Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 6
6 Fréttir 11.–13. janúar 2013 Helgarblað Leki á hjúkr- unarheimili Slökkviliðið á Akureyri var kallað út klukkan fimm á fimmtudags­ morgun vegna mikils vatnsleka í hjúkrunarheimilinu Lögmanns­ hlíð. Á vef Slökkviliðs Akureyrar kemur fram að vatnslögn að brunaslöngu hefði farið í sundur og vatn flætt um eina af fimm álmum hjúkrunarheimilisins sem er um 800 fermetrar að stærð. Slökkviliðsmenn á vakt voru kall­ aðir út ásamt aukamannskap og var ákveðið að loka fyrir vatnsinn­ tak hússins. Í kjölfarið var hafist handa við að hreinsa upp vatnið. Umrætt húsnæði er nýtt og á einni hæð og gólf dúklögð. Íbúar voru sofandi þegar lekinn varð og var þeim bent á að halda kyrru fyrir í rúmum sínum á meðan mesta vatnið var hreinsað upp. Síðan var hafist handa við að flytja íbúa í annan hluta húsnæðisins. Veruleg fjölgun gistinótta Gistinætur á hótelum í nóvem­ ber síðastliðnum voru 115.200 samanborið við 77.600 í nóv­ ember 2011. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti í vikunni. Gistinætur er­ lendra gesta voru um 75 pró­ sent af heildarfjölda gistinátta í nóvember en gistinóttum þeirra fjölgaði um 54 prósent samanborið við nóvem­ ber 2011. Á sama tíma voru gistinætur Íslendinga 33 pró­ sentum fleiri en árið áður. Gistinóttum á hótelum fjölg­ aði í öllum landshlutum nema á Austurlandi. Á höfuðborgar­ svæðinu voru gistinætur 91.300 eða um 52 prósentum fleiri en í nóvember 2011. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 120 prósent, voru 7.300 samanborið við 3.300 í nóvember 2011. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gisti­ nóttum um 43 prósent en þar var fjöldi gistinátta í nóvember 2.100. Á Suðurlandi voru 7.700 gistinætur á hótelum í nóvem­ ber sem er um 17 prósenta aukning samanborið við fyrra ár. Gistinóttum á Suðurnesjum fjölgaði á milli ára um 16 pró­ sent, voru 4.900 samanborið við 4.200 í nóvember 2011. Gistinætur á Austurlandi voru 1.900 í nóvember og fækkaði um fjögur prósent á milli ára. Björn Benti á Baug 2004 Útrásarvíkingar stefna DV n Telja skrif fréttastjóra DV hafa falla undir hatursáróður B akkavararbræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir hafa stefnt fréttastjóra DV, Inga Frey Vilhjálmssyni, vegna meintra ærumeiðandi ummæla um þá sem birtust í leiðara Inga Freys. Það er Sigurður G. Guðjónsson lögmaður sem sækir málið fyr­ ir Bakkavararbræðurna en leiðari Inga Freys birtist í DV 24. október í fyrra og nefnist „Réttlæti er ekki til“. Eftirfarandi ummæli í leiðaranum telja bræðurnir vera ærumeiðandi: „Þetta voru peningar sem þeir höfðu tekið í arð út úr íslenskum hlutafélögum sínum á árunum fyr­ ir hrunið.“ „Bakkabræður halda hins vegar arðgreiðslum upp á milljarða sem þeir tóku út úr eignarhaldsfélaginu sem þarf að afskrifa 22 milljarða hjá.“ „Arðgreiðslurnar byggðu því á blekkingum.“ „Þau uppkaup kunna að vera fjár­ mögnuð með arðgreiðslunum sem þeir tóku út úr íslenska hagkerfinu á árunum fyrir hrunið.“ Bakkavararbræður fara fram á að Ingi Freyr og DV ehf., verði dæmt til að greiða þeim 800 þúsund krónur til að kosta birtingu dóms í málinu auk málskostnaðar. Í stefnunni er að finna vísi að prófmáli fyrir íslenska fjölmiðla því Bakkavararbræður halda því fram að skrif Inga Freys séu ætluð til að „kynda undir andúð í garð þeirra vegna þátttöku í atvinnurekstri og atvinnuuppbyggingu hér á landi einkum eftir einkavæðingu ríkis­ bankanna tveggja, Landsbanka Ís­ lands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf.“ líkt og segir í stefnunni og vísað í lög um fjölmiðla þar sem segir að hatursáróður sé bannaður í fjöl­ miðlum. n Ósáttir Bakkavararbræður krefjast þess að Ingi Freyr og DV ehf. verði dæmt til að greiða 800 þúsund krónur til að kosta birtingu dómsins. n Starfsmaður FME sagði Baug hafa fengið of há lán 2004 en FME gerði ekkert Þ áverandi starfsmaður Fjár­ málaeftirlitsins, Björn Jó­ hannesson, komst að þeirri niðurstöðu árið 2004 að Kaupþing hefði lánað Baugi og tengdum félögum 67,5 prósent af eiginfjárgrunni bankans. Heim­ ilar lánveitingar til einstaka félaga­ hópa út úr íslensku bönkunum fyrir hrun námu 25 prósentum af eiginfjár­ grunni. Baugur, og tengd félög, voru því strax árið 2004 búinn að fá lán­ að sem nam þrefalt hærri upphæð hjá Kaupþingi en félagið mátti lögum samkvæmt. Björn vann sams kon­ ar greiningu um Landsbankann og komst að því að Baugur hefði feng­ ið lánað sem nam 44,4 prósentum af eiginfjárgrunni bankans. Þetta kemur fram í skýrslu rann­ sóknarnefndar Alþingis en Björn, sem í dag starfar sem framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtækisins Arev, er ekki nafngreindur í henni. DV hefur hins vegar heimildir fyrir því að Björn sé umræddur starfsmaður. Í skýrslu Björns kom fram að ástæðan fyrir því að þessi niðurstaða um of miklar áhættuskuldbindingar Baugs hjá þessum félögum hafi ekki legið fyrir hafi verið sú að Kaupþing og Landsbankinn hafi ekki „tengt stórar áhættuskuldbindingar saman á réttan hátt,“ meðal annars Baug og tengd félög. DV hafði samband við Björn og hann staðfesti að hann væri umrædd­ ur starfsmaður. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið. FME gerði ekki neitt Þrátt fyrir þessar niðurstöður Björns gerði Fjármálaeftirlitið ekki neitt gagnvart bönkunum í kjölfar þeirra, líkt og segir í skýrslu rann­ sóknarnefndarinnar: „Áðurgreindum málum var hvorki fylgt eftir gagnvart Kaupþingi banka né Landsbankan­ um af hálfu Fjármálaeftirlitsins með viðeigandi valdheimildum.“ Strax árið 2004 vissi Fjármálaeftirlitið því að Baugur og tengd félög voru búin að fá allt of há lán í þessum tveimur bönkum en gerði ekkert í því; með kaupum FL Group á Glitni á vor­ mánuðum 2007 jukust svo verulega skuldbindingar Baugs og tengdra að­ ila hjá þeim banka. Starfsmaðurinn hætti Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar kemur fram að Björn hafi hætt hjá Fjármálaeftirlitinu skömmu eftir að hann vann þessu greiningu á stór­ um áhættuskuldbindingum Baugs og tengdra félaga. Árið 2005 söðl­ aði Björn um og var ráðinn til verð­ bréfafyrirtækisins Arev þar sem hann gegnir starfi framkvæmdastjóra um þessar mundir. Í skýrslunni segir að eftir að Björn hætti hafi enginn starfsmaður Fjár­ málaeftirlitsins haft eftirlit með stór­ um áhættuskuldbindingum einstakra skuldara í bönkunum þar til árið 2007. „Samkvæmt þeim gögnum sem rann­ sóknarnefnd Alþingis hefur undir höndum virðist þessi vinna hafa fallið niður eftir að þessi starfsmaður hætti hjá Fjármálaeftirlitinu og var hún ekki tekin upp aftur fyrr en síðla árs 2007, um tveimur árum eftir að Jónas Fr. Jónsson tekur við stöðu forstjóra Fjár­ málaeftirlitsins.“ Fjármálaeftirlitið missti því öfl­ ugan starfsmann yfir til fjármálafyrir­ tækis; starfsmann sem hafði strax árið 2004 komist að þeirri niðurstöðu að Baugur væri búinn að fá allt of há lán í tveimur bönkum. Í rannsóknarskýrsl­ unni er rakið hvernig þetta var einmitt stórt vandamál hjá Fjármálaeftirlitinu fyrir hrunið 2008. Mikil starfsmanna­ velta var hjá Fjármálaeftirlitinu og missti hún margra starfsmenn yfir til einkaaðila, sérstaklega fjármálafyrir­ tækja. DV hefur einnig traustar heimildir fyrir því að fjárfestingarfélaginu Mile­ stone hafi berið bent á Björn sem afar hæfan starfsmann árið 2005, þegar fé­ lagið var á höttunum eftir nýju starfs­ fólki, en á endanum var það Arev sem réð hann. Vinnan dróst á langinn Í skýrslu sinni hjá rannsóknarnefnd Alþingis sagði Jónas Fr. Jónsson, fyrr­ verandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, að hann hefði strax og hann tók við starfi sínu árið 2005 sett í gang vinnu við að fylgjast með of stórum áhættu­ skuldbindingum í bönkunum. Hins vegar hafi dregist að þessi vinna yrði „effektív“: „Ég verð var við þessa hluti um stórar áhættuskuldbindingar, þetta sé atriði sem skipti máli, at­ riði sem þurfi að taka á á markaðn­ um, og ég byrja strax að ræða það, ég byrja strax að setja vinnu í gang en því miður, þá kannski verður hún ekki effektív fyrr en við förum í þessa út­ lánaskoðun 2007.“ Niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis um viðbrögð Fjármála­ eftirlitsins við greiningu Björns er sú að stofnunin hefði átt að bregðast við og nýta valdheimildir sínar til að knýja á um að áhættuskuldbindingar Baugs og tengdra aðila yrðu minnk­ aðar í Kaupþingi og Landsbankanum. „Rannsóknarnefndin lítur svo á að þær athugasemdir sem ofangreindur starfsmaður kom fram með árið 2004 hafi verið mjög mikilvægar og gefið Fjármálaeftirlitinu tilefni til að rann­ saka fjárhagsleg tengsl ofangreindra aðila til hlítar og eftir atvikum grípa til viðeigandi valdheimilda.“ n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Áðurgreindum málum var hvorki fylgt eftir gagnvart Kaup- þingi banka né Lands- bankanum af hálfu Fjár- málaeftirlitsins með viðeigandi valdheimildum. Baugur var 67,5 prósent af eiginfjárgrunninum Strax árið 2004 benti starfsmaður Fjármálaeftirlitsins, Björn Jóhannesson, á að Baugur og tengd félög hefðu fengið of há lán hjá Kaupþingi og Landsbankanum. Jón Ásgeir sést hér við þingfestingu Aurum-málsins í vikunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.