Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 35
Menning 35 Helgarblað 11.–13. janúar 2013 „Sósíalistinn sem varð sendiherra“ „Hvítar lygar og svartar“ Hreint út sagt Svavar Gestsson Hvítfeld – Fjölskyldusaga Kristín Einarsdóttir „Áræðið verk frá Hjaltalín“ Enter-4 Hjaltalín Reynir Traustason rt@dv.is Bækur Ég gefst aldrei upp Útgefandi: Salka. 253 blaðsíður. Stjörnulögmaður sendi sms B orghildur Guðmundsdóttir hefur undanfarin ár gengið í gegnum harða forræðisdeilu þar sem hún hefur barist fyrir tveimur sonum sínum. Barátta Borghildar hefur staðið bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Í bók­ inni, sem hún skrifar sjálf, lýsir hún sambúð sinni og bandaríska her­ mannsins Colby. Framan af var sam­ bandið ástríkt en þróaðist síðan út í martröð, samkvæmt lýsingu Borg­ hildar. Það gerðist eftir að Colby snéri heim úr Íraksstríðinu, gjör­ breyttur maður. Borghildur segir sögu sína af lipurð og ágætri stílfimi. Söguþráður­ inn er þétt ofinn og lesand­ anum er haldið við efnið. Æsilegur flótti með synina frá Bandaríkjunum og til Íslands er þannig að mað­ ur lifir sig inn í atburða­ rásina. En Ísland varð henni ekki það skjól sem hún hélt. Colby reyndi að ná drengjunum af henni með fulltingi foreldra sinna. Borghildur varð að fá lögmann til að gæta hagsmuna sinna. Hún fagnaði því mjög þegar frægur lögmaður tók að sér mál hennar. Þetta var svokallaður stjörnulögmaður sem hún af óskilj­ anlegum ástæðum kallar Önund í stað þess að réttnefna Sveinka. Og það var sem óheppnin elti hana á röndum. Lögmaðurinn sinnti mál­ inu illa, ef marka má frásögnina, og setti sig ekki inn í málin. Þá er hann grunaður um að hafa sofnað á fundi með móðurinni. Það fer enda svo að hún tapar forræðismálinu fyr­ ir héraðs dómi og síðar Hæstarétti. „Önundur“ lögmaður hafði ekki fyrir því að hringja eða hitta hana til að segja frá niðurstöðunni heldur sendi henni sms af þeirri tillitssemi sem einkennt hafði sam­ skipti þeirra. Borghildur hrakt­ ist til Bandaríkjanna með syni sína eftir að stjörnulögmaðurinn hafði tapaði málinu. Þar hélt slagurinn við Colby áfram. Væntanlegir lesendur geta lesið um lyktir málsins. Ég gefst aldrei upp er ágætlega skrifuð bók sem rís vel undir því að vera lífsreynslusaga. Þetta er litrík frásögn og enginn svikinn af lestrin­ um. Helsti galli bókarinnar er útlits­ legur. Kápa bókarinnar, daufleg, lit­ laus og illa gerð og ekki til þess fallin að selja. Þeir sem til þekkja vita að til þess að bók nái í gegn á mark­ aði þurfa að fara saman gæði í texta og útliti. Þetta er stærsti galli bók­ arinnar og í rauninni synd þar sem frumraun Borgarhildar er að mörgu leyti vel heppnuð. Ég gefst aldrei upp fær þrjár stjörnur. n Óþarfa áhætta einnig sú að lokasenan hafi átt að koma þeirri túlkun út í salinn að Lenny hafi þekkt örlög sín. Þessi uppstilling er hins vegar allt önnur en í bókinni þar sem George lætur Lenny krjúpa og stillir sér svo upp fyrir aftan hann og skýtur hann í hnakkann af stuttu færi, líkt og um væri að ræða slátrun á særðu dýri eða aftöku. Lenny lítur ekki á George í bókinni, enda er hann fyrir aftan hann, og ekkert bend­ ir til að Lenny hafi vitað að hann væri að fara að deyja. Enda væri það útilokað fyrir Lenny að gruna George um að hann ætli að drepa hann; Lenny hefur einfaldlega ekki andlega burði til þess og hann lítur á George sem verndara sinn. Þá er nándin á milli þeirra miklu meiri vegna þess að George stendur alveg upp við Lenny og hlaup byssunnar nær snert­ ir hnakkann. Sú tilfinning að um miskunnardráp, eiginlega líknar­ dráp, hafi verið að ræða kemst því miklu betur til skila í bók­ inni enda drepur George vin sinn af því honum þykir vænt um hann, kennir í brjósti um hann og vill ekki að hann komist lif­ andi í hendurnar á Curley. Loka­ senan er því ekki eins hjartnæm í leikritinu og í bókinni því George skýtur Lenny á færi. Fyrir vikið gætu einhverjir áhorfendur haldið að George hafi ekki drepið Lenny á þessum „líkn­ andi“ forsendum heldur öðrum verri og að grimmd en ekki óeigin­ gjarnar ástæður hafi legið að baki hjá George þegar hann skaut hann. Þessi breyting á verkinu gerir það að verkum að lokaatriðið er ekki nærri því eins persónulegt og áhrifaríkt og skilur áhorfand­ ann eftir með aðra tilfinningu fyr­ ir verkinu en bókin gerir. Tilfinn­ ing mín fyrir endinum í bókinni er að dráp George á Lenny hafi verið fallegt og miskunnsamt en þessi tilfinning kemur ekki eins sterkt fram í leikritinu. Áleitna spurn­ ingin sem Steinbeck skildi eftir: „Getur manndráp verið réttlætan­ legt og í reynd fallegt á ákveðnum forsendum?“, kemur því ekki eins sterkt upp í hugann í Borgarleik­ húsinu. Er „áhættan“ þess virði? Ég er því ekki viss um að „ áhættan“ sem Jón Páll vísar til við uppsetn­ ingu verksins hafi verið þess virði. Þetta er saga sem ég held að sé best að segja, í öllum aðalatriðum, eins og hún er í bók Steinbecks, sérstaklega þegar kemur að lykil­ atriðum eins og lokasenunni og þeim tilfinningum og hughrif­ um sem höfundurinn vildi skila til lesandans. Annars er búið að breyta eðli sögunnar. Gott er að vera frumlegur og nýjungagjarn, líkt og Jón Páll seg­ ist hafa viljað vera og sem komið hefur vel fram í öðrum sýningum sem hann tengist eins og til dæm­ is með Mindgroup­hópnum, en það er kannski ekki við hæfi að breyta eðli klassískra verka á þeim forsendum að breytingar séu góð­ ar í eðli sínu, eða eitthvað slíkt. Ég fæ ekki séð að breytingarnar sem gerðar eru á verkinu í Borgarleik­ húsinu bæti einhverju við verkið en hins vegar er ljóst að þessar breytingar skapa þau vandamál sem gera það að verkum að leik­ ritið fær ekki allt það lof frá mér sem það annars ætti skilið. n Lenny Ólafs Darra Ólafur Darri ber sýninguna uppi í hlutverki Lennys. Hann sést hér ásamt Hilmari Guðjóns- syni sem leikur George. A ðstæður listmálara sem sel­ ur vel sem veldur því að hann er ekki hátt skrifaður af kollegum og menningar­ páfum er undirlag skáld­ sögunnar Málarans, nýjasta verks hins reynda rithöfundar, Ólafs Gunnars­ sonar. Vinsældirnar grafa þannig und­ an gildi listmálarans sem listamanns, á óréttlátan hátt að eigin mati; hann vill viðurkenningu listheimsins, með­ al annars í formi boðs um að sýna á Kjarvalsstöðum, en ekki einungis viðurkenningu pöpulsins í formi pen­ inga. Og fjölmiðlarnir eru á sama báti og fagmennirnir; blöðin fjalla ekki lengur um sýningarnar hans, sjón­ varpsstöðvarnar sýna í allra mesta lagi örstutta frétt. Og honum finnst hann niðurlægður í sjónvarpsviðtali snemma í sögunni þegar fréttakona spyr listamanninn, Davíð að nafni, út í það álit sumra að landslagsmyndir hans séu hálfgerðar ljósmyndir og lík­ ist helst stórum konfektkassalokum. Davíð er vel stæður, á eiginkonu sem er skarpgreind, gullfalleg og stendur grjóthörð með manni sínum í mótlætinu, átti það jafnvel til að heim­ sækja krítíkera til að hella sér yfir þá þegar Davíð fékk slæma dóma (olía á eld myndi kannski einhver segja). Unglingsdóttirin Sandra elskar föður sinn skilyrðislaust, en ör er á hjóna­ bandinu vegna andláts sonar Dav­ íðs og eiginkonunnar Kolbrúnar, sem drukknaði í drullupolli þegar hann var í umsjá föður síns, fyrir margt löngu. Tengdafaðir Davíðs hefur aldrei fyrir­ gefið honum slysið og hæðist að „list“ hans, hinum endalausu myndum af uppáhaldsmótífinu, Keili. Þegar val­ nefnd Kjarvalsstaða ákveður að setja ekki upp sýningu á verkum hans er eins og eitthvað bresti í sálarlífi Dav­ íðs, hann ákveður að ná sér niðri á nefndinni, falsar í þeim tilgangi Kjar­ valsverk og hefur tiltekinn gjörning í huga í framhaldinu. En auðvitað fer ekki allt eins og ráðgert var, ekki síst vegna aðkomu forríks stórkaupmanns og sonar hans, sem einnig er listmál­ ari en ólíkt Davíð á upp á pallborð kanónunnar. Saga Ólafs gerist um miðjan níunda áratuginn og fléttar hann eitt stærsta þjóðfélagsmál þess tíma, Haf­ skipsmálið, inn í atburðarásina. Ferst honum það ansi vel úr hendi, sama og sagt verður um fléttu sögunn­ ar í heild. Nokkur reyfarabragur er á sögunni (glæpir af ýmsum toga – morð, ofbeldi, falsanir, innbrot – löggur og lögfræðingar, fangelsi og geðdeild, svik og flótti) og má segja að hún dansi á mörkum fagurbók­ mennta og spennusögu. Sem er einmitt vel til fundið í ljósi umfjöll­ unarefnisins, vangaveltan um hvað geri list að list, hvar séu mörkin á milli listaverks sem hefur eitthvað gildi og verks sem er stimplað sem söluvara eða einnota. Davíð segir á fleiri en einum stað að hann hafi látið af sín­ um eigin listrænu kröfum og hrein­ lega málað viljandi undir getu til að selja verkin sín, til að framfleyta fjöl­ skyldunni. Höfundurinn setur þannig einnig fram spurningar á borð við hvort þannig sé málum háttað hjá einhverjum listamönnum, hvort vilj­ andi sé unnið „undir getu“ til að eiga fyrir salti í grautinn. Talandi um hina fljótandi fæðu, graut, þá er vætu víða að finna á síð­ unum. Það rignir mikið, stundum verður vatnið fastara í formi snjó­ korna, sjávarútvegurinn er viðloð­ andi, blóð og málning flæðir og slett­ ist, augu margra verða vot (ýmist af harmi, gleði eða vegna veðurs) og þeir sem ekki búa við sjóinn hafa mýri í heimilisfangi sínu. Afdrifarík setn­ ing inniheldur svo hráka og hland. Og það sem Davíð gerir til að skapa sér og sínum fast land undir fótum verður honum að fótakefli. Málverkin sem hann málar í gríð og erg af upp­ áhaldsmótífinu, fjalli og storknuðu hrauni, eru andstæða við hans fljót­ andi veröld og sjálfsmynd í raun­ heimum. Ólafur stefnir þannig á flott­ an hátt saman hinu stöðuga og hinu fljótandi í lífi Davíðs, þegar allt fer á flot upplifir listmálarinn jafnvel enga stoð í þeim sem áður voru hans stoð og stytta. Listin verður hans eina litla sker í lífsins ólgusjó, því lífið er ekki eins og konfektkassi. n Kristján Hrafn Guðmundsson Bækur Málarinn Höfundur: Ólafur Gunnarsson Útgefandi: JPV 325 blaðsíður. Reyndur rithöfundur Í bók sinni stefnir Ólafur saman hinu stöðuga og hinu fljótandi í lífi aðal sögupersónunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.