Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 51
Óörugg með
eiginmanninn
Fólk 51 Helgarblað 11.–13. janúar 2013
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
K
ántrísöngkonan Miranda
Lambert viðurkennir að
geta orðið óörugg með
eigin manninn, sveitasöngv-
arann og dómarann úr The
Voice, Blake Shelton. Lambert,
sem er 29 ára, og Shelton, sem er
36 ára, þurfa oft að vera aðskil-
in vegna vinnu sinnar. „Einu sinni
hafði ég ekki séð hann í ellefu daga.
Ég gleymdi því aldrei hvað hann var
ánægður að sjá mig. Svo þegar við
fórum á The Voice-settið sögðu all-
ir mér hvað hann hefði talað mikið
um mig. Hann lætur mig alltaf finn-
ast ég sérstök.“
Lambert segir eiginmanninn
ótrúlega kurteisan við aðdáendur
sína. „Hann talar við alla, leyfir öll-
um að taka myndir og skrifar á allt
fyrir alla. Ég verð að stoppa hann á
endanum ef við ætlum okkur að geta
gert eitthvað saman. Ég þarf oft að
vera vondi karlinn.“
n Blake Shelton er of góður við aðdáendur
Sveitasöngvahjón
Hjónakornin hafa bæði
slegið rækilega í gegn í
Bandaríkjunum.
S
amkvæmt slúðurmiðlunum
vestanhafs hafa Kim Kar-
dashian og Kanye West leit-
að sér að stóru húsi handa
fjölskyldunni. Tímaritið
People heldur því fram að verðandi
foreldrarnir hafi þegar fjárfest í villu
í Bel Air fyrir ellefu milljónir dala.
„Húsið er dásamlegt. Alveg eins og
þau dreymdi um. Þau eiga eftir að
geta verið þarna í friði,“ sagði ónefnd-
ur heimildarmaður við tímaritið.
Í villunni er líkamsræktarstöð,
bíósalur, hár- og snyrtistofa, keilu-
salur, körfuboltavöllur og inni- og
útisundlaugar enda dugar ekk-
ert minna fyrir þriggja manna fjöl-
skyldu.
n Kim og Kanye fjárfesta í framtíðarheimili
Fundu draumahúsið
Villa Villan er risa stór
og staðsett í Bel Air.
Leikarinn Matthew McConaug-hey, sem grennti sig töluvert fyr-ir hlutverk sitt í myndinn Dallas
Buyers Club, er nú farinn að bæta á
sig aftur. Í myndinni leikur McCon-
aughey HIV-smitaðan mann og létti
sig um tæp 23 kíló fyrir hlutverkið
sem hann tók greinilega alvarlega en
áður var hann vöðvastæltur og í góðu
formi. Leikarinn sagði að það taki
meira á andlega en líkamlega að létt-
ast svona en hefur nú náð að bæta á
sig um helmingi þeirrar þyngdar sem
hann missti. Aðspurður hvað hafi
verið það fyrsta sem hann borðaði
sagðist hann hafa fengið sér ham-
borgara og notið þess þar sem hann
hafi látið sig dreyma um slíkan mat
meðan á sveltinu stóð.
Meðal annarra leikara í myndinni
má nefna Jennifer Garner og Jared
Leto sem leikur dragdrottningu. Leto
þurfti einnig að grenna sig töluvert
fyrir hlutverkið.
McConaughey
lítur betur út
Gamli góði Matthew McConaughey
farinn að líkjast sjálfum sér aftur.
Mikið á sig lagt Nær óþekkjanlegur
í hlutverki sínu.