Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 45
Sport 45 Helgarblað 11.–13. janúar 2013 Líkurnar eru einn á móti fimmtán n Veðbankar setja Ísland í 5. sætið yfir þá sem eru líklegastir til að vinna HM á Spáni Í sland er í fimmta sæti yfir þær þjóð­ ir sem líklegastar þykja til að verða heimsmeistarar á HM í handbolta á Spáni. Mótið hefst í dag, föstu­ dag, en fyrsti leikur Íslands er gegn Rússum á laugardag. Þetta kemur fram á vefsíðunni oddsportal, sem byggir útreikninga sína á meðaltali stuðla þriggja vefmálasíða; Bet365, Paddypower og NordicBet. Líkurnar á því að Íslendingar verði heimsmeistarar í handbolta 2013 eru metnar einn á móti 15,40. Mestar líkur eru á því að Spánverjar verði heimsmeistarar en þeir hafa stuð­ ulinn 3,13. Það þýðir að ef sá sem veðj­ ar á að þeir verði heimsmeistarar legg­ ur eitt þúsund krónur undir, fær hann 3.130 krónur ef Spánverjar vinna. Sá sem veðjar á að Ísland vinni HM fær 15.400 krónur ef hann leggur eitt þús­ und krónur undir. Ólíklegast þykir að Ástralir verði heimsmeistarar. Stuð­ ullinn er einn á móti 4.900,60. Sá sem legði þúsund kall undir fengi tæpar fimm milljónir króna ef sú spá rættist. Veðbankar virðast sammála um að fjögur lið verði í sérflokki á mótinu. Spánverjar eru með stuðulinn 3,13, Frakkar 3,45, Króatar 4,69 og frændur okkar Danir með 5,93. Eins og áður segir leika Íslendingar sinn fyrsta leik gegn Rússum. Þar þykja Íslendingar sigurstranglegri. Stuðull­ inn á íslenskan sigur er 1,64. Stuðull­ inn á rússneskan sigur er 2,78. Ekki er víst að þeir sem best til þekkja séu sammála þessu mati en Íslendingar leika án margra lykilmanna sinna frá undangengnum árum á mótinu. Á hinn bóginn hafa Rússar tekið miklum framförum og fengið liðstyrk frá síðasta stórmóti. n Riðillinn okkar Líkur liðanna í okkar riðli á að vinna HM n Danmörk 1/5,93 n Ísland 1/15,40 n Rússland 1/40,20 n Makedónía 1/88,40 n Katar 1/1.1100,40 n Síle 1/1.700,40 Fagnað á laugardag Íslendingar þykja líklegri en Rússar en það hjálpar lítið inni á vellinum. Þessir verða ekki með Eins og allir vita hafa stór skörð verið höggvin í íslenska lands­ liðshópinn fyrir mótið. Ólafur Stefáns son er ekki með og Alex- ander Petersson ekki heldur. Þá verða Ingimundur Ingimundar- son og Arnór Atlason fjarri góðu gamni vegna meiðsla. En Íslendingar eru ekki þeir einu sem fara á mótið án leik­ manna sem glatt hafa áhorfendur í gegnum tíðina. Flestir missa af keppninni vegna meiðsla. Þjóð­ verjar eru með marga óreynda leikmenn í sínum leikmannahópi. Þýska stór­ skyttan Holger Glandorf gefur ekki kost á sér í þýska landsliðið og hornamaður­ inn Uwe Gensheimer verður ekki með frekar en stór­ skytturnar Lars Kaufmann og Pascal Hens. Markvörð­ urinn Jose Hombrados verður ekki með Spánverjum og sömu sögu er að segja um sleggjurnar marg­ reyndu Iker Romero og Raul Entrerri- os. Að auki verður horna­ maðurinn knái Cristian Ugalde, sem leikur með Barcelona, fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Ungverski markvörðurinn Nandor Fazekas verður ekki með á HM en hann varði einhver 15 ís­ lensk skot í leiknum örlagaríka á síðustu Ólympíuleikum. Serbinn Petar Djordic er með slitið kross­ band og er ekki með. Fleiri má nefna. Þannig verður Wissem Hmam, burðarásinn í liði Túnisa, ekki með landsliði Túnis á Spáni og franski leikstjórnandinn Guillaume Gille, sem unnið hef­ ur sex gullverðlaun á stórmótum með Frökkum, verður ekki með. Annars verða Frakkar með sitt sterkasta lið. Danir mæta kokhraustir með frábært lið til leiks. Tveir reyndir leikmenn eru ekki með, þeir Thomas Mogensen og línumað­ urinn sterki Michael Knudsen. Loks má nefna að galdramað­ urinn brögðótti Ivano Balic verð­ ur ekki með Kró­ ötum. Hann er ekki í formi. Rússar verða án horna­ mannsins Ditry Kovalev, sem er með slitið krossband. Leikir Íslands Stöð 2 Sport keypti sýningar­ réttinn að HM. Leikirnir verða sýndir þar en tveir leikir af fimm verða í opinni dagskrá. Ísland spilar sem hér segir: Laugardagur kl. 17.00 Ísland – Rússland (opin dagskrá) Sunnudagur kl. 14.45 Ísland – Síle Þriðjudagur kl. 17.00 Ísland – Makedónía (opin dagskrá) Miðvikudagur kl. 19.10 Ísland – Danmörk Föstudagur kl 17.00 Ísland– Katar Íslandi í 8 liða úrslit n Fjórir leikmenn að fara á sitt fyrsta stórmót n Framtíðin björt M ér finnst raunhæft að ætlast til þess að þeir fari í 8 liða úr­ slitin,“ segir Einar Örn Jóns­ son, íþróttafréttamaður og fyrrverandi hornamaður í íslenska landsliðinu í handknattleik. Íslendingar leika á laugardag sinn fyrsta leik á HM í handbolta sem fram fer á Spáni. Í svipaðan streng tekur annar fyrrverandi hornamaður lands­ liðsins, Bjarki Sigurðsson, þjálfari ÍR, sem spáir því einnig í viðtali við DV að liðið komist í 8 liða úrslit. Gaml­ ar kempur landsliðsins verða því að teljast nokkuð bjartsýnar á gott gengi liðsins og hafa fulla trú á Aroni Krist­ jánssyni þjálfara. „Það væri frábært en allt umfram það væri stórkostlegt,“ segir Bjarki sem varar þó við of mikl­ um væntingum. Margt þurfi að ganga upp svo liðið komist langt í mótinu. Aron vill auka breiddina Hornamennirnir þekkja báðir vel til Arons Kristjánssonar þjálfara og spá því að hann muni dreifa álaginu á fleiri leikmenn en forverar hans í starfi. Einar segir mikilvægt að nýir menn, sem eru fjórir að þessu sinni, finni fyrir trausti og vonar að Aron noti þá jafnt og þétt í gegnum leikina. Erfitt geti verið að koma inn á í mikil­ vægum leik þegar fimm mínútur eru eftir. „Ég þekki Aron vel,“ segir Einar, sem spilaði lengi undir hans stjórn hjá Haukum. „Hann er mjög duglegur að nota allan hópinn og hann hefur beinlínis sagst ætla að stækka þann hóp leikmanna sem eru til í slaginn.“ Markmiðið hjá Aroni sé því að auka breiddina í íslenska landsliðinu. Góður íslenskur efniviður Einar Örn og Bjarki eru báðir sann­ færðir um að framtíðin sé björt í íslenska landsliðinu. Fjórir leikmenn fæddir 1989 og 1990 séu nú komnir inn á stórmót en það hafi verið mjög góðir árgangar. „Þeir koma núna inn með látum en ég viðurkenni að ég hefði viljað sjá þá fleiri fá eldskírnina fyrir tveimur eða þremur árum. Þeir náðu auðvitað silfri á HM unglinga,“ segir Einar en um er að ræða Ólaf Guðmundsson, Ólaf Gústafsson, Aron Pálmarsson og Aron Rafn Eðvaldsson. Bjarki er einnig ánægður með endurnýjun í liðinu því mikið sé af ungum og efnilegum leikmönnum sem séu farnir að spila með stórliðum erlendis. Fleiri leikmenn hér heima banki sífellt fastar á dyrnar. Efniviður­ inn á Íslandi sé afar góður um þessar mundir. Það er hins vegar ekki hlaupið að því að koma sem nýliði inn í íslenska landsliðið, þar sem væntingarn­ ar eru miklar, og eiga að axla ábyrgð. „ Maður skeit múrsteinum í nokkra daga fyrir fyrsta mótið en svo þegar maður kemur inn á völlinn er þetta bara handbolti,“ segir Einar Örn í létt­ um dúr, beðinn um að lýsa þeirri tilf­ inningu sem fylgdi því að koma sem nýliði á stórmóti inn á völlinn. Hann segist hafa séð menn koma skjálf­ andi á beinunum inn í landsliðið en hefur engar áhyggjur af þeim leik­ mönnum sem nú eru komnir í liðið. Þeir hafi spilað á móti öflugum liðum í Evrópukeppnum og séu flestir farnir að spila með stórliðum í Þýskalandi. „Þetta eru allt strákar sem hafa kaldan koll,“ segir hann léttur og bendir á að innkoma þessara stráka muni nýtast liðinu til framtíðar. Hann bendir í því samhengi á að Arnór Atlason og Alex­ ander Petersson hafi báðir komið nýir inn í landsliðið í Túnis 2005. Stór skörð í sókninni Um riðilinn segir Bjarki að íslenska liðið þurfi á því að halda að smella saman og að menn sýni sitt besta andlit. Honum fannst leikirnir við Túnis lítt marktækir því fyrirstaðan hafi virst lítil. Hann segir að leikurinn gegn Svíum hafi sýnt veikleika sem þurfi að laga fyrir mót „Það kom ber­ lega í ljós að Aron er að verða reynslu­ mikill leikmaður en þegar hann er klipptur út þarf að leysa þá stöðu.“ Aron Rafn Eðvaldsson sýndi, eins og nafni hans, góða takta í æfinga­ leiknum gegn Svíum. Bjarki segir tíma til kominn að gefa honum tækifæri. „Hann kemur klárlega til greina sem framtíðarmarkvörður liðsins,“ segir Bjarki. Hann telur að leikirnir gegn Rússlandi og Makedóníu verði úrlistaleikir um það hvort liðið nái flugi á mótinu. Hann bendir líka á að Katarar stefni hátt og séu að búa til lið fyrir næstu keppni. Ekki megi heldur vanmeta lið Síle. „Við eigum að taka þau lið, nema við föllum í þá gryfju að vanmeta þau.“ Einar Örn er einnig á því að leik­ irnir við Rússland og Makedóníu geti ráðið úrslitum. Ekki sé hægt að gera þá kröfu að Ísland vinni, en að liðið geti vel unnið þessar þjóðir – ef það leiki af þeim krafti sem í því býr. n Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Bjartsýnir hornamenn Bjarki og Einar Örn segja að liðinu ættu allir vegir að vera færir. „Maður skeit múr- steinum í nokkra daga fyrir fyrsta mótið. Frábær Aron Pálmarsson er yngsti leikmaður íslenska landsliðsins en er engu að síður í lykilhlutverki. Gamlar kempur spá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.