Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 16
16 Fréttir 11.–13. janúar 2013 Helgarblað Þ etta er rosalegur léttir. Ég vissi fyrst ekkert hvernig mér leið og langaði bara að fara út í horn og gráta. Þetta var yfirþyrmandi, segir Erna Agnarsdóttir um fyrstu viðbrögð sín við umfjöllun Kastljóss um barna- níðinginn Karl Vigni Þorsteinsson síðastliðinn mánudag. Erna sýndi ótrúlegt hugrekki þegar hún fór til fundar við hann, ásamt Maríu Har- aldsdóttur, fyrst með hljóðupptöku- tæki og síðar falda myndavél. En um- fjöllun Kastljóss var að mestu leyti byggð á upptökunum. Báðar voru þær Erna og María vistaðar á Kumbaravogi um tíu ára skeið og allt frá árinu 2007 hafa þær barist fyrir viðurkenningu á því að börnin á vistheimilinu hafi verið beitt kynferðislegu ofbeldi af hálfu Karls Vignis. Þær hafa nú svo sannar- lega fengið uppreisn æru og vakið þjóðina til umhugsunar um þöggun og meðvirkni með barnaníðingum. Fengu ekki að fara aftur til mömmu Erna var níu ára þegar hún var send ásamt fimm ára bróður sínum, Einari Þór, til vistunar á Kumbaravogi árið 1975. „Barnaverndarnefnd rændi okkur úti á götu. Þetta var reglulega ljótt mál og sýndi hvernig vinnu- brögð barnaverndar voru. Mamma var alkóhólisti en hætti að drekka. Hún var hætt að drekka í mörg ár en fékk okkur aldrei aftur,“ segir Erna. Móðir þeirra barðist fyrir að fá börnin sín heim aftur eftir að hún hætti að drekka, án árangurs. Á þeim tíu árum sem systkinin voru vistuð á Kumbaravogi fengu þau aðeins að hitta móður sína í heimsóknartím- um, einu sinni í mánuði. „Við vorum rænd barnæskunni. Þetta er eitthvað sem ég held ég geti aldrei nokkurn tíma fyrirgefið. Þetta var svo ljótt gagnvart mömmu og okkur Einari auðvitað,“ segir Erna sem verður alltaf reið þegar hún heyrir af barna- verndarmálum þar sem börn eru tekin af foreldrum sínum með valdi. Það ýfir upp hjá henni gömul sár. Náði að fóta sig vel í lífinu Eftir að Erna losnaði af Kumbaravogi árið 1975 náði hún að rækta upp gott og traust samband við móður sína. „Mamma hafði alltaf reynst okkur ofsalega vel, hún var svo hlý og góð kona.“ Erna segist ekki geta hafa verið reið við móður sína, en mörg fóstur- systkini hennar af Kumbaravogi þró- uðu með sér reiði út í foreldrana vegna vistarinnar þar. „Mamma gaf svo gott frá sér.“ Þrátt fyrir erfiða barnæsku, snauða af ást og hlýju, náði Erna að fóta sig vel í lífinu. Hún mennt- aði sig sem sjúkraliði, kynntist góð- um manni og þau eignuðust saman dóttur. „Ég hef lifað nokkuð eðli- legu lífi. Ég og maðurinn minn skild- um reyndar en við erum góðir vinir. Hann er yndislegur maður maður, býr í Noregi og á góða konu.“ Dóttir Ernu er einnig nýflutt til Noregs með börnin sín, en hún er á leið þangað í heimsókn á næstu dögum. Bróðir Ernu var ekki jafn hepp- inn, en hann var einn þeirra drengja sem Karl Vignir beitti kynferðislegu ofbeldi. Einar leiddist út í óreglu og fíkniefnaneyslu fljótlega eftir að hann slapp af Kumbaravogi. Hann lést á voveiflegan hátt í Daníelsslipp þann 1. mars árið 1985, 25 ára að aldri. Vann úr hlutunum og fyrirgaf María var send til vistunar á Kumb- aravogi árið 1966, þá átta ára, en for- eldrar hennar gátu ekki séð um hana, móðir hennar var mikið veik og faðir hennar lifði hálfgerðu bóhemlífi sem hentaði ekki börnum. Áður en María kom á Kumbaravog hafði hún flakk- að á milli vistheimila og dvaldi með- al annars um tíma á Silungapolli og í Reykjahlíð. Árið 1975 tókst henni að strjúka af Kumbaravogi eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir. „Ég var á hnefanum í mörg ár og bjargaði mér, en fór reyndar ekki í nám fyrr en ég var orðin fullorðin,“ segir María sem er í dag viðurkennd- ur bókari. Þá hefur hún tekið fjölda námskeiða hjá Nýja tölvu- og við- skiptaskólanum. „Þá má eiginlega segja að maður sé búinn að vera alla ævina að laga sig til. Ég var í mörg ár að vinna úr hlutunum og fyrirgefa og hef komist vel áfram af sjálfdáðum frá 15 ára aldri.“ Brá minna en þær bjuggust við Erna og María deila erfiðum æskuminningum og hafa haldið sambandi alla tíð. Í rúm þrjátíu ár vissu þær ekki hve alvarlegt ástandið hafði í raun verið á Kumbaravogi. Það var ekki fyrr en árið 2007 að Elvar Jakobsson, fósturbróðir þeirra af heimilinu, ákvað að kæra Karl Vigni fyrir kynferðisbrot að þær komust að sannleikanum. Elvar steig fram og sagði sögu sína í DV, en blaðið fjall- aði í kjölfarið ítarlega um mál Karls Vignis. Í ljós kom að bróðir Ernu hafði einnig orðið fyrir barðinu á honum, ásamt fleirum. Karl Vignir játaði brotin í yfirheyrslum hjá lögreglu árið 2007, en þau voru fyrnd og því ekkert hægt að aðhafast frekar í mál- inu. Sjálf lenti Erna í Karli Vigni, en þó ekki eins illa og drengirnir. „Það vissu allir að hann eltist við mig.“ Hann reyndi að beita Ernu ofbeldi en tókst sem betur fer aldrei ætlunarverk sitt. Hún segir það ekki hafa skipt neinu hvort aðrir fullorðnir sáu til. Hann fékk að atast í henni óáreittur. Ernu var vissulega brugðið þegar í ljós kom hve alvarlegt ofbeldi hafði viðgengist á Kumbaravogi. „Það skrýtna var samt að okkur brá ekki eins mikið og okkur hefði átt að gera,“ segir Erna sem telur að undirmeðvit- undin hafi vitað meira en þær gerðu sér grein fyrir. Tóku málin í sínar hendur Þar sem játning Karls Vignis lá fyrir þegar Vistheimilanefnd tók út starf- semi Kumbaravogs árið 2009, töldu Erna og María að það yrði skýrt í niðurstöðum skýrslunnar að börn á heimilinu hefðu orðið fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi af hans hálfu. Sú varð þó ekki raunin, allavega ekki að þeirra mati. Í skýrslunni segir orðrétt: „… að meiri líkur en minni séu á því að hluti vistmanna á Kumbaravogs- heimilinu hafi sætt kynferðis legu of- beldi af hálfu gestkomandi einstak- lings.“ Ernu og Maríu fannst þetta orða- lag ekki nógu afgerandi og gagn- rýndu niðurstöðurnar. Eftir að hafa talað fyrir daufum eyrum í nokkurn tíma ákváðu þær að taka málin í sín- ar eigin hendur. Þær fóru til fundar við Karl Vigni með upptökutæki inn- an klæða og í þeirri heimsókn ját- aði hann brot gegn fleiri drengjum. Ernu hryllir við að rifja upp fund- ina með Karli Vigni en hún segir að henni hafi brugðið töluvert þegar hún hitti hann aftur, í fyrsta skipti í tæp 40 ár. Hann þekkti þær strax tók vel í heimsókn þeirra og bauð þeim inn á heimili sitt. Vildi á fund með nefndinni Þær höfðu ekki búist við að ná svona miklum árangri með heimsókninni. „Við vildum fá að vita hvað hann hefði borgað Kristjáni Friðbergssyni, forstöðumanni á Kumbaravogi, fyrir að fá aðgang að okkur. Við trúðum því að hann hefði fengið borgað fyrir þetta því Kristján gerði ekkert nema að fá borgað. Kallinn vildi þó ekki viðurkenna neitt svoleiðis,“ segir Erna. Karl Vignir tjáði þeim að hann hefði aldrei verið boðaður á fund með Vistheimilanefnd en sagðist gjarnan hafa viljað hitta nefndina. Róbert Spanó sagði í samtali við DV á miðvikudag að nefndin hefði ekki getað skyldað neinn nema fyrr- verandi starfsmenn Kumbaravogs á fund með sér. Miðað við frásögn Ernu og Maríu hefði þó verið auðsótt mál að fá Karl Vigni á fund. Erna og María sendu Vistheim- ilanefnd upptökurnar frá heimsókn- inni til Karls Vignis og töldu víst að þær myndu hafa einhver áhrif. Það gerðu þær hins vegar ekki. „Þetta var bara hvítþvottur hjá nefndinni,“ segir Erna en þær stöllur hafa alltaf kallað Vistheimilanefndina „hvít- þvottanefnd“. Róbert Spanó, formaður Vist- heimilanefndar, sagði í Kastljósi á miðvikudag að störfum nefndarinnar hefði verið lokið þegar upptökurnar bárust og þær hefðu því ekki gagn- ast. Hann viðurkenndi að hafa aldrei hlusta á upptökurnar. „Við verðum að berjast“ Erna segir að þær hafi í raun ekki gert sér grein fyrir því hvað þær voru að fara út í þegar þær ákváðu að heim- sækja Karl Vi gni. „Okkur fannst við þurfa að gera þetta og við bara gerð- um þetta. Við erum vanar því að þurfa að berjast fyrir okkur sjálfar. Við vissum að hann gengi ennþá laus. Við erum mæður, við erum ömmur og við verðum að berjast ef við vitum af svona óréttlæti.“ Þær viðurkenna að vissulega hafi hugmyndin um falda upptökutækið verið svolítið reyfarakennd, en þær töldu þetta nauðsynlegt til að geta komið sínum málum á framfæri. „Hvað gátum við annað gert? Við urðum að hafa þetta skjalfest.“ Upptökutækið fengu þær lánað á Bylgjunni en Erna segir þær mjög ánægðar með það hvernig fjölmiðlar hafa í gegnum tíðina reynst þeim vel. Allt í einu komnar með falda myndavél Aðspurðar hvað þær ætluðu sér upp- haflega að gera við upptökurnar seg- ir Erna þær einfaldlega hafa ætlað að geyma þær sem heimild um baráttu sína. Undir lok síðasta árs höfðu svo fréttamenn Kastljóss samband við þær og vildu fá að hlusta á upp- tökurnar sem þeir höfðu komist á snoðir um. Þá fór boltinn að rúlla af alvöru. Í kjölfarið fóru Erna og María tvisvar að hitta Karl Vigni með falda myndavél frá Kastljósi. „Allt einu voru við komnar með falda myndavél og spæjaralið með okkur,“ segir Erna sem getur ekki varist hlátri þrátt fyrir að umræðu- efnið sé alvarlegt. „Ég var alveg til í þetta strax þó ótrúlegt sé. Mér fannst bara orðið tímabært að gera eitthvað. Það er búinn að vera svo mikill sof- andaháttur í gangi, ég þoli þetta ekki.“ Þær gerðu sér enga grein fyrir því hvernig þetta kæmi út en eru mjög ánægðar með útkomuna. Erna segir það þó ekki hafa hvarfl- að að þeim að þær hefðu svona mik- il áhrif. „Hingað til hefur enginn vilj- að hlusta á okkur um þessi mál. Við erum búnar að reyna í mörg ár.“ Grétu yfir þættinum Erna og María horfðu saman á Kast- ljósþáttinn á mánudaginn ásamt dóttur Maríu. „Við grétum allar, en ætluðum ekki að trúa því. Við erum manneskjur sem grátum yfirleitt ekki,“ segir Erna sem var líka gráti Erna Agnarsdóttir og María Haraldsdóttir sýndu ótrúlegt hugrekki og styrk þegar þær fóru til fundar við barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteinsson upp á eigin spýtur árið 2009 með upptökutæki innan klæða. Hann játaði fyrir þeim kyn- ferðisbrot gegn nokkrum drengjum sem dvöldust á vistheimilinu Kumbaravogi, þar á meðal bróður Ernu. Þessi heimsókn þeirra vatt upp á sig og varð að lokum til þess að Karl Vignir var settur á bak við lás og slá með yfir hálfrar aldar brotasögu á bakinu. Hrósi og þökkum hefur rignt yfir þær stöllur síðustu daga en þær eru hálf feimnar við alla athyglina. Finnst hún helst til mikil. Þær eru þó ánægðar með að fá loksins endalok á mál sem þær hafa barist fyrir árum saman. R n baRnæskunni Fá uppreisn æru Það hvarflaði ekki að Ernu og Maríu að heimsókn þeirra til Karls Vignis árið 2009 myndi vinda svo mikið upp á sig. Þær eru ánægðar með að fá loksins ákveðna lokun. Starfshópur skipaður Forsætisráðherra hefur í kjölfar umfjöllunar um mál Karls Vignis skipað starfshóp embættismanna úr innan- ríkis- , velferðar- og forsætisráðuneyti. Hópnum er ætlað að skila skýrslu um ástandið og leggja fram tillögur til úr- bóta, fara yfir ferla og kanna hvað betur má fara til að koma í veg fyrir að svona mál endurtaki sig. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Viðtal „Við verðum að berjast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.