, síðastliðin fjögur ár. „Þetta hafa verið einstakir tím- ar og ótrúleg reynsla að eiga þátt í að leiða Samfylkinguna í erfiðum samningum og stjórnarmyndun, stefnumótun fyrir Ísland til 2020 og gerð fjárfestingaáætlunar sem ég er sannfærður um að eigi eftir að hafa mikil og jákvæð áhrif.“ Segir Dagur að hann kveðji vara- formennskuna með bros á vör og heitir flokkssystkinum sínum að vera hvergi nærri horfinn úr flokks- starfi eða pólitík. mikael@dv.is Dagur hættir sem varaformaður n Setur fjölskylduna og borgarmálin í forgang Vill sinna fjölskyldunni betur Dagur B. Eggertsson ásamt konu sinni Örnu Dögg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.